Morgunblaðið - 06.10.2000, Síða 2

Morgunblaðið - 06.10.2000, Síða 2
2 C FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ BÍÓBLAÐIÐ Pálsson í klípu - en stoltur Thomas Vinterberg leikstýrði Festen og sló ígegn á heims- mælikvarða fyrir þremur árum. Síðan hefurhann unnið handrit að nýrrri mynd sem á að heita „It’s All About Love“, tekin upp á ensku. Hann hafði fengið þær upplýsingar í vor hjá dönsku kvikmyndastofnuninni að það- an mundi hann fá um 10 millj- ónir dkr. til framleiðslunnar. En allt í einu gerðist dáiítið skrítið. Tferfékk gullpálmaí Cannes, heimurinn tal- aði um danska kvik- myndagerð sem eitt- hvað sérstakt og opinberir aöilar í Danmörku töluöu um að nú þyrfti að hamra járnið meðan það væri heitt. Stjórnvöld munu bæta 150 millj. dkr. í kvik- myndasjóöinn ð þremurárum og byrja með 50 millj. dkr. á þessu ári. Nú skyidu smíðað- ar myndir á heimsmæli- kvarða. Eða hvaö? Allt í einu kom tilkynning frá kvikmyndastofnuninni til Vinterbergs um að stofnunin gæti aðeins styrkt enskumæl- andi myndir með 3 millj. dkr. Allt í einu var nauösynlegt að binda fullar styrkveitingar við danskt talmál og takmarka styrk til mynda á öðru tungumáli - þrátt fyrir alla þá athygli sem myndir danskra leikstjóra vöktu á al- þjóöamarkaði. Ofan á þetta bættist athugasemd frá aöstoð- armanni í stofnuninni á fundi meö framleiðanda Vinterbergs: „En getur Thomas gert mynd á ensku?“ „It’s All About Love“ varð að „It’sAII About Money”, Thomas taldi sig, mjög eðlilega, illa svik- inn, neitaði að taka á móti þess- um 3 millj. dkr. og hótaði að flytja úr landi og gera myndir annars staðar en fyrir þá hótun var hann strax stimplaður hjá nokkrum fjölmiölum sem ofdekr- aður snillingur sem snýr baki við fööurlandinu í fyrsta mótvindi. Þetta var snemmsumars og síðan féll á smá ró en nú er mál Vinterbergs aftur komið í sviðs- Ijósiö. Nú er skorað á dönsku kvikmyndastofnunina að koma með skýr svör um stefnu og framtíöarsýn. Thomas hefur á hinn bóginn fengið stuðning við verkefni sitt frá kvikmyndastofn- ununum í Noregi og Svíþjóð þar sem hann segir að menn grípi um magann af hlátri yfir ásta- ndinu í Danaveldi. „RobertDuv- atíeraö leita að leikstjóra, hann erhrifinn af myndinni þinni.” Eft- ir Festen hefur Thomas fengið mörgtilboð um aö leikstýra, m.a. frá Hollywood. „Það eru til tvær leiöirtil að vinna, annað- hvort sem listamaðureöa mála- liði”, segir Thomas „Stjarnan getur ákveöið hvort ég held vinn- unni eða er rekinn. Þá vil ég heldur í allri minni angist og auð- mýkt reyna að taka sjálfan mig alvarlega sem listamann. Ég fann til ákveöins stolts þegar ég valdi mína eigin mynd fram yfir Hollywood. Mérfannstégtaka mestu áhættuna þannig og þaö er í rauninni aöalreglan mín - að taka sem mesta áhættu”. Vinterberg: Listamaður eða málaliði? Reuters Jon Voight: Croft lávarður. Pabbi kemur til hjálpar Stórmyndin Tomb Raider, sem að hlutatil vartekin hérlendis síö- sumars, er enn í tökum í myndveri í Bretlandi. Óskarsverðlaunahafinn Angelina Jolie (Girl Interrupted) fer með aöalhlutverkið, Lara Croft, vin- sælustu kvenhetju í