Morgunblaðið - 03.10.2000, Page 4
4 C ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
KORFUKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Kristinn.
Bandaríski leikmaðurinn Calvin Oavids var allt í öllu í góðum sigri Keflvíkinga gegn Magna Haf-
steinssyni og félögum hans í íslandsmeistaraliði KR.
Fimasterkir
Keflvíkingar
KEFLVÍKINGAR sendu skýr skilaboð til alira þeirra sem spáðu liðinu
3. sætinu í deildarkeppninni með góðum sigri á KR á heimavelli
meistaranna á sunnudagskvöld. Keflvíkingar léku feiknavel og
bandaríski leikmaðurinn þeirra, Calvin Davids, var erfiður við að
eiga í vörn og sókn. íslandsmeistar KR eru enn án sigurs eftir tvær
umferðir og Ijóst að í liðið vantar sterkan frákastara þar sem leik-
menn KR áttu ekkert svar við hinum hávaxna Davids. Keflvíkingar
lögðu grunninn að 83:61 sigri liðsins í upphafi 2. leikhluta þegar lið-
ið skoraði 15 stig í röð og breyttu stöðunni úr 21:15 í 36:15 og þrátt
fyrir að KR-liðið hafi náð að minnka muninn í 9 stig var sigur Kefl-
víkinga aldrei í hættu.
Tvöörugg
stig í súginn
í Grafarvogi
að var Birgir Öm Birgisson
Keflvíkingur sem byrjaði með
látum og setti 6 stig í röð úr stökk-
skotum og Calvin
Siguröur Elvar Pavids, var,ði glæsiJ
Þórólfsson lega skottilraun fra
skrifar Jóni Arnóri Stefáns-
syni en KR liðið átti í
miklum erfiðleikum með að komast
upp að körfunni þar sem Davids var
vel staðsettur. í upphafi 2. leikhluta
voru Keflvíkingar með 6 stiga for-
skot og á sex mínútna kafla skoruðu
þeir Magnús Gunnarsson og Hjört-
ur Harðarson þrjár þriggja stiga
körfur og Davids tróð boltanum í
körfuna eftir að skot Hjartar hafði
skoppað af körfuhringnum. KR átti
engin svör við þessum leikkafla
Keflvíkinga og hittni leikmanna var
slök. Arnar Kárason leikstjórnandi
KR tók við sér í lok 2. leikhluta og
skoraði þá 6 stig í röð og breytti
stöðunni í 36:23 en það stóð ekki
lengi við þar sem Keflvíkingar höfðu
18 stiga forskot í leikhlénu, 45:27.
Um miðbik 3. leikhluta voru það
Ólafur Jón Ormsson og Jón Arnór
sem fóru fyrir KR liðinu en Keflvík-
ingar skoruðu aðeins 10 stig í 3. leik-
hluta en KR liðið 19 stig. Calvin
Davids var reyndar hvíldur í dágóða
stund í 3. leikhluta og er hann kom
inn á að nýju breyttist leikur Kefla-
víkur til muna.
Ungur leikmaður í liði Keflavíkur,
Jón Norðdal Hafsteinsson, varði
glæsilega skot frá Jónatan Bow
fimm mínútum fyrir leikslok í stöð-
unni 66:53 og skömmu síðar var
dæmt tæknivíti á Inga Þór Stein-
þórsson og eftirleikurinn auðveldur
fyrir Keflavík.
Liðsheild Keflvíkinga er feiknar-
lega sterk og Calvin Davids bindur
liðið saman varnarlega og hirðir
flest þau fráköst sem í boði eru. Sig-
urður Ingimundarson hefur yfir að
ráða skemmtilegri blöndu af leik-
mönnum með mikla reynslu og
þeirra sem yngri eru en Jón Norð-
dal og Magnús Guðmundsson kom-
ust vel frá leiknum og sýndu góða
takta. KR liðið hefur byrjað illa á
nýhöfnu keppnistímabili, tapað báð-
um leikjum sínum til þessa og
greinilegt að Keith Vassel er sárt
saknað. Jón Arnór Stefánsson hitti
ekki vel úr skotum utan af velli og
hann skoraði bróðurpartinn af 12
stigum sínum í leiknum þegar Dav-
ids var hvíldur og auðveldara að
keyra upp að körfu Keflvíkinga. Ól-
afur Jón Ormsson og Hermann
Hauksson náðu sér ekki á strik og
greinilegt að liðið má ekki við slíku.
Bestur í liði KR var Arnar Kárason
sem barðist mjög vel og skoraði 12
stig.
„Við lékum vel í kvöld og vörnin
lagði grunninn að góðum sigri,“
sagði Sigurður Ingimundarson
þjálfari Keflvíkur. „Calvin Davids á
mikið inni þrátt fyrir að hann hafi
leikið vel og allt liðið á eitthvað
meira inni,“ sagði Sigurður.
