Morgunblaðið - 25.07.2000, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 2000 37
UMRÆÐAN
Hugleiðing eftir
Þingvallahátíð
ÉG FÓR á Þingvöll
laugardaginn 1. júlí.
Það gerum við hjónin
þrisvar til fjórum sinn-
um á ári okkur til
sálubótar en af ýmsum
ástæðum höfðum við
ekki farið á stórhátíð-
irnar 1974 og 1994.
Þetta var því mitt síð-
asta tækifæri að sjá
hátíð á þessum helga
stað. Veðrið var gott .
Umferðin nánast eng-
in og allt skipulag eins
og best verður á kosið.
Tveggja kílómetra
labb frá bílastæði að
hátíðarsvæði var æskileg hreyfing
fyrir mann, sem gengur 5-10 km á
degi hverjum. Hins vegar sóttist
okkur Elisabetu og sonarsyni okk-
ar leiðin seint, einkum eftir að Öx-
ará kom í augsýn og hægt var að
kasta út í hana steinum. Stiginn
Kristnihátíd
Framundan er, segir
Hilmar Jónsson,
uppgjör um málefni
kristninnar.
við fossinn var stórkostlegur og á
að standa um langa framtíð. Hann
minnti okkur Elísabetu á þjóðgarð
í Júgóslavíu, sem við komum í
1988, þar sem óteljandi fossar
voru gerðir aðgengilegir með stig-
um. A góða barnamessu og hluta
af Þrymskviðu hlustuðum við í
sólskininu og þegar heim kom sá
ég stórkostlega gospel-tónleika á
stóra sviðinu. í fréttum og öllum
fjölmiðlum löngu fyrir hátíðina var
gert ráð fyrir 50-70 þúsund manns.
Elín Hirst sagði í sjónvarpsvið-
tali um kvöldið að þarna hefðu ver-
ið um 6-7 þúsund manns. Hvað var
að gerast?
Einn af vitrustu mönnum þjóð-
arinnar sagði við mig daginn eftir:
„Þetta var svar 80% þjóðarinnar
við KFUM- fólki og
vinstri sinnuðum
gáfumönnum á borð
við Kolbrúnu Hall-
dórsdóttur, er mót-
uðu dagskrána. Við
sátum fiest heima og
ég er stoltur af minni
þjóð. Svo á ríkis-
stjórnin sinn þátt í
almennri reiði.“ En
ekki stóð á hrokan-
um, þegar rök og
staðreyndir brustu: I
sjónvarpsþætti sagði
framkvæmdastjóri
hátíðarinnar við Mar-
gréti Sverrisdóttur,
þegar hann var mát í kappræð-
unni: „Varaþingmaðurinn segir ..“
I sama þætti virtist prestur ekki
vita að við hefðum gengið páfa á
hönd árið 1000. Ófriðnum linnir
ekki innan kirkjunnar: Mér var
sagt af presti, sem ekki fekk boðs-
kort á Þingvöll. Hann er á svört-
um lista. Af þessu tilefni tel ég að
Sigurður Guðjónsson, ágætur rit-
höfundur og góðviljaður maður,
ætti að draga kæru sína til baka á
fyrrverandi biskup, Sigurbjörn
Einarsson. Sú kæra er ekki til
bóta. í þessum forarpolli fara
marxistar hamförum undir leið-
sögn Gunnars Kristjánssonar,
prófasts á Reynivöllum. Hann
sagði við útför Halldórs Laxness,
að Kiljan hefði verið frelsis- og
mannvinur. Fyrr má nú rota en
dauðrota. Blessaður forsetinn læt-
ur ekki sitt eftir liggja. Hann
krossaði Vilborgu Dagbjartsdótt-
ur, einan rithöfunda, í tilefni
kristnihátíðar. Fyri’ á tíð voru
voru prestar höfuðskáld og menn-
ingarvitar nú er farið inn í kirkjur
með auman leirburð og ófullburða
verk eins og þar sé um Davíð Stef-
ánsson eða Matthías Jochumsson
að ræða. Það uppgjör, sem ýmsir
greindir menn hafa séð óumflýjan-
legt, er nú framundan um málefni
kristninnar.
