Morgunblaðið - 10.10.2000, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 2000 B 7
ENGLENDINGAR töpuðu 1:0 gegn Þjóðverjum í fyrsta leik sínum í
undankeppni HM á laugardaginn. Dagurinn hófst með grárri
muggu og rigningarsudda sem átti eftir að gefa tóninn fyrir það
sem á eftir kom. Þrátt fyrir það fylktu Englendingar kátir liði á
Wembley í síðasta sinn en rífa á völlinn og byggja nýjan sem
verður tilbúinn árið 2004. Englendingar voru fegnir að fá að byrja
upp á nýtt eftir ófarirnar á Evrópumótinu í sumar en þeir vildu
endurtaka leikinn síðan þá er liðið vann Þjóðverja 1:0- nema
núna átti að gera það á sannfærandi máta.
IrisB.
Eysteinsdóttir
skrifarfrá
Engtandi
Eftir aðeins 13 mínútna leik
slokknaði bjartsýni Englend-
inga. Dietmar Hamann fékk þá
aukaspymu utan
teigs eftir að Paul
Scholes hafði brotið
af sér. Hamann
þrumaði boltanum í
netið af um 25 metra færi á meðan
markvörðurinn, David Seaman, virt-
ist enn vera að stilla upp varnar-
veggnum og var því mjög seinn að
bregðast við. Þjóðverjar voru greini-
lega búnir að gleyma óförum sínum á
Evrópumótinu í sumar og reiðubúnir
að vinna verkið sem fyrir höndum
var. Þjóðverjar voru betra liðið
mestallan leikinn. Liðið hélt boltan-
um vel innan liðsins og lék agaða og
skynsamlega knattspyrnu.
Southgate á miðjunni
Englendingar komust ekki al-
mennilega í gang fyrr en um hálftími
lifði leiks en náðu þá ekki að setja
boltann í netið þrátt fyrir ágætar til-
raunir Davids Beckhams og Tonys
Adams. Kevin Keegan, landsliðs-
þjálfari Englands, tók þá áhættu að
tefla fram varnarjaxlinum Garreth
Southgate í stöðu aftasta miðju-
manns þar sem Steven Gen-ard var
meiddur. Southgate átti að halda
Mehmet Scholl í skefjum en Þjóð-
verjar komu á óvart með því að leika
aðeins með Oliver Bierhoff frammi
og enn einu sinni þurftu Englending-
ar að láta í minni pokann á miðju-
svæðinu.
Bobby Charlton leiddi enska liðið
inn á völlinn í upphafi leiks og í hjört-
um flestra Englendinga lifði sú von
að leikurinn væri upphafið að ára-
ngri svipuðum og liðið náði 1966 þeg-
ar England vann heimsmeistaratitil-
inn á Wembley. Þvert á móti var það
niðurlútur Kevin Keegan sem gekk
af velli í leikslok. Tæpum hálftíma
síðar sagði hann starfi sínu lausu
sem landsliðsþjálfari. Aðstoðarmað-
ur hans, Howard Wilkinson, tók
tímabundið við þjálfun liðsins og
mun stjórna því gegn Finnum annað
kvöld í öðrum leik liðsins í undan-
keppni HM. Keegan sagði Adam
Crozier, einum forystumanni enska
knattspyrnusambansins, að hann
væri hættur nokkrum mínútum eftir
leikslok. Crozier reyndi fyrst að fá
hann ofan af því að hætta og síðan til
að fresta því framyfir leikinn gegn
Finnum en Keegan var ákveðinn í
sinni sök.
Ég hef brugðist
„Mér finnst ég hafa brugðist í
starfinu. Sumt gerði ég mjög vel, en
lykilatriðið var að vinna leiki og mér
tókst það ekki. Úrslit leikjanna sýna
að ég hef brugðist,“ sagði Keegan
eftir leikinn en meðan hann hefur
verið við stjórnvölinn hefur liðið unn-
ið sjö leiki, gert sjö jafntefli og tapað
fjórum.
„Eftir Evrópumótið í sumar var
mörgum þjálfurum sagt upp - sum-
um sem höfðu staðið sig betur en ég
svo mér fannst alltaf lykilatriði að
hefja undankeppni HM vel. Ég tók
áhættu með því að láta Southgate
byrja inni á og sá að það gekk ekki en
ég fann ekki réttu lausnina," sagði
Keegan af ótrúlegri hreinskilni. „Það
var íyrst og fremst áhorfendum að
þakka að ég fékk þetta starf. Núna
fannst mér tími til að hætta. Tíma-
setningin er kannski ekki sú besta en
ég verð að vera hreinskilinn við sjálf-
an mig því ég veit að þetta er rétt
ákvörðun," sagði Keegan.
Áhorfendur sem sungið höfðu alla
leið á Wembley flýttu sér ýmist í
burtu eða biðu um stund og púuðu á
liðið. Strax eftir leikinn fór orðrómur
á kreik um hver tæki við sem þjálfari
enska landsliðsins. Crozier sagði að
peningar skiptu engu máli heldur
væri aðalatriðið að fá rétta manninn í
starfið.
