Morgunblaðið - 10.10.2000, Síða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 2000
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
„Vonbrigði..." sagði Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari eftir skellinn íTeplice.
Undirbúningur hafinn fyrir leikinn gegn Norður-írum
Það þarf sálfræði í
leikmannahóp minn
„Ég á aðeins eitt orð yfir leikinn
hér í Teplice - vonbrigði,“ sagði
Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálf-
ari íslands, eftir að Tékkar
höfðu tekið íslenska knatt-
spyrnumenn í kennslustund -
sýnt þeim út á hvað leikurinn
gengur. „Þegar við mættum hér
til leiks vissum við allt um
Tékka. Fyrir leikinn ræddum við
um Jan Koiler, sem hefur skor-
að flest mörk þeirra á undan-
förnum árum og við ræddum um
Pavel Nedvéd, sem er frábær
miðvallarleikmaður, sem hefur
skorað næstflest mörk fyrir
Tékka. Strákar, þetta eru leik-
menn sem við þurfum að
stöðva.
Eftir
SigmundÓ.
Steinarsson
ÉT
Eg get sagt þér að ef ég væri með
ákveðinn peningakvóta og
mætti kaupa einn leikmann þá
myndi ég kaupa
Koller. Hann er ein-
faldlega besti mið-
herjinn í heiminum í
dag. Koller er ótrú-
legur leikmaður. Eg hef aldrei séð
svona stóran mann sem er svona
sterkur og tæknilega fullkominn.
Hann er leikmaður af öðrum heimi.
Eg á erfitt með að trúa að þegar fé-
lög í Evrópu borga milljarða fyrir
leikmenn sé Koller enn leikmaður
með Anderlecht í Belgíu. Það er
ótrúlegt. Það var Koller sem gerði
út um leikinn - hann var strax í byrj-
un farinn að hrella okkur,“ sagði
Atli.
Vorum of ragir
Burtséð frá Koller, þá nær þitt lið
sér aldrei á strik - það vantaði alla
tónlist í liðið og liðsheildin var ekki
til staðar. Hvaðgerist?
„Það er rétt, mínir menn náðu sér
aldrei á strik. Það vantaði alla liðs-
heild. Við unnum ekki nágvígi, við
vorum of ragir. Strax í byrjun vor-
um við komnir í hlutverk aukaleik-
ara sem horfðu upp á mikinn hraða
mótherjanna, sem hreinlega döns-
uðu um völlinn. Meira að segja litlu
tapparnir á miðjunni hjá þeim fóru
upp í alla skallabolta og höfðu betur.
Eg hef sjaldan orðið vitni að slík-
um yfírburðum - að við höfum átt í
geysilegum erfiðleikum strax í byrj-
un leiksins. Það, þrátt fyrir að við
erum með mjög líkamlega sterka
leikmenn.“
Hvers vegna varð þróunin þessi á
leiknum strax íbyrjun?
„Það sem gerist er einfaldlega það
að Tékkar sýndu allar sínar sterku
hliðar strax í leiknum. Við það urðu
mínir leikmenn óöryggir - eru hik-
andi í öllum sínum aðgerðum.
Sóknaraðgerðir urðu máttlausar og
sendingar ekki eins og við vildum
hafa þær. Sjálfstraustið hvarf á
augabragði."
Tékkar byrjuðu leikinn með
glæsilegri sýningu. Þeir sýndu
þannig leikþætti að Ijóst var að mik-
ill styrkleikamunur var á liðunum.
Islensku leikmennirnir stóðu og
horfðu á - með aðdáunaraugum. Er
það ekki óeðlilegt?
„Jú, þetta á ekki áð gerast hjá at-
vinnumönnum. Ef við segjum að
Danir hafi verið að leika einhverjar
listir á Laugardalsvellinum á dögun-
um, hvað voru þá leikmenn Tékka að
gera? Tékkar sýndu mikinn styrk og
þeir voru alltaf að skapa sér tæki-
færi til að skora mörk. Þess vegna er
kannski mest svekkjandi við leikinn
að þeir skoruðu ódýr mörk. Öll fjög-
Morgunblaðið/Kristínn
Atli Eðvaldsson með leikmenn sína í miðbæ Prag á sunnudaginn, áður en haldið var heim á leið. Rúnar Kristinsson, Atli, Sigurður
Örn Jónsson, Ólafur Öm Bjarnason og Ásgeir Sigurvinsson skoða byggingarlist í Prag.
ur mörkin voru ódýr. Þeir skoruðu
eins og við segjum svo oft - drullum-
örk. Fyrsta og annað markið voru
ódýr. Það var langur aðdragandi að
fyrsta markinu. Koller gerði þá vel.
