Morgunblaðið - 04.07.2000, Síða 5

Morgunblaðið - 04.07.2000, Síða 5
4 B ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2000__________________________________________MORGUNBLAÐIS KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 2000 B 5 _ KNATTSPYRNA FOLK Frakkar Evrópumeistarar eftir ævintýralegan úrslitaleik Gullmark í MROBERT Pires, landsliðsmaður Frakka í knattspymu sem leikið hefur með Marseille, hefur ákveðið að ganga í raðir Arsenal. Pires, sem lagði upp sigurmark Frakka í úr- slitaleilmum gegn ftölum í fyrra- kvöld, hittir fyrir nokkra félaga sína í franska landsliðinu en þeir Thier- ry Henry, Patrick Vieira og Emm- anuel Petit leika allir með Lund- únaliðinu. ■ PATRICK Vieira mun setjast niður með forráðamönnum Arsenal þegar mesta sigurvíman er runnin af honum og ræða um nýjan 5 ára samning við Arsenal. Fregnir hafa borist um að Vieira muni fá 5,5 milljón krónur í laun á viku og hann verði þar með launahæsti leikmaður liðsins. Vieira, sem er 24 ára gamall, lék mjög vel með Frökkum á Evrópumótinu og heyrst hefur að stórlið eins og Real Madrid, Inter Milan og Barcelona hafi borið víumar í leikmanninn. ■ DA VID Beckham, leikmaður Manchester United og enska landsliðsins, segist hafa mikinn áhuga á að verða fyrlrliði enska landsliðsins í stað Alan Shearers sem hefúr lagt landsleikjaskóna á hilluna. „Það hefur alltaf verið draumur minn að vera fyrirliði í því liði sem ég spila með,“ segir Beck- ham. ■ EVERTON gengur í vikunni frá kaupum á Steve Watson, leikmanni Aston Villa. Everton greiðir 280 milijónir króna fyrir þennan 26 ára gamla vamarmann sem lék með Newcastle áður en hann gekk í raðir Aston Villa. ■ S-AFRÍKA er komin í efsta sæti hjá veðbönkum um að fá að halda heimsmeistaramótið í knattspymu árið 2006. Líkumar hjá William Hill veðbankanum að S-Afríka hreppi hnossið era 10 á móti 11. England er í öðru sæti með líkumar 5 á móti 2 og Þýskaland í þriðja sæti með lík- umar3ámótil. ■ BRASILÍUMENN hafa dregið umsókn sína um að fá að halda HM 2006 í knattspymu til baka. Þar með era fjórar þjóðir sem kemur til greina að haldi keppnina, S-Afríka, Þýskaland, Engiand og Marokkó. Stjóm alþjóða knattspymusam- bandsins mun tilkynna á fimmtudag hvaða þjóð fær keppnishaldið. ■ LARS Tjærnás, sem var þjálfari enska liðsins Wimbledon meðan Eg- il Olsen var þar knattspymustjóri í vetur, var um helgina ráðinn þjálfari norska 1. deildarliðsins Hönefoss. Með því félagi leikur Guðni Rúnar Helgason, sem fór þangað frá ÍBV í vor, en Hönefoss er illa statt við botn 1. deildarinnar og þjálfarinn var látinn fjúka fyrir helgi. MBRUNO N’Gotty, knattspymu- maður sem leikið hefur með AC Mil- an á Ítalíu, hefur ákveðið að ganga í raðir Marseille. N’Gotty er miðvall- arleikmaður sem leikið hefur sex landsleiki fyrir Frakkland, en hann lék með liði Paris SG áður en hann fór til AC Milan. ■ DIEGO Alonso, framherji lands- liðs tírúgvæ hefur gengið tO liðs við spænska félagið Valencia. Alonso hefur undanfarin misseri leikið með Gimnastia y Esgrima de la Plata í Argentínu. Rotterdam FRAKKAR sneru á sunnudag nánast öruggu tapi upp í sigur með ævintýralegu jöfnunarmarki í blálokin gegn ítölum. David Trezegu- et skoraði svo úrslitamarkið í framlengingu og tryggði þar með Frökkum Evrópumeistaratitilinn. Frakkar eru því í hópi aðeins tveggja liða sem hafa orðið bæði Evrópu- og heimsmeistarar. Hin þjóðin er V-Þýskaland en V-Þjóðverjar urðu Evrópumeistarar árið 1972 og síðan heimsmeistarar 1974. Irís B. Eysteinsdóttir skrífar Italir beittu bragði sem