Venabies efstur á listanum
„Þetta er gífurlega mikilvægur
tími fyrir enska landsliðið, sagði
hann. Nokkrir menn hafa nú þegar
verið nefndir og er Terry Venables
efstur á lista hjá veðbönkum í Eng-
landi. Aðrir sem nefndir hafa verið til
sögunnar eru Alex Ferguson, Ars-
ene Wenger, Bryan Robson, Peter
Taylor, Peter Reid og Howard Wilk-
inson. I fyrsta sinn er jafnvel rætt
um að þjálfari enska landsliðsins
verði útlendingur en ljóst er að
knattspyrnusambandið er í nokkrum
vandræðum þar sem nær allir þeir
hæfustu eru samningsbundnir sínum
félögum.
Reuters
Kevin Keegan gengur niðurlútur af leikvelli á Wembley.
Skiptar skoðanir
eru um Keegan
Á FORSÍÐU nánast hvers einasta
dagblaðs í Englandi var ritað um
uppsögn Kevins Keegans og ófar-
irnar á Wembley á laugardag þeg-
ar liðið tapaði 1:0 gegn Þýska-
landi. The Mirror birti starfs-
lýsingu á forsiðu blaðsins.
„Þjálfari með kjark og góða yfir-
sýn, sem getur náð því besta út úr
yfirborguðum stjörnum sem mis-
tekst alltaf er á reynir, óskast."
Blaðið segir launin ekki vanda-
málið og að umsóknir skuli berast
til örvæntingarfulls knattspyrnu-
sambands Englands. Daily
Express setur spurningarmerki
við hvort Keegan hafi verið upp-
gjafarmaður eða heiðarlegur að
hætta. Blaðið segir Keegan með
barnalegar hugmyndir um leik-
fræði og ákvörðunin um að leika
Gareth Southgate á miðjunni hafi
verið afdrifarík.
Daily Star sagði Keegan hafa
hætt því móðir hans dó fyrir tæp-
um tveimur vikum og hann hafi
þar af leiðandi ekki ráðið við þá
pressu sem fylgir því að starfa
sem Iandsliðsþjálfari. Blaðið
gagnrýnir Keegan einnig harð-
lega og segir að hann hafi haft
rétta andann j' starfið, en að það sé
alls ekki nóg því hann hafi ekki
hugmynd um hvað leikfræði sé.
Blaðið segir alls staðar minnst á
heiðarleika hans en spyr hvers
vegna hann hafi þá ekki hætt í lok
Evrópumótsins. Tapið gegn Þjóð-
verjum hafi verið geysileg smán
fyrir England á degi sem átti að
vera hátfðisdagur.
Wembley-martröðin
The Sun segir Keegan hafa skil-
ið þjóðina eftir í ræsinu og kallar
hann óhæfan. Blaðið segir hann
aldrei hafa hlustað á óánægju-
raddir og alltaf hafa ýtt sinni hug-
mynd aftur upp á yfírborðið. Þeg-
ar loks kom tími til að breyta - í
hálfieik gegn Þýskalandi - var
það alltof seint. Daily Mail kallar
atburðinn „Wembley-martröðina"
og stingur upp á Aime Jacquet í
starfíð og segir að frönsku þjálfar-
amir nái mun meiri árangri en
þeir ensku.
MARKIÐ, sem Stefán Þórðarson
skoraði fyrir Stoke City gegn
Charlton í deildarbikarkeppninni
hinn 26. september, var valið eitt
af átta fallegnstu mörkum sept-
ember mánaðar á sjónvarpsstöð-
inni Sky. Stefán fékk boltann
vinstra megin fyrir utan teig þar
sem hann þrumaði að marki og
smellhitti boltann sem söng efst í
marknetinu fjær. Meðal keppina-
uta Stefáns um mark mánaðarins
eru brasilíski varnarmaðurinn
Silvinho, sem leikur með Arsenal,
og Hollendingurinn Jimmy Floyd
Hasselbaink, framherji Chelsea.
Áhorfendur sjónvarpsstöðvarinn-
ar munu velja mark mánaðarins
en úrslit verða gerð kunn í næstu
viku.
Christoph Daum fór í lyfjapróf
CHRISTOPH Daum, núverandi þjálfari
Bayer Leverkusen og væntanlegur þjálfari
þýska landsliðsins í knattspyrnu, sagði við
þýska fjölmiðla á mánudag að niðurstöður
úr læknisrannsókn sem hann fór í að eigin
frumkvæði kæmu eftir fjórar vikur. Að und-
anförnu hefúr Daum verið í sviðsljósinu
vegna ásakana um eiturlyQaneyslu og frek-
ar fjölskrúðugs einkalífs og margir knatt-
spyrnuforkólfar í Þýskalandi hafa gagnrýnt
Daum opinberlega. „Læknar hafa tekið þau
piróf sem nauðsynleg eru til að finna út hvort
ég hafi notað eiturlyf en ég hef hreina sam-
visku og óttast ekki niðurstöður prófanna,“
sagði Daum. Eftir sannfærandi 1:0 sigur á
Englendingum á Wembley vilja áhangendur
þýska landsliðsins að Rudi Völler haldi
áfram að stjórna iandsliðinu en samkvæmt
áætlunum þýska knattspynusambandsins á
Daum að taka við af Völler þegar samningur
Daum við Leverkusen rennur út í júní.