Morgunblaðið - 25.07.2000, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Viðbrögð stjórnenda f]ármálafyrirtækja við drögum Fjármálaeftirlitsins að verklagsreglum
Of langt gengið
á sumum sviðum
fyrirtækjanna virðast
almennt fagna birtingu
draga Fjármálaeftirlits-
ins að leiðbeiningum um
verklagsreglur fyrir-
tækjanna. Skiptar skoð-
anir eru hins vegar með-
al þeirra um innihaldið.
Nokkur fyrirtækjanna
gera ráð fyrir að endur-
bættar verklagsreglur
liggi fyrir í haust.
Fjármálafyrirtækin hafa frest fram til 8. september til að koma sjónarmiðum sínum varðandi drög
að verklagsreglum á framfæri við Fjármálaeftirlitið.
Morgunblaðiö/Ámi Sæberg
HALLDÓR J. Kristjánsson,
bankastjóri Landsbanka
íslands, segist vera þeirr-
ar skoðunar að bann við
viðskiptum starfsmanna fjármálafyr-
irtækja með óskráð bréf, líkt og Fjár-
málaeftirlitið leggur til, sé full íþyngj-
andi. Hann telur að ef
eignarhaldstími þeirra bréfa yrði
gerður nægilega langur, eins og t.d.
eitt ár, mæli ekkert gegn því að
starfsmenn fjármálafyrirtækja eigi
viðskipti með þess háttar bréf jafnvel
þótt skráning bréfanna sé einhvem
tímann fyrirhuguð, en þó ekki ákveð-
in nákvæmlega, því þar væri um lang-
tímafjárfestingu að ræða.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu
á laugardag hefur Fjármálaeftirlitið
(FME) birt drög að leiðbeiningum um
verklagsreglur sem fjármálafyrir-
tæki skulu setja sér. Er fyrirtækjun-
um, sem og öllum öðrum, gefinn kost-
ur á að koma sjónarmiðum sínum á
framfæri við eftirlitið fyrir 8. septem-
ber nk.
Halldór segist telja að skýrsla
Fjármálaeftirlitsins sé vönduð að
öðru leyti en því að frekari saman-
burð hefði mátt gera á tillögunum og
framkvæmdinni í nágrannalöndun-
um. „Það heíur verið almenn stefna
bæði hjá Landsbankanum og bönk-
unum sameiginlega að forðast allar
sérreglur um verðbréfaviðskipti hér-
lendis ásamt því að samræma fram-
kvæmdina eins og frekast er kostur
að því sem gengur og gerist á þeim
stóru mörkuðum sem við tengjumst.
Æskilegt væri að slíkur samanburður
væri gerður í drögum eftirlitsins og
tillögumar rökstuddar í meira mæli
með tilvísun til framkvæmda á
þróaðri mörkuðum sem við berum
okkur samanvið."
Starfsskilyrði smærri
fyrirtækja þrengd óeðlilega?
Mjög brýnt er að hafa einn reglu-
vörð fyrir heildarsamstæðu, að sögn
Halldórs. Hjá Landsbankanum ligg-
ur nú þegar fyrir að innri endurskoð-
andi muni sinna því starfi. Hins vegar
mun eftirlitið innan hverrar deildar
verða hjá viðkomandi forstöðumanni.
„Hvað svonefnda Kínamúra varðar
er ýóst að í stærri fyrirtækjunum hef-
ur þessi aðskilnaður tíðkast um ára-
bil. Það kann aftur á móti að vera erf-
iðara fyrir smærri fjármálafyrirtækin
að uppfylla þau skilyrði. Því finnst
mér vert að skoða hvort ekki sé verið
að þrengja óeðlilega starfsskilyrði
þeirra. Menn mega ekki ganga of
langt í þessum efnum,“ segir Halldór.
Aðspurður segir hann að gera megi
ráð fyrir að nýjar verklagsreglur
Landsbankasamstæðunnar verði til-
búnar síðla hausts. Munu sömu
reglur gilda um starfsmenn bankans
og Landsbréfa.
