Morgunblaðið - 22.06.2000, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
lW$rr|pínM$r&i®r
c
2000
FIMMTUDAGUR 22. JUNI
BLAO
Shearer
hættur
ALAN Shearer fyrirliði Englendinga tilkynnti
á blaðamannafundi í gær að hann væri hættur
að leika með landsliðinu. Hinn 29 ára fram-
heiji - hefur leikið 63 leiki og skorað 30 mörk,
lék sinn síðasta leik gegn Rúmeníu, sem Eng-
lendingar töpuðu á EM, 3:2.
„Eg er endanlega hættur og byrja ekki aft-
ur með landsliðinu. Ég vil einbeita mér að því
að eyða meiri tíma með fjölskyldunni og að
standa mig vel hjá Newcastle. Ég tel að ég hafi
hætt af réttum ástæðum og er mjög stoltur af
landsliðsferli mmum,“ sagði Shearer, sem var
þ<5 svekktur að enda á tapi. „Vandræðin lágu
ekki í lélegum anda eða neitt slíkt. Leikmenn-
imir lögðu sig hundrað prósent fram en það
var ekki nóg. Við ieikmennirnir verðum að
taka ábyrgðina á lélegu gengi,“ sagði Shearer.
Ragnheið-
ur samdi
við Bryne
RAGNHEIÐUR Stephensen, landsliðskona í handknattleik og
leikmaður Stjörnunnar til margra ára, skrifaði í vikunni undir eins
árs samning við norska handknattleiksliðið Bryne.
Ragnheiður kom heim frá Nor-
egi í fyrradag eftir vikudvöl
en forráðamenn félagsins vildu sjá
hana á æfingum áður en þeir skrif-
uðu undir samninginn.
„Mér leist vel á félagið og ég
held að það sé ekki spurning að
það er þess virði að prófa þetta.
Mér fannst vera kominn tími til að
breyta og ég er auðvitað spennt að
takast á við þetta verkefni,“ sagði
Ragnheiður í samtali við Morgun-
blaðið í gær en hún heldur alfarið
utan þann 8. ágúst. Ragnheiður
hefur um árabil verið ein besta
handknattleikskona landsins en
hún hefur leikið allan sinn feril með
Stjörnunni.
Bryne vann sér sæti í úrvals-
deildinni á næstu leiktíð en liðið
sigraði í 1. deildinni í vetur. Islend-
ingar hafa komið við sögu hjá liðinu
áður. Selfyssingurinn Einar Guð-
mundsson þjálfaði Bryne í nokkur
ár og þær Helga Torfadóttir, mark-
vörður Víkings, og Hrafnhildur
Skúladóttir, skytta úr FH, léku
með liðinu undir stjóm Einars.
Judit Esztergal til FH
JUDIT Rán Esztergal handknattleikskona er gengin til liðs við FH.
Jafnhliða því að leikameð FH-liðinu hefur hún verið ráðin aðstoð-
arþjálfari félagsins. Á síðustu leiktíð þjálfaði hún lið Hauka ásamt
Svövu Ýri Baldvinsdóttur, en þær létu af störfum hjá félaginu þeg-
ar Iangt var liðið á deildarkeppnina.
Þórdís og Prífa
fara til Sola
órdís Brynjólfsdóttir og Drífa
Skúladóttir, tveir af bestu
leikmönnunum í handknattleiksliði
FH, munu ganga til liðs við norska
úrvalsdeildarliðið Sola á næstunni.
„Samningurinn er nánast klár og
bíður aðeins undirskriftar. Ég veit
að félögin eiga eftir að gera upp
sín á milli en ef allt gengur upp
reikna ég með að við förum út í
byrjun ágúst,“ sagði Þórdís í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
Sola á eftir að ganga frá samn-
ingum við FH en þær Þórdís og
Drífa eru samningsbundnar Hafn-
arfjarðarliðinu.
Nýlega birtist í fréttum í norsk-
um dagblöðum að fjárhagsstaða
Sola væri mjög veik og svo gæti
farið að liðið yrði dæmt gjaldþrota.
Á síðustu stundu tókst forráða-
mönnum félagsins að finna stuð-
ningsaðila og því horfir betur við í
fjármálum félagsins. Sola varð í 9.
sæti af 12 liðum í úrvalsdeildinni
og nýlega var Kjetil Ellertsen ráð-
inn þjálfari félagsins, en hann varð
sem kunnugt er íslandsmeistari
með Haukum í vor. Ellertsen er
ætlað að byggja upp nýtt lið og er
stefna félagsins að komast í
fremstu röð eftir fjögur ár.
Hrafnhildur í barnseignarfrí
Ljóst er að FH-liðið verður fyrir
meiri blóðtöku fyrir næstu leiktíð
því Hrafnhildur Skúladóttir, aðal-
skytta liðsins og eldri systir Drífu,
verður ekkert með fyrr en í fyrsta
lagi í febrúar. Ástæðan er sú að
hún gengur með barn og á von á
sér í desember.
Pétur þjálfar
lið Vals/Fjölnis
Pétur Guðmundsson, einn þekkt-
asti körfuknattleiksmaður
landsins, hefur verið ráðinn þjálfari
úrvalsdeildai’liðs Vals/Fjölnis í
körfuknattleik. Eins og fram hefur
komið hafa staðið yfir samningavið-
ræður á milli Vals og Fjölnis um
sameiningu félaganna og hefur verið
ákveðið að þau sendi sameinað lið til
leiks í úrvalsdeildinni á næsta tíma-
bili þar sem leikið verður undir
merkjum Vals.
„Það er bara mjög gaman að vera
kominn aftur inn í körfuboltann hér
heima. Það er spennandi tími fram-
undan hjá Val og Fjölni og menn eru
búnir að vinna vel að þessari samein-
ingu. Það er góður stuðningur sem
Valur fær frá Fjölni og þetta gerir
okkur kleift að byggja upp gott lið og
virkja yngri leikmenn félaganna.
Valur er að koma upp að nýju í úr-
valsdeildina svo fyrsta árið verður
aðalmálið að halda liðinu í deildinni,“
sagði Pétur í samtali við Morgun-
blaðið í gær. Pétur er 41 árs gamall
og aðspurður hvort hann ætlaði að
spila með lærisveinum sínum sagðist
hann ekki hafa liðamót 1 það lengur.
Pétur er eini íslendingurinn sem
leikið hefur í NBA-deildinni - lék
með Portland og nýkrýndum meist-
urum Los Angles Lakers á árum áð-
ur. Hann hefur verið búsettur í
Bandaríkjunum meira og minna síð-
ustu 25 ár. Hann lék síðast hér með
Breiðabliki tímabilið 1992-93 og var
spilandi þjálfari ÍR veturinn 1983-84.
ÞÝSK KNATTSPYRNA GETUR EKKISOKKIÐ DÝPRA/C4