Morgunblaðið - 30.06.2000, Blaðsíða 1
■ NÝJAR ÁHERSLUR í LÍKAMSRÆKT/2 ■ RÓTAP I HAUGNUM Á ÞING-
VÖLLUM/3 ■ ALÞJÓÐLEG FATAHÖNNUNARSÝNING/4-5 ■ EINMANA-
LEIKI í LÍFI UNGMENNA/6-7 ■ BRÁÐAKEISARAAÐGERÐIR/8 ■
Doppótti
draumiiririn lifnar við
DOPPÓTT föt voru í aðalhlutverki í tískusýningum er-
lendra hönnuða fyrir sumarið. Bandaríski hönnuðurinn
Ralph Lauren hélt sig við doppur í hefðbundnari kantin-
um. Hann sýndi hvít pils með bláum doppum og einnig
dökkbláar buxur og toppa með litlum, hvítum doppum.
Dolce & Gabbana fóru heldur óhefðbundnari leiðir en
doppurnar þeiira voru á stærð við appelsínur. ítalska
tískudrottningin Miuccia Prada, sem oftast hefur verið
kennd við stílhreina naumhyggju, hefur látið hafa eftir sér
að í sumar sé nauðsynlegt að fjárfesta í doppóttum flíkum.
Fjórir áratugir eru liðnir síðan að Bandaríkjamaðurinn
Brian Hyland sló í gegn með lagið um pinkulítið, gult og
doppótt bikiní. „Itsy bitsy teenie weenie yellow polka dot
bikini“ náði toppnum árið 1960.
í fljótu bragði virðast doppur á fötum ekkert eiga skylt
við dansinn polka. Samt sem áður er það svo að á ensku
eru doppurnar kenndar við polka. Ástæðan tengist vin-
sældum dansins í Bandaríkjunum á næstsíðasta áratug
nítjándu aldar. Polkinn var mjög vinsæll en það leiddi til
þess að framleiðendur vildu tengja vörur sínar við hann.
Framleiddir voru m.a. polkahattar og polkagardínubönd.
Doppumar eru þó eini hluturinn sem staðist hefur tímans
tönn og enn er kenndur við polka.
Samkvæmt þessu ættu dalmatíuhundar að vera í tísku
núna enda er hvítur feldur þeirra ávallt mikið skreyttur
svörtum doppum. Hin illgjarna Grimmhildur Grámann úr
Disney myndinni 101 Dulnmtíuhundur er mjög hrifin af
doppum. Hún safnaði til sín dalmatíuhundum í þeim til-
gangi að nýta feld þeirra.
Nú er bara að vona að tískan sé ekki búin að ná það
miklum tökum á almenningi að það verði að vana að búa til
pels úr litlum, sætum hvolpum líkt og hún Grimmhildur
vildi gera.
í þetta skiptið þykir frekar ólíklegt að doppóttir pelsar
nái vinsældum því að doppurnar þykja betri fyrir sumar-
klæðnaðinn. Sem dæmi má nefna eru doppótt bikiní sér-
lega vinsæl enda þykja þau frekar sígild.
Allir ættu að geta fundið doppur við sitt hæfi í sumar.
Þeir sem vilja ekki vera of áberandi geta klæðst fötum í
hefðbundnum litum með reglulegu doppumynstri. Hinir
djarfari ættu að velja stærri doppur og halda sig við
óregluleg mynstur. Bleikar, gular eða bláar doppur á
stærð við matardiska geta lífgað mjög upp á svartan kjól.
Settu punktinn yfir i-ið í sumar með doppóttri flík!
Morgunblaðið/Arnaldur
Allir ættu að geta fundið doppur við sitt hæfi í sumar. Inga Cristina
Campos, Gallerí Sautján stelpan, er hér í nýtískulegum doppðttum kjdl
frá samnefndri verslun.
dalma-
tíuhund-
séu í
tísku?
Sígildar
doppur í Pa-
rísarsýningu
Torrente
fyrir vor/
sumar 2000.
Amerísku heilsudýnumar
J 'ZmJ J J
HEILSUDÝNURNAR
Verðdcemi
Qúropractic eða
fdsco Medicott
Queen 89.900.
King 119.900
Visco-Medicntt
90 cm m/Rafmagnsbotni
87.900.
Visco-Medicott
90 cm m/botni
54.400.
Ein viðurkenndasta heilsudýna í heimi
Ein mest seida heilsudýna á landinu
Chinpmctic
Nýtt cfni sem upphaflcga var p'rÉÍ Ijnt
NASA sem mótvægi á þeim þrýstingi sem
geimfarar vería fyrir við geimskol.
eru einu heilsudýnumar sem
eru þróaðar og viðurkendar af amerísku
og kanadísku kírópraktorasamtökunum.
Yfir 32 þúsund kírópractorar mæla því
með Chiropmctic þar á meðal þeir íslensku.
Vöfðabóiga
Liðagikt
Kviðsiit
Bakverkír
^EIUSUNNAB
REYKJAVÍK
AKUREYRI
Svefn&heilsa
Listhúsinu Laugardai, sími 581 2233 • Dalsbraut 1, Akureyri, sími 461 1150 ■ www.svefnogheilsa.is