tölvuleik fyrr og síöar. Nú hefurfaðir hennar, Jon Voight, sem einnig er Óskars- verölaunahafi fyrir ComingHome, gengið til liös við leikhópinn í Tomb Raider. Hann fer með hlutverk Croft lávarðar, landkönnuðar og ævin- týramanns. Tomb Raiderveröurvænt- anlega frumsýnd næsta sumar. Tyler: Leikurhjá Zwart. Norðmenn i vesturvíking Norski leikstjórinn Harald Zwart hefurtekið að sér að leikstýra mynd- inni Wolff AndBirdfyrirUniversal- fyrirtækið í Bandaríkjunum. Myndin er ævintýramynd í svipuðum dúr og Ghostbusters og Men In Black, byggð á teiknimyndasögu um titilpersónurn- artvær, lögfræðinga sem hafa glímu við skrímsli, púka, drauga, varúlfa og þess háttar kykvendi að sérgrein. Zwart hefur áður leikstýrt vestra; síð- asta mynd hans var One Night at McCools, svört kómedía með Liv Tyl- er, Matt Dillon, John Goodman og Michael Douglas og verður hún frumsýnd nú í haust. Þá hefur norski lei kstjórinn Erik Skjoldbjærg Iei kstýrt Prozac Nation, sem byggð er á sjálfs- ævisögulegri skáldsögu Elisabeth Wurzel. I aðalhlutverkum eru Jessica Lange og Christina Ricci. McNally og Bruckheimer snúa aftur Þeir David McNally leikstjóri og stórsmellaframleiöandinn Jerry Bruckheimerstóðu að gerð sumar- myndarinnar Coyote Ugly, sem enn er sýnd hérlendis. Þeir hafa nú ákveðið að taka næst til við gerð grínagtugrar hasarmyndar, Down And Underog mun AnthonyAnderson (Me, Myself and Irene) fara með aöalhlutverkiö ásamt Jerry O’Connell. Þeir leika æskuvini, tónlistarmann og hár- greiöslumann, sem lenda í slagtogi með mafíósum og í háskalegu klandri. Handritið, sem var skrifað af Scott Rosenberg og Steve Bing, er nú í höndum gamalreyndra „hand- ritslækna”, Lowell Ganz og Babaloo Mandel. McTeer á þjóð- lagaslóðum Sú góða breska leikkona Janet McTeer, sem ein- att prýðir breska framhaldsþætti í sjónvarpinu, er smám saman að geta sér gott orð í bandarískum kvik- myndum og hefur verið útnefnd til Óskarsverðlauna. Nú leikur hún í nýrri mynd Maggie Greenwald, Songcatcher, þar sem hún fer með hlutverk tónlistarfræö- ings í leiöangri í Appalachiafjöllum um aldamótin 1900 og verður ást- fangin af harðskeyttum fjallabúa (Aidan Quinn) ekki síöur en tónlist- inni á svæöinu. Og meira um þjóðlagahetjur Heimildamynd um bandarísku þjóðlagahetjuna Ramblin’ Jack Elli- ott hefur vakið athygli og hlotió verð- laun vestra. Hún heitir The Ballad Of Ramblin ’ Jack og er eftir dóttur hans, Aiyana Elliott. Meðal þeirra sem fram koma í myndinni eru fleiri þjóðlagahetjur, Arlo Guthrie, Pete Seeger og Kris Kristofferson. McTeer: Ævin- týri í fjöllunum. Tungur Eftir flma Þórarinsson TÉKKNESK verksmiðjustúlka, innflytjandi í Bandaríkjunum, reynirað safna sparifé til að kosta læknisaögerð fyrir ungan son sinn, sem er haldinn sama augnsjúkdómi og hún. Eymd og myrkur hversdagsins flýrhún inn íheim dans- ogsöngvamynda. Sparifénu erstolið og stúlkan drepur þjófinn. Sjálferhún síðan dæmd til dauða og tekin aflífi. Hvernig hljómar þetta? Eins ogdjúpurmannlegurharmleikur? Eins og gamaldags melódrama? Eins og lummuleg og heimskuteg sápuópera? Eða eins og söguþráðurinn í