Morgunblaðið - 20.07.2000, Page 2
2 B FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000
MORGUNBIAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Fjölbreytt háskólanám í viðskipta- og rekstrarfræðum í boði
HASKOLUMN \ rc
REYKJAtflR: UNiv
Háskóli íslands, Háskólinn í Reykjavík, Samvinnuskólinn á Bifröst og Tækniskóli íslands bjóða allir upp á viðskiptatengt nám á háskólastigi.
Fjórðungsuppgjör Microsoft
Mikill hagnaður
af fjárfestingum
Washington.AFP. Seattle.AP.
HAGNAÐUR Microsoft á
öðrum ársfjórðungi þessa
árs nam 2,41 milljörðum
dala eða 191 milljarði ís-
lenskra króna og er þetta
9,4% meiri hagnaður en á
sama tímabili í fyrra.
Avöxtun á hvert hlutabréf
í Microsoft var 44 sent á
móti 40 sentum í fyrra en
helstu verðbréfasérfræð-
ingar höfðu spáð 40 senta ávöxt-
un á bréf. Sölutekjurnar jukust
lítillega milli tímabila. John
Connors, fjármálastjóri Micro-
soft, sagði reksturinn hafa geng-
ið einkar vel og því megi að
miklu leyti þakka skynsamlegri
fjárfestingarstefnu og auknum
vexti markaðanna í Asíu; hátt í
helmingur af hagnaði Microsoft
var ávöxtun af fjárfestingum fé-
lagsins.
„Enda þótt við bú-
umst ekki við miklum
vexti í sölu á einmenn-
ingstölvum í náinni
framtíð þá eru góð
tækifæri í sölu á Wind-
ows 2000-notendakerf-
um, þ.m.t. Windows
2000 stýrikerfið auk
SQL Server 2000 og
Exchange Server 2000
sem koma á markað innan
skamms," sagði Connors.
I fréttatilkynningu Microsoft
var ekkert minnst á þau mála-
ferli sem Microsoft stendur í eft-
ir að alríkisdómstóll kvað upp
þann úrskurð að fyrirtækið hafi
brotið samkeppnisreglur og
skipta beri því upp. Gengi hluta-
bréfa Microsoft hækkuðu um
hálft prósent eftir að afkomutöl-
ur höfðu verið birtar.
íslenski hlutabréfasjóðurinn hf.
507 milljóna hagnaður
ÍSLENSKI hlutabréfasjóðurinn hf.
skilaði 507 milljóna króna hagnaði á
síðasta reikningsári, 1. maí 1999 til
30. apríl 2000, samanborið við 116
milljónir króna árið á undan, sam-
kvæmt upplýsingum frá Landsbréf-
um hf., en þau sjá um daglegan
rekstur sjóðsins. Hlutafé var 1.135
milljónir króna í lok reikningsársins
og heildareignir námu 4.033 milljón-
um króna.
56% af heildarverðbréfaeign
sjóðsins er í innlendum hlutabréf-
um, 21% í erlendum verðbréfum og
23% í innlendum skuldabréfum.
30. apríl síðastliðinn átti sjóður-
inn hluti í 27 innlendum félögum og
voru tíu stærstu hlutimir í Islands-
banka (333 m.kr.), Landsbanka ís-
lands (318 m.kr.), DeCode (188
m.kr.), Eimskipafélagi íslands (184
m.kr.), Opnum kerfum (143 m.kr.),
FBA (133 m.kr.), Nýherja (112
m.kr.), Þormóði ramma - Sæbergi
(98 m.kr.), Granda (88 m.kr.) og
Hampiðjunni (88 m.kr.). Hluthafar
voru á sama tima tæplega 7.300.
Nafnávöxtun fyrir síðasta reikn-
ingsár var 26,2% þegar litið hefur
verið til arðgreiðslna. Hreinar fjár-
munatekjur námu 750 milljónum
króna og rekstrargjöld 53 milljón-
um króna, sem þýðir að rekstrar-
gjöld voru 7% af hreinum tekjum.
Aðalfundur íslenska hlutabréfa-
sjóðsins verður haldinn 25. júlí.
Um 1.500
manns í við-
skiptanámi
MIKILL fjöldi er í ýmiss konar
viðskiptafræðinámi hér á landi
og er framboðið sömuleiðis orðið
mikið og fjölbreytt. Á skrifstofu
viðskipta- og hagfræðideildar
Háskóla íslands fengust þær
upplýsingar að rúmlega 300 ný-
nemar væru innritaðir í við-
skiptafræði og rúmlega 40 í hag-
fræði eða tæplega 350 alls í
deildina. Heildarfjöldi nemenda
á öllum árum í deildinni er tæp-
lega 1.100, sem mun vera svipað
og í fyrra. Á fyrsta ári eru um
500 nemendur á nokkrum stór-
um námskeiðum og er salur eitt í
Háskólabíói eini salurinn sem
skólinn getur notað undir þau
námskeið.
