Morgunblaðið - 27.08.2000, Page 6

Morgunblaðið - 27.08.2000, Page 6
6 B SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ Ungu fólki fínnst sjálfsagt að horfa á fót- bolta í beinni útsendingu, tala við fólk hinum megin á hnettinum í gegnum tölvu, skreppa á McDonald’s eða panta sér pitsu og nota greiðslukort sem gjaldmiðil. Þegar það heyrir á tal, þótt ekki sé nema miðaldra fólks, gæti það haldið að verið væri að minnast á atburði aftan úr forneskju, svo hratt hafa breytingarnar orðið. Af nógu er að taka en Hildur Friðriksdóttir greip aðeins niður í fáeina málaflokka. tækni hefði verið tekin í notkun á Al- þingi íslendinga, þ.e. segulband í stað þingskrifara. Keypt voru fjögur helj- arstór tæki og eitt stjómborð. Þótti mönnum að um byltingarkennda nýj- ung væri að ræða og segir í Morgun- blaðinu frá þessum tíma að „örfá þjóðþing munu hafa horfið að þessu fyrirkomulagi við skráningu þing- ræðna. í Finnlandi og Tékkóslóvakíu munu þó hafa verið gerðar tilraunir með vélræna upptöku Ráðnir verða a.m.k. 6 vélritarar til þess að annast þá vinnu en vanalega hafa 16 þingrit- arar gegnt þessum störfum." Nú þykja beinar sjónvarpsútsend- ingar úr þingsölum ekki fréttnæmir atburðir þar sem öll þjóðin getur ná- kvæmlega fylgst með hvaða orð hrjóta af vörum þingmanna. En lítum aftur til ársins 1952 þegar frásagnir í blöðum hljóðuðu þannig: „Hér eftir verða ræður þingmanna teknar á stálþráð...Af stálþræðinum verða ræðumar vélritaðar í þríriti. Eitt eintakið verður geymt óbreytt og þar mun sjást svart á hvítu hvað þing- mennimir hafa í rauninni sagt. Aldrei framar verður hægt að skella þeirri skuld á þingskrifara, að þeir hafi ritað vitlaust, því tæknin lætur ekki að sér hæða. Annað eintakið verður afhent ræðumanni, sem getur gert tillögur um minni háttar lagfæringar í ræðu sinni, en hið þriðja verður búið til prentunar á venjulegan hátt af starfs- mönnum þingsins.“ Tölvur hafa einnig auðveldað alla ritvinnslu þannig að leiðréttingar eða breytingar era gerðar samstundis í stað þess að þurfa að vélrita heilu síð- umar upp aftur og ljósritunarvélar hafa tekið við af kalkipappír. Þó að það sé hreint með ólíkindum era ekki nema 18 ár síðan fyrstu bréfasímarnir komu til landsins. Menn stóðu á öndinni yfir hinni nýju tækni, þ.e. að hægt væri að senda mynd eða bréf í þessu tæki og að móttakandi í öðra landi væri kominn með það í hendurnar svo til um leið. Erlingur Friðriksson, eigandi Elda- skálans, innflutningsverslunar með eldhús- og baðinnréttingar, var einn af þeim fyrstu til að kaupa faxtæki hér á landi. „Það var árið 1982 að framleiðendur okkar í Danmörku spurðu hvort við væram tilleiðanleg að verða okkur úti um telex til að auð- velda samskiptin. Við svöraðum því til að þar sem samskiptin byggðust meira eða minna á teikningum sem senda þyrfti á milli væri lítið gagn að telexi. Oðra máli gegndi um telefax, það hlyti að verða framtíðin. Ef þeir gætu fundið slíkt tæki á viðráðanlegu verði væram við til í slaginn. Áður en við ákváðum kaupin þótti okkur rétt að kanna hvort nokkur fyr- irstaða væri frá hendi Pósts og síma (P&S). Þá vildi svo vel til að þeir vora með nákvæmlega sams konar tæki í athugun og sáu að þessi nýja tækni olli engum vandræðum á símalínun- um. Fáeinum dögum áður en okkar fax kom til landsins hafði Eimskipafé- lagið fengið lánað heljarstórt faxtæki til að athuga hvort ekki væri hægt að nýta þessa tækni á íslandi. Hjá 03, upplýsingasíma Landssímans, voru tromlurnar notaðar fram til 1980. Ný nöfn í símaskrána komu á mjd- um strimlum sem bætt var inn í á réttan stað. Nú finnst hvaða nafn og númer sem er með því að slá upp í tölvu. Um verslunarmanna- helgina 1952 náði drykkjuæðið há- marki á Hreðavatni í Borgarf irði. Þar var allt brotið og braml- að í veitingaskálan- um og mátti þakka fyrir að enginn varð fyrir fjörtjóni. Þegar íslenska sjón- varpið hóf útsend- ingar vildu allir eign- ast sjónvarp og seldust þau í köss- um beint af götunni, þvi ekki gafst tæki- færi til að taka utan af þeim. Hægt var að fá tvenns konar AÐ kann að hljóma undarlega að fyrir örfáum áratugum fólk ekki keypt sér skyndibitamat nema í sölutumum og þá eingöngu pylsur. Það þótti merkileg nýjung þegar hægt var að fá ristaða samloku með skinku, osti og ananas, boma fram með hrásalati, og þegar Tomma-hamborgarar komu á markað mátti sjá biðraðir langt út á götu af eftirvæntingarfullu fólki