Ingi Þór Steinþórsson þjálfari
KR var ánægður með baráttuna í
liðinu. „Við náðum að saxa á forskot
Keflvíkinga niður í 9 stig en síðan er
ranglega dæmt tæknivíti á mig og
það verður vendipunkturinn í leikn-
um að mínu mati. KR liðið þarf að fá
leikmann sem tekur fráköst og við
vonumst til að málin fari að skýrast
fljótlega hvað varðar Keith Vassel,"
sagði Ingi Þór.
ÞAÐ sannaðist í Grafarvoginum
á sunnudagskvöldið að leikur er
ekki búinn fyrr en lokaflautan
gellur. Valur/Fjölnir fékk að
finna fyrir þessu í leiknum við
Skallagrím því heimamenn
höfðu undirtökin allt þar til í síð-
asta leikhluta, þá tókst þeim
með ótrúlegum hætti að glata
niður unnum leik og tveimur ör-
uggum stigum. Lokatölur urðu
64:66 fyrir gestina.
Bæði lið töpuðu í íyrstu umferð-
inni og því var leikufinn nokkuð
forvitnilegur því flestir telja að liðin
eigi erfiðan vetur
SkúliUnnar framundan. Valur/
Sveinsson Fjolmr tapaði 1 fyrstu
skrifar umferð fyrir Grind-
víkingum eftir að
hafa haft í fullu tré við þá fram á síð-
ustu mínútur. Það sama gerðist á
sunnudaginn. Lokamínútumar voru
heimamönnum dýrkeyptar enda
skoraði liðið aðeins 8 stig í fjórða og
síðasta leikhluta, þrjú úr vítaskotum,
tvö með skoti úr teig og eina þriggja
stiga körfu sem kom á síðustu sek-
úndu leiksins. Ekki burðugt það.
Staðan þegar síðasti fjórðungur
leiksins hófst var 56:47 fyrir heima-
menn og þegar 3,55 mínútur voru eft-
ir var staðan orðin jöfn, 58:58, og
hafði Herbert Amarsson gert einu
körfu Vals/Fjölnis.
Þegar 36 sekúndur voru til leiks-
loka var staðan 61:62, gestimir í sókn
og skotklukkan að renna út. Dæmd-
ur var fótur á DeLawn Gredison,
Kanadamanninn í liði heimamanna,
þannig að ný skotklukka var sett fyr-
ir Skallagrímsmenn sem nýttu sér
það og Alexander Ermolinskíj skor-
aði með húkkskoti en skömmu áður
hafði hann gert glæsilega körfu utan
þriggja stiga línunnar, en hann gerði
sjö stig í síðasta leikhluta og átti stór-
leik.
Leikurinn var mjög leiðinlegur allt
fram í síðasta leikhluta að hann gerð-
ist spennandi, ekki vegna þess að
leikmenn léku vel heldur vegna þess
að mjótt var á mununum og allt gat
gerst. Heimamenn geta engum öðr-
um en sjálfum sér kennt um hvernig
fór, liðið hafði öragga forystu en virt-
ist telja sigurinn koma af sjálfu sér
og gleymdi hreinlega að leika körfu-
knattleik í síðasta leikhlutanum og
því fór sem fór, tvö dýrmæt stig í
súginn.
Það er ekki leið til sigurs að gera
aðeins 8 stig í síðasta fjórðungi leiks-
ins, sérstaklega þegar liðið nær að-
eins að gera 14 stig í þriðja leikhluta
og því alls 22 stig í síðari hálfleik.
Heimamenn töpuðu knettinum 21
sinni í leiknum, þar af 7 sinnum í síð-
asta leikhluta. Gestirnir töpuðu
knettinum hins vegar 16 sinnum í
fyrri hálfleik en aðeins tvívegis í þeim
síðari.
Hjá heimamönnum áttu nokkrir
leikmenn góða kafla en duttu niður
þess á milli. Má þar nefna Brynjar
Karl Sigurðsson, DeLawn Grandi-
son, Drazen Jozic, Bjarka Gústafs-
son og Hjört Hjartarson.
Sigmar Egilsson, Finnur Jónsson,
Warren Peebles, Ari Gunnarsson og
Egill Egilsson áttu allir ágæta kafla í
liði gestanna og þjálfari þeirra, Al-
exander Ermolinskíj, átti frábæran
endasprett.