Höfundur er rithöfundur.
rNESTISKÖRFUR-
2ja og 4ra manna körfur
frá kr. 14.900-24.900
IfJPIPAR OG SALT
Klapparstíg 44 ♦ Sími 562 3614
Stefnt að verðlaun-
um á NM unglinga
RÚMLEGA 280
keppendur frá öllum
N or ðurlöndunum
mæta til leiks á meist-
aramóti unglinga 20
ára og yngri í frjáls-
íþróttum, sem haldið
verður á Skallagrím-
svelli í Borgarnesi dag-
ana 26. og 27. ágúst
næstkomandi. Þetta er
í iyrsta sinn sem þessi
keppni er haldin hér-
lendis. Keppnin er liða-
keppni þannig að tveir
keppendur verða í
hverri grein í hverju
liði, en liðin eru frá
Finnlandi, Noregi og Svíþjóð auk
þess sem fjórða liðið er sameiginlegt
lið Dana og íslendinga. Það verða því
átta keppendur í hverri einstaklings-
íþróttir
Þetta mót verður fyrsta
alþjóðlega frjálsíþrótta-
mótið, segir Jónas
Egilsson, sem haldið
er utan höfuðborgar-
svæðisins.
grein en fjögur lið í boðhlaupum. Það
sem telja má til nymælis, a.m.k. hef-
ur það ekki sést á Islandi í marga
áratugi, er kappganga. Keppt verður
í 10.000 metra göngu karla og 5.000
metra göngu kvenna.
Alls munu 20-25 íslenskir frjáls-
íþróttamenn, 20 ára og yngri, etja
kappi við bestu norrænu jafnaldra
sína í fijálsíþróttum. Islensku sveit-
ina leiða efnilegustu frjálsíþrótta-
menn landsins, sem skipa svonefnd-
an Aþenuhóp FRI. Þar má nefna
Silju Úlfarsdóttur, besta sprett-
hlaupara okkai- í kvennaflokki og
Einar Karl Hjartarson Ólympiu-
kandidat, en þau munu
einnig taka þátt í
heimsmeistaramóti
unglinga, sem fram fer í
Chile í október á þessu
ári. Meðal keppenda
verður að öllum líkind-
um Ingi Sturla Þóris-
son, sem hefur tekið
stórstígum framförum í
grindahlaupi í sumar,
auk annarra efnilegra
íþróttamanna. A síð-
asta ári var keppni
þessi haldin í Finnlandi
og komust fjórir ís-
lendingar á verðlauna-
pall. Stefnt er að því að
íslenskir keppendur hreppi fleiri
verðlaunnú. Endanlegt val íslensku
keppendanna fer fram að aflokinni
Bikarkeppni FRÍ, sem haldin verður
í Hafnarfirði og Kópavogi 12. og 13.
ágúst nk.
Þetta mót verður fyrsta alþjóðlega
frjálsíþróttamótið sem haldið er utan
höfuðborgarsvæðisins, en hingað tU
hafa þessi mót farið fram í Reykja-
vík, Mosfellsbæ eða Hafnarfirði.
Ákvörðun stjórnai’ FRÍ að halda
mótið í Borgarbyggð er í samræmi
við stefnu sambandsins að dreifa
verkefnum sem víðast og efla um leið
starfið í héraði.
Fijálsíþróttaaðstaða hér á landi
hefur verið að batna að undanfömum
árum og nú er svo komið að alls eru
sex fijálsíþróttavellir lagðir gerviefni
á landinu og nýr völlur verður vígður
á Egilsstöðum í Austur-Héraði á
næsta ári í tUefni Landsmóts UMFÍ.
Hins vegar er ljóst að veUi skorth- á
Norðurlandi og á Suðurnesjum til að
utanhússaðstaða geti talist viðunandi
fyrir frjálsíþróttir í landinu. En slíkt
stendur vonandi til bóta.
Undirbúningur mótahaldsins í
Borgarnesi er í höndum heimamanna
og hefur hann gengið einstaklega vel.
Höfundur er formaður Frjálsíþrótta-
sambands Islands.
Jónas Egilsson
Hreinn kroppur
alltaf allsstaðar
„Sturta"án vatns, sápu og handklæðis
8 stórir rakir.„Sports & Leisure Wash"
þvottaklútar.
Frábært í bílinn, fellihýsið, bakpokann,
bátinn, töskuna eða hvar sem er.
Verstöðin ehF.
Suðurlandsbraut 52, s. 588 0100
Fást um land allt.
Er húðin þurr ?
Hydraxx Forte
rakakrem fyrir ofnæmishúð
fæst í apótekum
ymus.vefurinn.is
LIÐ-AKTIN
Góð fæðubót fyrir
fólk sem
er með mikið álag
á liðum
Skólavörðustig, Kringlunni & Smáratorgi
Vega dagur í Lyfju Lágmúla
Ráðgjöf frá kl. 14-17 i dag
Kemur þér beint að efninu!
Ótvíræður kostur þegar draga á úr ólykt.
Lykteyöandi innan frá, vinnur gegn
andremmu, svitalykt og ólykt vegna
vindgangs, kemur lagi á meltinguna.
c£h LYFJA
Lyf á lágmarksverði
Lyfja Lágmúla® Lyfja Hamraborg® Lyfja Laugavegi
Lyfja Setbergi* Útibú Grindavfk®
(fsso)
Olíufélagiðhf
www.asso.ls
Ekkert grín
... en alvöru golfsett, kerrur, hanskar,
kúlur og fleira fyrir golfarann.