Hagnýtt framhaldsnám
í viðskiptafræði
Viðskipta- og hagfræðideild
býður í samvinnu við Endur-
menntunardeild háskólans í
fyrsta sinn upp á svokallað
MBA-nám, sem er meistaranám í
viðskiptafræði (e. Master of
Business Administration). Á
heimasíðu deildarinnar kemur
fram að „MBA er ekki rannsókn-
artengt framhaldsnám eins og
MS-námið [í viðskiptafræði]
heldur nám sem einkum er ætlað
að efla starfshæfni og tekju-
möguleika þeirra sem fara í
gegnum námið“. Til marks um
þennan mun megi hafa að ekki
sé unnin stór rannsóknarritgerð
í lok námsins heldur sé lögð
áhersla á hagnýt verkefni. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Endur-
menntunarstofnun sóttust rúm-
lega 70 manns eftir því að
komast í námið og voru 55 teknir
inn. Ekki mun þó útséð með
hversu margir hefja nám, því
hugsanlegt er að einhverjir helt-
ist úr lestinni.
230 í viðskiptafræðinámi í
Háskólanum í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík býður
meðal annars upp á þriggja ára
bs-nám í viðskiptafræði. Nýnem-
ar næsta haust verða um 90 og
samtals verða um 230 manns í
námi til bs-gráðu í viðskipta-
fræði við skólann.
Frá næstu áramótum hyggst
skólinn einnig bjóða upp á MBA-
nám og í samtali við Agnar
Hansson, deildarforseta við-
skiptadeildar, kom fram að mikið
hefði verið af fyrirspurnum um
námið en skráning væri ekki haf-
in svo óvíst væri með fjölda. Þó
væri gert ráð fyrir að 20-30
manns yrðu í náminu.
I Samvinnuskólanum á Bifröst
er boðið upp á þriggja ára bs-
nám í viðskipta- og rekstrar-
fræðum og eru alls um 125 nem-
endur í fullu námi á staðnum auk
um 30 nemenda sem eru á hálf-
um hraða í fjarnámi.
Þá býður Tækniskóli íslands
einnig upp á nám í iðnrekstrar-
fræði, sem er tveggja ára
hagnýtt rekstrarnám á háskóla-
stigi.
Samkvæmt þessu stunda um
1.500 manns hér á landi nám í
einhvers konar viðskiptafræði
sem lýkur með bs- eða hærri
gráðu.
STUTTFRÉTTIR
Debenhams
opnar ellefu nýjar
verslanir
Lundúnir. AFP.
• STJÓRNENDUR Debenhams-verslunar-
keðjunnar hafa tilkynnt að þeir stefni að því
að opna ellefu nýjarverslanir á Bretlandi á
næstu fjórum árum ogertalið aö um fjögur
þúsund ný störf skapist á tímabilinu. Þessi
ákvöröun kemur í kjölfar aukinnar sölu á fatn-
aði hjá Debenhams en salan jókst um 6,6%
á síðustu tíu vikum. Tilkynning Debenhams
kom nokkuð á óvart því margir af keppinaut-
um Debenhams hafa verið aö loka verslun-
um vegna minnkandi hagnaðar. Hagnaður
Marks & Spencer dróst verulega saman í
fyrra og forsvarsmenn C&A hafa tilkynnt að
þeir hyggist hætta allri starfsemi á Bretlandi
og segja upp um 4.8000 starfsmönnum.
Debensham er þriðja stærsta verslunar-
keðja á Bretlandi, aðeins John Lewis og
Marks & Spencereru stærri. Sérfræðingar
segja ástæðuna fyrir aukinni sölu á fatnaði
hjá Debenhams vera sú að sumariö hafi ver-
ið sérstaklega rigninga- og vindasamt en fjár-
málastjóri Debenhams segir að söluaukning-
in sé til kominn vegna mikillar sölu á eigin
merkjavöru auk þess sem mun meira hafi
verið auglýst en áður.
Mikil söluaukning
hjá Intel
Santa Clara. AFP. San Francisco.AP.
• TALSMENN Intel hafa kynnt hagnaö fé-
lagsins á öðrum fjórðungi ársins og nemur
hann 3,5 milljöröum dala eða liðlega 277
milljörðum íslenskra króna þegar frá hefur
verið dreginn kostnaður vegna yfirtöku á
öðrum fyrirtækjum. Þetta er um 98% meiri
hagnaður en á sama tímabili í fyrra. Sölu-
tekjur Intel á tímabilinu námu 8,3 milljörö-
um dala og jókst saian um 23% á milli
ára. Ávöxtun á hvert hlutabréf í Intel var
50 sent sem er hátt í helmingi meira en á
sama tíma í fyrra.
