Morgunblaðið - 10.10.2000, Síða 15

Morgunblaðið - 10.10.2000, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 2000 B 15 ÍÞRÓTTIR Ökuþórinn snjalli Michael Schumacher er kominn á loft. Það er Jean Todt, liðsstjóri Ferrari, sem heldur á honum. Schumacher endurgeld- ur Ferrari góða borgun MICHAEL Schumacher endurgalt Ferrari 50 milljón dollara laun sín á ári er hann færði liðinu heimsmeistaratitil ökuþóra í Formúlu 1 eftir 21 árs bið. ítalskir fjölmiðlar hampa honum sem hetju og dag- blöð landsins voru rauð í orðsins fyllstu merkingu í gær en fögnuð- ur þeirra hefur ekki verið meiri frá því ítalir urðu heimsmeistarar í fótbolta 1982. Var þetta áttundi mótssigur Schumachers á árinu, hans 43. á ferlinum og níundi ökuþóratitill sem Ferrari hampar frá 1950. Lauk Schumacher ætlunarverki sem hófst fyrir fimm árum er hann réðst til Ferrari sem launahæsti ökuþór í Formúlu 1 fyrr og síðar. Ágúst Asgeirsson skrifar Og fótboltinn víkur alveg fyrir ljóðrænum lofsöngnum um Perrari. Þannig voru íþróttadag- blöðin Gazzetta dello Sport og Corriere dello Sport undir- lögð undir keppnina í Suzuka í Japan. Sextán fyrstu síðurnar hjá báðum og sögðu þau ekki frá 3-0 sigri ítala á Rúmenum í forkeppni HM í fót- bolta fyrr en á síðu 17. Blaðið II Giorno minnti á að titilinn hefði ver- ið dýru verði keyptur því stjarn- fræðilegum fjárhæðum hefði verið varið á undanförnum árum til þess að ná honum. „Ferrari, milljarða dollara stórsigur" hljómaði aðalfyr- irsögn blaðsins. Og La Stampa minnti á í forsíðugrein að um fjöl- þjóðlegt afrek væri að ræða því lyk- ilmennirnir væru útlendir; Schu- macher þýskur, Todt franskur, Brawn breskur og hollur liðsfélagi Schumachers, Rubens Barrichello, brasilískur. Frækinn sigur Schumachers í Suzuka á sunnudag réðst fyrst og fremst af snjallri herkænsku sem Schumacher segir hafa verið upp- hugsaða af tæknistjóranum Ross Brawn. Leiddi hún til þess að hann náði forystu í akstrinum úr hendi Mika Hákkinens þegar 13 hringir voru eftir af 53. Hakkinen tók betur af stað í ræsingu og vann fyrsta sæt- ið strax af Schumacher. Gat aldrei hrist hann af sér eftir það og bilið minnkaði er úði tók að falla svo brautin varð hál. Er Finninn stopp- aði öðru sinni til að skipta um dekk og taka bensín þegar þriðjungur leiðarinnar var eftir hélt Schu- macher áfram þrjá hringi í viðbót. Slitin dekk hans gripu brautina bet- ur svo hann gat ekið mun hraðar en Hákkinen á gljáandi nýbörðum og náð forskoti sem dugði til þess að hann kom út fyrir framan nefið á keppinautnum úr seinna stoppi sínu. Titill bílsmiða einnig í augsýn hjá Ferrari Kappaksturinn var ekkert annað en einvígi Schumachers og Hákkin- ens frá upphafi en sá fyrrnefndi varð að koma á undan í mark til að eiga möguleika á að vinna ökuþóra- titilinn þriðja árið í röð í lokamótinu eftir tvær vikur. Spennan ríkti alveg til loka, ekki síst er Hákkinen minnkaði bilið mjög aftur á síðustu tveimur hringjum. En með sigrinum var Schumacher kominn með 98 