Morgunblaðið - 03.10.2000, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000 C 3
IÞROTTIR
Logi Ólafsson landsliðsþjálfari segir
að leiðin liggi upp ávið
Sigur
liðsheild-
arinnar
„VIÐ erum bara með betra fótboltalið en Rúmenía. Það er meiri
breidd í okkar liði og það er ágætlega vel spilandi. Það hefur tekið
tíma að koma þessu á réttan kjöl. Ég tel að núna séum við búin að
því og nú liggur leiðin upp á við,“ sagði Logi Ólafsson landsliðs-
þjálfari eftir sigurinn gegn Rúmenum, 8:0.
Iupphafi leiks leit ekki út fyrir
að munur liðanna væri jafn
mikill og lokatölur sögðu til um.
Hvað segir Logi um
EWr það? „Við lögðum
írísiBjörk UPP með Það að
Eysteinsdóttur nýta okkur veik-
leikana sem við
töldum okkur vita um í þeirra liði
en okkur tókst ekki að skora. Við
vorum kannski of mikið að beita
löngum sendingum sem fuku aftur
fyrir endamörk en hins vegar þeg-
ar við vorum búin að brjóta ísinn
og komin í 2:0 og sérstaklega í
seinni hálfleik þá tel ég að björn-
inn hafi verið unninn. Þá var allur
vindur úr Rúmenum. Það tekur
alltaf tíma að vinna sig inn í leiki
og það tók þennan tíma í dag og
niðurstaðan er klár, 8:0.“
Þú talaðir um það fyrir leikinn
að samheldni myndi vinna þennan
leik, finnst þér það hafa gengið
upp?
„Mjög svo. Ef það er hægt að
segja að eitthvað sé áþreifanlegt
andlega þá fannst mér það hafa
verið úti í Rúmeníu fyrir fyrri leik-
inn. Eftir að við ræddum saman
fyrir leikinn þá fannst mér ég
finna þann andlega styrk og sam-
stöðu sem þarf að vera í hverju
liði. Að þær hafi skilið það að á
bak við landslið þarf að vera
stemmning og samheldni ef liðið
ætlar að ná langt.“
Þrátt fyrir að sigurinn hafi verið
liðsheildarinnar, hverjar fannst
þér leika best í dag?
„Mér fannst engin íslensk stúlka
eiga slakan leik í dag. Það hlýtur
að vera mjög gott að skora fjögur
mörk í landsleik eins og Rakel
(Ögmundsdóttir) gerði. Asthildur
(Helgadóttir) gerði það á sínum
tíma á móti Grikklandi. Að brjóta
ísinn eins og hún gerði með fyrsta
markinu er mjög gott. Síðan uxu
þær allar er á leið. Þóra (Helga-
dóttir) var öryggið uppmálað í
markinu. Aftasta línan; Helga
(Hánnesdóttir), Guðrún (Gunnars-
dóttir) og íris (Sæmundsdóttir)
léku mjög vel. Ég hef aldrei séð
Rósu (Steinþórsdóttur) spila svona
vel. Guðlaug (Jónsdóttir) spilaði
betur en hún hefur gert í allt sum-
ar og Katrín (Jónsdóttir) yfirveg-
aðri en nokkru sinni fyrr. Margrét
(Ólafsdóttir) var mjög góð og Ast-
hildur hættuleg og vann öll skalla-
einvígi sem hún fór í. Olga (Fær-
seth) er listamaður í að taka á
móti boltanum með mann í bakinu
og skapar fullt af góðum sóknum
þannig. Innkoman hjá Erlu
(Hendriksdóttur) var náttúrlega
góð og líka Ásgerði (Ingibergs-
dóttur). Innkoma Maríu (Agústs-
dóttur) var einnig góð. Hún er
búin að vera mjög góð í allt sumar
og átti skilið að koma inná og það
var ánægjulegt að hún skyldi
koma inn með þessum hætti. Hún
varði eitt dauðafæri og það var
mjög gaman fyrir hana. Þar er
efnilegurmarkmaður á ferð.“
Logi sagði að færri hindranir
væru hjá konum en körlum til að
verða toppþjóð í Evrópu. „Þetta er
bara spurning um að kvennafót-
boltinn nái samstöðu. Eins og til
dæmis þessi leikur gegn Rúmeníu
skipti afskaplega miklu máli fyrir
kvennafótbolta um alla framtíð.
Hefðu allar þær stúlkur sem eru
að æfa og spila fótbolta komið á
völlinn þá hefðu verið yfir þúsund
manns. En þegar þær sjá sér ekki
einu sinni fært að mæta þá vantar
töluvert upp á að þær fái stuðning.
Um leið og þær fá stuðning verða
þær betri og hægt verður að gera
meiri kröfur til þeirra sem stjórna
í knattspyrnumálum í landinu. Það
þarf að byrja í grasrótinni, hjá fé-
lögunum, og stúlkurnar sem spila
sjálfar verða að styðja meira við
landsliðið," sagði Logi, sem er
mikið í mun að kvennafótboltinn
nái langt.
Morgunblaðið/Ómar
Margrét Ólafsdóttir átti frábæran leik gegn Rúmeníu á laugar-
dag og skapaði oft hættu með eitruðum sendingum sínum.
Ljósmynd/Eric Whitehead
Kristján Helgason var einbeittur i leiknum við Steve Davis í gær eins og sjá má. Heimsmeistarinn
margfaldi hafði betur gegn Kristjáni í gær, vann 5:4.
