Morgunblaðið - 05.10.2000, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 05.10.2000, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2000 C 3 ÍÞRÓTTIR Morgunblaðið/Kristinn spyrnu, og Ólafur Gottskálksson markvörður ræðast hér við í stigagangi hótelsins í Prag í gærkvöldi. íeiðsla Árna Gauts Arasonar og kemur hann til með að verða varamarkvörður í leiknum gegn Tékkum á laugardaginn. Birkir er númer eitt ATLI Eðvaldsson tók Árna Gaut Arason, hinn unga markvörð Ros- enborgar, inn í landsliðið í staðinn fyrir hinn reynda markvörð, Birki Kristinsson, á dögunum. Atli sagði þá að Birkir myndi hafa það hlutverk að veita Árna Gaut stuðning. Nú er Árni Gautur meiddur og getur ekki leikið með gegn Tékkum og Norður-írum á Laugardalsveliinum á miðvikudaginn kemur. Atli hefur kallað á Ólaf Gottskálksson, markvörð hjá Brentford, sem hefur staðið sig vel að undanförnu. Verður hann aðalmarkvörðurinn á móti Tékkum og kemur Birkir til að veita honum stuðning? Hvað segir Atli um það? „Þegar Árni Gautur er ekki í hópnum er Birkir markvörður númer eitt. Eg treysti honum fullkomlega. Þeg- ar ég ræddi við Birki er ég tók ákvörðun um að láta Arna Gaut verja markið bað ég um fullt traust hjá Birki og sagði að við þyrftum á honum að halda í þeim verkefnum sem framundan væru, til að bakka Arna Gaut upp. Birkir var sammála mér, tók ákvörðun minni karlmann- lega. Ai-ni Gautur er markvörður ís- lands númer eitt, Birkir kemur þar á eftir og nú er Olafur kominn í það hlutverk að styðja við bakið á Birki. Við eigum sem betur fer marga efni- lega markverði heima, sem banka einnig á dyrnar í landsliðshópnum," sagði Atli. Birkir verður þá í markinu gegn Tékkum? „Já, Birkh’ er markvörður okkar númer eitt þessa dagana. Staða markvaða er alltaf einstök í leik- mannahópi. Tony Schumacher, fyrr- verandi landsliðsmarkvörður Þýskalands, sagði við mig á dögun- um í Þýskalandi, þegar markverðir komu til umræðu: „Makverðir eru sérdæmi í liðsheildinni. Þú getur látið útileikmennina leika hinar og þessar stöður á vellinum en það get- urðu ekki gert með markverði - þeirra staða er aðeins ein; að standa á milli stanganna. Markverðir eiga að njóta mikils trausts - einn verður alltaf númer eitt eða þar til annað kemur í ljós. Þegar sá markvörður sem var númer eitt missir stöðu sína er það skylda hans að veita þeim markverði traust sem valinn er. Þetta er röðin sem ég vil láta fylgja,“ sagði Atli. Hér vil ég vera Ólafur Gottskálksson sagðist vera ánægður með að vera kominn í landsliðshópinn aftur. „Ég er búinn að bíða eftir þessu tækifæri síðan ég datt út úr hópnum fyrir tveimur árum á Krít. Það er gaman að hitta strákana á ný - hér vil ég vera,“ sagði Ólafur, þegar hann hitti sína gömlu félaga í gær. Ólafur hefur leikið vel með Brent- ford að undanförnu og segist vera í mjög góðri æfingu. „Það er draumur allra knattspyrnumanna að vera í landsliðshópi Islands og takast á við skemmtileg verkefni." Enda- sleppt einvígi EINVÍGI efstu liða í 1. deild kvenna, þegar Haukar sóttu Fram heim í Safamýrina, varð heldur endasleppt því Hafnfirðingarnir héldu sínu striki allan leikinn og nýttu sér alla slaka kafla Safamýrarliðsins í 30:21 sigri. Annað var því upp á teningnum en í opna Reykjavíkurmótinu fyrir rúmum þremur vikum þegar Fram sigraði Hauka. Þá spilaði Hafdís Guðjónsdóttir með Fram en er nú meidd og óvist um framhaldið hjá henni. Gestirnir úr Hafnarfirði lögðu strax áherslu á að taka Marinu Zovevu, helstu skyttu Fram, fóstum ^^____ tökum. Það gekk upp Stefán 1 byrjun og begar hik Stefánsson kom f sóknarleik skrifar Fram nýttu Hauka- stúlkur sér það um leið og náðu 2:7 forystu, meðal annars vegna góðrar frammistöðu Jennýjar Ásmundsdóttur í markinu. Þjálfari Fram tók þá leikhlé og stúlkumar hans náðu að halda í horfinu fram eft- ir fyrri hálfleik en í lokin tók Harpa Melsteð, fyrh’liði Hauka, til sinna ráða og skoraði ört svo að 8 mörk skildu liðin að í leikhléi, 11:19. Eftir hlé virtist