stig á árinu og Hákkinen 86. Þótt eitt mót sé eftir eru úrslitin því ráðin eftir tvísýna baráttu þeirra undan- farna mánuði um heimsmeistaratitil ökuþóra. Ferrari á möguleika í lokamótinu að vinna einnig titil bílsmiða þar sem liðið er með 13 stiga forskot á McLaren. Þar sem 16 stig eru að hámarki enn í pottinum, þ.e. með því að eiga tvo fyrstu bíla í mark, á McLaren enn einhverja von en mið- að við slík úrslit dygði Ferrari að eiga fjórða mann í mark þar. Á bekk með Lauda, Stewart og Senna Heimsmeistaratitillinn er sá þriðji sem Schumacher vinnur en hann varð meistari á Benetton-bíl 1994 og 1995. Hefur hann skipað sér á bekk með Astralanum Jack Brab- ham, Skotanum Jackie Stewart, Austurríkismanninum Niki Lauda og Brasilíumönnunum Nelson Piq- uet og Ayrton Senna sem allir hömpuðu titlinum þrisvar. Einungis Juan Manuel Fangio frá Argentínu og Frakkinn Alain Prost hafa oftar orðið meistarar, Fangio fimm sinnum og Prost fjórum sinn- um. Á æskustöðvum Schumachers í þýska smábænum Kerpen hafa ver- ið lögð drög að því að gera nafn hans ódauðlegt í tilefni titilsins. Ákveðið hefur verið að nefna götu í bænum eftir þessum frægasta syni hans. Um er að ræða götuna að kartbraut bæjarins, sem faðir hans Rolf á, en þar lærði Schumacher fyrstu kapp- aksturstökin ungur að árum. Gottað komast Fyrirliði ÍBV, Vigdís Sigurðar- dóttir, var óhress með leik liðs- ins í síðari viðureign liðanna en engu að síður mjög kát með að liðið væri komið áfram í aðra umferð Evrópu- keppninnar. „Eg veit satt best að segja ekki hvað gerðist í leiknum í dag (síðari viðureign liðanna), við náðum okkur aldrei á strik og þær gengu á lagið. Kannski að við höfum* verið of sigurvissar, því að í gær unn- um við stórt og vorum að spila virki- lega vel,“ sagði Vigdís. Sigbjöm Óskarsson, þjálfari Islandsmeistaranna var ekki nógu ánægður með leik Eyjastúlkna í síð- ari viðureign liðanna; „Við unnum stóran sigur í gær (sagt eftir síðari viðureign liðanna) og það var svolítið erfitt að undirbúa liðið fyrir leikinn í dag því að okkur fannst við hafa átt að vinna stærra í gær, vorum að glopra boltanum allt of oft. Við vor- um á hælunum í þessum leik þar serq þær voru á tánum, svo einfalt er það.“ Hvernig tilGnning er það að leiða ÍBV í fyrsta skiptið í aðra umferð í handbolta? „Það er bara virkilega góð tilfinn- ig. í næstu umferð mætum við liði frá Þýskalandi þannig að það eru skemmtilegir tímar framundan. Eyjastúlkur áfram ÍSLANDSMEISTARAR ÍBV í handbolta kvenna tóku á móti Pirin Blagoevgrad í 1. umferð Evrópukeppni meistaraliða í Eyjum um nýliðna helgi. Venjan er sú að lið leika heima og heiman í Evrópu- keppni en ÍBV hafði keypt réttinn til að leika báða leikina í Eyjum. Fyrri leikur liðanna var á laugardaginn og sá síðari á sunnudag- inn. Skemmst er frá því að segja að Eyjastúlkur komust áfram í aðra umferð Evrópukeppninnar á markatölu, samanlagt 46:43 úr báðum viðureignum. Fyrri leikur. Eyjastúlkur fengu óskabyrjun í fyrri viðureign