Hársbreidd
frásigri
KRISTÁN Helgason snókerspilari var í gærkvöldi hársbreidd frá
því að sigra Steve Davis, sexfaldan heimsmeistara, í fyrstu um-
ferð úrslitakeppni Opna breska meistaramótsins í snóker. Davis
setti niður bleiku kúluna í síðasta rammanum og sigraði 5:4.
Leikur Kristjáns og Davis í gær
var ekki vel leikinn en hann var
spennandi er líða tók á og Kristján
fór að sækja að Davis. „Þetta var nú
ekki leikur á hæsta plani. Rammam-
ir fóru einhvem veginn út í vamar-
leik og hvoragum okkar tókst að
nýta okkur þau fáu færi sem við
fengum þannig að við náðum engum
veralega góðum stuðum," sagði
Kristján í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi.
Hann var alls ekki sáttur við að
tapa. „Þetta var ekki nógu gott, ég
vissi að ég yrði að byrja vel en ég
tapa fyrstu þremur römmunum.
Raunar vora þeir svo jafnir að við
hefðum alveg eins getað varpað hlut-
kesti um hvor sigraði í þeim.
Eftir hlé náði ég mér á skrið á ný
og náði að minnka í 3:2 en hann vann
sjötta rammann áður en ég vann tvo
á ný í röð og allt var orðið jafnt.
I síðasta rammanum gerði hann
59 í einu stuði en klikkaði svo og ég
komst að. Ég þurfti að hreinsa borð-
ið ætlaði ég mér sigur. Það vora sex
rauðar á boðinu og ég var langt kom-
inn með að hreinsa en í stuðinu áður
en ég gerði bleiku kúluna klikkaði ég
aðeins, gerði þetta of flókið og náði
ekki að setja þá bleiku niður og hann
kláraði rammann auðveldlega,“
sagði Kristján sem sagði að þetta
hefði verið 99% kúla, „ég var búinn
að koma mér í þá stöðu að hreinsa
borðið, en því miður gekk það ekki
að þessu sinni og vonandi lærir mað-
ur eitthvað af þessu.“
Hjalti Þorsteinsson, sem hefur að-
stoðað Kristján, horfði á leikinn í
beinni útsendingu ásamt fjölmörg-
um öðram á Snóker- og púlstofunni í
Armúla. „Það er bara spurning um
hvenær Kristján springur út eins og
falleg rós. Þessi leikur mun reiknast
honum til tekna í framtíðinni þrátt
fyrir að hann hafi tapað. Það er svo
sem ekkert alslæmt að tapa með
minnsta hugsanlega mun fyrir Steve
Davis, en samt er maður ekki alveg
sáttur við það,“ sagði Hjalti eftir
leikinn.
Mótið er haldið í Plymouth og er
Kristján úr leik en Davis mætir
Fergal O’Brian í næstu umferð.
Ólafur fýrir Áma Gaut
ATLI Eðvaldsson landsliðsþjálfari í knattspymu hefur valið Ólaf Gott-
skálksson hjá Brentford í landsliðið sem mætir Tékkum á laugardaginn
og Norður-Irum á Laugardalsvelli miðvikudaginn í næstu viku.
Ólafur kemur í landsliðshópinn í stað Áma Gauts Arasonar mark-
varðar Rosenborgar sem er meiddur og getur því ekki verið með í þess-
um leikjum.
Fyrsta mark Amars
fyrir Lokeren
Amar Grétarsson skoraði sitt
íyrsta deildarmark fyrir Lok-
eren þegar liðið gerði jafntefli, 1:1,
við Beveren um
Krístján helgina. Hann jafn-
Bemburg aði metin á lokamín-
skrifar útu fyrri hálfleiks
með skoti frá vítateig en markvörður
Beveren sló boltann í stöngina og
inn.
Arnar var nálægt því að skora
strax á fyrstu mínútu leiksins þegar
markvörður Beveren varði frá hon-
um úr dauðafæri. Arnar fór af velli á
64. mínútu en nafni hans, Arnar Þór
Viðarsson, sat á varamannabekk
Lokeren allan tímann og fékk ekki
tækifæri þrátt fyrir þrjár innáskipt-
ingar.
Lokeren, sem er í 9. sæti deildar-
innar, vii’ðist ekki ætla að ná sér á
strik undir handleiðslu Georges
Leekens þjálfara og er langt síðan
félagið hefur leikið jafnslæma knatt-
spyrnu og nú. Eftir leikinn sagði
Leekens að þetta sýndi best að hann
yrði að fá þá Rúnar Kristinsson og
Auðun Helgason sem fyrst. Auðun
hlýtur að fara beint inn í liðið þegar
hann kemur þar sem hægri bakvörð-
urinn Soley Seyfo var langslakastur
af leikmönnum Lokeren.
Guðmundur
frestaði för-
inni til Lyn
GUÐMUNDUR Benedikts-
son knattspyrnumaður úr
KR reiknar með að fara til
norska félagsins Lyn ein-
hvern næstu daga. Félagið,
sem hefur þegar tryggt sér
sæti í úrvalsdeildinni að ári,
hefur sýnt áhuga á að fá
hann f sínar raðir og hefur
boðið honum að koma og
æfa með liðinu. Guðmund-
ur, sem er með lausan
samning við KR en er á
leikmannasamningi KSÍ til
áramóta, hafði stefnt á að
fara út í dag en frestaði för-
inni þar sem hann hafði
ekki fengið grænt Ijós hjá
KR-ingum til að fara.
KR-ingar vilja gera nýjan
samning við Guðmund en
hann vill láta á það reyna
hvort hann komist að hjá
erlendu félagi áður en hann
skrifar undir nýjan samn-
ing við vesturbæjarliðið.