Morgunblaðið - 30.09.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.09.2000, Blaðsíða 2
2 E LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ REYKJAVÍK - MENNINGARBORG EVRÓPU 2000 LEIKLIST/ DANS 4.10. Háaloft í Kaffileikhúsinu Háaloft er eftir Völu Þórsdótt- ur og sett upp af Icelandic Take Away Theatre í samstarfí við Kaffileikhúsið. Verkið er ein- leikur og fjallar um geðhvarfa- sýki á nýstárlegan hátt. Leik- stjóri er Ágústa Skúladóttir. 7. 10. Tilvist eftir Dansleik- hús með Ekka. Tilvist er sett upp í Iðnó og er liður í Leiklist- arhátíð sjálfstæðu leikhópanna. Leikstjóri er Sylvía Von Kos- poth. 13.10. Vitleysingarnir eftir Ólaf Hauk Símonarson Hafnar- fjarðarleikhúsið frumsýnir Vit- leysingana í leikstjóm Hilmars Jónssonar. 14.10. Trúðleikur eftir Hall- grím H. Helgason. Leikfélag Islands í Iðnó. Leikstjóri er Öm Árnason. 26.10. Góðar hægðir eftir Auði Haralds Draumasmiðjan. Leikstjóri er Gunnar Gunn- steinsson. 31.10. -2.11. TRANS DANS EUROPE 2000 TDE2000 er danshátíð menningarborga Evrópu árið 2000, sem haldin verður í Borg- arleikhúsinu. www.id.is 11.11. Skáldanótt Nýtt leikrit eftir Hallgrím Helgason verður fmmsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins í leikstjóm Benedikts Erlings- sonar. www.reykj avik2000.is 18.11. Medea. Leikhópurinn Fljúgandi fískar í Iðnó.. Leik- stjóri er Hilmar Oddsson. www.reykjavik2000.is 3.12. Leikhópurinn Perlan Leikhópurinn Perlan, sýnir þrjá leikþætti í Iðnó. www.reykjavik2000.is Morgunblaðið/Sverrir í DAG ER ÉG GLAÐUR. LEIKHÓPURINN PERLAN. Perlan í lönó Leikhópurinn Perlan sýnirfrum- samda leikþætti 3. desember kl. 15 í Iðnó undir stjórn Sigríðar Ey- þórsdóttur. LEIKHÓPURINN Perlan, sem skipaður er þroska- heftum, hefur sett upp sýningar hérlendis og er- lendis frá árinu 1982 og hvarvetna vakid athygli fyrir einlæga og hrífandi leiktúlkun. Sigríður Ey- þórsdóttir leikstýrir öllum verkunum og hefur fengið til liðs við sig valinkunna tónlistarmenn og búningahönnuði. í verkinu „Mídas konungur" segirfrá konungi sem er svo gírugur í gull að hann týnir gledinni. „í dag“ er látbragdsleikur við samnefnt kvæði eftir Sigurð Sigurðsson frá Arnarholti og „Kærleikur- inn er sterkasta aflið“ er samið upp upp úr ævin- týri þar sem sólin og vindurinn karpa um hvort þeirra sé sterkara. Menningaráriö í Reykjavík Sívaxandi áhugi og ánægja „ÞAÐ hefur verið sérstaklega gam- an að finna hvemig áhugi og ánægja með þetta risastóra verk- efni hefur vaxið jafnt og þétt úti í samfélaginu," segir Þórann Sigurð- ardóttir, stjórnandi Menningar- borgarinnar Reykjavík 2000 nú þegar hillir undir lok menningar- ársins. „Það var mikill vandi að raða við- burðum niður og sú vinna hófst strax fyrir 3 árum. Hér á skrifstofu Menningarborgarinnar hefur verið unnin gríðarlega mikil skipulags-, mótunar og kynningarvinna með öllum þessum fjölmörgu verkefn- um, starfsfólk M2000 hefur verið í sambandi beint eða óbeint við stór- an hluta þjóðarinnar og allt þetta samstarf hefur verið bæði heillandi og gefandi." Þórann segir að áhuginn á verk- efnunum hafi síður en svo dvínað, heldur vaxið jafnt og þétt, „...fólk hefur sótt nánast alla viðburðina og í raun er ótrúlegt að svo lítil þjóð skuli geta haldið uppi svona mikilli aðsókn. Sem dæmi má nefna að samstarfsverkefnin með sveitarfé- lögunum hafa fram að þessu dregið til sín um 70 þúsund manns, nærri 50 þúsund manns tóku þátt í dag- skránni á opnunardaginn okkar í svartasta skammdeginu í janúar, menningarnóttin, sem M-2000 lagði mjög riflega til, sló öll þátttökumet í sumar þegar um 60 þúsund manns komu í miðborg Reykjavíkur. Samstarfið við systurborgir okk- ar í Evrópu og aðra aðila erlendis hefur líka verið mjög umfangsmikið og vaxandi, og nú á þessum síðustu mánuðum getum við aðeins sinnt hluta af þeim óskum sem okkur berast um aðkomu og þátttöku í ýmsum fundum og verkefnum bæði austan hafs og vestan. Baldur og Raddir Evrópu skiluðu margfaldri auglýsingu fyrir íslenska menningu og Reykjavík sem menningarlega borg og við erum enn að fá blaða- umsagnir og fréttir, sem allar era á einn veg.“ Þórunn segir mörg stór og spennandi verkefni framundan áður en menningarárinu lýkur. „Þar vil ég t.d. nefna sérstaklega fjölbreytta og spennandi tónlistarviðburði í október og framflutning á nýrri ís- lenskri tónlist sem Menningarborg- in hefur stutt. Trans Dans Europe 2000 er sameiginleg danshátíð menningarborganna sem haldin verður í Borgarleikhúsinu og Ljós- in í norðri er mjög spennandi og fjölbreytt hátíð sem haldin verður í byrjun nóvember og mun lýsa upp veturinn með framlegum og fjör- legum viðburðum frá norrænu menningarborgunum þremur. Nú þegar tæpir þrír mánuðir era eftir af menningarárinu eram við Morgunblaðið/Ragnar Axelsson ÞAU HAFA STÝRT MENNINGARBORGINNI. ÞÓRUNN SIGURÐARDÓTTIR, MARÍA E. INGVADÓTTIR, SIGRÚN VALBERGSDÓTTIR, HEIDRÚN HARÐARDÓTTIR, SVANHILDUR KONRÁÐSDÓTTIR OG SKÚLI HELGASON. farin að huga að samantekt á upp- lýsingum um öll hin fjölmörgu verkefni menningarborgarinnar, sem telja hvorki meira né minna en rúmt þriðja hundrað. Það er gríðar- lega mikilvægt að skoða ofan í kjöl- inn hverju þetta ár hefur skilað á sem flestum sviðum, hve margir hafa komið að framkvæmd, sem áhorfendur og njótendur, hvernig tekist hefur að halda þau markmið sem við settum okkur í upphafi, hverju verkefnið hefur skiíað í kynningu út á við og síðast en ekki síst, hverju það hefur skilað fyrir íslenska menningu til framtíðar,“ segir Þórann. Hvernig menningar- árinu verður slitið vill Þórunn ekki gefa upp á þessu stigi en lofar því að árið verði kvatt með viðhöfn. „Það er ennþá svolítið leyndarmál hvað boðið verður upp á en við er- um önnum kafin við að undirbúa það.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.