næstum virkaði gegn Frökkum á sunnu- dag. í stað þess að beita stífum varn- arleik eins og í hin- um leikjum keppn- innar hófu þeir leikinn með áköfum sóknarleik. Það kom Frökkum nokkuð í opna skjöldu og það tók dálítinn tíma fyrir þá að átta sig á að þeir þyrftu einnig að verjast ætluðu þeir sér að vinna leikinn. Það vora töfrar ítala sem sköpuðu fyrsta mark leiksins. Totti sendi boltann með hælnum á Gianluca Pessotto, sem sendi boltann á Del- vecchio, sem skoraði örugglega framhjá Fabian Barthez á 56. mín- útu. Markið kom Frökkum á óvart og tóku þeir að sækja af miklu afli eftir það. Hvorki gekk né rak þó í sóknarlotum þeirra og urðu því stjömuleikmenn eins og Zinedine Zidane og Marcel Desailly pirraðir við mótlætið. Italir bökkuðu talsvert eftir mark- ið og freistuðu þess að halda fengn- um hlut. Þeir fengu þó tvö frábær tækifæri til að gera út um leikinn. Bæði féllu í skaut varamannsins Al- essandros Del Piero þar sem hann skaut fyrst framhjá en Barthez vai’ði hið síðara. Hefði Del Piero skorað, hefðu ítalir nær öragglega fagnað titli. Varamennirnir gerðu gæfumuninn Þegar öll von virtist úti fyrir Frakka gerði Roger Lemerre þjálf- ari liðsins breytingar á liðinu, sem áttu eftir að gera gæfumuninn. Allir þrír varamennirnir hjálpuðu til við mörkin. Þegar leikklukkan sýndi 93 mínút- ur og 20 sekúndur skoraði Sylvain Wiltord. Barthez sendi háa sendingu fram völlinn sem Trezeguet skallaði til Wiltord á vinstri kantinum. Cannavaro hefði getað skallað frá en þess í stað fór boltinn rakleiðis til Wiltord sem tók nokkrar snertingar og skaut síðan lágum bolta í hornið fjær. Frábær markvörður Itala, Francesco Toldo, var með hendur á knettinum en náði ekki að verja. Þetta ævintýralega mark jafnaði leikinn og færði áhorfendum skemmtilega framlengingu. Bæði lið sóttu stíft þrátt fyrir að mikið væri í húfi. Það var síðan Trezeguet sem skoraði sigurmarkið eftir frábæra sendingu frá Robert Pires eftir 13 mínútna leik í fram- lengingu. Trezeguet dúndraði bolt- anum í bláhomið, sem var óverjandi fyrir Toldo. Fögnuður Frakka var ógurlegur því með þessu gullmarki endaði leik- urinn. Frakkar voru þar með fyrstu ríkjandi heimsmeistararnir til að vinna Evrópumeistaratitil. Kraftaverkið kom „Við höfum unga leikmenn í liðinu sem eru stórkostlegir knattspyrnu- menn. Eg er feginn að hafa valið þá í liðið og ánægður með að þeir hafi unnið titilinn fyrir okkur,“ sagði Lemerre í geðshræringu eftir leik- inn. „Ég ákvað að hefja leikinn með hershöfðingjana mína en þegar þeir þreyttust setti ég bara ungu her- mennina inná. Við þurftum á snerpu í sóknarleiknum að halda og Sylvain og David fundust mér bestu menn- irnir í starfið. Þetta var sigur sókn- arboltans, ég leyni því ekkert. En ítalir spiluðu öðruvísi bolta og kom- ust mjög nálægt því að sigra. Þeir spiluðu einnig sóknarbolta. Ég sagði alltaf að þótt aðeins væri sekúnda eftir myndum við leika af fullum krafti. Eftir nokkra stund varð vonin að örvæntingu og ég vonaðist eftir kraftaverki. Kraftaverkið kom - við náðum að kreista það fram,“ bætti Lemerre við. Skoraði gegn ísiandi Trezeguet hefur áður skorað mik- ilvæg mörk fyrir Frakka. Það var einmitt hann sem skoraði í naumum 3:2-sigri gegn íslandi í Frakklandi í undankeppni Evrópumótsins. „Ég spurði sjálfan mig engra spurninga. Ég bara þramaði boltan- um eins fast og ég gat þegar hann kom,“ sagði Trezeguet glaður um sigurmarkið. Reuters David Trezeguet, til vinstri, horfir hér á eftir knettinum hafna í þaknetinu - og Evrópumeistaratitillinn var Frakka. Henry