sóknai’leikur Fram að mestu snúast um að láta Marinu skjóta eða brjótast í gegn enda skor- aði hún 7 af fyrstu 8 mörkum Fram þrátt fyrir að Sandra Anulyte, vam- arjaxl Hauka, bókstaflega hengi oft- ast á henni. Framstúlkur reyndu um tíma að taka tvo leikmenn Hauka úr umferð en það einungis gaf öðmm leikmönnum færi á að skora enda vantar hvorki reynslu né breidd í Haukaliðið. Munurinn varð mestur 11 mörk, 17:28 en í lokin náði Fram að klóra í bakkann. „Við spiluðum illa, náðum ekki takti í vöminni og þegar við svo unn- um boltann og keyrðum upp völlinn misstum við boltann á leiðinni," sagði Gústaf Bjömsson, þjálfari Fram, eftir leikinn. „Við gerðum Haukum mjög auðvelt fyrir því ef við spilum ekki vel er viðbúið að við töpum, sérstaklega er ekki hægt að leyfa sér það við lið eins og Hauka en gæti sloppið gegn slakari liðum.“ Hugrún Þorsteins- dóttir, fyrirliði og markvörður Fram, var mjög atkvæðamikil og varði 15 skot, þar af vítaskot og þrjú hraða- upphlaup en Marina var einnig góð. Hjá Haukum voru Harpa fyrirliði og Jenný markvörður í miklum ham til að byrja með auk þess, sem Tinna Halldórsdóttir sýndi góð tilþrif. Brynja Steinsen kom síðan inn á og var góð. „Stöðvar okkur fátt“ Eyjastúlkur tóku á móti FH í 3. umferð íslandsmótsins í gær- kvöldi. „Við rifum okkur upp eftir að hafa verið undir nán- SkantiÖm 381 allan leikinn og Ólafsson uppskámm góðan skrifar sigur,“ sagði Ingi- björg Yr Jóhanns- dóttir, leikmaður ÍBV, sem átti stór- leik íyrir sitt lið er það vann FH 23:21. Gestirnir höfðu undirtökin í upp- hafi, spiluðu vel í vöm og oftar en ekki refsuðu þær Eyjastelpum með því að skora úr hraðaupphlaupum. Að sama skapi vora Eyjastúlkur í einhverjum vandræðum í vöm og sókn og gerðu sig sekar um byijendamistök í sínum aðgerðum. FH-stúlkur spiluðu góðan handbolta í fyrri hálfleik, vora hug- myndaríkai’ í sókninni og lásu leikinn vel. Þrátt fyrir að FH-stúlkur hafi haft undirtökin vora Eyjastúlkur aldrei langt undan, staðan í hálfleikn- um, 9:11 FHívil. Ræða Sigbjöms Óskarssonar, þjálfara ÍBV, hefur greinilega hleypt nýju blóði í sóknaraðgerðir Eyja- stúlkna því þær komu mjög ákveðnar til leiks og söxuðu á forskot FH- stúlkna. Þegar 10 mínútur vora liðnar af síðari hálfleik höfðu þær jafnað og komust yfir þegar hálíleikurinn var hálfnaður. Á þessum kafla varði Vig- dís Sigurðardóttir vel í marki ÍBV og Eyjastúlkur nýttu færin sín mjög vel. Ingibjörg Ýr átti stórleik á þessum kafla og skorði grimmt fyrir Eyja- stúlkur. Mátti halda að FH-stúlkur væra hættar og sættu sig við tap, fyr- ir utan Judit Esztergal sem hafði ekki ’ játað sig sigraða. Hún kom grimm inn í sóknina hjá FH og skoraði meðal annars þrjú mörk á lokakaflanum. En það var ekki nóg því Eyjastúlkur vora sterkari og uppskára sigur 23:21. Þrátt fyrir tapið spiluðu FH-stúlk- ur skemmtilegan handbolta á köflum þar sem frammistaða Dagnýjar Skúladóttur og Kristínar Guðjóns- dóttui- í markinu stóð upp úr. Einnig kom Judit Esztergal sterk inn í sókn FH-stúlkna undir lok leiksins. Hjá ÍBV var Ingibjörg Ýr Jóhannsdóttir . best ásamt Vigdísi Sigurðardóttur markverði. Ingibjörg Yr skoraði 9 mörk í leiknum og mörg hver virki- legaglæsileg. Fyrirliði FH-stúlkna, Björk Ægis- dóttir, hafði þetta að segja eftir tapið: „Við byijuðum leikinn vel en misstum niður dampinn í síðari hálfleik. Það má kannski segja að það hafi vantað baráttu í okkur til að halda leikinn út en við klúðraðum of miklu bæði í vöm og sókn. En það þýðir ekkert að hengja haus heldur bara hugsa um næsta leik þar sem við ætlum okkur sigur,“ sagði Björg. Stórskyttan Ingibjörg Ýr Jóhanns- dóttir, IBV, var hress í lok leiks; „Fyrstu tveir leikimir á ís- landsmótinu vora svolítið erfiðir en þetta small saman í kvöld. Við eram með mikið breytt lið og það þarf smá- tíma til að pússa þetta saman en þeg- ar við eram komnar á skrið stöðvar okkur fátt,“ sagði IngibjörgÝr. Maestro ÞITT FÉ HVAR SEM ÞÚ ERT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.