Morgunblaðið - 10.10.2000, Qupperneq 1
0»
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
2000
■ ÞRIÐJUDAGUR10. OKTOBER
BLAÐ
Amór
ráðinn til
Sljömunnar
ARNÓR Guðjohnsen var (gærkvöld ráðinn þjálfari 1. deildarliðs
Stjörnunnar í knattspyrnu og skrifaði hann undir tveggja ára
samning við Garðabæjarfélagið. Stjarnan féll naumlega úr efstu
deild í haust en Arnór lék með Valsmönnum sem unnu sig upp úr
1. deildinni.
Eftir
Víði
Sigurðsson
Amór er 39 ára og er orðirm reynd-
asti knattspymumaður íslands
fyrr og síðar en hann spilaði í sumar
sinn 500. deildarleik á
ferlinum. Hann var
atvinnumaður í Belg-
íu, Frakklandi og Sví-
þjóð í 20 ár og spilaði
73 landsleiki fyrir íslands hönd. Deild-
arleikjum Amórs mun væntanlega
fjölga enn á næsta ári því hann sagði
við Morgunblaðið í gærkvöld að hann
myndi án efa spila með lærisveinum
sínum í Stjömunni.
„Já, ég reikna fastlega með því að
spila sjálfur. Vissulega fylgja því alltaf
örðugleikar en með því að fá góðan að-
stoðarmann með mér ætti það ekki
vera teljandi vandamál. Pað er mikil
áskorun fyrir mig að taka við Stjömu-
liðinu, ég hef alltaf ætlað mér í þjálfun
og núna fæ ég kærkomið tækifæri.
Það er metnaður í þessu félagi og þar
er mikið af ungum og frískum strákum
sem hafa fengið talsverða reynslu und-
anfarin tvö ár. Þeir tóku aðeins of seint
við sér í sumar til að halda sér í deild-
inni en stefnan er að sjálfsögðu sú að
fara aftur upp með liðið,“ sagði Amór.
Hann tekur strax til starfa og sagð-
ist ætla að nota tímann vel til að kynn-
ast leikmönnunum og félaginu. „Eg
þekki ekki mikið til þeirra enn sem
komið er og það eru ýmsir óvissuþætt-
ir enn til staðar í leikmannamálunum.
Við munum setjast niður á næstu dög-
um og reyna að ganga frá þeim. Eg
kynntist vel þeim slag sem fram undan
er í 1. deildinni með því að leika með
Valsmönnum þai' í sumar. Deildin
verður mjög erfið og Stjaman á mikla
baráttu fyrir höndum. Ekki síst vegna
þess að í deildinni verða óvenju margir
erfiðir útivellir því sex liðanna koma af
Norðurlandi," sagði Amór.
Stjaman verður væntanlega áfram
með flesta þá leikmenn sem léku með
liðinu í sumar. Þó er ólíklegt að Vladi-
mir Sandulovie komi aftm- og Veigar
Páll Gunnarsson hefur verið undir
smásjá erlendra liða auk þess sem KR-
ingar hafa sýnt honum mikinn áhuga.
Brynjar í stað Péturs
Pétur Marteinsson dró sig í gær út
úr landsliðshópnum í knattspymu
vegna meiðsla og verður ekki með
gegn Norður-írum annað kvöld.
Hann fór af velli í hálfleik gegn
Tékkum, meiddur á ökkla. Brynjar
Bjöm Gunnarsson kemur inn í
hópinn í hans stað en hann var í
banni gegn Tékkum. Tvísýnt er
um Ríkharð Daðason, sem meidd-
ist á læri í Tékklandi, en í dag skýr-
ist hvort hann getur spiiað. Rúnar
Kristinsson var tæpur en æfði á
fullu í gær og er búinn að ná sér.
Morgunblaðið/Kristinn
Sáu þeir fyrir úrslitin? Á töflunni við völlinn, sem landsliðið
æfði á fyrir leikinn gegn Tékkum, stóð 4:0. Þannig fór leikur-
inn. Hér eru þeir Arnar Grétarsson og Þórður Guðjónsson á æf-
ingu með markatöluna í baksýn.
Guðlaug til Kaupmannahafnar
GUÐLAUG Jónsdóttir, knatt-
spyrnukona, mun ekki Ieika
með liði sínu, KR, hér heima
næsta sumar. í samtali við
Morgunblaðið í gær sagði Guð-
laug að hún stefndi að því að
flytja búferlum til Kaupmanna-
hafnar og leika með þarlendu
liði.
„Ég hef verið í sambandi við
nokkur lið í Kaupmannahöfn
og hef fengið leyfi til þess að
mæta þar á æfingar. Eftir þann
tíma geri ég upp við mig til
hvaða liðs ég fer,“ sagði Guð-
laug. Liðin sem hér um ræðir
eru HEI, Brendby og Fredriks-
berg, en en með síðastnefnda
liðinu leikur landsliðskonan
Erla Hendriksdóttir.
Guðlaug er ein þriggja
kvenna sem ætla að opna skó-
verslun á Strikinu í janúar, en
þar verða seldir skór frá ís-
lenska fyrirtækinu X-18. „Við
erum vonandi búnar að finna
húsnæði fyrir verslunina á
GEYSILEG VONBRIGÐI í TÉKKLANDI / B2, B3, B4, B5
K o n u r
Fitness
Öll helstu vörumerkin á einum stað.
B
INTER'
besta stað á Strikinu, en það er
þó ekki alveg komið í höfn. Við
höfum hins vegar ekki sjálfar
útvegað okkur húsnæði til að
búa í en það mun sjálfsagt ráða
miklu um það til hvaða liðs ég
fer,“ sagði Guðlaug Jónsdóttir,
knattspyrnukona og verðandi
verslunarmaður á Strikinu.
Pín frístund - O kkar fag
Bíldshöfða • 110 Reykjavík
• 510 8020 • www.intersport.is