Morgunblaðið - 03.10.2000, Síða 7

Morgunblaðið - 03.10.2000, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000 C 7 HANDKNATTLEIKUR Morgunblaðið/Bryry'ar Gauti Halldór Ingólfsson var besti leikmaður Hauka gegn Val og er hér kominn í gegnum vörn Hlíðarendaliðsins einu sinni sem oftar. Sannfærandi sigur Hauka á Valsmönnum Morgunblaðið/Brynjar Gauti Geir Sveinsson, þjálfari Vals, og Valdimar Grímsson, leikmaður Vals, léku á sínum tíma undir stjóm Viggós Sigurðssonar hjá Wuppertal í Þýskalandi. Viggó, sem nú þjálfar Hauka, hitti fyrr- um lærisveina sína á Ásvöllum - og hrósaði sigri. HAUKAR hafa heldur betur blásið til sóknarleiks í upphafi íslandsmótsins. Eftir flugelda- sýningu og 41 mark gegn Breiðabliki í fyrstu umferðinni héldu íslandsmeistararnir uppteknum hætti gegn Val og skoruðu 31 mark gegn 27 í fyrsta deildarleiknum í nýju og glæsilegu íþróttahúsi sínu á Asvöllum á sunnudagskvöldið. Sigurinn var öruggari en loka- tölurnar gefa til kynna því eftir nokkuð jafna baráttu f raman af voru Haukarnir komnir með sjö marka forskot þegar fjórar mínútur voru til leiksloka. Fyrstu 15 mínútur leiksins voru afar hraðar og fjörugar. Liðin skoruðu til skiptis, Valur ávallt á undan, og sóknar- Víðir nýting begK>a var Sigurðsson með eindæmum á skrifar þessum kafla enda staðan eftir stund- arfjórðung 9:8 Val í hag. Haukar fengu hvorki íleiri né færri en sex vítaköst á þessu tímabili og þau urðu alls 12 áður en leikurinn var á enda. Þeim gekk vel að opna svifa- seina Valsvörnina og komast í dauðafæri sem gáfu af sér mörk eða vítaköst. Sóknarleikur Vals var líka í góðu lagi framan af leiknum, Haukar komu framarlega í vörninni á móti Snorra Steini Guðjónssyni leikstjórnanda en Valsmenn leystu það vel og Bjarki Sigurðsson var at- kvæðamikill í hægra horninu til að byrja með því hann skoraði fjögur mörk á fyrstu 11 mínútunum. Um miðjan hálfleikinn kom sá kafli sem sneri ieiknum Haukum í hag. Þeir skoruðu fimm mörk í röð, komust í 12:9, og leiddu með minnst tveimur mörkum eftir það. í hléi stóð 15:13 en Haukar komust strax fjórum mörkum yfír í byrjun síðari hálfleiks. Með góðri baráttu minnk- uðu Valsarar muninn tvívegis í tvö mörk, síðast 24:22, en þá komu þrjú Haukamörk í röð sem gerðu vonir Hlíðarendapilta endanlega að engu. Haukarnir spila fjölbreyttan og líflegan sóknarleik þar sem allir eru virkir og ógnandi. Dreift markaskor ber því vitni ásamt því að sjö leik- menn liðsins kræktu í vítaköst í leiknum. Bróðurpartur marka liðs- ins kom eftir gegnumbrot, úr horn- um og af línu en minna bar á lang- skotum og lítið var um hraða- upphlaup. Halldór Ingólfsson var að öðrum ólöstuðum besti leikmað- ur liðsins, skoraði 11 mörk, fiskaði vítaköst með gegnumbrotum og átti góðar sendingar sem gáfu mörk. Al- iaksandr Shamkuts, Tjörvi Ólafsson og Petr Baumruk voru allir öflugir og Jón Karl Björnsson afgreiddi sex vítaköst af öryggi eftir að Hall- dóri brást bogalistin í tvígang. „Ég er mjög ánægður með sókn- arleikinn hjá okkur en við fengum hins vegar á okkur of mikið af ódýi'- um mörkum. Munurinn átti að vera meiri því við gerum okkrn- seka um kæruleysisleg mistök. Á móti Breiðabliki létum við kné fylgja kviði og völtuðum yfír þá. Við höfð- um tækifæri til þess í þessum leik en nýttum þau ekki. Ég er mjög sáttur við ástandið á liðinu, við byrj- uðum á tveimur mjög erfiðum Evrópuleikjum, hófum æfingar mjög snemma út af þeim og það kemur okkur til góða núna. Liðið er komið í mjög gott form, breiddin er góð og ég er bjartsýnn á framhald- ið,“ sagði Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, við Morgunblaðið. Valsliðið lék lengst af ágætan sóknarleik en varnarleikur liðsins var afspyrnuslakur. Leikmenn sem eru að jafnaði öflugir varnarmenn voru staðir og svifaseinir og brutu illa af sér enda voru Valsmenn níu sinnum reknir af velli og þeir fengu á sig tólf vítaköst. Sóknartilþrifín voru oft ágæt, sérstaklega hjá Bjarka til að byrja með, og örv- henta skyttan Daníel Ragnarsson er stöðugt að