Morgunblaðið - 03.10.2000, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
h
\£*j2£Þi> Osgp
ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000 C 9
...... »
Hún var glæsileg flugeldasýningin sem fór fram í höfninni í Sydney.
Reuters
Reuters
athöfnin á ólympíuieikvanginum í Sydney.
is sú staðreynd að hún vann til
bronsverðlauna heldur var fas henn-
ar í keppninni allt í keppninni öllum
íþróttamönnum til fyrirmyndar. Eft-
ir henni var tekið og hennar minnast
margir Ástralar. Brosandi og glað-
leg frá upphafi til enda, jafnvel þótt
hún yrði að játa sig sigraða. Eftir
þessu var svo sannarlega tekið og
hvarvetna sem komið var þá settu
menn samasemmerki milli þessara
glaðlegu stúlku og íslands. „Ertu frá
Islandi?" spurði miðaldra maður
einn undirritaðan um helgina. „Þú
ert þá frá landi stúlkunnar sem varð
í þriðja sæti í stangarstökkinu. Hún
brosti alla keppnina, naut þess svo
sannarlega að keppa og smitaði gleði
út til okkar hinna sem fylgdumst
með. Hún var meira að segja glaðleg
þegar hún felldi síðasta sinni, brosið
var þá jafnvel enn fallegra en áður.
Það var eitthvað annað en okkar
keppandi, hún var ekki ánægð með
silfrið, að minnsta kosti tókst henni
ekki að koma því til skila á vellinum.“
Stokkið og brosað
Þessi orð mannsins lýsa því hvað
framganga Völu var einstök, fasið og
ásjónan var slík af eftir var tekið
enda var þetta „kvöldið“ í frjáls-
íþróttakeppni leikanna. Kvöldið sem
Vala lýsti upp Ólympíuleikvanginn
var helsta hetja Astrala í eldlínunni,
Cathy Freemann.
Aldrei hafa fleiri verið viðstaddir
einn viðburð í sögu Ólympíuleika og
þetta kvöld, rúmlega 112.000. Um
leið var nærri því metháhorf á sjón-
varpsútsendinguna. Talið er að vel á
níundu milljón hafi fylgst með Free-
mann hlaupa til úrslita í 400 m hlaupi
kvenna. A sama tíma stóð yfiir
keppni í stangarstökki kvenna. Síð-
ustu tíu mínúturnar fyrir hlaupið og
fyrstu tíu mínúturnar eftir hlaupið
er reiknað með að um 6,5 milljónir
sjónvarpsáhprfenda í Ástralíu hafi
fylgst með. Á þessum sama tíma var
Vala stökkvandi og brosandi með
reglulegu bili á sjónvarpsskjánum.
Aðdáun sumra á Völu var m.a.s.
slík að blaðamaður Morgunblaðsins
var spurður að því af bandarískum
starfsbróður hvort hann væri ekki til
í að selja skyrtubolinn sem hann var
í þá stundina en á honum stendur
ICELAND. „Nefndu bara upphæð-
ina, ég vil fá bolinn hvað sem hann
kostar til minningar um stangar-
stökkvarann ykkar,“ sagði Banda-
ríkjamaðurinn sem ekki hafði erindi
sem erfiði.
Og dæmin eru fleiri. Nokkrum
dögum eftir að Vala hafði keppt hitti
hún blaðamann og ljósmyndara
Morgunblaðsins við óperuhúsið í
Sydney. Varð þar uppi fótur og fit,
fólk á öllum aldri dreif að Völu, ósk-
aði henni til hamingju, sagðist hafa
fylgst með henni um leið og það bað
um eiginhandaráritanir og bar fram
óskir um að fá að mynda sig með af-
reksmanninum. Eins og fyrr tók
Vala öllum með brosi á vör og gerði
sitt besta við að uppfylla óskir sem
flestra, líkt og á keppnisvellinum.
Fleiri dæmi af þessum toga mætti
nefna, en staldrað er við hér.
Þarna sást hvað góður og heil-
brigður íþróttamaður getur verið
stórkostleg kynning fyrir þjóð sína.
Það hafa þeir fáu íslendingar sem
komu til Sydney fengið að reyna.
Stórkostleg landkynning
Ástralar eru vel upplýst þjóð og
vart fannst sá maður sem ekki vissi
hvar ísland er statt á jörðinni, ólíkt
því sem menn hafa rekið sig á þótt
þeir hafi ekki farið um svo langan
veg að heiman. Eftirminnileg
frammistaða og framkoma hins ljósa
mans á Ólympíuleikvanginum í
Sydney verður fleiri en íslendingum
lengi í minnum höfð. Þarna var stað-
fest að íslendingar hafa eignast
hetju sem ekki síst með framkomu
sinni er þjóðinni allri til eftirbreytni.
Fyrir leikana voru þem til sem
reyndu að benda á neikvæðar hliðar
þeirra og að flest færi í vaskinn og
víst er að fyrsta reynsla blaðamanns
Morgunblaðsins við komuna til
Sydney gaf tilefni til að einhver
vandræði gætu orðið. Síðan þegar
allt fór af stað gekk allt eins og vel
smurð vél. Samgöngumálin komust í
ágætt lag og enginn varð of seinn
milli staða þeiira vegna þegar ballið
loks byrjaði. Allar tímasetningar
íþróttaviðburða stóðust nærri því út
í hörgul, meira að segja á frjáls-
íþróttavellinum þar sem stundum
var í mörg horn að líta, stóðst tíma-
seðillinn upp á mínútu kvöld eftir
kvöld og sömu sögu var að segja af
sundkeppninni.