maður ieiksins Thierry Henrv spilaði frábærlega í leiknum og skapaði hvað eftir ann- að mikinn usla í vörn ítala með hraða sínum og leikgleði. Hann var valinn maður leiksins af UEFA eftir leikinn - í þriðja skiptið í keppninni. „Liðið hefur heilmikið af góðum kostum en án þess andlega styrks sem við höfum hefðum við líklega aldrei náð þessu. Að vinna fyrst heimsmeistaratitilinn og síðan Evrópumeistaratitilinn er ótrúlegt, fyrir mér er það ólýsanlegt. Sumir segja að við séum betra lið núna því við unnum á útivelli, en málið er bara að það eru engir auðveldir leikir til í fótbolta." Zoff gráti næst ítalir voru niðurlútir í leikslok enda var sigrinum hreinlega stolið af þeim. Þjálfarinn, Dino Zoff, var gráti næst. „Hvemig heldurðu að mér líði? Mér líður hörmulega. Þetta var mik- ilvægur atburður í lífi mínu og hon- um lauk með ósigri. Frakkarnir voru sterkari aðilinn. Við fengum samt líka fullt af marktækifæram. Við töpuðum í framlengingu en það er ekki hægt að segja að við höfum ekki barist." Bitur Del Piero Varamaðurinn Del Piero, sem hefði getað gert útum leikinn þegar hann fékk tvö dauðafæri, var von- svikinn. „Ég er alltof bitur til að gera mér grein fyrir tapinu ennþá. Að sjá titil- inn hrifsaðan frá okkur þegar aðeins 30 sekúndur voru eftir er bara hreint út sagt of erfitt. Ég er eyðilagður. Bæði færin sem ég klikkaði á vora ferleg mistök. Ef ég hefði nýtt fyrra færið, þá hefði hið síðara ekki skipt höfuðmáli." Heppnin snerist gegn okkur Miðjumanninum Stefan Fiore fannst lið hans hafa verið jafngott Frökkunum. „Þetta var án efa besta frammistaða okkar í keppninni. Mér fannst við vera jafngóðir Frökkun- um og stundum meira að segja betri. Kannski snerist heppnin sem við höfðum gegn Hollendingum gegn okkur. Við höfum ekkert til að skammast okkar fyrir. Tuttugu sek- úndum frá leikslokum voram við Evrópumeistarar," sagði hann. Knattspy m u veisla Tjaldið féll í Rotterdam - á sunnudag lauk frábærri knattspymuveislu á glæsilegan hátt er Frakkar unnu ítali í drauma úrslitaleik á Evrópumdt- inu. Keppnin stóð yfir í 3 vikur, leikinn var 31 leikur og skomð 85 mörk. Fótboltinn sem var leikinn var betri en oft áður og sem dæmi má nefna að aðeins 64 mörk vom skomð í sömu keppni árið 1996. Boðið var upp á mikill sóknarbolti þar sem lið eins og Portúgal, Holland og Frakkland fóra fyrir öðram. Italir, Þjóðverj- ar og Englendingar léku sinn hefðbunda knattspyrnu með mis- jöfnum árangri og þjóðir eins og Júgóslavía, Rúmenía og Slóvenía komu á óvart með skemmtilegri knattspymu. Norðurlöndin ollu töluverðum vonbrigðum enda komst ekkert þeirra í undan- úrslit. Nokkur atvik frá mótinu skara framúr og hér birtum við nokkur. Glæsilegasta markið: Luis Figo skoraði fyrsta markið í sigri Portúgals á Englandi 3:2. Figo hljóp upp völlinn með boltann og skaut föstu langskoti efst í mark- hornið. Markið breytti gangi leiksins og var því bæði áhrifa- mikið og glæsilegt. Besta vítið: Þegar ítalinn Francesco Totti lyfti boltanum kæmleysislega í mitt markið í vítakeppni gegn Hollendingum í undanúrslitum. Besti vítabaninn: Francesco Toldo hjá ftalíu varði þijú víti gegn Hollendingum. Ævintýralegasta liðið: Holl- and. Skoraði þijú mörk gegn Danmörku og Frakklandi og síð- an sex gegn Júgóslövum. Áhugaverðasti dómarinn: Pierluigi Collina frá Ítalíu. Hinn sköllótti dómari með stóra augun og öryggið á flautunni var ein skærasta stjarna keppninnar. aaark! NÚ ER ALLT Á SUÐUPUNKTI í B0LTANUM! Landssímadeildin er jöfn og spennandi og nýir Evrópumeistarar verða