Morgunblaðið - 03.10.2000, Page 12
. 2 C ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
Fyrsta
mark
Þórðar
fyrirLas
Palmas
ÞÓRÐUR Guðjónsson opn-
aði míirkareikning’ sinn
hjá Las Palmas í spænsku
1. deildinni í knattspyrnu
á sunnudaginn. Þórður
kom inn á sem varamaður
á 73. mínútu og skoraði
eina mark sinna manna á
lokaminútunni. Það dugði
skammt því Las Palmas
steinlá fyrir Valencia, 5:1,
og situr á botni deildarinn-
ar.
Börsungar töpuðu sín-
um þriðja leik í röð er liðið
bar lægri hlut fyrir meist-
urum Deportivo La Cor-
una, 2:0. Donato skoraði
fyrra markið á 66. mínútu
beint úr aukaspyrnu og
Diego bætti við öðru tíu
mínútum síðar þegar hann
lék vörn Börsunga upp úr
skónum. Atta mánuðir eru
liðnir síðan Deportivo tap-
aði siðast á heimavelli en
liðið hafði tögl og hagldir
gegn Börsungum.
„Við þurfum að setjast
■niður og fara yfir mistökin
sem við gerum inni á vell-
inum,“ sagði Llorenc
Serra Ferrer, þjálfari
Barcelona, eftir leikinn.
Með sigrinum er
Deportivo komið á topp-
inn, hefur einu stigi meira
en Valencia.
Leik Espanyol og Real
Sociedad var hætt í leik-
hléi vegna úrhellisrigning-
ar í Barcelona en þá var
staðan 2:1 fyrir Real
Sociedad.
■ HERMANN Hreiðarsson lék all-
an leikinn er Ipswich vann stór-
sigur á Everton 3:0 í ensku úrvals-
deildinni.
■ GUÐNI Bergsson lék allan leik-
inn með Bolton sem tapaði fyrsta
leik sínum á þessari leiktíð í ensku
fyrstu deildinni gegn Fulham á
heimavelli 2:0.
■ HEIÐAR Helguson spilaði allan
leikinn með Watford sem sigraði
Birmingham 2:0 á heimavelli í
ensku fyrstu deildinni.
■ LÁRUS Orri Sigurðsson lék ekki
með West Bromwich Albion þar
sem hann er enn að ná sér eftir
meiðsl. Liðið vann afar mikilvægan
sigur á Blackburn Rovers 1:0.
■ BRENTFORD, lið þpirra Ólafs
Gottskálkssonar og ívars Ingi-
marssonar sigraði um helgina á
heimavelli í fyrsta skipti í átta mán-
uði. Liðið lagði Bournemouth í
ensku 2. deildinni og léku félagarn-
ir báðir allan leikinn.
■ SIGURDUR Ragnar Eyjólfsson
var ekki í leikmannahópi Walsall
sem vann stórsigur á Notts County,
5:1. Liðið situr sem fastast á toppi
2. deildar.
■ BJARNÓLFUR Lárusson lék all-
an leikinn er Scunthorpe sigraði
Torquay 3:0 í ensku 3. deildinni á
laugardag.
■ HELGI Koiviðsson og félagar í
Ulm töpuðu fyrir Osnabriick, 2:1, í
næstefstu deildinni í Þýskalandi.
Helgi var besti leikmaður Ulm
samkvæmt einkunnagjöf Kicker.
Glæsimark Thierry
Henry á Highbury
Reuters
Frakkinn Thierry Henry skoraði glæsiiegt markfyrir Arsenal.
Hér er hann í baráttu við Gary Neville.
Manchester United tapaði fyrir
Arsenal, 1:0, um helgina og
þar með komst Leicester á
topp ensku úrvalsdeildarinnar
með því að næla sér í stig út úr
viðureign sinni við Sunderland
á leikvangi Ijósanna. New-
castle hafði beturgegn nýlið-
um Manchester City og er liðið
komið í toppbaráttuna. Her-
mann Hreiðarsson og félagar
úr Ipswich unnu góðan úti-
sigur á Everton og eru nú um
miðja deild. Leeds unnu Tott-
enham í fyrsta skipti í 20 ár á
útivelli og eru komnir í áttunda
sæti deildarinnar.