„Þetta eru bestu leikar sem haldn-
ir hafa verið og öll framkvæmd svo
sannarlega til fyrirmyndar." Eitt-
hvað í þessa veruna féllust Völu orð á
blaðamannafundi eftir að hafa tekið
við verðlaunum sínum á Ólympíu-
leikunum og féllu orð hennar Áströl-
um vel í geð. Ekki síst þegar hún
bætti við og brosti, ábyggilega í þús-
undasta skiptið það kvöldið. „Þetta
er reyndar í fyrsta skipti sem ég tek
þátt.“ Víst er að margir geta tekið
undir hennar orð og brosað, að
minnsta kosti geri ég það.
ívar Benediktsson.
Bandaríkja-
menn í
basli með
Frakka
BANDARÍSKU körfuknattleiks-
landsliðin í karla- og kvennaflokki
unnu til gullverðlauna á Ólympíu-
leikunum og kemur það kannski ekki
mjög á óvart. Það sem vakti mesta
athygli á leikunum voru minni yfir-
burðir karlaliðsins en áður, það átti í
erfiðleikum í leikjum sínum gegn
Rússum, Litháum og Frökkum.
Urslitaleikur karlaliðs Banda-.
ríkjamanna og Frakka var í járnum
og þegar 4 mínútur lifðu af leiknum
voru Frakkar aðeins fjórum stigum
á eftir Bandaríkjamönnum, 76:72, en
Bandaríkjamenn unnu 85:75. „Það
sem við höfum séð á þessum leikum
er hve miklar framfarir hafa orðið í
alþjóðlegum körfuknattleik og það
er gott fyrir íþróttina," sagði David
Stern, framkvæmdastjóri NBA-
deildarinnar. Þrátt fyrir að yfirburð-
ir Bandaríkjamanna í körfu-
knattleikskeppni karlaliða hafi oft
verið meiri á Ólympíuleikum vann
liðið alla sína leiki á með 22 stiga
mun að meðaltali en leikurinn gegn
Litháum i undanúrslitum keppninar
verður minnisstæður þar sem Lithá-
ar töpuðu með tveggja stiga mun. '1'
Yfirburðir Bandaríkjamanna eftir að
NBA-atvinnumennirnir tóku fyrst
þátt á ÓL sem draumaliðið í Barcel-
ona árið 1992 hafa verið umtalsverð-
ir en virðast vera að minnka. Litháar
endurtóku leikinn frá því á Atlanta
1996 og tryggðu sér bronsverðlaun
með 89:71 sigri á Áströlum.
Dönsku
stúlkumar *
endurtóku
leikinn
DANIR vörðu ólympíumeist-
aratitil sinn í handknattleik
kvenna með því að sigra Ung-
verja 31:27 í úrslitaleik.
Dönsku stúlkurnar máttu hafa
sig allar við að verja titilinn því
um miðjan síðari hálfleik náðu
ungversku stúlkurnar 6 marka
forskoti 22:16.
Var það fyrst og fremst að þakka
frábærri frammistöðu mark- *
varðar þeirra, Andreu Farkas, sem
gggmmm varði 19 skot í leikn-
Ingibjörg Norðmenn sigr-
Hinriksdóttir uðu Kóreu, 22:21, í
skrifar leiknum um bronsið.
fráSydney Eing
og lokatölur
gefa til kynna var leikurinn jafn og
spennandi allt til loka, kóresku stúlk-
umar leiddu lengst af leiks, voru
t.a.m. einu marki yfir í leikhléi, 12:13.
En norsku stúlkumar, sem urðu fyrir
gríðarlega miklum vonbrigðum að ná
ekki í úrslitaleikinn, sýndu frábæran
leik á lokamínútunum, sérstaklega
hinn frábæri markvörður þeirra,
Heidi Tjugum, sem varði 17 skot í
leiknum.
„Það er ekkert launungarmál að "
við komum hingað til Sydney til þess
að vinna gullverðlaun en við komumst
ekki í úrslitaleikinn og það urðu okk-
ur mikil vonbrigði. En við þurftum að
hafa verulega fyrir sigrinum gegn
Kóreu í dag og emm mjög sáttar í dag
við það að hafa þó a.m.k. bronsmed-
alíu um hálsinn,“ sagði fyrirliði Norð-
manna, Susann Goksoer Bjerkrheim.
Úrvalslið ÓL
Alþjóðahandknattleikssambandið
valdi úrvalslið ÓL. Liðið er þannig
skipað: Markvörður Heidi Tjugum
Noregi, vinstri homamaður Annette *
Hoffinann Moberg frá Danmörku,
línumaður Veronique Pecquex-Rol-
land frá Frakklandi, skytta hægra
megin Daninn Janne Kolling og
vinstra megin Norðmaðurinn Kjersti
Grini, leikstjómandi Seong Ok Oh frá
Kóreu og hægri homamaður Bojana
Radulovic frá Ungveijalandi.