Morgunblaðið - 05.10.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.10.2000, Blaðsíða 2
2 C FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2000 KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ „Gangi ykkur vel“ GUÐNI Bergsson, fyrrver- andi fyrirliði íslenska landsliðsins og leikmaður með Bolton, var samferða landsliðshópnum að heiman til London, en hann brá sér heim í stutt helgarfrí. Guðni heilsaði upp á leik- mennina í flughöfninni í Keflavík og þegar hann kastaði kveðju á landsliðs- hópinn í London, sagði hann: „Góða ferð til Tékk- lands og gangi ykkur vel.“ Guðni hefur verið einn traustasti leikmaður Bolton undanfarin ár og hann myndi sóma sér vel í lands- liðinu í dag. ÚRSLIT HANDKNATTLEIKUR Fram - Haukar 21:30 Islandsmótið, 1. deild kvenna, íþróttahúsi Fram, miðvikudaginn 4. október 2000. Gangur leiksins: 0:2, 2:3, 2.7, 4:9, 6:9, 7:12, 9:13,11:17,11:19,11:20,13:20,14:24,17:25, 18:29,21:29,21:30. Mörk Frara: Marina Zoveva 11/5, Díana Guðjónsdóttir 3, Björk Tómasdóttir 2, Katr rín Tómasdóttir 2, Kristín Brynja Gústafs- dóttir 2, Oiga Prohorova 1. Varin skot: Hugrún Þorsteinsdóttir 15/1 (þar af átta til mótherja), Erna Eiríksdóttir 2. Utan vallar: 4 mínútur. Mörk Hauka: Harpa Melsteð 9/3, Tinna Halldórsdóttir 6, Brynja Steinsen 4, Thelma Björk Amadóttir 3, Auður Her- mannsdóttir 2, Sandra Anulyte 2, Hanna G. Stefánsdóttir 2, Björg S. Hauksdóttir 1, Sonja Jónsdóttir 1. Varin skot: Jenný Asmundsdóttir 11/1 (þar af þrjú til mótherja), Guðný Agla Jónsdótt- ir 5/1 (þar af þrjú til mótherja). Utan vallar: 4 mínútur. Dómarar: Tómas Ulfar Sigurdórsson og Ingi Már Gunnarsson. Áhorfendur: Um 170. ÍBV-FH 23:21 Iþróttamiðstöðin í Vestmannaeyjum: Gangur leiksins: 1:2,2:4,3:7,6:8,7:11, 9:11, 11:12, 12:14, 13:15, 15:15, 17:16, 19:18, 22:20,23:21. Mörk ÍBV: Ingibjörg Ýr Jóhannsdóttir 9/2, Gunnleyg Berg 4, Bjamý Þorvaðardóttir 3, Amela Hegic 3/1, Edda B. Eggertsdóttir 2, Iris Sigurðardóttir 1, Inga Falkvard 1. Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 18 (þar af 5 til mótherja) Mörk FH: Judit Esztergal 6, Gunnur Sveinsdóttir 3, Hafdís Hinriksdóttir 3/3, Dagný Skúladóttir 3, Björk Ægisdóttir 2, Sigrún Gilsdóttir 2, Hildur Pálsdóttir 1, Harpa Vífilsdóttir 1. Varin skot: Kristín Guðjónsdóttir 15/2 (þar af 6 til mótherja), Jolanta Slapikiene 6 (þar af 2 til mótherja) Dómarar: Guðmundur K. og Aðalsteinn Ömólfsson Áhorfendur: 91. KNATTSPYRNA Vináttulandsleikur Frakkland - Kamerún..............1:1 Sylvain Wiltord 20. - Patrick MBoma 44. - 50.000 BLAK Haustmót BLÍ Karlar: ÍS - Þróttur R....................3:0 ÍS - Stjaman......................3:1 Þróttur R. - Stjaman..............3:2 Konur: Víkingur - Þróttur R..............3:0 |S-ÞrótturR.......................3:0 ÍS,- Víkingur.....................3:0 ■ ÍS er haustmeistari bæði í karla- og kvennaflokki. í KVÖLD KÖRFUKNATTLEIKUR Kjörísbikarkeppnin: Fyrsta umferð, fyrri leikir: Borgames, Skallagrímur - Hamar...20 Grafarvogur, Valur/Fjölnir - Haukar.20 Seljaskóli, ÍR - Keflavík...........20 • « $ KSI Annar landsleikurinn í Tékklandi HM-landsleikur 1996 í Jablonec:\ Tékkland - ísland 2:r~ 3 Leikir íslenskra félagsliða í Slóvakíu E HM-landsleikur [ 7. október 2000 í Teplice: Tékkland - ísland Þórður Guðjónsson skoraði - O Jablonec V Teplice O Prag Tékkland — Birkir Kristinsson, Rúnar Kristinsson, Eyjólfur Sverrisson, Þórður Guðjónsson, Ríkharður Daðason, Helgi Sigurðsson og Hermann Hreiðarsson léku þáfneð. Þeir eru nú í landsliðshópnum. 