Morgunblaðið - 03.10.2000, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000 C 13 '
KNATTSPYRNA
Reuters
Carsten Jancker, leikmaður Bayern Múnchen, varð að játa sig sigraðan, þegar leikmenn Hans
Rostock komu í heimsókn á Ólympíuleikvanginn í Munchen, 1:0.
Rehagel hættur
ÞÝSKU meistararnir (Bayern Múnchen töpuðu óvænt á heima-
velli fyrir Hansa Rostock í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu um
helgina. 60.000 áhorfendur sáu Christian Brand skora eina mark
leiksins á 15. mínútu en þrátt fyrir tapið halda Bæjarar efsta sæti
í deildinni. Stærstu tíðindin f þýsku knattspyrnunni um helgina
voru hins vegar þau að Otto Rehagel sagði starfi sínu lausu hjá
Kaiserslautern.
Martin Pieckenhagen mark-
vörður Hansa var maðurinn
á bak við sigur sinna manna en
hann varði á köflum meistaralega.
„Eftir að Hansa skoraði markið
vörðust þeir vel og áttu framherj-
ar okkar í miklum vandræðum,“
sagði Ottmar Hitzfeldt þjálfari
Bayern Miinchen eftir leikinn.
Franz Beckenbauer forseti Bæj-
ara var ekki sáttur við frammi-
stöðu sinna manna eftir leikinn.
„Það er langt síðan ég hef séð
liðið leika svona illa. Ég veit hrein-
lega ekki hvað leikmenn voru að
hugsa. Þeir höfðu allavega enga
löngun til að koma knettinum í
markið," sagði Beckenbauer.
Otto Rehagel fór fram á það við
stjórn Kaiserslautern að verða
leystur frá störfum hjá félaginu,
sólarhring eftir að liðið gerði 1:1
jafntefli gegn botnliði Energie
Cottbus. Rehagel var orðinn valtur
í sessi eftir slaka byrjun Kais-
erslautern á leiktíðinni og eftir
leik liðsins á laugardaginn hróp-
uðu stuðningsmenn liðsins, „Otto í
burtu. Rehagel gerði Kaiserslaut-
ern að meisturum árið 1998 en lið-
ið var þá nýliði í deildinni. Á síð-
ustu leiktíð gekk ekki sem skyldi
og tveir tapleikir í fyrstu umferð-
unum nú í haust var eitthvað sem
stuðningsmönnum félagsins líkaði
alls ekki.
Eyjólfur Sverrisson lék allan
síðari hálfleikinn í liði Herthu
Berlin, sem sigraði Köln, 4:2.
Gestirnir fengu óskabyrjun og
komust í 0:2 en Brasilíumaðurinn
Alves kom heimamönnum inn í
leikinn að nýju þegar hann skoraði
skondið mark. Hertha tók miðju
og Alves sá að markvörður Kölnar
stóð framarlega i markinu og skor-
aði með því að spyrna yfir hann af
50 metra færi. Rétt á eftir jafnaði
Michael Preetz og á lokamínútu
fyrri hálfleiks og á fyrstu mínútu
þess síðari skoraði Darius Wosz.
Fredi Bobic kom inn í lið Dort-
mund að nýju eftir erfið meiðsli og
bjargaði stigi fyrir sína menn þeg-
ar hann jafnaði metin á 70. mínútu
gegn Eintracht Frankfurt.
Werder Bremen vann sinn
fyrsta útisigur á tímabilinu þegar
liðið lagði Freiburg. Brasilíumað-
urinn Ailton skoraði eina mark
leiksins á • 54. mínútu en Ailton
skoraði þrennu í Evrópuleik gegn
tyrkneska liðinu Antalyaspor í síð-
ustu viku.
Óvænt tap hjá Inter
KEPPNISTÍMABILIÐ á Ítalíu
hófst fyrir alvöru á sunnudag-
inn en þá var flautað til leiks í
1. deildinni. Strax í fyrstu um-
ferðinni urðu óvænt úrslit því
hið rándýra lið, Inter Mílano,
tapaði fyrir Reggina, 2:1. AC
Milan, Juventus og Roma unnu
öll sína leiki en meistarar síð-
asta árs, Lazio, urðu að sætta
sig við jafntefli.
Júgóslavneski landsliðsmaðurinn
Sinisa Mihajlovic skoraði úr
einni af sínum frægu aukaspyrnum
og kom Lazio yfír eftir aðeins
þriggja mínútna leik gegn Ata-
lanta. En leikmenn Atalanta létu
þetta mark ekki slá sig út af lag-
inu. Giuseppe Pancaro varð fyrir
því óláni að skora í eigið mark á
21. mínútu og á 58. mínútu kom
Cristian Zanoni Atlanta yfir þegar
hann komst í gegnum götótta vörn
Lazio. Sven Göran Erikson setti
Simone Inzaghi inn á fyrir Claudio
Lopes á 67. mínútu og sex mínút-
um síðar jafnaði Inzaghi metin.