Thierry Henry skoraði af snilld
eftir tæpan hálftímaleik og
nægði markið Arsenal til sigurs á
meisturunum. Þetta er fyrsta tap
United á tímabilinu en liðin tvö hafa
nú bæði hlotið 15 stig en United
hangir í öðru sætinu vegria betri
markatölu. „Það var sjáanlegt að
bæði lið hafa leikið þétt undanfamar
þrjár vikur. Við gerðum það sem
mikilvægast var - skoruðum fyrsta
markið,“ sagði Arsene Wenger
knattspyrnustjóri Arsenal. „Andleg-
ur styrkur og frábær vöm standa að
baki sigrinum," bætti Wenger við.
Henry hafði ekki skoraði í sex leikj-
um í röð fyrir Arsenal. „Það hafði
áhrif á hann. En markið var hreint
ótrúlegt," sagði Wenger.
Alax Ferguson, knattspymustjóri
United, var vonsvikinn eftir ósigur-
inn. „Það þurfti eitthvað alveg sér-
stakt til að vinna okkur og það tókst
Arsenal að gera. Mér fannst við betra
liðið en það er erfitt að brjótast í
gegnum vöm Arsenal,“ sagði Fergu-
son.
Sunderlánd og Leicester gerðu
markalaus jafntefli um helgina og
komst Leicester þar með á topp
deildarinnar öllum að óvömm. Amar
Gunnlaugsson var ekki í leikmanna-
hópi Leicester. „Það kemur mér
mjög á óvart að við séum svona ofar-
lega í töflunni," sagði Peter Taylor
knattspymustjóri Leicester. „Ég hef
ekki verið lengi við stjómvölinn en
þessi byijun er nákvæmlega það sem
ég óskaði mér,“ sagði Taylor.
Hermann Hreiðarsson og félagar í
Ipswich unnu Everton 3:0 á útivelli
og var þetta fyrsti sigur liðsins á
Goodison-vellinum í 20 ár. Marcus
Stewart skoraði tvö marka Ipswieh
og var stjarna dagsins en George
Burley knattspymustjóri liðsins var
mikið gagnrýndur þegar hann keypti
Stewart frá Huddersfield í fyrra.
„Það vora mörg stór félög sem spáðu
mikið í að kaupa hann en enginn
þorði að taka áhættuna. Það gerði ég
og hann er að borga okkur traustið
núna,“ sagði Burley.
Leeds vann Tottenham 4:3 í hörku-
spennandi leik þar sem Tottenham
skoraði fyrsta mark leiksins. Lucas
Radebe fyrirliði Leeds var fluttur á
sjúkrahús i hálfleik eftir að hafa lent í
samstuði við Les Ferdinand. Ekki
var að sjá að missirinn hefði áhrif á
liðið. Fimm mörk vora skorað á 12
mínútna kafla í byrjun síðari hálfleiks
Stoke City vann um helgina 1:0
útisigur á Colchester í ensku
2. deildinni þar sem markahrókur-
inn Peter Thorne skoraði úrslita-
markið á 14. mínútu eftir sendingu
Bjarna Guðjónssonar. Bjarni og
Brynjar Björn Gunnarsson léku
allan leikinn fyrir Stoke en Stefán
Þórðarson kom inn á fyrir Thome
er tæpar 20 mínútur lifðu leiks.
Guðjón Þórðarson var ánægður
með stigin þrjú en sagði aðliðið
hefði hæglega getað unnið stærri
og áður en Spurs-áhangendur náðu
að átta sig var staðan allt í einu orðin
4:2 fyrir Leeds. Áhangendur Leeds
púuðu stöðugt á George Graham
knattspyrnustjóra Tottenham en
hann yfirgaf Leeds til að taka við
Lundúnaliðinu fyrir tveimur áram.
„Mér fannst ég hafa yfirgefið Leeds í
góðu ástandi á sínum tíma,“ sagði
Graham. „Leeds er með spennandi
og ungt lið og David O’Leary á eftir
að ná langt með það,“ bætti hann við.
Newcastle vann Manchester City
1:0 á útivelli og skoraði Alan Shearer
úrslitamarkið er um stundarfjórð-
ungur lifði leiks. Bobby Robson
knattspymustjóri liðsins getur því
ekki annað en brosað út í bæði þessa
dagana þar sem liðið er í fjórða sæti
deildarinnar.
Middlesbrough vann 3:1 sigur á
Southampton en suðurstrandarliðið
hafði fyrir leikinn unnið síðustu fjóra
leiki sína í röð. Boro var í miklu stuði
og þrátt fyrir að Southampton hafi
minnkað muninn í 2:1 var sigurinn
aldrei í hættu.
