Morgunblaðið - 03.10.2000, Síða 16
Fyrirliðinn fagnar
Eiði Smára
EIÐUR Smári Guðjohnsen átti frá-
bæran leik með Chelsea á sunnu-
daginn - rak smiðshöggið á sigur
á Liverpool með góðu marki, 3:0.
Hér fagnar Dennis Wise, fyrirliði
I 'helsca. íslcnska lamlsliðsinaim-
inum, eftir að hann hafði skorað.
Eiður
kominn
á flug!
Eiður Smári Guðjohnsen var í fyrsta sklpti
í byrjunarliði Chelsea þegar liðið sigraði
Liverpool 3:0 á sunnudaginn. Skapti
Hallgrímsson var á Stamford Bridge.
Hann sker sig úr. Það gerir
skjannahvítt hárið. Skrýddur
blárri Chelsea-treyju númer 22,
merktri Gudjohnsen.
Hann tekur nokkrum sinnum á
sprett að boltanum og spyrnir fast
með vinstri fæti - alltaf með vinstri.
Ekki er nema tæp klukkustund
síðan annar Ijóshærður íslendingur,
í blárri Chelsea-treyju númer 22,
merktri Gudjohnsen, sveiflaði vinstri
fætinum og skoraði gegn Liverpool -
í fyrsta heila leik sínum í úrvalsdeild-
inni, að viðstöddum 34.966 áhorfend-
um.
Sá fyrmefndi er einungis tveggja
ára og heitir Sveinn Aron. Hann er
að leika sér á þröngum gangi inn af
blaðamannaherberginu á Stamford
Bridge, heimavelli Chelsea í London,
ásamt fleiri piltum, sem eru tvöfalt
eða þrefalt stærri. Faðernið leynir
sér ekki. Hann er nánast alveg eins
og Eiður Smári - bara nokkrum
númerum minni!
Ekki fer á milli mála að strákurinn
hefur gaman af fótbolta og enginn ef-
aðist heldur um það sem sá áður-
nefndan leik að pabbinn nýtur þess
að vera í vinnunni um þessar mundir.
Samstarfsmennimir og stuðnings-
menn liðsins vom greinilega ánægðir
með íslenska landsliðsmanninn en
gestirnir rauðklæddu, leikmenn
Liverpool, hefðu eflaust ekkert haft
á móti því þótt Eiður sæti á bekk
varamanna þar sem hann hefur verið
undanfarið.
Enskir blaðamenn hrifust líka af
glókollinum ofan af íslandi, þeim
eldri altso; hann var valinn maður
leiksins í a.m.k. tveimur dagblaðanna
í gær, Sun - sem segir hann aldrei
hafa gefíð ótraustri vöm Liverpool
grið - og Independent, og var í liði
dagsins hjá því síðamefnda; þar var
þeim stillt upp í framlínunni Eiði
Smára og Frakkanum Tierry Henry,
sem gerði stórkostlegt mark fyrir
Arsenal gegn Manchester United.
„Frábær dagur
fyrir Eið“
Sigur Chelsea á Liverpool var
mjög ömggur og sanngjarn. Claudio
Ranieri, sem nýlega tók við stjóm-
velinum á Stamford Bridge, upplýsti
á blaðamannafundinum eftir leikinn
að honum hefði fundist Norðmaður-
inn Tore Andre Flo - sem alla jafna
hefur leikið í framlínu Chelsea - vera
þreyttur; þess vegna hann hefði
hann verið settur á varamannabekk-
inn. Eiður tók stöðu hans í liðinu, og
þjálfarinn var ánægður með fyrsta
heila leik Islendingsins. „Þetta var
frábær dagur fyrir Eið. Hann barðist
í hverju einasta einvígi, lék mjög vel
og skoraði sitt fyrsta mai-k fyrir lið-
ið.“
Mörkin
Sander Westerveld, markvörður
Liverpool, kom Chelsea yfir snemma
leiks þegar hann kýldi knöttinn í eig-
ið mark eftir hornspyrnu Gianfranco
Zola! Ótrúlegt, en satt. Og aðeins
mínútu síðar hafði heimaliðið skorað
aftur; þar var Jimmy Floyd Hassel-
baink á ferðinni með skot úr miðjum
teig eftir frábæran undirbúning Eiðs
Smára og Zola. Eiður hóf þá sóknar-
lotu og sendi knöttinn síðan til
Hasselbainks, sem skoraði. Það var
einmitt athyglisvert að fylgjast með
því hve vel þeir náðu saman, Zola og
Eiður; ekki var að sjá að þeir væru að
hefja leik í fyrsta skipti saman.