lið- anna, sem var heimaleikur Pirin Blagoevgrad, því þær ■■■■■■■ náðu að komast í 5:0 Skapti Öm áður en gestimir Ólafsson náðu að komast á blað. Það var ekki fyrr en eftir 8 sóknir og rúmar 8 mín. að leikmenn Pirin Blagoevgrad náðu að skora mark. En eftir að þjálfari Búlgaranna tók leikhlé var eins og smá líf hafi kviknað í sóknarleik þeirra og náðu þær að minnka mun- inn niður í tvö mörk í stöðunni, 10:8. En það voru Eyjastúlkur sem skor- uðu síðustu mörk fyrri hálfleiks og leiddu í leikhlé, 12:8. Það voru Eyjastúlkur sem komu grimmari til leiks í síðari hálfleik með Ingibjörgu Yr Jóhannsdóttur í fararbroddi og var eins og leikurinn köttur og mús væri í gangi því Eyj- astúlkur voru alltaf skrefinu á undan leikmönnum Pirin Blagoevgrad. Leikmenn ÍBV voru fljótir að refsa Búlgörunum fyrir mistök með hraðaupphlaupum og juku forystuna jafnt og þétt út leikinn og unnu góð- an sigur á andlausu liði Pirin Blag- oevgrad, 27:19. Bestar Eyjastúlkna í leiknum voru þær Ingibjörg Ýr Jóhannsdótt- ir, sem var ógnandi í sókninni, og Inga Falkvard Danberg sem skoraði nokkur falleg mörk. Einnig stóð Vig- dís Sigurðardóttir markmaður sig vel. En maður leiksins og jafnframt sá leikmaður sem kom í veg fyrir stærri sigur Eyjastúlkna var markmaður Pirin Blagoevgrad, Adelina Parlova. Parlova var að veija eins og berserk- ur í markinu og sagði lok, lok og læs á tímabili. í síðari viðureign liðanna, sem fram fór á sunnudaginn, var eins og allt önnur lið væru að spila frá degin- um áður. I fyrri leiknum þar sem Eyjastúlkur léku við hvern sinn fing- ur og leikmenn Pirin Blagoevgrad léku illa snerist dæmið gjörsamlega við í síðari leiknum þar sem Búlgar- arnir fóru á kostum. Greinilegt var að þjálfari Pirin Blagoevgrad hafði unnið heimavinnuna sína eftir tapið frá deginum áður og kortlagt leik ÍBV. Um biðbik hálfleiksins klúðr- uðu Eyjastúlkur 8 sóknum í röð á meðan Búlgararnir skoruðu 5 mörk. Skemmst er frá því að segja að Eyja- stúlkur náðu sér aldrei á strik í leikn- um þrátt fyrir að hafa byrjað betur ^ og sigldu leikmenn Pirin Blag- oevgrad fram úr Eyjastúlkum eftir að hafa komist yfir eftir rúmlega 12 mín. leik. Staðan í hálfleik 10:14 Pir- in Blagoevgrad í vil. í síðari hálfleik héldu leikmenn Pirin Blagoevgrad áfram og juku forystuna og sýndu oft og tíðum glæsilega takta. Mestur var munur- inn 12:20 þeim í hag. Til marks um óheppni Eyjastúlkna klúðruðu þær 20 sóknum í síðari hálfleik. En þegar 5 mín. lifðu leiks vöknuðu Eyjastúlk- ur og náðu að laga stöðuna. Lokatöl-. ur í Eyjum 19:24 og ljóst að Eyja- stúlkur eru á leiðinni í fyrsta skiptið í aðra umferð Evrópukeppni meist- araliða þar sem þær mæta Buxtehu- de frá Þýskalandi. í síðari viðureign liðanna stóð markmaður Pirin Blagoevgrad, Adelina Parlova, sig best ásamt skyttunni Ronitza Bovkardieva sem héldu engin bönd. Aftur á móti voru þær Vigdís Sigurðardóttir í markinu og Amela Hegic skástar hjá Eyja- stúlkum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.