Morgunblaðið - 03.10.2000, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 03.10.2000, Qupperneq 8
8 C ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ H firpo OQp Vala Flosadóttir fagnar með verðlaunapening sinn um hálsinn. Morgunblaðið/Sverrir Leikamir hennar Völu SYDNEY-BRÉF ÓLYMPÍULEIKUNUM í Sydney var slitið með pomp og pragt á sunnudaginn. Lokaathöfnin var öll hin glæsilegasta á ól- ympíuleikvanginum og teygði anga sína um alla borg. Há- marki hátíðarinnar var náð er borgin logaði „stafna á milli“ í óeiginlegri merkingu. Stór- kostlegasta flugeldasýning sem sögur fara af hófst við ól- ympíuleikvanginn og endaði við óperuhúsið glæsilega og brúna tignarlegu sem þar er og sumir heimamenn kalla í dag- legu tali herðatréð. Brúin var „sprengd" í loft upp með afar eftirminnilegum hætti svo vart verður leikið eftir og það besta i öllu saman, hún stóð heil eft- ir, enda stóð aldrei neitt annað til. Á meðan þessu fór fram flaug orrustuflugvel yfir svæð- ið og merkti slóð sína á tilkom- umikinn hátt. Þannig „logaði“ borgin svo hún varð enn magn- aðri en áður og um tíma var svo bjart á hafnarsvæðinu að það var nánast sem um há- bjartan dag væri. Eins og áður létu heimamenn ekki sitt eftir liggja og tóku af fremsta megni þátt í hátíðinni. Talið er að um ein og hálf milljón manna hafi verið komin saman á hafnar- svæðinu og í nærliggjandi götum þegar lokum leikanna var fagnað á þennan áhrifaríka hátt. Þar kom enn einu sinni fram sú mikla samstaða og það stolt sem íbúar Sydney, hið minnsta, hafa yfir leikunum, sem vart hefur farið framhjá gestum í Sydney á meðan þeir stóðu yfir. Eft- ir hátíðina lömuðust almennings- samgöngur í nokkra klukkustundir, lítt gekk að koma fólki til síns heima, yfirfullar lestir voru sem stranda- glópar vítt og breitt um borgina, strætisvagnabílstjórar vissu ekki sitt rjúkandi ráð í vögnum sínum og leigubílstjórar sáu ekki fram úr verkefnum. Um síðir greiddist úr flækjunni og allir komust til síns heima og allt gerðist þetta með friði og spekt þrátt fyrir að fólk væri þreytt og eftir langan dag og yngstu meðlimir fjölskyldnanna væru ann- aðhvort sofnaðir eða illilega stúrir orðnir. Allir með, líka veðurguðirnir Hver sem vettlingi gat valdið tók þátt og vildi eiga hlutdeild í Ólymp- íuleikunum, annaðhvort sem sjálf- boðaliði eða áhorfendur. Alls voru nærri 50.000 sjálfboðaliðar starfandi við ýmsa þætti leikanna og sennilega hefði verið erfiðara að halda þá án þeirra. Þeir sem ekki voru starfs- menn á einn eða annan hátt komu og fylgdust með einhverrum hinna 27 íþróttagreina sem keppt var. Margir tóku sér sumarfrí meðan leikamir fóru fram. Miðasala var sú besta í sögu Ólympíuleikanna og virtist það engu máli skipta fyrir margan mann- inn þótt hann þekkti lítt til þeirra greina sem hann keypti miða á, stemmningin var bara einhvern veg- inn þannig að allir vildu vera með. Þá léku veðurguðimir við hvurn sinn fingur langflesta dagana, tíðin var óvenjugóð og rætt er um að sumarið sé hafíð þótt enn eigi að heita vor. Af þessu öllu leiddi að andinn í kringum leikana afar jákvæður og vart heyrð- ist styggðaryrði um þá á opinberum vettvangi. _ íbúar Ástralíu eru tæplega 20 milljónir, þar af býr um fimmtungur í Sydney og nágrenni. Þjóðin telur sig litla og á stundum eiga undir högg að sækja. Þess vegna var henni meira í mun en nokkru sinni fyrr að sýna sam- stöðu og ekki síst láta heiminn vita að hún væri til og gæti haldið mestu íþróttahátíð heims með slíkum sóma að eftir væri tekið. Og það hefur al- veg örugglega tekist enda sjálfur Ju- an Antonio Samaranch sagt þetta vera bestu leika sem haldnir hafa verið. Slík orð af hans vorum um leika síðustu nokkra undanfama eru hins vegar engin nýlunda. Eigi að síður þá má heyra það hjá mönnum sem marga fjöruna hafa sopið og marga leikanna sótt að mikill sann- leikur er í orðum markgreifans að þessu sinni, a.m.k. meiri en oft áður. Einn leiðarahöfunda dagblaða í Sydney sagði í gær að menn hér í landi ættu ekki að velta því nú fyrir sér hvað leikarnir hefðu gert fyrir Ástralíu, heldur hvað Ástralar hefðu gert fyrir leikanna. Stutt milli hláturs og gráturs Islendingar geta verið mjög ánægðir með framgöngu sinna íþróttamanna á leikunum og víst er að hún er sennilega með þeim allra bestu séð frá sjónarhorni árangurs. Þrír af átján manna keppnishópi komust í úrslit í sínum greinum og nokkrir aðrir náðu sér ágætlega á strik. Slíkt er alls ekki sjálfgefið og það hefði geta farið svo að enginn næði í fremstu röð því í íþróttum er svo stutt milli hláturs og gráts. Allir í íslenska keppnishópnum komu til Sydney með því hugarfari að gera sitt besta, spara stóru orðin, en reyna að duga þeim mun betur þegar á hólminn væri komið. Sumum lánaðist það, sumum held- ur betur, en öðrum ekki. Vonbrigði þeirra sem ekki tókst að sýna sitt rétta andlit eru skiljanleg, en árang- ur þeirra sem betur gekk er þeim um leið hvatning til dáða og að draum- arnir geti ræst fari saman geta, löng- un, vilji, dugnaður og keppnisgleði. Líklega verður þessara leika minnst í huga íslendinga sem leik- anna hennar Völu Flosadóttur, líkt og þjóðin minnist enn með gleði leik- anna 1956 þegar Vilhjálmur Einars- Loka son vann silfrið og 1984 er Bjarni Á. Friðriksson hampaði bronsverðlaun- um. Þrátt fyrir frábæra frammistöðu Arnar Arnarsonar sundmanns er hann hafnaði í 4. sæti í 200 m bak- sundi og í 15. sæti í 200 m skriðsundi og 7. sæti Guðrúnar Arnardóttur í 400 m grindahlaupi, þá held ég að vel fari á því að leikunum verði minnst er fram líða stundir sem leikunum hennar Völu. Aldrei má hins vegar gleyma árangri Arnar og Guðrúnar, sjaldan hafa íslendingar gert betur en þau gerðu. Frammistaða Völu stendur þó öllu fremur, ekki einung-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.