Myrkradansaranum - Dancer In the Dark eftirLars von Tríer? Efþetta hljómareins ogsöguþráðurinn íMyrkradansaranum erþað vegna þess að þetta er söguþráðurinn í Myrkradansaranum. Hann er ekki miklu ftóknari en þetta. Samt er myndin eins og allt hitt sem áður var upp tatið; sumum finnst hún vera eitt, öðrum annað, en í rauninni er hún allt þetta í senn ogjafnvel meira til. Kvikmyndir þessa furðulega Dana hafa ævinlega kallað fram skiþtar skoðanir, sundruð viðbrögð.jafn margarformælingarog formælendur. Ég náði litlu sambandi við fyrstu myndir hans, hina blýþungu Tarkofskí- stælingu The Element ofCrime og tilgerðarnámuna Europa. Sjón- varpsþættirnir Lansinn voru í mínum huga mestanþart bull, fyrst nokkuð skemmtilegt bull en þegar á leið þreytandi bull. Frá upphafi mátti Ijóst vera að leikstjórinn býryfir óvenjusterku valdi á myndmáli; hann kann að ná tökum á áhorfanda með miðlinum. Við- fangsefni hans eru jafnan forvitnileg. En það er efnismeðferðin sem í grunninn erfráhrindandi. Þessi þversögn íverkum Tríers varð enn skýr- ari íseinni myndum hans, Brimbroti - Breaking the Waves - og Fávitun- um - Idioterne. Sagan af kynferðislegu ogandtegu píslarvætti aðaipers- ónunnar í Brimbroti var nístandi áhrifamikil í túlkun Emily Watson en stílbrögð höfundarins drógu athygli frá henni og að honum sjálfum. í þessari mynd fór Tríer að nota tökuvél eins og barþjónn hristir hanastéi; veltingurinn í vélinni fældi áhorfandann frá myndefninu í stað þess að leiða hann að því og inn íþað. Fávitarnir sluppu betur frá þessari aðferð, eða hentuðu henni betur, vegna þess að myndin þykist vera hrá heim- ildamynd og fjaiiar um þá blekkingu öðrum þræði. Meginvandinn við verk Lars von Tríers fetst í afstöðu hans sem höf- undartil viðfangsefna sinna. Hún einkennist af sérkennilegum tvískinn- ungi. Hann byggir upp innviði áhrifamikillar frásagnar og fer langleiðina með að gera úr henni alvöru. En þegar til kastanna kemur segir höfund- urinn við áhorfandann: Allt íplati. Hí á þig. Þessi tvöfaida blekking höf- undarins sló falskan tón í bæði Brimbrot og Fávitana. Það er eins og honum þyki ekki nógu vænt um persónur sínar og þar af leiðandi áhorf- endur. Myrkradansarinn hangir á dramatískum bláþræöi, aukapersónur eru óljósar, til dæmis þærsem Catheríne Deneuve og David Morse leika þó með ágætum, framvindan oft ótrúverðug, til dæmis málatilbúnaöurinn kringum stuld sparifjárins, innbyrðis tengsl persónanna veik, ekki síst lykilsamband móður og sonar, og Ijótleiki myndatökunnar utan söng- og dansatriða truflar áhorfanda þannig aö hann hefurmeiri þörf fyrirpoka fullan af sjóveikitöflum en poppkorni. Hvers vegna erþá myndin jafn mögnuð upplifun og hún er? Vegna þess að Björk Guðmundsdóttur þykir ekki aðeins vænt um persónu sína; hún elskarhana aföllum lífs- ogsálarkröftum. Myrkra- dansarinn ertilmarks um sigureinlægninnaryfirtvískinnungnum, kald- hæðninni og mannfyririitningunni. Og vel á minnst: Fjaiiarmyndin kannski einmitt um það? Dagana 16. og 19. nóvember næstkomandi veröa þrjár klassískar þöglar kvikmyndir sýndarvið lifandi undirleikí