Halldór var staddur úti á landi í
sumarleyfi þegar Morgunblaðið hafði
samband við hann í gær. Hann lagði
áherslu á að honum hefði ekki unnist
tími til að lesa drögin yfir í heild sinni
eða ræða efni hennar innan Lands-
bankans eða við bankaráðið. Því
mætti ekki líta á svör hans nú sem
formleg viðbrögð Landsbankans við
drögum FME.
Óþarfi að tilkynna fyrirfram
Guðmundur Hauksson, sparisjóðs-
stjóri SPRON, sagðist einungis hafa
náð að kynna sér frétt Morgunblaðs-
ins á laugardag en telur mikilvægt að
verklagsreglur af þessum toga séu í
gildi. Aðilar að verðbréfamarkaðinum
þurfi að setjast niður og koma sér
saman um þær. Ailir á markaðinum
hafi hag af því að skýrar reglur gildi
um með hvaða hætti viðskipti starfs-
manna fyrirtækjanna fara fram. Ríkj-
andi traust þurfi að vera á milli allra
aðila sem þama komi að málum. Hins
vegar þuríi slíkar reglur að vera
skynsamlegar, á þann hátt að þær
hamli því ekki að eðlileg viðskipti fari
fram. Einnig megi ekki gera hlutina
ógerlega eða of snúna.
„Það eru ýmsir þættir í þessum
drögum sem mér finnst ganga of
langt og gera hlutina óþarílega
snúna. Mér sýnist að bæði sé slegið úr
og í með sjálfstæði deilda. Sem dæmi
get ég nefnt að ekki er gengið út frá
því að sjálfstæði greiningadeilda sé
hið sama og annarra deilda. Starfs-
menn greiningadeilda þurfa að
þekkja stöðutökur fyrirtækjanna og
geta gert grein fyrir þeim um leið og
þeir veita ráð. Þetta er að mínu mati
óskynsamlegt vegna þess að ef
byggja á á sjálfstæði deilda, sem allir
eru sammáia um að verði að vera fyrir
hendi, þá verða þessir starfsmenn að
UCRETE
Hita-og
efnaþolnu
gólfefnin
Nú fáanleg
ip
Gólflaenir
I Ð N A e * R Q Ó L f 4L7
Smlíjuvogur 72,200 Kðpavogur
Sfml: 5641740, Fa«: 554 175»
Eimskip hækkar
ílutning’sgjöld um 4,9%
EIMSKIPAFÉLAG íslands hefur
ákveðið að hækka innflutningsgjöld
um 4,9%, að sögn Þórðar Sverrisson-
ar, framkvæmdastjóra flutninga-
sviðs félagsins. Hann segir ástæðuna
vera hækkanir á olíuverði og ýmsum
erlendum kostnaði, eins og skipa- og
gámakostnaði.
„Þetta er einnig í samræmi við
verðlagsþróunina frá því í fyrra. Við
greindum frá því fyrir nokkrum vik-
um að afkoma félagsins yrði ekki í
samræmi við áætlanir. Því er verið
að grípa nú til aðgerða til að bregð-
ast við þeirri stöðu með því að hækka
flutningsgjöld í takt við verðlagsþró-
un. Einnig er nú unnið að kostnaðar-
lækkun hjá félaginu,“ segir Þórður.
www.mbl.is
Samskip útiloka ekkl
hækkanir í haust
Ólafur Ólafsson, forstjóri Sam-
skipa, segist ekki útiloka hækkanir á
flutningsgjöldum hjá félaginu. „Þau
hafa hins vegar verið að lækka sam-
fellt í allt að eitt ár.“
Kostnaðarhækkanir hafa verið
umtalsverðar, að sögn Ólafs. Sér í
lagi miklar olíuverðshækkanir á
þessu ári og því síðasta, auk þess
sem launakostnaður hefur vaxið í
kjölfar nýrra kjarasamninga. „Geng-
isþróun hefur verið félaginu óhag-
stæð. Tekjumar hafa lækkað, en
stór hluti þeirra er bundinn í erlend-
um myntum.“
Ólafur segir að farið verði yfir
málin á haustmánuðum og væntan-
lega komi í ljós þá hvort gripið verði
til hækkana á flutningsgjöldunum.
geta skrifað greiningar eftir sinni
bestu vitund án þess að það hafi áhrif
á þá að aðrir starfsmenn innan sama
fyrirtækis séu að taka stöður í sömu
félögum. Þetta, ásamt ýmsu fleiru,
verður að skoða betur,“ segir Guð-
mundur.