Hagnaöur Intel samkvæmt viðteknum
reikningsskilavenjum - kostnaöur vegna
yfirtöku á öðrum fyritækjum tekinn með -
var 3,1 milljaröur dala sem er 79% meiri
hagnaður en á sama tímabili í fyrra. Craig
Barrett, forstjóri Intel, segir að eftirspurn
eftir afurðum félagsins hafi verið mjög góð
og að afkoman f framleiðslunni hafi verið
betri en menn áttu von á. Þá segist Barr-
ett búast við að eftirspurn haldist mikil á
sfðara hluta ársins en nú styttist í að hinn
nýji Itanium örgjörvi Intel komi á markað.
NI0UR'*'
HLUTABRÉFAVIÐSKf PTI/SlÐASTA VIKA
• Heildarviðskipti á Veröbréfaþingi ís-
lands I seinustu viku voru 559 milljónir
króna í 356 vióskiptum. Gengi hlutabréfa
f 13 félögum á VÞÍ hækkaði en lækkaöi í
18 félögum. Gengi hlutabréfa 16 félaga
stóð í staö, en þaraf voru engin viðskipti
með 12 félög.
Afkomuviðvörun frá SÍF
Erfiður rekstur í Frakklandi
REKSTUR SÍF-samstæðunnar hefur ekki
gengið í samræmi við rekstraráætlun samstæð-
unnar fyrir fyrri helming ársins og verður tap á
rekstri samstæðunnar á því tímabili. Ein helsta
ástæðan fyrir verri afkomu en spáð var er sú að
rekstur dótturfélags SIF í Frakklandi hefur ver-
ið afar erfiður. Önnur starfsemi heima og erlend-
is er að mestu í takt við þær áætlanir sem liggja
fyrir um árið.
í afkomuviðvörun til Verðbréfaþings Islands
kemur fram að meginástæður tapreksturs á
fyrri helmingi ársins 2000 megi rekja til mikils
taps á rekstri laxareykingarverksmiðju SIF
France, þar sem hráefnisverð á laxi hefur frá því
um áramót hækkað um allt að 40%. „Hækkunum
á hráefnisverði hefur ekki verið hægt að koma út
í verðlagið fyrr en í júní sl., þar sem félagið er
bundið í samningum frá þremur og upp í sex
mánuði við sína viðskiptaaðila. Hráefnisverð á
Mikið tap hefur verið á rekstri laxareykingar-
verksmiðju SIF France.
laxi hefur farið lækkandi undanfamar vikur frá
því að það náði hámarki í byrjun júní sl.
Þróun Bandaríkjadollars gagnvart evru hef-
ur einnig verið starfsemi SIF France mjög
óhagstæð á fyrri helmingi ársins 2000. Gengis-
þróun þessi hefur valdið því að framlegð á ýms-
um framleiðsluvörum félagsins hefur verið
mjög lág á þessu tímabili. Þróun íslensku krón-
unnar gagnvart evru og þróun evrunnar hefur
einnig verið samstæðunni óhagstæð í heild á
þessu rekstrartímabili. Þá hefur kostnaður við
samruna SIF og IS orðið heldur hærri en gert
var ráð fyrir í upphafi og má rekja það m.a. til
hærri kostnaðar vegna starfslokasamninga og
annarra ófyrirséða þátta,“ að því er fram kem-
ur í afkomuviðvöruninni.
Vinna við samruna SÍF og ÍS hefur gengið
mjög vel og í fullu samræmi við þær verkáætl-
anir sem unnið hefur verið eftir.
Árshlutauppgjör samstæðunnar verður birt
30. ágúst.
Eydrtmkl Hæsta/lsgsta Vlðsk.vlk. FJöWI. Bfeythifi
verð (þú*. kr) vlðtk.
ísl.járnblendifél. 1,90/1,90 133 1 11,8%
Olíuverzlun fslands 9.50/9,50 950 1 6.1%
Landsbanki islands 4.70/4,20 22,510 32 4,5%
FytWakl Hærta/læesta Vlðrt.vlk. FJðWI Bfeytln*
verð (þús. ki) vM»k.
Sjóvá-Almennar 40,00/40,00 200 1 -7,0%
Vínnslustööin 2,90/2,80 2.291 4 -6.7%
Kögun 41,50/40,00 3.695 6 -5,9%
itiðwr
GENGIGJALDMIÐLA
12.07JOOO 19.07.2000 ♦/•%
Kanadadalur 52,09 53,94 +3,55
Bandaríkjadalur 77,04 79,55 +3,26
Japansktjen 0,7157 0,7354 +2,75
Bkí
Englnn af helstu gjaldmiðlum lækkaði gagnvart Is-
lensku krónunni á tímabilinu 12. -19. þessa mánaöar.