0 >v V Ostrava \ f 1976 UEFA - keppnin: Slovan Bratislava - Fram 5:0 1997 Meistaradeild Evr.: f Kosíce - ÍA 3:0 / Slóvakía Kosice O Leikir íslenskra félagsliða í Tékklandi O Trnava O Bratislava 1979 UEFA - keppnin: Bmo - Keflavík 3:1 1980 Evrópuk. meistaral.: Banik Ostrava - ÍBV 1:0 HM-landsleikur~~~— 1981 í Bratislava: Tékkóslóvakía - ísland 6:1 Magnús Bergs skoraði ~S 1987 Evrópuk. meistaral.: Sparta Prag - Fram 8:0 Vináttulandsleikur 1997íTrnava: Slóvakía - ísland 3:1 Helgi Sigurðsson skoraði EM-landsleikur 1990 i Kosice: Tékkóslóvakía - ísland 1:0 Rúnar Kristinsson lék með landsliðinu Atli Eðvaldsson segir að strákarnir í landsliðinu hafi lært mikið af leiknum gegn Dönum Komum til Prag reynsl- unni ríkari VIÐUREIGNIN gegn Tékkum leggst vel í mig - það er komið að stóru stundinni. Leikurinn gegn Tékkum f Teplice er einn erfið- asti leikur okkar í undankeppni HM. Verkefnið verður erfitt - við vissum það fyrir og því erum við komnir hingað til Tékklands til að gera okkar besta og munum undirbúa okkur af krafti,“ sagði Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari íslands, um leikinn gegn hinum léttleikandi Tékkum sem eru með eitt sterkasta landslið Evrópu. Þegar Atli var spurður hvort það hentaði ekki íslenska liðinu að leika gegn eins léttleikandi liðum og Tékkum, sagði hann: „Það á ekkert að geta komið okkur á óvart og ef allt gengur upp hjá okk- ur getum við veitt hvaða landsliði sem er harða mótspyrnu. Það ræðst allt á því að við náum upp sterkri liðsheild þar sem allir keppa að því að vinna hver fyrir annan.“ umst ekki út úr - fyrr en skaðinn var skeður," sagði Atli og bætti við. „Við lærðum af leiknum gegn Dön- um og komum reynslunni ríkai'i hingað til Prag.“ Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari í knatts Atli valdi Ólaf að nýju í landsliðið vegna n SigmundurÓ. Steinarsson skrífarfrá Prag Atli sagði að liðsheildin hefði allt- af verið sterkasta vopn íslands. „Um leið og leikmennirnir fara að rífa sig út úr liðsheildinni er voðinn vís og við lendum í erfíðleikum. Það er okkar styrkur að leika sem liðsheild. Sjáum til dæmis hvað Manchester United hefur náð langt á liðsheildinni. Við vorum að ræða um þetta sigursæla lið og ræddum þá til dæmis um Neville- bræðurna sem leika sem bakverðir. Þegar við fórum að ræða um þá og tuttugu bestu lið Evrópu þá kæmust þeir ekki einu sinni á bekkinn hjá liðum eins og Inter, AC Milan, Real Madrid, Barcelona, Juventus, svo dæmi séu tekin. En þeir eru lykil- menn hjá Manchester United. Þeir falla inn í leikkerfi liðsins. Það er að þessu sem við erum að leita hjá ís- lenska landsliðinu - að leikmönnum sem falla vel inn í þá liðsheild sem við viljum sjá. Við verðum að sýna sterkari liðsheild en mótherjarnir." Stórttap árið 1981 Sagan endurtekur sig ekki í þetta skipti. íslenska landsliðið hefur náð viðeigandi úrslitum gegn landsliðum frá gömlu Tékkóslóvakíu í gegnum árin, þegar frá er talið stórt tap fyrir Tékkóslóvakíu í Bratislava 1981,6:1. „Ég man eftir þeim leik. Þannig tölur geta alltaf komið upp, en sagan á ekki að endurtaka