Morgunblaðið - 30.09.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.09.2000, Blaðsíða 4
4 E LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ REYKJAVIK - MENNINGARBORG EVROPU 2000 Islensk honnunarsyn- ing á Kjarvalsstöðum Mót - íslensk hönnunarsýning veröur opnuð 14. nóvemberá Kjarvalsstöðum. Sýningin stendurtil 12. nóvember. TONLIST 1.10. 70 ára afmælistónleikar Tónlistarskólans í Reykjavík Tónlistarskóli Reykjavíkur mun standa fyrir voldugum há- tfðartónleikum í Háskólabíói á 70 ára afmælisdegi sínum. Stjórnandi er Bemharður Wilkinson. Tónleikamir hefjast kl. 14:00. Aðgangseyrir er eng- inn. www.ismennt.is/vefir/tono 7.10. Orðið tónlist Orðið tónlist - hátíð talaðrar tónlistar er yfirskrift dagskrár sem útgáfufyrirtækið Smekk- leysa sm.hf. mun standa fyrir í Islensku óperunni. www.musik.is/art2000 19.10. - 22.10. Iceland Airwaves Alþjóðlega tónlistarhátíðin Iceland Airwaves verður haldin í Reykjavík í annað sinn, nú í samvinnu Flugleiða og Menn- ingarborgar. www.icelandairwaves.com 18.10. -21.11. íslensk tónlist i lok 20. aldar Þessi þriðji og síð- asti hluti hátíðar Tónskáldafé- lagsins verður tileinkaður tóns- míðum frá 1985 og til aldarloka og ber yfirskriftina „Framtíð- arsýn“. www.listir.is 29.10 og 31.11 Óvæntir ból- félagar í október em Magga Stína og ný hljómsveit, sem hún mun skipa barnungum hljóðfæraleikuram. í nóvember verða þeir engir aðrir en Guð- bergur Bergsson rithöfundur og tónlistarmaðurinn Dr. Gunni. www.reykjavik2000.is 6.11. The London Mozart Players Kammersveitin The London Mozart Players leikur í Salnum í Kópavogi kl. 20.00. 9.11. Sinfóníuhljómsveit ís- lands Tónleikar í Háskólabíói kl. 19.30 þar sem frumfluttur verður klarinettkonsert eftir Jón Nordal. www.sinfonia.is 11.11. Caput-tónleikar Á þessum tónleikum, sem hefjast kl. 17.00 í Langholts- kirkju, mun Caput meðal ann- ars framflytja verk Snorra Sig- fúsar Birgissonar og Bára Grímsdóttur, pöntuð af M2000 fyrir CAPUT, og nýtt verk eftir Svein Lúðvík Bjöms- son www.reykjavik2000.is 12.11. Music Attuale í tilefni af menningarári Bo- logna skipulagði MusicAttuale frá Bologna samstarfsverkefni tónlistarhópa í þremur menn- ingarborgum: Caput-hópsins i Reykjavík, Bit 20 í Bergen og MusicAttuale í Bologna. . Tón- leikamir era hluti af hátíð Tón- skáldafélagsins. www.reykjavik2000.is 22.11. -26.11. Pfanókeppni EPTA fslandsdeild Evrópu- sambands píanókennara (EPTA) stendur fyrir heljar- mikilli píanóveislu á menning- arárinu. Síðasti og viðamesti hluti hennar er þrískipt píanó- keppni fyrir unga píanóleikara, 25 ára ogyngri. Keppnin stend- ur yfir frá kl. 9.00-16.00 alla dagana. 7.12. Sinfóníuhljómsveit ís- lands Tónleikar í Háskólabíói kl. 19.30 þar sem frumflutt verður hljómsveitarverk eftir Hjálmar H. Ragnarsson. www.sinfonia.is Sýningin á Kjarvalsstöðum er hald- in á vegum FORM ÍSLAND, sam- taka hönnuða. Sýningin er liður í Reykjavík - menningarborg 2000. „Hönnun er einn af vaxtarbrodd- um í íslensku atvinnulífi og íslensk- ir hönnuðir starfa í alþjóðlegu starfsumhverfi þar sem landamæri era engin,“ segir í upplýsingum frá FORM ÍSLAND. „Á sýningunni á Kjarvalsstöðum verður skyggnst inn í hönnun 21. aldarinnar, auk þess sem íslensk hönnun á síðustu öld verður skoðuð. Sýningarformið