Grindavík sýndi sparihliðamar
Grindvíkingar sýndu margar
sparihliðarnar þegar Tindastóll
kom í heimsókn á sunnudag. Gestirn-
mm^ir byrjuðu betur en
GarðarPáll eftir leikhluta
Vignisson tóku heimamenn öll
skrifar völd, höfðu yfir í hálf-
leik 52:42 og sigruðu
94:81. Gestirnir í Tindastól byrjuðu
betur í leiknum á sunnudag og undir-
ritaður var farinn að gera ráð fyrir
sigri gestanna í þessum leik, slíkir
vora yfirburðimir. Stólarnir höfðu
tekið daginn snemma og voru mættir
til leiks en greinilegt var á heima-
mönnum að þeir vora enn að bíða eft-
ir því að klukkan yrði átta en þessi
leikur hófst klukkan fjögur. Mesta
furða var að forysta gestanna var
einungis 8 stig eftir fyrsta leikhluta
því þeir yfirspiluðu heimamenn
þennan leikhlutann. Gestirnir slógu
ekki slöku við og áfram hélt forysta
þeirra að aukast og þeir náðu mest 13
stiga forastu 20:33 en fljótlega upp
úr því skiptu heimamenn yfir í svæð-
isvörn, gestirnir hættu að hitta,
heimamenn hófu mikla þriggja stiga
sýningu og skoruðu heil 24 stig án
þess að gestírnir gætu svarað fýrir
sig. Heimamenn með þá Berg Hin-
riksson og Pál Axel Vilbergsson í far-
arbroddi léku eins og þeir geta best
og gestirnir áttu engin svör. Heima-
menn fóra því kátir til búningsklefa
sins með 10 stiga forystu eftir að hafa
gert 34 stig í einum leikhluta.
Einhverjir hafa sjálfsagt átt von á
því að gestimir kæmu grimmir til
leiks en eftir augnablik settu Grind-
víkingar tvær þriggja stiga körfur og
gestirnir hreinlega gáfust upp.
Heimamenn gengu á lagið og þrátt
fyrir að Kim Lewis fengi sér sæti
með fjórar villur eftir tveggja mín-
útna leik í síðari hálfleik kom það
ekkert að sök og heimamenn sýndu
staka snilld, hittu þegar þeim sýndist
og vora margar körfurnar settar með
mann í andlitinu. Eftir sjö mínútna
leik í síðari hálfleik höfðu heimamenn
náð 25 stiga forystu og fóra að slaka
á. Gestimir náðu að klóra í bakkann
og löguðu stöðuna þannig að leiknum
lauk með sigri heimamanna 94:81.
Liðsheildin hjá heimamönnum var
sterk og áttu allir fínan leik en þó var
Páll Axel Vilbergsson frískastur í
annars frábæra liði heimamanna.
Hjá gestunum var Shawn Myers
sterkur og nokkuð Ijóst að gestirnir
geta mun meira en þeir sýndu í þess-
um leik.
„Þetta lagaðist hjá okkm- þegar
klukkan nálgaðist átta, við voram
alla vegana ekki tilbúnir í byrjun
leiks. Þeir sem komu af bekknum
komu sterkir inn og í dag duttu skot-
in hjá okkur. Við vildum fá þessi stig
sem í boði vora og fengum þau en við
voram heldur lengi í gang,“ sagði
Einai'.
Þórsarar á toppnum
KFÍ tapaði stórt í fyrsta leik sín-
um á íslandsmótinu í körfu-
knattleik gegn Hamri og leikur liðs-
ins gegn Þór frá Akureyri tók
miklum breytingum til hins betra
þrátt fyrir átta stiga tap, 73:80. Með
sigrinum eru Akureyringarnir
komnir á topp deildarinnar og hafa
unnið báða leiki sína til þessa gegn
liðunum sem spáð er falli.
í sfirðingar hófu leikinn af krafti og
skoruðu sjö íyrstu stigin en Þórsarar
náðu að jafna leikinn í lok 1. leik-
hluta, 19:19.
KFÍ hélt uppteknum hætti í 2.
leikhluta og náðu mest átta stiga for-
skoti 35:27 en Þórsarar náðu aftur að
minnka forskotið í tvö stig og staðan í
hálfleik 35:33. Ágúst Guðmundsson
þjálfari Þórs hefur náð að búa til
skemmtilegt lið sem að mestu er
skipað heimamönnum og Þórsliðið
hrökk í gang í 3. leikhluta sem þeir
unnu með 16 stiga mun og gestirnir
voru komnir með þægilega stöðu sem
þeir létu aldrei af hendi þrátt fyrir að
KFÍ hafi minnkað muninn í fimm stig
er ein mínúta var eftir. Lokatölur
leiksins urðu 73:80 og bestu menn
KFÍ vora þeir Dwayne Fontana og
Sveinn Blöndal en hjá Þór var fyrr-
um KFÍ leikmaðurinn Clifton Bush
bestur.