krýndir 2. júlí. Nýttu þér úrslitaþjónustu Símans GSM og fáðu stöðu og úrslit leikja með SMS skilaboðum um leið og tölur berast. Skráðu þig á www.vit.is og vertu til í slaginn. Thierry Henry, miðherji Frakka, hughreystir hér fyrrverandi félaga sinn hjá Juventus Alessandro Del Piero eftir úrslitaleikinn í Rotterdam. Gráturog skellihlátur SÍMINN-GSM FÆRIR ÞÉR FRAMTlÐIHA Ameðan ítalska þjóðin grét eftir úrslita- leik EM fögnuðu Frakkar ákaft. Milli fjögur og fimm hundrað þúsund manns söfnuðust saman á Champs Elysees breið- götunni í París og dönsuðu, sungu og föðm- uðust þar sem rauð, blá og hvít blys lýstu upp bæinn. Fagnaðarlætin fóru að mestu friðsam- lega fram en 16 lögreglumenn slösuðust eftir að ungmenni köstuðu flöskum og öðru lauslegu að þeim. „Þetta er ótrúlegt. Við vorum smeyk á tímabili því við lentum undir og það gerir sigurinn enn sætari,“ sagði Larbi, sem ferðaðist frá Túnis til að taka þátt í fagnað- arlátunum. Frakkai’nir sungu lagið „We are the Champions" (við eram meistararnir) langt fram eftir nóttu og sigurboginn var lýstur upp með neonljósum sem sýndu skilaboðin „Merci“ eða takk til frönsku meistaranna. Róm var þrungin þögn Á Ítalíu var allt öðruvísi umhorfs. Á göt- um Rómar ríkti þögnin og örvæntingu mátti lesa úr hverju andliti. „Þetta er svo innilega ósanngjamt - sví- virðilegt bara,“ sagði ungur ítali sem horfði á leikinn á risaskjá utan Vatíkansins. Sumir vildu ekki einu sinni svara spurningum. Þeir bara þögðu, ypptu öxlum og sneru baki sínu í fréttamenn. Með tár í augunum söfn- uðust þeir döprastu saman og föðmuðust. Fyrr um daginn leit allt svo miklu betur út. Ægileg fagnaðarlæti brutust út er Del- vecchio skoraði fyrsta mark leiksins en svo tók þögnin við er Frakkar jöfnuðu og sigi’- uðu síðan. Þeir sem tilbúnir voru að segja skoðun sína á leiknum kenndu Del Piero um ósig- urinn. Áhorfendurnir vora sammála um að hann hefði átt að gera út um leikinn enda fékk hann tvö frábær marktækifæri í síðari hálfleik. Um 20 Frakkar horfðu á leikinn utan Va- tíkansins og gerðu sér fulla grein fyrir því að það hefðu hæglega getað verið þeir með tárin í augunum. „Þetta var góður leikur og við voram heppnir að vinna,“ sagði einn þeirra. Þjóðverjar búnir að finna þjálfara Rudi Völler hitar upp fyrir Daum RUDI Völler hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Þjóðverja í knatt- spyrnu fram til júlí á næsta ári en þá mun Christoph Daum taka við stjórn liðsins. Annar þekktur knattspyrnukappi á árum áður, Karl- Heinz Rummenigge, verður Völler til trausts og halds en þýska knattspyrnusambandinu fannst ekki við hæfi annað en að hafa full- trúa frá Þýskalandsmeisturum Bayern Munchen með í ráðum. Sem kunnugt er sagði Erich Ribbeck starfi sínu lausu eftir háðuglega útreið Þjóðveija á nýaf- stöðnu Evrópumóti en þar gerði þýska stálið heldur betur í brækum- ar, vann ekki leik og skoraði aðeins eitt mark. Þeir Völler og Daum starfa saman hjá Bayer Leverkusen. Völler er framkvæmdastjóri félagsins en Daum hefur séð um þjálfun liðsins. Daum á eitt ár eftir af samningi sín- Sex Frakkarí EM liðið Sex Frakkar voru valdir í úrvals- lið Evrópumótsins sem valið var á sunnudag, en það skipa: Markverðir: Francesco Toldo, Ítalíu og Fabien Barthez, Frakklandi. Varnarmenn: Laurent Blanc og Marcel Desailly, Frakklandi, Frank De Boer, Holl- andi, Fabio Cannavaro og Aless- andro Nesta, Italíu. Miðjumenn: Patrick Viera og Zinedine Zidane, Frakklandi, Luis Figo, Portúgal, Josep Guardiola, Spáni og Edgar Davids, Hollandi. Sóknarmenn: Thierry