Morgunblaðið - 03.10.2000, Síða 2

Morgunblaðið - 03.10.2000, Síða 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000 KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ yfirburðasigri fSLENSKA landsliðið í knattspyrnu kvenna sýndi algjöra yfirburði þegar það vann 8:0-sigur á Rúmeníu á laugardag. Þetta er stærsti sigur íslenska liðsins frá upphafi og með sigrinum heldur liðið sæti sínu í efsta styrkleikaflokki Evrópu. Sigurinn var sigur liðsheildar- innar og léku íslensku stúlkurnar á als oddi. Rakel Ögmundsdóttir skoraði fernu í leiknum og jafnaði met Ásthildar Helgadóttur um fjölda marka skoruð í einum leik. rátt fyrir að úrslitin sýni fram á að markaveisla hafi átt sér stað gekk erfiðlega að skora fyrsta mark- ið. íslenska liðið IrisBjörk hefði Setað skorað Eysteinsdóttir strax á sjöttu mín- skrifar útu er Guðlaug Jóns- dóttir skaut í slá. Að sama skapi munaði litlu að Rúmenar skoruðu fyrsta mark leiksins skömmu síðar en Iris Sæmundsdótt- ir, sem átti frábæran leik í vörn Is- lands, bjargaði á elleftu stundu. Liðið lék með meira sjálfstrausti en það hefur gert í undanfömum leikjum en í upphafi brugðust of margar sendingar og stúlkumar áttu það til að leika of mikið inn í sömu svæði í stað þess að skipta yfir í ný svæði. Hurð skall nærri hælum eftir rúmlega 20 mínútna leik þegar Stef- ania G. Enache slapp ein í gegnum vörn íslands en Þóra B. Helgadóttir kom vel á móti og lokaði markinu og varði með miklum tilþrifum. Aðeins tveimur mínútum síðar mfu ís- lensku stúlkumar markamúrinn. Margrét Ólafsdóttir tók þá laglega homspyrnu inn í teig þar sem Ást- hildur Helgadóttir skallaði örugg- lega í markið og kom íslandi í 1:0. Eftir markið virtist létta mikið yfir íslensku stúlkunum. Þær tóku að leika knettinum betur á milli sín, ásamt því að þora að fara meira sjálfar með boltann. Þetta skilaði þeim öðm marki tæpum tíu mínút- um síðar er Olga skallaði langa sendingu aftur fyrir sig í gegnum vörn Rúmena og beint á Rakel Ög- mundsdóttur, sem var komin ein í gegn og skoraði með skoti. Áður en hálfleiknum lauk fengu íslendingar tvö ákjósanleg færi. Auk þess bjarg- aði Iris aftur í vöminni er hún hreinsaði boltanum í burtu rétt áður en Carmen M. Ciorba komst ein í gegn. Staðan í hálfleik var því 2:0 fyrir ísland og leikurinn enn í nokkmm járnum þar sem liðið átti eftir að leika gegn strekkingsvindi í síðari hálfleik. Það kom flestum á óvart hversu auðveldlega íslenska liðið valtaði yf- ir það rúmenska í síðari hálfleik. Katrín Jónsdóttir gaf tóninn með því að skora þriðja mark Islands með skoti eftir laglega sókn liðsins. Ásthildur lék þá boltanum frá miðj- unni og gaf á Rakel sem sendi bolt- ann á Katrínu sem var ein og yfir- gefin og skaut í fyrstu snertingu. Um fimm mínútum síðar skoraði Rakel sitt annað mark með skoti eft- ir glæsilega sendingu frá Rósu Júlíu Steinþórsdóttur. Mörkin komu nán- ast á færibandi í kjölfarið. Guðlaug Jónsdóttir skoraði fimmta mark Is- lands þegar hún hamraði boltann efst í markhornið eftir fína sendingu Rakelar. Rakel fullkomnaði svo þrennu sína með því að kasta sér fram og skalla boltann í netið eftir hnitmiðaða sendingu Margrétar. Rakel lét ekki staðar numið og skor- aði sitt fjórða mark og sjöunda mark íslands með laglegu skoti eftir að Guðlaug hafði sent boltann fyrir frá hægri. Logi Ólafsson skipti þremur vara- mönnum inn á þegar um tíu mínútur lifðu leiks er María B. Ágústsdóttir, Ásgerður Ingibergsdóttir og Erla Hendriksdóttir komu inn á og áttu þær allar eftir að koma við sögu. María varði meistaralega af stuttu færi er Ciorba slapp ein í gegnum vöm íslands. Hinar tvær síðar- nefndu sáu svo um að skora síðasta mark íslands. Ásgerður gaf þá lag- lega sendingu á Erlu, sem skoraði sérlega glæsilegt mark með hæln- um. Sigur íslands var svo sannarlega glæsilegur