Morgunblaðið - 21.06.2000, Qupperneq 10
10 E MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
netið
Matt Damon Ijær aðalsöguhetju TITANA.E. röddsína, sem fjallarum leitjarðarbúa aðnýjum íverustað. Við gerö myndarinnar TITAN A.E var starfræn tækni höfð í hávegum.
Teknísk teiknimynd
ölvulyrirtækið Cisco,
www.cisco.com, og kvikmynda-
framleiðandinn Twentieth Cent-
ury Fox, www.fox.com, tóku
höndum saman erteiknimyndin
varflutt með stafrænum hætti
yfir Netið, frá höfuöstöðvum
kvikmyndafyrirtækisins T Los
Angeles til Atlanta, þar sem hún var sýnd á
verslunarsýningu Supercomm, en þarfengu
áhorfendur að sjá fyrstu stafrænu kvikmynda-
sýninguna í sögunni.Ýtrustu varkárni vargætt
við flutning myndarinnar, sem fram fór í upphafi
mánaðarins, en notaðurvartækjabúnaðurfrá
Cisco; meðal annars búnaður sem beindi um-
ferðinni á allt að 40 megabitum á sekúndu yfir
Kvikmyndir eru ekki
lengurteknarupp á
filmureinvöröungu. Þaö
á viö _um tölvu-
myndinanTANA.E,
sem byggist á staf-
rænm tækni og
varflutt í heild sinni yfir
Netiö milli ríkja í
Bandaríkjunum.
háhraðanet og öryggisbúnaður sem hafði yfir að
ráða eldveggog vélbúnaði með þrefaldri DES-
dulritun. Flutningurinn gekk vel og voru for-
svarsmenn fýrirtækjanna ánægðir meö hvernig
til tókst. Sögðu þeir að tæknin væri til staðartil
þess að búa til fleiri stafrænar myndir ogjafn-
framt að Netið væri góður vettvangur til þess að
senda myndir ríkja á milli.
Geimverur leggja jörðina í eyði
Söguþráöur kvikmyndarinnarTITAN, http;//
www.afterearth.com/home.html, ergamal-
kunnur; gerist í framtíðinni, í kjölfar þess að
geimverur hafa eyttjörðinni. Ungurmaður, Cale,
kemst yfir kort sem á að leiða hann að geim-
skipinu Titan, en þarbúa þeirsem lifðu af ham-
farirnar á jörðinni. Jafnframt hefur kortið að
geyma uppiýsingaryfir nýjan dvalarstaðjarö-
arbúa. Sá galli er á gjöf Njarðar að geimverunum
er ekkert um það gefið að Cale haldi í þessa för
og vilja hann feigan. Kvikmyndin TITAN var
frumsýnd í Bandaríkjunum 16. júní ogvar lítttil
hennar sparað. Er myndin sögð fulltrúi nýrrar
kynslóðarteikni/tölvumynda en tyrirtækið beitti
stafrænni tækni sem ekki er sögð hafa sést fyrr.
Framleiöendur Fox hafa fengið fræga leikara
til þess að Ijá persónum myndarinnar rödd sína,
en Matt Damon Ijær Cale rödd sína, en aðrir
leikarar sem koma viö sögu eru: Drew Barry-
more, Bill Pullman, Nathan Lane og John Legu-
izamo. TITAN verðurfrumsýnd hérá landi um
miðjan september.
Fékk
flugu í
höfuðið
Búið er að opna vef, flugur.is,
sem er sérstaklega ætlaður
áhugafólki um fluguveiði. Á vefn-
um er þegar aö finna nærri 100
pistla um veiðiskap og annað
efni ertengist íþróttinni. Megnið
af efni vefjarins er opiö, en nokkr-
ar ítargreinar og annað slíkt fæst
sent beint í tölvunotenda er gegn
vægri greiðslu. Áhugasamirgeta
skráð sigí netklúbb. Meðal
hlunninda er að þeir fá sent
LIÐ-A-MÓT
ÍKHJU
Miklu sterkara fyrir liða-
mótin og líka miklu ódýrara
APÓTEKIN
tvær, en það var ekki fyrr en í vet-
ur sem ég fékk þá hugmynd að
búa til vef þar sem þetta efni yrði
uppistaöan. Það sem máli skipti
var að ég átti allt grunnefni og því
ekki erfitt að uppfæra það, skrifa
upp á nýtt og laga að gagnvirkum
vef. “
Hann segir kostnaöinn við upp-
setningu vefjarins nema einu bíl-
verði og segir spennandi að sjá
hver viðbrögðin veröa. Hann nefn-
ir aö fluguveiðimenn, sem séu í
allt nálægt 20 þúsund, muni ugg-
laust nýta sér þaö sem vefurinn
hefurfram að færa. „Hugsun mín
er sú að þetta sé lifandi miðill,
gagnvirkur, og auðvelt sé fyrir
notanda að snlða hann að þörf-
um sínum. Þess vegna eru ólík
þjónustustig fyrir notendur. Þetta
er einmitt sú hugsun sem ég held
að muni færast í vöxt með vefinn:
aö hann sé markvisst notaöur fyr-
ir þarfasniöna þjónustu, og þjón-
ustustig geti verið breytilegt eftir
óskum notenda hverju sinni."
