Morgunblaðið - 03.10.2000, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 03.10.2000, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000 C 11 HANDKNATTLEIKUR Reynslusigur í Eyjum Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Marina Bakuiina, leikmaður ÍBV, sækir að marki ÍR en tii varnar er Anna M. Sigurðardóttir. EYJASTÚLKUR tóku á móti ÍR í frestuðum leik frá í fyrstu um- ferð í Eyjum í gærkvöldi. Leikur- inn var fjörugur og sýndu bæði lið ágætis takta á köflum. En Eyjastúlkur unnu góðan sigur á nokkuð sprækum ÍR-stúlkum 21:17. Það voru Eyjastúlkur sem komu sterkari til leiks og náðu forust- unni strax í byrjun leiks. Þegar fyrri hálfleikur vai- hálfn- HMHMB aður var staðan 8:4 Skapti Örn Eyjastúlkum í vil og Ólafsson aðeins góð mark- varsla Aðalheiðar Þórólfsdóttur kom í veg fyrir meiri mun. Á þessum kafla léku Eyjastúlk- ur með miklum ágætum og voru hreyfanlegar bæði í vörn og sókn. Þegar liðin gengu inn í búningsklef- anna í hálfleik var staðan 12:8 Eyja- stúlkum í vil og nokkuð ljóst að IR- stúlkur þyrftu að spýta í lófana ætl- uðu þær sér stig úr leiknum. í upphafi síðari hálfleiks virtust ÍR-stúlkur til alls líklegar og skor- uðu 3 mörk áður en Eyjastúlkur náðu að skora. En enn og aftur var góður markvörður IR-stúlkna að verja vel og áttu Eyjastúlkur í vand- ræðum með að skora. En þegar þriðjungur var liðinn af síðari hálf- leik fundu Eyjastúlkur aftur taktinn og juku muninn mest í fimm mörk um miðbik hálfleiksins. Þegar hér var komið sögu má segja að ÍR-stúlk- ur hafi verið búnar að játa sig sigrað- ar og fátt kom í veg fyrir öruggan sigur Eyjastúlkna. Lokatölur leiks- ins, 21:17 Eyjastúlkum í vil. Hjá ÍR-stúlkum voru þær Aðal- heiður Þórólfsdóttir markvörður og Anna Einarsdóttir að spila hvað best. En þess ber að geta að þetta IR-lið er reynslulítið og verður gaman að fylgjast með því spila í vetur. Bestar Eyjastúlkna í leiknum voru þær Am- ela Hegic og einnig var Vigdís Sig- urðardóttir að verja á köflum ágæt- lega. Auk þeirra var Bjarný Þorvaldsdóttir, ung og efnileg stúlka, að spila fantavel. Erum að byggja upp Þrátt fyrir ósigurinn var Anna M. Sigurðardóttir fyrirliði ÍR nokkuð hress eftir leikinn í gærkvöldi. „Þetta gekk ekki í dag en þetta kemur, við erum á uppleið. Við erum með mjög ungt lið og reynslulítið en við vorum að spila mun betur en í síðasta leik þannig að ég örvænti ekki. Við erum með góða vöm og markmann en okk- ur gengur ekki sem skyldi í sókninni. En þetta á eftir að koma hjá okkur, það er ekki spurning" sagði Anna M. Sigurbjörn Óskarsson, þjálfari IBV var ánægður með stigin tvö. „Þetta gekk hjá okkur í dag þrátt fyrir að við sýndum ekki neinn stjömuleik, en engu að síður tvö stig sem er fyrir mestu. Það hefur gengið hálf brösulega hjá okkur að koma saman liði, við emm búin að missa mikinn mannskap en þetta er að smella saman hjá okkur og við stefn- um ótrauð á titil,“ sagði Sigurbjöm eftir leikinn. Haukar í vandræðum „VIÐ áttum í miklum vandræðum og ég veit ekki hvers vegna svo var,“ sagði Harpa Melsteð fyrirliði Hauka eftir 24:23 sigur á Gróttu/KR á sunnudaginn í hinu nýja og glæsilega íþróttahúsi Hauka að Ásvöllum „Líklega voru þetta byrjunarerfiðleikar sem á eftir að pússa af. Fyrsti leikurinn í deildinni var nokkuð auðveldur fyrir okkur svo að þetta var fyrsti erfiði leikurinn okkar og þetta hlýtur að verða betra. En þetta eru tvö stig og það skiptir öllu máli.