Henry, Frakklandi, Nuno Gomes, Portúgal, Patrick Kluivert, Hollandi og Raul Gonzalez, Spáni. Tveir gerðu fimm mörk Patrick Kiuivert og Savo Milosev- ic deildu með sér markakóngstitlin- um á Evrópumótinu. Markahæstfr voru: Patrick Kluivert, Hollandi........5 Savo Milosevic, Júgóslavíu........5 Nuno Gomes, Portúgal..............4 Sergio Conceicao, Portúgal........3 Zlatko Zahovic, Slóveníu..........3 Thierry Henry, Frakklandi.........3 um við Leverkusen og hann mun klára þetta ár hjá Leverkusen áður en hann tekur við landsliðinu.Völler hefur litla sem enga reynslu af þjálf- un en hann þekkir knattspyrnuna út og inn. Hann lék með liðum á borð við Leverkusen, Roma og Marseille og klæddist þýska landsliðsbúningnum alls 90 sinnum. Völler fær ekki lang- an tíma til að koma þýska landsliðinu á réttan kjöl en í september tekur al- varan við þegar Þjóðverjar mæta Englendingum í undankeppni HM. Daum hefur skipað sér á bekk meðal bestu þjálfara Þjóðverja. Hann gerði Stuttgart að Þýskalands- meisturum árið 1992 og Besiktas að tyrkneskum meisturam árið 1996 en Eyjólfur Sverrisson lék undir hans stjóm hjá báðum félögunum. Daum hefur stýrt liði Leverkusen undan- farin ár og undir hans stjóm hefur liðið þrívegis hafnað í öðru sæti deild- arinnar. MLAS Palmas, spænska félagið semÞórður Guðjónsson hefur svo gott sem gengið til liðs við, keypti á föstudaginn nígeríska miðherjann Dele Adebola frá Birmingham á Englandi. Adebola gerði tveggja ára samning við Las Palmas. Hann var í vikunni valinn í 20 manna landsliðshóp Nígeríu sem ætlað er að mæta Liberíu í undankeppni HM á næstunni. ■ ALESSANDRO Pistone var fyrir helgina seldur frá Newcastle til Everton fyrir þrjár milljónir punda, um 340 milljónir króna. ítalski varnarmaðurinn undirritaði um leið fimm ára samning við Everton. ■ CELTIC hefur áhuga á að kaupa Richard Wright, markvörð Ipswich, en kappinn var settur á sölulista hjá nýliðunum eftir að hann neitaði að framlengja samning sinn við félagið. Á tímabili virtist Wright vera á leið til Chelsea, enda félagið lengi sýnt honum áhuga, en þar sem knattspymustjórinn Gian- luca Vialli hefur keypt leikmenn fyrir tæpa 3 milljarða í sumar hætti félagið við. ■ MÓTHERJAR KR í forkeppni meistaradeildarinnar, Birkirkara frá Möltu, mega ekki ganga til samninga um kaup á leikmönnum, samkvæmt úrskurði knattspymu- sambandsins á Möltu. Átta lið úr úrvalsdeildinni þar í landi, meistar- arnir meðtaldir, skulda leikmönn- um laun og verða að standa í skilum með þau til að fá að nýju leyfi til samningagerðar. STARF YFIRÞJALFARA KNATTSPYRNUDEILDAR KR Yfirþjálfari/íþróttafulltrúi sér um, hefur umsjón með og ber ábyrgð á öllum íþróttalegum og félagslegum samskiptum deilöarinnar, s.s. við þjálfara, iðkendur, foreldra, skóla, skiþuleggur æfingar og hefur umsjón með þjálfun allra yngri flokka deildarinnar. Þjálfun eins eða tveggja flokka. Knattspyrnudeild KR gerir miklar kröfur til þjálfara um menntun og hæfni til mannlegra samskipta. Kennaramenntun eða samsvarandi mennt- un og þjálfaramenntun eru skilyrði. Umsóknir sendist: Knattspyrnudeild KR, pósthólf 7065, 127 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 10 júlí. Nánari uppl. gefa Leifur Garðarsson og Margrét Kristín Jónsdóttir í síma SIO 5310 og formaður knattspyrnudeildar Guðjón Guðmundsson í síma 562 1433. Komið og sjáið Stjörnuna og FH berjast í CocaCola bikarnum á Stjörnuvelli í Garðabæ í kvöld kl 20.00. Stjarnan til sigurs MM SJÓyÁÍ^ALME.NNAR ágrannaslagur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.