Morgunblaðiö /Amaldur
Stefán Jón Hafstein segirað vefurinn eigi að vera lifandi oggagnvirkur.
fréttabréf vikulega í tölvupósti,
sérstök tilboð og njóta ráðgjafar-
þjónustu eftir því sem föng eru á.
Áskrift að fréttablaöinu kostar 99
kr. á viku og er annað innifalið.
Þá verða flugurtil sölu á vefn-
um sem og upplýsingar um mat-
seld svo dæmi séu tekin. Stefán
Jón Hafstein, sem er ritstjóri vefj-
arins, segir það aö mörgu leyti
spennandi að sjá hvernig tekst til
því hann telji sig vera að ryðja
nýja braut og búa til gangvirkan
fjölmiðil sem sé sniðinn fyrir sér-
valinn hóp. Um ástæöur jóess að
hann hóf að búa til vef sem þenn-
an segir Stefán Jón að hann
heföi um árabil skrifað pistla í
dagblöö og haldið fyrirlestra um
fluguveiði og sífellt fengið fyrir-
spurnir um hvort ekki væri hægt
að birta þetta efni á einum stað.
„Ég hugaði að gefa þetta út á
bók, sem þá hefðu líklega oröið
Allir heillast af Nettengd
Blátönninni PlayStation
Fjarskiptafyrirtæklð Motorola hefur í samvinnu
vlð tölvufyrirtækin IBM og Toshiba unnið að þróun
þráðlausar samskiptatækni sem nefnist Blátönn
(Bluetooth), sem er heyrnartól sem getur tengst
farsíma, lófatötvum og stærri tölvum með útvarps-
tækni og gerir kleift að flytja bæði gögn og rödd.
Útvarpsbylgjurnar eru á 2,4 GHz-tíðnisviðínu, en
búnaðurinn leitar uppi hrelna rás innan sviðsins
og stillir sig eftir því sem truflanir krefjast. Flutn-
ingsgeta er talsvert meiri en innrauðra tenginga
og er sem stendur áætluð um 720 Kbitar á sek-
úndu. Fulltrúar Motorola segja að þróunin felist
ekki síst í því að búa tii tækni sem hægt verði að
nota við tölvur og jaðartæki, eins og prentara. Er
þessi búnaður sagður tilbúinn á markað í upphafi
næsta árs. Þá hefur fyrirtækið unnið að gerð Blá-
tannar-búnaðar, sem gefur ökumönnum færi á að
flytja símtöl milli farsíma og bílasíma. Sænska
fjarskiptafyrirtækið Ericsson og fleiri fjarskiptafyr-
irtæki hafa þegar kynnt sína útgáfu af Blátönn,
sem er nefnt eftir Haraldi blátönn Danakonungi.
Sony-Tyrirtækið hefur kynnt til leiks nýja útgáfu af
32-bita PlayStation-vélinni. Fjölmargar breytingar
hafa veriö geröar á vélinni, sem er nokkkurs konar
fartölva og fer í sölu í Bandaríkjunum og Evrópu t
haust. Má nefna að hægt er að tengja vélina við
Netið oggefur notendum færi á að hlaða viðbót-
um og skiptast á upplýsingum við aðra notendur.
Þá er hægt að tengja hana við 12 volta kerfi bíla.
Forsvarsmenn Sony
gera sérvonirum að
vélin fái jafn góðar við-
tökur og fyrri útgáfa af
vélinni, sem hefur
selstTum 70 milljón-
um eintaka frá því
að hún kom fyrst
á markað.
Áhorfendur
velja
söguþráðinn
Gagnvirkni virðist lykilorðið
hvort sem það er í sjón-
varpi eða kvikmyndum. Nú
hafa framleiðendur kvik-
myndarinnar „Running
Time“ ákveðið að gefa
áhorfendum tækifæri til að
ákvarða örlög söguhetj-
anna í myndinni og sögu-
þráð myndarinnar. Þegar
hafa verið sýndir fjórir hlut-
ar úr myndínni, sem er á
slóðinni www.itsyourmov-
ie.com, en sá fimmti er
væntanlegur. Hefur síðan
fengið yfir 1,5 milljónir
heimsókna.
Kænumálin
ganga á víxl
hjá Napsten
Þaö er engin lognmolla T
kringum Napster, sem fram-
leiðir forrit sem leitar af
tónlist sem er ókeypis á
Netinu, og kærumálin ganga
á víxl. Nú hefur söngkonan
Madonna hótað Napster öllu
illu því lag, sem heitir „Mus-
ic“, sem hún hugðist gefa út
í haust er komið á Netiö og
hægt að finna meö Napster-
forritinu. Þá hefur Napster
íhugað að höfða mál gegn
hljómsveitinni Offspring,
sem hefur selt Napster-
vörur á heimasíðunni sinni.
Vill fyrirtækiö vernda sitt
vörumerki og segir að að
öðrum kosti muni fleiri feta í
fótspor Offspring.