Joe Cole hélt upp á landsliðssæti
sitt með því að skora fyrir West Ham
í 1:1 jafntefli gegn Bradford. Útlit var
fyrir sanngjaman sigur en á lokamín-
útunni skoraði Dan Petrescu fyrir
Bradford, sem skaust upp fyrir
sigur. „Ég er ekki óánægður með
úrslit leiksins en þegar lið er að-
eins með eins marks forystu er allt-
af hætta á því að ein mistök geti
orðið dýrkeypt," sagði Guðjón.
„Það er alltaf mjög gott að halda
hreinu og við gáfum þeim aldrei
færi á okkur,“ bætti Guðjón við.
Tvær vikur era í næsta leik Stoke
þar sem leiknum gegn Brentford,
sem fara átti fram í næstu viku, var
frestað. Liðið er nú í 8. sæti deild-
arinnar með 16 stig eftir 9 leiki.
Derby á botni deildarinnar.
Julian Joachim kom inn á í stað
David Ginola snemma leiks og var
fljótur að koma Villa yfir og endaði
Aston Villa á því að sigra Derby 4:1.
RÍKHARÐUR Daðason skoraði
tvö af mörkum Viking í norsku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu á
sunnudaginn. Ríkharður skor-
aði bæði mörkin með skalla
þegar liðið sigraði Bryne á úti-
velli, 0:3.
Ríkharður, sem hefur skorað 13
mörk á leiktíðinni, skoraði
fyrsta og þriðja markið og fékk svo
kjörið tækifæri til að fullkomna
þrennuna en brenndi af vítaspyrnu.
Ríkharður lék allan leikinn en Auð-
un Helgason lék ekki vegna meiðsla.
Ríkharður er nú í 3.-6. sæti á list-
anum yfir markahæstu leikmenn í
Noregi, ásamt Tryggva Guðmun-
dssyni og tveimur öðram.
Lilleström hafði betur gegn Stab-
æk á útivelli, 0:2. Rúnar Kristinsson
lék allan leikinn fyrir Lilleström en
Indriði Sigurðsson var ekki í liðinu.
Marel Baldvinsson var í fremstu vig-
línu í liði Stabæk allan tímann en
Pétur Marteinsson lék ekki með lið-
inu þar sem hann tók út leikbann.
Arni Gautur Arason var ekki í
marki meistara Rosenborgar sem
gerðu 2:2-jafntefli gegn Válerenga á
útivelli, en Arni er að jafna sig eftir
meiðsli sem hann varð fyrir á dögun-
Charlton og Coventry deildu með
sér stigunum í 2:2 jafntefli þar sem
Astralinn John AIoisi skoraði sitt
fyrsta deildarmark og fjórða mark
sitt í vikunni fyrir Coventry.
um. Rosenborg, sem hefði tryggt sér
meistaratitilinn með sigri, er efst í
deildinni með 50 stig þegar tveimur
umferðum er ólokið. Viking er með
44 stig og lærisveinar Teits Þórðar-
sonar eru í þriðja sætinu með 41 stig.
Tryggvi Guðmundsson lék ekki
með Tromsö sem vann Start, 3:2, þar
sem hann tók út leikbann.
Strömsgodset í úrvalsdeildina
Strömsgodset tryggði sér sæti í
úrvalsdeildinni með því að sigra
Strindheim, 1:0. Stefán Gíslason hef-
ur verið lykilmaður á miðjunni hjá
Strömsgodset og Unnar Sigurðsson
hefur leikið nokkra leiki í sumar.
Lyn er sex stigum á undan Ströms-
godset þegar tvær umferðir era eftir
og á meistaratitilinn nokkuð vísan.
Sogndal er með þriðja sætið í hönd-
unum en Kristinn Hafliðason og fé-
lagar í Raufoss eiga veika von um að
ná því, en það gefur rétt til auka-
leikja við þriðja neðsta lið úrvals-
deildar. Guðni Rúnar Helgason og
félagar í Hönefoss sigla lygnan sjó
um miðja 1. deildina og sama er að
segja um Kongsvinger, lið Steinars
Adolfssonar, en hann hefur ekkert
leikið undanfarnar vikur vegna
meiðsla.
Guðjón ánægður með sigur
Ríkharður með
tvö fyrir Viking