styrkjast. Roland Eradze varði mark Vals vel í seinni hálfleiknum. Liðið er ungt og þarf ekki að kvíða framhaldinu en á tímabili í seinni hálfleik voru úti- spilararnir sex allir um eða undir tvítugu. Valdimar Grímsson og Valgarð Thoroddsen eiga eftir að komast í betra form og styrkja liðið meira. Takist Geir Sveinssyni að laga varnarleikinn, sem hann ætti að kunna þokkalega, geta Vals- strákarnir bitið vel frá sér í vetur. „Fyrstu 30 mínúturnar fengum við á okkur einu marki meira en í öllum síðasta leik þannig að þetta var mikil sveifla," sagði Geir Sveinsson, þjálfari Vals, við Morg- unblaðið. „Ég væri alveg til í að skoða hvort öll þessi vítaköst og allir þess- ir brottrekstrar hafi átt rétt á sér en í hita leiksins fannst mér það alla vega ekki. En það breytir því ekki að varnarleikur okkar var afleitur, við sátum eftir í færslum og Hauk- arnir komust hvað eftir annað í gegn. Þeir spiluðu góðan sóknarleik sem við réðum ekki við. Okkur tókst að skora 27 mörk sem er ekki slæmt. Við erum með ungan og breiðan hóp og tvo gamla refi með og síðan á Valgarð eftir að styrkja okkur meira þegar hann kemst bet- ur inn í þetta,“ sagði Geir. Króatinn hjá FH sleit krossbönd KRÓATÍSKI handknatt- leiksmaðurinn Dalibor Valencic, sem kom til FH- inga á sunnudaginn og lék sinn fyrsta leik nokkrum klukkustundum síðar gegn Aftureldingu, meiddist illa á hné í leiknum. Við læknis- skoðun í gær kom í ljós að krossbönd í hné Króatans slitnuðu og þar með er ljóst að hann leikur ekki meira með Hafnarfjarðarliðinu í vetur. „Þetta er auðvitað giTð- arlega mikið áfall fyrir okk- ur því við bundum miklar vonir við leikmanninn. Eg á ekki von á því að það verði farið út í að fá einhvern annan leikmann í staðinn enda er enga menn að fá í dag,“ sagði Guðmundur Karlsson þjálfari FH í sam- tali við Morgunblaðið í gær. ■ BOÐSMIÐAR voru sendir út í öll hús í Vesturbæ og á Seltjarnamesi í boði Bílasölu Reykjavíkur. Um 150 af þeim 250 sem sáu leikinn fóru inn á boðsmiðum svo þessari tilraun Gróttu/KR til að fá áhorfendur á völlinn var vel tekið. ■ / HÁLFLEIK fékk eldri flokkur Gróttu/KR afhent gullverðlaun fyi'- ir sigur á íslandsmótinu í fyrra. ■ GRÓTTA/KR lék í keppnisbún- ingum sínum í_ gær í fyrsta sinn á þessu tímabili. í síðustu umferð voru búningamir fjarverandi og því lék liðið í stuttermabolum. ■ BERGSVEINN Bergsveinsson markvörður FH fékk hlýjar móttök- ur fyrir leikinn við Aftureldingu á sunnudaginn en hann varði einmitt mark þeirra um áraraðir. Fyrir leik- inn færði stuðningsmaður Aftureld- ingar númer eitt, Einar Scheving Thorsteinsson, honum blómvönd með þökk fyrir vel unnin störf hjá Mosfellingum. ■ LEIKMENN Aftureldingar og FH furðuðu sig á sendingu frá himn- um ofan á sunnudaginn. Þá skaust handboltinn sem leildð var með upp í rjáfur eftir þrumuskot í slá en niður kom fótbolti. Ástæðan var sú að fót- boltinn var rækilega fastur í neti í loftinu en handboltinn hitti í hann og þeir höfðu sætaskipti. ■ ÞORKELL Guðbrandsson homa- maður hjá Aftureldingu sýndi á sér nýja hlið á sunnudaginn. Þá skoraði hann ekkert mark af línu eða úr homi en þess í stað tvö úr hraðaupp- hlaupum og fjögur með skotum utan vítateigs. Það dugði honum til að verða markahæstur þrátt fyrir að vera rekinn út af með rautt spjald um miðjan síðari hálfleik. ■ GUÐMUNDUR Helgi Pálsson verður ekki með Frömurum fyiT en í fyrsta lagi í janúar. Guðmundur hafði átt við þrálát meiðsli að stríða í öxl og var skorinn upp vegna þeirra. ■ VALDIMAR Grímsson kom ekki við sögu hjá Val gegn Haukum fyrr en eftir 24 mínútur og þá aðeins í vöminni til að byrja með. ■ VALGARÐ Thoroddsen kom í fyrsta skipti inn á hjá Val þegar 15 mínútur vom til leiksloka. Hann var fljótur að gera vart við sig, skoraði 2 mörk á fyrstu mínútunni og fjögur alls. ■ BJARNI Frostason, einn þriggja markvarða Hauka, ber óvenjulegt númer á markmannstreyju sinni. Bjami er númer 11 en hin hefð- bundnu númer handboltamarkvarða era 1,12 og 16.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.