sem beið þess að smakka vörana. Nú er fólk orðið svo vant nýjungum að það lætur sér ekki bregða þótt framandi réttir séu bomir á borð. Vildu menn gera sér dagamun og fara út að borða að kvöldi til var um lítið annað að ræða en fína veitinga- staði og afar fátítt var að sjá böm á veitingahúsum, jafnvel þótt stálpuð væru. Væra menn á leið til útlanda urðu þeir að kaupa gjaldeyri á svörtum, því aðeins var veitt heimild fyrir ákveð- inni upphæð og fór hún eftir lengd dvalarinnar. Yfirleitt var sá háttur hafður á í hópferðum að gisting og ferðalög í viðkomandi landi vora greidd fyriríram í íslenskum krónum. Þótt ótrúlegt megi virðast era ekki nema fimm ár síðan öll gjaldeyrishöft vora felld úr gildi en síðustu hömlum- ar vora á viðskiptasviðinu eins og langtímafjárfestingum erlendis og skammtímahreyftngum fjármagns, þ.e. kaup á víxlum og öðram verðbréf- um til skemmri tíma en eins árs. Þegar myndbandavæðingin hóf innreið sína héldu menn fyrst að myndböndin yrðu seld eins og bækur en þá sprattu myndbandaleigumar upp og nú þykir ekki tiltökumál að sækja sér „spólu“, jafnvel um miðja nótt. Þó að nú sé algengt að menn skreppi á kaffihús, hvort sem er að degi til eða kvöldi, era aðeins örfá ár síðan kafíihúsamenningin hélt inn- reið sína hér á landi. Raunar svo stutt að jafnvel ungt fólk man þá tíð að ein- ungis örfáir „pöbbar“ vora í allri Reykjavík. Ekki var hægt að kaupa bjór þar fyrr en árið 1989 en nokkra áður höfðu menn tekið upp á því að blanda saman áfengi og bjór sem gekk undir nafninu bjórlíki. Nú má segja að kaffi- og veitingahús séu svo til á hveiju götuhomi í miðbæ Reykjavíkur. TÆKNIN • „Ég man að í jeppanum hans pabba hafði verið handknúin þurrka á hægri framrúðunni. Hún var dottin af en sveifin var eftirinn- aná.“ (Þórarinn Ehljám (bókinni Ég man, 1994.) Tækniframfarir hafa verið með ólíkindum sem auðvelda almenningi meðal annars að afla sér þekkingar og fylgjast með framvindu þjóðmála sem og alþjóðamála. Tímixm er afstæður eins og annað- en ekki þarf að líta lengra aftur en til loka árs 1952 þegar tilkynnt var að ný Ljósmynd/VR-blaðið Verkfallsverðir meina viðskiptavini aðgang inn f verslun 1982, en ári áður höfðu orðið mikil læti vegna laugardagslokana. Mér er mjög minnisstætt hvemig fyrsta faxskráin leit út. Hún var ein A4-síða þar sem leiðbeiningar og út- skýringar vora skráðar ásamt allri skránni en hún samanstóð af fimm númeram. Fyrir utan Eldaskálann vora þar tvö númer skráð á P&S, eitt á Aeo og eitt lánstæki var skráð hjá Eimskip." NETTENGING • „Ég man að innan í bækur frá Bæjarbókasafninu var límdur lítill vasi fyrir kort sem dagsetningar voru stimplaðar á. Á vasanum voru prentaðar reglur um útlán og m.a. sagt að það ætti að láta safnið vita ef upp kæmi „næm sðtt á heimil- inu“. (Þórarinn Elcfjóm; Ég man, 1994.) Tækniþróunin leiðir hugann að þeirri ótrúlegu hagræðingu í vinnu sem orðið hefúr með aukinni tækni. Nú geta menn sinnt nánast öllum sín- um erindum í gegnum tölvu og raun- ar hvort sem er vegna vinnu eða einkalífs. Hvenær sem er sólar- hringsins geta menn greitt banka- reikninga, keypt hlutabréf á heims- markaði eða sótt um vinnu svo dæmi séu tekin. Farsíminn, að fartölvunni ógleymdri, gerir mönnum kleift að nálgast upplýsingar og sinna starfi sínu þótt þeir séu staddir úti í bæ eða á ferðalögum erlendis. Fyrirtæki er hægt að reka frá hvaða heimshomi sem er. Ekki er langt síðan menn, sem stóðu í innflutningi, eyddu mörgum dögum í að leysa vörar úr tolli. Krist- mann Magnússon, stjómarformaður Pfaff hf., segir að þetta hafi verið hörmungartímar og hann fái enn í magann þegar hann komi inn í Toll- stjóraskrifstofúna. „Nú eram við tengdir tollinum rafrænt og sendum allar skýrslur í gegnum tölvu. Af og til koma menn frá tollstjóra og fylgj- ast með hvort skýrslumar séu í sam- ræmi við fyrirliggjandi gögn. Þetta er því afskaplega gott fyrirkomulag. í gamla daga þurfti fyrst að fara í við- skiptabankann til að greiða vöruna, jafnvel þó að seljandinn vildi lána hana til þriggja mánaða og síðan tæki, annað sem náði Reykjavíkur- stöðinni og hitt sem náði lika Keflavíkur- sjónvarpinu. Hver hefði trúað þvi að aðeins 18 ár eru síðan bréfasímar komu til landsins? Fyrsta faxskráin sýndi fimm númer og voru þau skráð á Aco, Eldaskálann, tvö númer á Póst og síma og eitt á láns- tæki hjá Eim- skipafélaginu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.