Af öðru sem fram kemur í drögun-
um segist hann telja að óþarflega
langt sé gengið með þeim ákvæðum
að tilkynna þurfi regluverði fyrirfram
um viðskipti. Þau komi hvort eð er til
skoðunar hjá regluverðinum eftir á og
það eigi að duga. „Mestu máli skiptir
að rækta vitund starfsmannanna með
þeim hætti að þeir skynji siðferðis-
reglumar. Það er nú einu sinni svo að
ekki er hægt að setja reglur um alla
ófyrirséða hluti,“ segir Guðmundur.
Óvissu eytt
Sólon Sigurðsson, bankastjóri
Búnaðarbankans, hafði lítillega kynnt
sér drögin þegar Morgunblaðið leit-
aði álits hans. Hann segir að málin
verði skoðuð innan bankans og vafa-
laust hafi banldnn einhverjar athuga-
semdir fram að færa. „Það er hins
vegar of snemmt að segja nokkuð til
um þetta núna. En þessari vinnu
verður hraðað eins og hægt er,“ segir
Sólon.
Aðalsteinn Jónasson, forstöðumað-
ur lögfræðideildar FBA, segir það
fagnaðarefni að búið sé að birta drög-
in að leiðbeiningunum. „Við höfum
beðið eftir þessu í þó nokkum tíma og
ýmsar getgátur hafa verið uppi um að
reglumar yrðu strangar. Því er nú
nokkuri óvissu eytt.“
Mikilvægt er að sátt náist um verk-
lagsreglunar bæði milli fjármálafyrir-
tækjanna og Fjármálaeftirlitsins, að
sögn Aðalsteins, ekki síst til þess að
auka trúverðugleika fyrirtækjanna út
á við og traust á markaðinum. Aftur á
móti verði að varast að ganga of langt
í setningu og beitingu reglnanna. Að
þær dragi ekki úr skilvirkni markað-
arins og geri það fráhrindandi að
starfa á fjármálamarkaðinum. Meðal-
veginn þurfi að finna í þessu.
Aðalsteinn segir að nú sé unnið að
því að yfirfara drögin innan FBA lið
fyrir lið og telur hann því ekki tíma-
bært nú að bankinn tjái sig um ein-
staka þætti þeirra. FBA mun leitast
við að skila FME athugasemdum sín-
um fyrir ágústlok.
„Mér finnst jákvætt að umræða
skapist um þessi mál og að Fjármála-
eftirlitið skuli gefa öllum kost á að
koma sjónarmiðum sínum á fram-
færi,“ segir Aðalsteinn.
Lágmarks eignarhaldstími
verði lengdur í hálft ár
Sævar Helgason, framkvæmda-
stjóri íslenskra verðbréfa á Akureyri,
segir drögin vera í meginatriðum eðli-
leg og í samræmi við það sem hann
bjóst við að sjá frá Fjármálaeftirlit-
inu. „Það eru þó nokkur atriði sem við
teljum að þurfi nánari skoðun, eins og
það að mæla fyrir um að þátttaka
starfsmanna í fjárfestingarfélögum
sé óheimil. Þama finnst mér nokkuð
langt gengið. Hægt væri að útfæra
þessi ákvæði þannig að þátttakan
væri heimil, en eftirlitið miðaðist við
að félögin færu eftir settum reglum,"
segir Sævar.
Varðandi lágmarks eignarhalds-
tíma starfsmanna á verðbréfum seg-
ist hann vera þeirrar skoðunar að
lengja megi þann tíma í hálft ár í stað
þriggja mánaða.