Eiður Smári kórónaði svo frábæra
frammistöðu sína með þriðja marki
leiksins á 71. mín. Nýtti sér slæm
mistök andstæðinganna, komst einn
í gegnum vöm þeirra, lék á Wester-
veld markvörð og skoraði örugglega
í tómt markið úr þröngu færi.
Eiður ánægður
„Ég er mjög ánægður með eigin
frammistöðu í leiknum. Það var stórt
skref fyrir mig að byrja inni á í úr-
valsdeildinni," sagði Eiður Smári við
Sky Sports-sjónvarpsstöðina. „Þetta
var einmitt það sem við þurftum á að
halda til að lyfta okkur upp. Sigurinn
var góður fyrir félagið í heild, leik-
menn, áhorfendur og aðra og þjapp-
ar okkur saman. Ég hafði ákveðnar
væntingar þegar ég kom til félags-
ins; þegar ég sat á varamannabekkn-
um í fyrstu leikjunum beið ég bara
rólegur en ákveðinn í að vera til-
búinn þegar ég fengi tækifæri. Ég er
mjög ánægður með allt liðið hér í
dag, mér fannst ég leika ágætlega
þegar ég kom inn á í um hálftíma í
[Evrópuleiknum gegn St. Gallen í]
Sviss, þrátt fyrir að við töpuðum. Það
kom mér samt nokkuð á óvart að
byrja inni á en ég er mjög ánægður,“
sagði Eiður. Fyrir leikinn var Chels-
ea í þriðja neðsta sæti deildarinnar
en fór með sigrinum upp í 12. sæti.
„Með þessum sigri lyftum við okkur
upp um 5-6 sæti og það er náttúrlega
mjög gott fyrir sjálfstraustið. Við
þurftum virkilega á sigri að halda og
liðið lék allt mjög vel.“
ALLSPORT
Mikil hreyfing var á leikmönnum
Chelsea. Hasselbaink var í fremstu
víglínu, í uppstillingu sem sumir
kjósa að kalla 3-5-1-1, en aðrir nefna
3-4-3. „Það er ekki leikkerfið sem
skiptir máli, heldur leikmennirnir,"
sagði Ranieri; „með hvaða hugarfari
þeir fara inn á völlinn, og ég var mjög
ánægður með það í dag. Eftir tapið [í
Sviss] á fimmtudaginn var ánægju-
legt að sjá hvernig menn rifu sig upp
í dag.“
Ekki alltaf auðvelt
Eiður Smári Guðjohnsen hefur
haft lifibrauð sitt af því að æfa og
leika knattspyrnu síðan 10. nóvem-
ber 1994, þegar hann var aðeins 16
ára og 56 dögum betur. Og hann hef-
ur sannarlega kynnst því að líf
manna í þessu starfi er ekki alltaf
dans á rósum. Framtíðin var björt
þegar sti'ákur samdi við PSV Eind-
hoven í Hollandi á sínum tíma, en
slæm meiðsli töfðu því miður fyrir
honum. Útlitið var ekki bjart á tíma-
bili, læknar PSV munu m.a.s. hafa
hrellt hann með því að ferillinn væri
jafnvel á enda. En þeir höfðu rangt
fyrir sér, guði sé lof.