og liðið sýndi og sannaði að það á vel heima meðal bestu knattspyrnuþjóða Evrópu. Sigurinn var sigur liðsheildarinnar en vert er að minnast á Rakel sem skoraði fjögur mörk og lagði auk þess upp eitt. Hún fann sig vel og geislaði af leikgleði. Olga var einnig sterk frammi þar sem hún náði að halda boltanum vel og byggja upp margar sóknir. Guðlaug átti margar eitraðar sendingar og lék Rósa einn sinn allra besta leik með landsliðinu. Margrét var alltaf hættuleg með sínar eitruðu sendingar. Ásthildur bar boltann vel upp völlinn á meðan Katrín var vinnusöm og skilaði varn- arhlutverkinu afbragðsvel ásamt því að skora. Vörnin var sterkur hlekk- ur í góðu liði og lék íris einn sinn besta leik í sumar. Guðrún Gunnars- dóttir var einnig spræk og nýtti hraða sinn vel á meðan Helga Ösk Hannesdóttir lék skynsamlega. Þóra B. Helgadóttir var öryggið uppmálað í markinu og greip inn í á mikilvægum augnablikum. Þungu fargi er létt af knatt- spyrnuhreyfingunni þar sem Ijóst er að ísland á enn lið í fremstu röð í Evrópu. Liðið getur nú byggt á þessari reynslu sinni og stefnt hærra í framtíðinni. íslensku stúlkurnar fagna öðru marki liðsins í stórsigri sínum á Rúmeníu. Markamet í Eftir Skapta Öm Ólafsson Áttuekki voná svona stórum sigri „ÞETTA gekk bara þrælvel hjá okkur í dag. Við vorum vel skipulagðar og höfðum gaman af því sem við vorum að gera,“ sagði varnarmaðurinn íris Sæ- mundsdóttir ÍBV sem var að spila einn sinn besta landsleik með íslandi gegn Rúmeníu á laugardaginn er liðið vann 8:0. Það var góður talandi í liðinu í dag og ég held að það sem gekk hvað best hjá okkur var hvað við lét- um boltann ganga vel. Eftir að við fundum taktinn þá hreinlega völtuðum við yfir þær. Sigur- inn hefði þess vegna getað orðið mun stærri en ég er mjög ánægð með sigurinn,“ sagði Iris. Sigur liðsheildarinnar „Þetta var rosalega gaman. Sigur- inn í dag var sigur liðsheildarinnar og ég er mest ánægð með hvað við höfðum gaman að þessu,“ sagði Rakel Ögmundsdóttir. Spiluðum sem ein heild Fyrirliða landsliðsins, Ásthildi Helgadóttur KR, var nokkuð létt eftir leikinn. „Loksins gekk þetta upp hjá okk- ur. Þetta hefur verið svolítið erfitt ár og okkur hefur gengið erfiðlega að finna taktinn. En síðan kom þetta í dag og var alveg meiri háttar. Hvað sigurinn varðar þá átti ég ekki von á svona stórum sigri en við vissum eft- ir leikinn úti að við vorum með betra lið og þetta gekk bara upp í dag. Eftir að við fundum taktinn í leikn- um opnuðust allar flóðgáttir og við röðuðum inn mörkum.“ Nú hlýtur ykkur að vera létt með að hafa tryggt ykkur sæti í efsta styrkleikaflokk í Evrópu ? „Það var alltaf stefnan hjá okkur að tryggja okkur sætið og hálfgerð vonbrigði að þurfa að spila þessa aukaleiki. En við náðum að klóra okkur út úr því og vel það. Hvað framhaldið hjá okkur varðar þá er væntanlega heimsmeistarakeppnin á næsta ári og við munum undirbúa okkur vel. Ég tel að það sé mikill metnaður í þessu liði og við eigum að geta gert góða hluti með þetta lið.“ FOLK ■ MARÍA B. Ágústsdóttir lék sinn fyrsta landsleik gegn Rúmeníu á laugardag og fékk fyrir vikið ný- liðamerki Knattspyrnusambands íslands. ■ ÁSGERÐUR Ingibergsdóttir og Erla Hendriksdóttir hafa báðar leikið 25 landsleiki og fengu að launum gullúr frá KSÍ í lok leiksins gegn Rúmeníu. ■ RAKEL Ögmundsdóttir lék sinn síðasta leik á íslandi í bili en hún hélt til heimahaga sinna í Georgíu- fylki í Bandaríkjunum í gær. ■ LOGI Ólafsson stjómaði sínum síðasta landsleik með kvenna- landsliðinu í bili en samningur hans við KSÍ rann út í kjölfar leiksins. Ekki er búið að ráða nýjan þjálfara liðsins. ■ LANDSLIÐ Rúmeniu er mun leikreindara en það íslenska þar sem heildar leikjafjöldi þeirra er 625 gegn aðeins 312 leikjum ís- lenska landsliðsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.