aðalsal Háskólabíós. Páll Kristinn Pálsson spjallaði við Oddnýju Sen sem hefur umsjón með sýningunum. Þöglarrnyndir- ö lifarrai torilist „JÁ, allar götur síðan aldarafmæli kvikmyndanna var fagnað árið 1995 hafa Kvikmyndasjóður og Kvik- myndasafn íslands staðið fyrir sér- stökum hátíðarviðburðum þar sem þöglar perlur kvikmyndasögunnar eru sýndar við lifandi undirleik," seg- ir Oddný Sen en hún er frumkvöðull að þessu fyrirkomulagi. „Forsagan er sú að á námsárum mínum í París var oft farið að sjá klassískar kvik- myndir við undirleik sinfóníuhljóm- sveitar. Mér fannst það svo tilkom- umikið og þegar ég sá myndina Intolerance eftir D.W. Griffiths langaði mig að gera þetta á íslandi. Tækifærið kom svo á aldarafmælinu og þá var þýska meistarastykkið Metropolis eftir Fritz Lang sýnt við undirleik tveggja píanóa og það voru dempuð kertaljós í salnum líkt og á frumsýningunni frægu í Berlín árið 1928. Síðan hafa myndir Charles Clmplins verið sýndir við undirleik Sinfóníuhljómsveitar Islands, enda verk hans aðgengileg og höfða til flestra. I fyrra voru það myndimar Borgíirijós, Drengurínn og Iðjuleys- ingjarnir og gerðu alveg hreint stormandi lukku hjá áhorfendum." I nóvember verða sýndar þrjár stuttmyndir eftir Chaplin, Harold Lloyd og Buster Keaton og sem oft- ast áður annast Sinfóníuhljómsveit Islands undirleikinn. „Þessar mynd- ir eru sérlega vel fallnar til sýninga við lifandi undirleik, ekki síst þar sem í þeim eru afar sterk og óvenju- leg atriði. Mynd Chaplins verður Innflytjandinn frá 1917, mynd Bust- ers Keatons verður Löggurnar frá 1922, en í henni sjá- um við meðal ann- ars þúsund tryllta lögregluþjóna elta kappann um götur New York-borgar. Mynd Harolds Lloyds heitir Að duga eða drepast og er frá árinu 1920. Harold var, eins og flestum er kunnugt, frægur fyrir líkamsfimi sína og dirfsku og er mönnum ef til vill minnisstæðast at- riðið þar sem hann hangir í vísum gríðarstórrar klukku utan á skýja- kljúfi. Á þeim tíma var klippitæknin frumstæð og tæknibrellur lítt þróað- ar svo atríðin á skýjakljúfnum og klukkunni voru raunveruleg áhættu- atriði," segir Oddný Sen, sem er þeg- ar farin að leggja drög að sýningum næstu ára. „Mig langar að setja upp Harold Lloyd: Alvöru áhættuleikur. aftur Metropolis með tveimur píanó- um í Bæjarbíói í Hafnarfirði, og ofar- lega á óskalistanum er Beitiskipið Pótemkin eftir Eisenstein, sem er mjög erfitt en alveg rosalegt flott með hljómsveit. Það eru til mörg meistarastykki sem hæfa vel þessu formi, til dæmis frá þýsku gullöld- inni, tímabili expressjónistanna, og svo eru líka til mjög falleg japönsk verk. “ Styrktaraðilar sýninganna eru menntamálaráðuneytið, bandaríska sendiráðið, OZ hf. og íslandsbanki. Oddný Sen er rithöfundur og kvikmynda- fræðingur. Hún hefurm.a. sent frá sér ævisögur Myriam Bat- Yosef (Á flugskörpum vængjum) og ömmu sinnar Oddnýjar Er- lendsdóttur Sen (Kínverskir skuggar), og er að ganga frá ævi- sögu Rögnu Backmann, sem vann í mörg ár í spilavítum i Af- ríku og var seld mansali til Ítalíu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.