Þó að hann sé að falla til hliðar nær
hann að reka höfuðið í knöttinn, nær
að skalla knöttinn aftur fyrir sig - í
hornið fjær. Seinna markið sem
hann skoraði kom eftir hornspyrnu
- Koller nær að skalla knöttinn,
Birkir er tilbúinn að verja, en knött-
urinn fer í einn leikmann okkar og af
honum upp í þaknetið. Þegar við
vorum búnir að fá þessi tvö ódýru
mörk á okkur var búið að slá okkur
út af laginu. Því miður komumst við
ekki inn í leikinn sem hefði gerst ef
við hefðum náð að skora - ef skallinn
hans Ríkharðs hefði ratað rétta
leið.“
Það má segja að leikþátturinn hafí
verið búinn er Tékkar skoruðu
þriðja mark sitt. I seinni hálfíeik
gáfu þeir eftir, hreinlega hættu.
Hvers vegna gerðist það?
„Það er eðlilegt eftir stórsjó og
allt gengur eftir, þá draga leikmenn
saman seglin - spara sig fyrir næsta
leik, sem er á miðvikudaginn. Við
heyrðum það að áhorfendur voru
ekki ánægðir með það, þeir voru
byrjaðir að flauta á leikmenn Tékka
- sína menn. Ég hefði viljað heyra
þessi flaut fyrr í leiknum, í annarri
stöðu.“
Tékkar byrjuðu leikinn með lát-
um, Birkir Kristinsson var vel með á
nótunum og varði vel strax í byrjun.
Égfékk það á tilfínninguna að ævin-
týri væri jafnvel í uppsiglingu. Svo
var ekki. Hvernig var tilfínning
Atla?
„Ég var ánægður. Ég sagði við
strákana fyrir leikinn að ef við næð-
um að halda Tékkum niðri fyrstu
tuttugu mínúturnar værum við í
góðum málum. Þá væri er mesta
púðrið farið af Tékkum - þá kæmi
órói í leik þeirra. Því miður varð
raunin önnur - þeir skoruðu mark í
byrjun og gerðu síðan út um leikinn
rétt fyrir leikhlé. Eftirleikurinn var
síðan auðveldur fyrir þá. Við vorum
komnir í þá aðstöðu að reyna að
verjast því að tapa stærra."
Náðum aldrei neinu
taki á miðjunni
Það kom fram í leiknum, eins og
við ræddum fyrir leikinn - að það
vantar foringja á miðjuna, til að reka
leikmenn áfram með harðri hendi.
Það náðist ekki að skapa festu á
miðjunni. Hvað segirAtli um það?
„Við erum með leikmann eins og
Rúnar en í leik sem þróast eins og
leikurinn gegn Tékkum gerði nýtist
hann ekki. Það var strax pressa á
okkur og við náðum aldrei tökum á
miðjunni. Við það fór Rúnar aftur,
féll inn í vömina.“
Það voru ekki upplitsdjarfír leik-
menn íslands sem yfirgáfu Teplice.
Verður ekki erfítt fyrir Atla að ná
stemmningu í hópnum fyrir leikinn
gegn Norður-Irum á Laugardals-
vellinum?„Jú, það verður erfitt. Við
hefðum óskað okkur betri stöðu.Við
verðum að gera okkur grein fyrir að
staðan hefði getað verið önnur eftir
tvo leiki. Við höfum leikið gegn
sterkum landsliðum Dana og Tékka.
Ef við gefum okkur til dæmis dæmi
- að við hefðum verið búnir að leika
gegn Möltumönnum í Reykjavík og
fagnað sigri og gert síðan jafntefli
við Búlgari í Sofíu þá væri staðan
önnur. Það er ljóst nú eftir tvö töp
að við verðum að stefna á því að
verða í fjórða eða þriðja sæti riðils-
ins. Sá möguleiki er fyrir hendi. Við
eigum eftir að leika tvo leiki við
Norður-Ira, tvo leiki við Búlgaríu og
Möltu - áður en við mætum Tékkum
næst í Reykjavík, og útileik gegn
Dönum. Það sem við eigum að gera
núna er að horfa ekki um öxl, heldur
fram á við. Við fáum tækifæri til að
bæta okkur. Við eigum að koma okk-
ur í þá stöðu að þegar við mætum
Tékkum í Reykjavík, gerum við upp
ákveðið dæmi og spáum í stöðuna.“
Hvernig verður framhaldið - fyrir
leikinn gegn Norður-Iriandi á Laug-
ardalsvellinum?
„Það er ljóst að það þarf sálfræði í
leikmannahóp minn. Að tapa með
fjórum mörkum er nokkuð sem eng-
inn sættir sig við. Ég er viss um að
þótt við hefðum náð að sýna okkar
besta leik hefðum við ekki náð að
leggja Tékka að velli hér í Teplice.