Alvaro Recoba kom Inter í for-
ystu á 10. mínútu leiksins en Poss-
anzini jafnaði metin undir lok fyrri
hálfleiksins. Það var síðan Mass-
imo Marazzina sem innsiglaði
óvæntan sigur Reggina á 50. mín-
útu. Marcelo Lippi var ekki kátur í
leikslok en hann hefur verið undir
mikilli pressu síðan Inter var sleg-
ið út í meistaradeildinni af sænska
liðinu Helsingborg. Lippi sagði að-
sínir menn hefðu leikið mjög illa og
hefðu ekki átt annað skilið en að
tapa.
Léku eins og spillt böm
„Ef leikmenn trúa ekki á það
sem ég er að gera þá ættu að þeir
að fara til forseta félagsins og til-
kynna honum að þeir geti ekki
unnið með þjálfaranum. Ef þetta
er ekki ástæðan þá get ég ekki
skýrt hvers vegna þeir leika svona
illa. Þeir voru að leika eins og spillt
börn og þeir halda að þeir séu svo
frábærir að þeir þurfi ekki að hafa
fyrir sigrunum. Ef ég væri for-
setinn myndi ég líklega reka
þjálfarann. Síðan mundi ég stilla
leikmönnunum upp við vegg og
gefa þeim spark í afturendann,"
sagði Lippi.
Gabriel Batistuta lék sinn fyrsta
leik fyrir Roma þegar liðið vann
öruggan sigur á Bologna, 2:0. Bat-
istuta tókst ekki að skora en þeir
Totto og Marcos Assuncao skoruðu
mörk Roma í leiknum.
Bierhoff á skotskónum
AC Milan átt ekki í teljandi erf-
iðleikum með að leggja nýliða
Vicenza að velli. Þýski landsliðs-
maðurinn Oliver Bierhoff, sem hef-
ur verið á skotskónum að undan-
förnu, skoraði fyrra mark Milan
liðsins og Úkraínumaðurinn Andriy
Schevchenko, markakóngur deild-
arinnar í fyrra, skoraði það síðara.
Parma og Fiorentina áttust við í
skemmtilegum leik sem endaði
með jafntefli, 2:2. Marcio Amoroso
kom Parma í forystu eftir fimm
mínútna leik en Fiorentina náði
forystu með mörkum frá Pierini og
Christian Amoroso. Það stefnir allt
í sigur Flórensliðsins en á lokamín-
útunni var dæmt vítaspyrna á
Fiorentina þegar Tékkinn Repka
braut á sóknarmanni Parma. Hann
fékk að launum rautt spjald og
Marcio Amoroso jafnaði metin úr
vítaspyrnunni.
Del Piero bjargaðí Juventus
Nýliðar Napoli tóku á móti Juv-
entus og máttu þola tap, 1:2.
Heimamenn voru betri í fyrri hálf-
leik og náðu forystu á 41. mínútu
þegar Roberto Stellone skoraði.
Júgóslavneski landsliðsmaðurinn
Darko Kovacevic kom inn á sem
varamaður í seinni hálfleik og jafn-
aði metin á 67. mínútu eftir góðan
undirbúning franska landsliðs-
mannsins Zinedina Zidanes. Það
var svo Alessandro Del Piero sem
tryggði Juventus sigurinn marki
með fallegu marki stundarfjórð-
ungi fyrir leikslok.
Enski boltinn
á mbl.is
Nýjar fréttir á hverjum degi. Á íþróttavef
mbl.is finnur þú ítarlega umfjöllun um
enska boltann og tengingar inn á heima-
síður félaganna.
Á íþróttavef mbl.is er einnig að finna
skemmtilegan netleik í samvinnu við
Ferðaskrifstofu Reykjavíkur. Þar getur þú
valið þér þrjá framherja og safnað stigum
samhliða því að þeir skora í deildinni.
Einnig geta þrír þátttakendur myndað lið
og safnað sínum stigum saman. Það er
um að gera að vera með frá byrjun til að
eiga sem besta möguleika á þeim glæsi-
legu vinningum sem í boði eru.
Ferð þú á leik með stjörnunum ?
Glæsilegir ferðavinningar til
Englands á leik í enska boltanum.
Glæsilegir ferðavinningar á leik
í Meistarakeppni Evrópu.
með
FEROASKR FSTOFA á&')
REYKJAVÍKUR (jEá
Vertu með frá byrjun
ENSKI BOLTINN A
mbl.is