Þá setur Sævar spumingamerki
við bannið á viðskiptum með óskráð
bréf. „Unnt væri einnig að tilgreina
tiltekinn lágmarks eignarhaldstíma á
þeim, hugsanlega lengri og þá í allt að
eitt ár írá kaupum. Regluvörður hefði
samt eftirlit með því að ekld yrði um
óeðlileg viðskipti að ræða. Þau yrðu
að grundvallast á réttu markaðsverði
og réttum upplýsingum."
Aðspurður segir Sævar að hann
búist við að nýjar verklagsreglur hjá
Islenskum verðbréfum liggi fyrir upp
úr miðjum ágúst. Hann bætir því við
að hann telji að ámóta reglur þurfi að
setja um aðra hópa sem aðgang hafi
að trúnaðarupplýsingum og nefnir
sérstaklega fréttamenn.
FME gerði athugasemdir
við heimilaðar undanþágur
í jEmúarmánuði kom fram að sex
fjármálafyrirtæki hefðu gerst brotleg
við ákvæði verklagsreglna sinna sem
banna viðskipti starfsmanna með
óskráð hlutabréf.
Fjármálaeftirlitið beindi í kjölfarið
athugasemdum til stjóma viðkom-
andi fyrirtækja, sem voru Búnaðar-
bankinn, Islandsbanki, VIB, Lands-
bréf, Verðbréfastofan og Bumhams
Intemational á íslandi, og óskaði eftir
sjónarmiðum og skýringum stjóm-
anna vegna málsins.
Jafet Ólafsson, framkvæmdastjóri
Verðbréfastofunnar, segir drög FME
vera viðamikil og fela í sér skýrar og
afdráttarlausar reglur. Það sé gott
fyrir markaðinn.
„Sjálf eram við hjá Verðbréfastof-
unni í ákveðnum vandræðum, því fyr-
irtækið er óskráð félag. Starfsmenn
okkar eiga því erfitt með að eiga við-
skipti með þau bréf,“ segir Jafet.
Hann segir að nú sé unnið að því
innan Verðbréfastofunnar að yfirfara
drögin, en nýjar verklagsreglur verði
settar eins fljótt og unnt sé.
Jafet segir aðspurður um athuga-
semdir Fjármálaeftirlitsins í janúar-
mánuði að þar hafi eftirlitið sett m.a.
út á sölu til starfsmanna á hlutabréf-
um í Verðbréfastofunni, eftir að hafa
áður samþykkt þær undanþágur.
Aukinn kostnaður
Þóroddur Þóroddsson, forstjóri
Bumhams Intemational á Islandi,
segir að drög Fjármálaeftirlitsins hafi
ekki komið sér á óvart. „Þetta er
meira og minna það sem ég átti von á,
fyrir utan einstaka áherslur. Þama
era viðskipti með óskráð bréf óheimil,
en við áttum von á því að þessi þáttur
yrði skilgreindur nánar.“
Þóroddur segir að það sé afar
slæmt fyrir starfsfólk Bumhams að
þurfa að starfa í óvissu. Leiðbeiningar
FME séu skýrar og eftir verklags-
reglunum verði farið.
„Þessar breyttu reglur hafa í íor
með sér aukinn kostnað fyrir Bum-
ham, t.d. með tilkomu svonefnds
regluvarðar. Auðvitað er maður ekk-
ert of ánægður með það, en að sama
skapi skil ég að tryggja verður við-
skiptamönnum okkar ákveðinn laga-
ramma, sem þeir geta verið vissir um
að við séum að vinna innan,“ segir
Þóroddur.
Hann býst við að breyta þurfi
skipulagi innan Bumham í kjölfar
nýrra verklagsreglna.
Sigurður B. Stefánsson, forstöðu-
maður Verðbréfamarkaðar íslands-
banka, segir það fagnaðarefni að drög
að nýjum verklagsreglum séu að líta
dagsins ljós. Hann vill ekki tímasetja
nákvæmlega hvenær reglum VIB
verður breytt, en segir að þeirri vinnu
verði hraðað eins og frekast er kost-
ur.