Það hefði ekki dugað. Tékkar komu
mér geysilega á óvart. Ég vissi að
þeir væri góðir en gerði mér ekki
grein fyrir að þeir væru eins sterkir
og þeir sýndu gegn okkur. Ég vissi
að Koller væri stór (2,02 m), en að
hann væri svona stór, sterkur og
leikinn. Því hefði ég aldrei trúað.
Þessi stóri leikmaður var eins og
dansari á Brodway." L
Áttum ekki möguleika
Þegar þú rennir yfir leikinn íhug-
anumhefur þú einhverja tilfínningu
fyrir að nokkrir leikmanna þinna
séu ekki tilbúnir í svona þýðingar-
mikil átök?
„Ég var ekki ánægður með leikinn
og leikmenn mína. Ég veit að strák-
arnir geta gert miklu betur en þetta.
Það verður mitt hlutverk að ræða
við leikmennina á næstu stundum,
fyrir leikinn gegn Norður-írlandi.
Það getur marg spilað inn í - leik-
menn geta átt í meiðslum, eða verið
að jafna sig eftir meiðsli. Svo eiga
aðrir í persónulegum erfiðleikum
sem hafa komið upp. Það er mjög
mikilvægur þáttur fyrir okkur, sem
höfum ekki úr stórum hópi leik-
manna að velja, að leikmönnunum
líði vel.“
Þú munt ekki senda neinn leik-
manna þinna í skammarkrókinn, eft-
ir leikinn hér í Teplice?
„Nei, ég get aldrei sagt það við
neinn leikmann - að hann hafi ekki
lagt sig fram. Strákarnir lögðu sig
allir fram eins og þeir gátu en það
koma dagar sem ekkert gengur upp,
eins og hér. Það er sama hvað menn
reyndu, þetta var einn af þessum
leiðinlegu dögum þar sem ekkert
gengur upp. Við áttum einfaldlega
ekki möguleika gegn Tékkum. Þeir
sýndu það að þeir eru þess verðugir
að vera næstir á eftir Brasilíumönn-
um á heimsstyrkleikalistanum.
Þeir eru sjálfkjörnir í eitt af fimm
efstu sætunum, eru í hópi með
Brasilíu, Ítalíu, Argentínu, Frakk-
landi og Þýskalandi. Þeir voru það
sterkir að okkar líkamlega sterku
menn virkuðu stundum eins og peð
við hlið á kóngi. Tékkar hafa yfir að
ráða geysilegum hraða, tækni og
hugmyndaflugi. Sjálfsöryggið geisl-
aði af þeim.
Það er sárt að tapa með fjórum
mörkum og það sárasta við það er að
við vissum svo margt um Tékka sem
við áttum að geta komið í veg fyrir
Erfið heimferð frá Prag
EFTIR erfiðan leik í Teplice,
áttu leikmenn íslenska landslið-
sins fyrir höndum erfiða ferð
heim á leið frá Prag á sunnu-
degi. Fljótlega eftir hádegi fór
landsliðshópurinn í fylgd með
Þóri Gunnarssyni, ræðismanni
íslands í Prag, í hádegismat á
veitingastað hans í miðborg-
inni, REYKJAVÍK. Síðan var
haldið út á flugvöllinn í Prag og
flogið til London. Seinkun var á
flugvélinni frá Prag, þannig að
það var strax ljóst að landsliðs-
hópurinn hefði lítinn tíma til að
ganga frá flugfarseðlum frá
London til Keflavíkur. Þetta
varð til þess að ákveðið var að
fresta fluginu til ísiands þar til
landsliðshópurinn væri kominn
um borð. Um tíma leit út fyrir
að allir kæmust ekki með, þar
sem flugvallarstarfsmenn í
London sögðu að vélin væri yf-
irbókuð. Það reyndist ekki rétt
hjá þeim, þannig að allir kom-
ust heim. Hópurinn fór beint
frá Keflavík að Hótel Loftleið-
um, þar sem hann er saman
fram að landsleiknum gegn
Noður-írum á Laugardalsvell-
inum annað kvöld.
Þar sem seinkun var á flug-
inu frá Prag, náðist ekki að
flytja farandur íslenska liðsins
á milli flugvéla í tæka tíð. Far-
angur leikmanna, keppnissskór
og annað, kom í gær til landsins
frá London, klukkan 17.
„Strákarnir eru orðnir
þreyttir og slæptir eftir erfiða
ferð. Þeir fá að sofa út,“ sagði
Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálf-
ari, við komuna til Reykjavík-
ur.