sjálft verður nýstárlegt og þarf sýningargestur- inn að raða saman og geta í eyðurn- ar. Sýningin er byggð upp á þremur meginhugmyndum; hönnuðinum sem einstaklingi, iðnaðarframleiða- ndanum og sögulegum arfi íslenskr- ar hönnunar. Islensk nútímahönnun skipar veglegan sess á sýningunni með megináherslu á hönnun sem byggist á hugmyndafræðilegum nýjungum. Hlutir og framleiðsla verða sýnd í alþjóðlegu Ijósi. FORM ÍSLAND stendur einnig að útgáfu á veglegri sýningarskrá þar sem rakin verða atriði úr íslenskri hönnunarsögu. Byggt verður á víðtækri gagnasöfn- un og greinum eftir ýmsa höfunda og verður ritið ríkulega skreytt myndum. Sýningarstjórar era Michael Yong og Katrín Pétursdóttir iðn- hönnuðir, þeim til aðstoðar er Ómar Sigurbergsson húsgagna- og innan- hússarkitekt. ÞÓRARINN B. ÞORLÁKSSON. ÞINGVELLIR. Hið elsta og hið I Listasafni Islands veröa opnaðartvær sýn- ingarí október. Hinn 14. verður opnuö yfirlitssýn- ing á verkum Þórarins B. Þorlákssonarog hinn 19. verður opnuð sýning á nýjum verkum Siguröar Guðmundssonar. SIGURÐUR Guðmundsson var í hópi ungra listamanna, sem komu fram á 7. áratugnum og vora undir áhrifum frá Fluxus-hreyfingunni og popplist. Hann varð meðal virkustu félaga í SUM-hópnum. Undanfarið hefur Sigurður einbeitt sér að gerð þrívíddarverka en hann hefur nú að- setur í Kína og eru verk á sýning- unni unnin þar. Sýningin verður í sal 2 í Listasafninu og stendur til 26. nóvember. SIGURÐUR GUÐMUNDSSON. HUNDUR. fc®ÍHSSilÍiíl:ÍS? VERK AF SÝNINGU INGU SÓLVEIGAR FRIÐJÓNSDÓTTUR, GULLSKIPIÐ, t RÁÐHÚSI REYKJA- VfKUR. VERK AFSÝNINGU INGU SÓLVEIGAR FRIÐJÓNSDÓTTUR, GULLSKIPIÐ. Gullskipið og Jón Hreggviðsson Gullskipið og Jón Hregg- viðsson er yfskrift tveggja sýninga sem opnaðar verða 6. október nk. í Ráð- húsi Reykjavík. Það eru myndlistarkonurnar Inga Sól- veig Friðjónsdóttir og Inga Guðrún Hlöðversdóttur sem sýna þarna verk sín. Lögð er áhersla á samskipti ís- lendinga og Hollendinga á 17. öld. Inga Sólveig nálgast þetta við- fangsefni út frá Gullskipinu svokall- aða, eða hollenska Indíafarinu Wapen van Amsterdam, sem fórst við íslan- dsstrendur 1667. Inga Guðrún beinir hins vegar sjónum sínum að Jóni Hreggviðssyni, fslenskum sakamanni sem flúði frá íslandi og kom til Rotter- dam í Hollandi árið 1684. Sýningin verður svo sett upp í Rotterdam á næsta ári en þá mun borgin verða önn- ur af tvelmur menninarborgum Evrópu. Verk Ingu Sólveigar eru landslags- Ijósmyndir frá strandstað Wapen van Amsterdam á Skeiðarársandi. Inga byggir á sögulegum heimildum um skipbrotið, en hefur þó frjálsar hendur um efnistök og leyfir oft hugarfluginu að ráða. Ljósmyndirnar eru blandaðar teikningum og olíulitum sem inga Sól- veig vinnur á sinn sérstaka hátt. Verk Ingu Guðrúnar sýna dvöl Jóns Hregg- viðssonar í Rotterdam og nágrenni, auk fólks sem varð þar á vegi hans. Verkin eru byggð á lýsingum úr ís- lenskum annálum, íslandsklukku Hall dórs Kiljan Laxness og eigin hugar- flugi Ingu Guðrúnar. Verkin eru olíumálverk unnin á striga. Þess má geta að Wapen van Am- sterdam var feikilega stórt Indíafar, eitt tólf kaupskipa á heimleið frá Ind- ónesíu. Aðfaranótt 17. september skall á fárviðri á hafinu og hraktist

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.