“ Taugar Haukastúlkna voru ekki í sem bestu lagi framan af leiknum á sunnudaginn en þær bættu það upp með Stefán baráttunni. Það var Stefánsson samt ekki nóg því skrifar gestirnir í Gróttu/ KR léku á als oddi þó að það hafi ekki dugað til að stinga Hafnfirð- ingana af. Sérstaklega áttu Hauka- stúlkurnar erfitt með ljúka sóknum með mörkum en þegar það fór að ganga upp var stutt í að þær næðu forystu, sem var 11:10 í leikhléi. En kálið er ekki sopið þó í aus- una sé komið og eftir hlé náðu gestirnir þriggja marka forskoti, 11:13, þegar 8 fyrstu sóknir Hauka á tæpum tíu mínútum fóru forgörð- um. En við fyrsta mark þeirra eftir hlé brotnaði ísinn og þær hófu að saxa á forskotið, ekki síst með því að taka Öllu Gorkorian úr umferð, sem riðlaði talsvert sóknarleik Gróttu/KR. Það skilaði tveggja marka forystu, sem gestirnir náðu aðeins að minnka niður í eitt mark. Haukastúlkur eiga, eins og Harpa fyrirliði tók fram, eftir að slípa leik sinn talsvert enda ekki vanþörf á. Oft var eins og leikmenn ætluðu sér að skora tvö mörk í hverri sókn því flýtirinn var svo mikill. „Við byrjuðum af fullum krafti en svo var eins og stemmningin dytti niður hjá okkur og sumir leik- menn okkar áttu erfitt með að sætta sig við það en það var erfitt að vera á fullu heilar sextíu mínút- ur,“ sagði Þóra Hlíf Jónsdóttir markvörður Gróttu/KR, sem átti mjög góðan leik. „Við áttum og ætluðum okkur svo sannarlega að vinna þennan leik því það hafði enginn trú að við gætum það og sérstaklega hefði verið gaman að vinna fyrsta leikinn í húsinu. En það gekk ekki og ég óska þeim til hamingju með sigurinn og þetta glæsilega íþróttahús." Markverðir í aðalhlutverki Leikur KA/Þórs og Fram í hand- knattleik kvenna var fyrst og fremst leikur markvarðanna því ríf- lega 40 skot voru StefánÞór varin í leiknum. Sig- Sæmundsson urbjorg Hjartar- skrifar dóttir, markvörður KA/Þórs, varði 19 skot og markverðir Fram 22 skot, Hugrún Þorsteinsdóttir 15 og Erna Eiríksdóttir sjö. Reyndar voru sóknirnar oft æði stuttar og leikmenn skutu ótt og títt en ekki skal það af markvörðum lið- anna tekið að þær stóðu sig afskap- lega vel. Fram var sterkara liðið en heimastúlkurnar voru þó óheppnar að ná ekki að hanga meira í gestun- um. Lokatölurnar urðu 25:17 Fram í vil. Það sem skildi liðin að í fyrri hálf- leik var góður kafli Hugrúnar í marki Fram. Hún varði úr dauða- færum, t.a.m. oft frá Eyrúnu Gígju Káradóttur sem var iðin við gegn- umbrotin. Ejrún var best norðan- stúlkna í fyrri hálfleik og skoraði þá sín þrjú mörk en Signý Sigurvins- dóttir fór á kostum í liði gestanna og raðaði inn 5 mörkum af línunni. Staðan í leikhléi var 8:14. I seinni hálfleik munaði yfirleitt 7-8 mörkum á liðunum. Stúlkurnar í KA voru sérlega óheppnar með skot sín og meira en tugur þeirra rataði í stöng eða þverslá, m.a. tvö vítaskot. Einnig var oft dæmd lína á þær og mörkin þar með ógild. Sennilega skrifast þetta á reynsluleysi þessara ungu stúlkna. Hjá Fram fór Marina Zoueva í gang og var markahæst með 9 mörk. Signý lék vel sem fyrr segir og báðir markverðirnir. Sigur- björg Hjartardóttir markvörður var best í liði heimastúlkna. Á (þróttavef mbl.is geturðu WMHMHMMM fengið að vita allt það mark- verðasta sem er að gerast bæði í handboltanum (1. deild kvenna og karla) og körfu- boltanum. • Skoðað umferðirnar • Fylgst með stöðu hvers liðs • Fengið upplýsingar um félögin og leikmenn Vefinn er hægt að nálgast í vinstri dálki íþróttavefjarins eða á forsíðu mbl.is. Ekki missa af boitanum!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.