„Það er ekki alltaf auðvelt að vera
atvinnumaður. Andlega hliðin skiptir
miklu máli og ég verð að segja að
Eiður Smári kom mér strax mjög vel
fyrir sjónir hvað hana varðar. Ég
vona að hann eigi glæsilegan knatt-
spymuferil framundan - og að hann
verði sem lengst hjá PSV,“ sagði
Frank Arnesen, danski landslið-
smaðurinn fyrrverandi og fram-
kvæmdastjóri PSV, við Morgunblað-
ið, þegar fyrsti samningurinn var
undirritaður.
Danskurinn átti kollgátuna.
Styrkleiki Eiðs Smára felst auðvitað
að miklu leyti í frábærum knatt-
spyrnuhæfileikum, en ekki síður í
andlegum styrk. Hann neitaði að gef-
ast upp þegar á móti blés og er nú að
uppskera eins og hann sáði til.
Éftir nokkra leiki með KR sumar-
ið 1998 fór hann til 1. deildarliðs
Bolton á Englandi. Þar á bæ voru
menn tilbúnir að gefa honum tæki-
færi. Höfðu trú á honum. Og íslensk-
ir íþróttaáhugamenn þekkja fram-
haldið: Eiður Smári sló rækilega í
gegn á síðustu leiktíð og var í sumar
keyptur fyrir fúlgur fjár til stórliðs
Chelsea.
Gianluca Vialli, knattspyrnustjóri
liðsins, lýsti því yfir í byrjun leiktíðar
að íslendingurinn væri fyrst og
fremst keyptur með framtíðina í
huga. Ekki væri víst að hann léki
mikið í vetur en Chelsea hefði hér
verið að festa sér lykilmann í liðinu
næsta áratuginn.
Liðinu gekk ekki vel í byrjun tíma-
bilsins og einn góðan veðurdag fyrir
skömmu var Vialli sagt upp störfum.
Við starfinu tók áðumefndur Ranieri
en Eiður Smári var svo óheppinn að
togna á ökla í þann mund sem þjálf-
arinn hóf störf. „Ég var meiddur
fyrstu vikuna sem hann var við
stjórnvölinn og hef aðeins verið á æf-
ingum hjá honum í fimm daga,“ sagði
Eiður í viðtalinu sem vitnað var til að
ofan, og taldi of snemmt að tjá sig um
nýja stjórann eða bera hann saman
við Vialli. En hann var vitaskuld
ánægður með leikinn gegn Liverpool
og úrslit hans. „Þetta var það besta
sem gat komið fyrir eftir ósigurinn í
Evrópukeppninni.“
Áflugi
I viðtali sem höfundur þessarar
greinar átti við Eið Smára, og birtist
hér í blaðinu sumarið 1998, þegar
hann var hjá KR, sagði hann m.a.:
„Ég var alltaf efnilegur, var stærri
og líklega betri en jafnaldrarnir og
svo sprakk ég út - blómstraði - árið
sem ég lék með Val, 15 ára [1994].
Þegar ég hugsa um það í dag finnst
mér í raun fáránlegt að ég skuli hafa
verið að spila og þótt með þeim betri
í deildinni hér heima aðeins 15 ára.
En sjálfstraustið var gífurlegt hjá
mér á þessum tíma; ég hefði líklega
getað flogið, hefði ég viljað!“
Ég sá ekki betur á sunnudaginn en
sjálfstraustið væri aftur orðið bæri-
legt. Að hann sé u.þ.b. að hefja sig til
flugs - jafnvel kominn á loft.
Ekki munaði miklu að feðgarnir
Guðjohnsen, faðirinn Arnór og son-
urinn Eiður Smári, lékju saman í
landsliðinu fyrir fáeinum árum,
fyrstir feðga í heiminum. Svo fór því
miður ekki, vegna meiðslanna sem
sonurinn varð fyrir, en miðað við það
sem ég sá á sunnudaginn á Stamford
Bridge, innan og utan vallai', skyldi
enginn útiloka að Guðjohnsen-feðgar
leiki saman í íslenska landsliðsbún-
ingnum eftir svo sem hálfan annan
áratug...