sig í þetta skipti. Við erum með það sterkan hóp leikmanna, sem eru reyndir og vel þjálfaðir, að þá langar ekki af leikvelli með sex mörk á bakinu. Við erum nú að byrja að læra að vinna með væntingar. Við höfum náð mjög góðum úrslitum á þessu ári - tapað aðeins einum leik, gegn Dönum. Fyrir leikinn gegn Dönum voru væntingamar miklar og enn meiri eftir að við lögðum Svía að velli. Strákarnir fundu það að allt í einu var orðin gífurlega mikil pressa á þeim. Þeim ieið orðið illa á stundum - sérstaklega þar sem leikurinn við Dana var hafínn þremur vikum áð- ur. Það var byrjað að ræða um Dani sem stórstjörnur, sem ætti að berja á. Þegar Danir komu til Reykjavík- ur skynjuðu þeir spennuna og fundu leið til að slá vopnin úr hönum okk- ai’. Líktu íslenska landsliðinu við það danska þegar Sepp Piontek tók við því - liðið sem var í sviðsljósinu í EM í Frakklandi 1984 og HM í Mexíkó 1986. Þannig settu þeir pressuna yfir á strákana okkar. Þeg- ar við lásum þetta vann það greini- lega gegn okkur - við vorum allt í einu orðnir svo góðir. Við erum ekki vanir þessu. Þegar við komumst síð- an yfir gegn Dönum kom bakslag. Strákarnir reyndu að halda fengn- um hlut og hleyptu Dönum inn í leik- inn. Strákarnir héldu að það væri af- ar eðlilegt að vera yfír gegn Dönum. Þá kom í ljós að við læstumst í ákveðum erfíðleikum, sem við kom- 9 landsleikir Ólafs ÓLAFUR Gottskálksson hefur leikið 9 landsleiki fyrir ísland frá 1991. Ólafur kom fyrst inná sem varamaður fyrir Bjarna Sigurðsson í leik gegn b-Iiði Englands í Watford 1991, Englendingar unnu, 1:0. Ölafur var í byrjunarliði gegn Möltu, 4:1,1991 og sama ár í byrjunarliði gegn Dönum, 0:0. Ólafur kom inná sem varamaður fyrir Birki Kristinsson í leik gegn Banda- ríkjunum 1993,1:1. Ölafur lék í byrjunarliðinu í leik gegn Slóvakíu í Trnava, 1:3, 1997. Sama ár kom hann inná sem varamaður fyrir Kristján Finnbogason í leik gegn Noregi, 0:1, og aftur fyrir Kristján gegn Færeyjum, 1:0. Ólafur lék í byrjunarliðinu gegn Rúmeníu í Búkarest 1997, 0:4 og síðasti leikur hans var sama ár í byijunarliðinu í sigurleik gegn Liechtenstein, 4:0. Þórður og Helgi komu síðastir FJÓRIR leikmenn landsliðsins, sem taka þátt í landsleiknum gegn Tékkum í Teplice, héldu með landsliðshópnum frá Islandi. Ólafur Örn Bjarnason, Grínda- vík, Sigurður Örn Jónsson, KR, Birkir Kristinsson, ÍBV og Eyjólfur Sverrisson, Herthu Berlín, sem brá sér í helgarfrí til íslands. í London bættust Ólafur Gott- skálksson, Bradford, Rúnar Kristinsson, Lilleström, Ríkharður Daðason, Víking, Hermann Hreiðarsson, Ipswich, Auðun Helgason, Víking, Tryggvi Guðmunds- son, Tromsö, Pétur Hafliði Marteinsson, Stabæk, Heiðar Helguson, Watford og Eiður Smári Guðjohnsen í hópinn. Amar Grétarsson og Arnar Viðai' Halldórsson komu til Pi'ag frá Amster- dam, en þeir leika með Lokeren í Belgíu. Helgi Sigurðsson, Panathinaikos í Grikklandi, kom til Prag frá Aþenu í gærkvöldi og síðastir komu Helgi Kol- viðsson, leikmaður með Ulm í Þýska- landi og Þórður Guðjónsson, sem kom frá Kanaríeyjum, þar sem hann leikur með Las Palmas. íslenska ungmennalandsliðið, skipað leikmönnum undir 21 árs, flaug frá Keflavík til Amsterdam og þaðan til Prag. Það var fýrr á ferðinni en leikmenn a-landsliðsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.