Morgunblaðið - 12.10.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.10.2000, Blaðsíða 4
4 C FIMMTUDAGUR12. OKTÓBER 2000 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Bakkavör Group kaupir breska matvælafyrirtækið Wine & Pine Plc. Arsvelta Bakkavör Group 4,5 milljarðar BAKKAVÖR Group hefur keypt breska matvælafyrirtækið Wine & Dine Plc. fyrir 850 milljónir króna og með þessum kaupum verður ársvelta Bakkavör Group um 4,5 milljarðar króna og starfsmenn samstæðunnar um 300 talsins. Gengi bréfa í Bakkavör Group hef- ur farið lækkandi undanfarið, en í kjölfar kaupanna á Wine & Dine hækkaði gengi i bréfanna um 4,9%. Velta Wine & Dine Plc. síðasta rekstrarár 650 milljónir króna, en áætlanir gera ráð fyrir að velta yf- irstandandi árs verði um 850 millj- ónir. Hagnaður af rekstri Wine & Dine Plc. fyrstu sex mánuði yfir- standandi rekstrarárs var um 50 milljónii' króna fyrir skatta og veltufé frá rekstri nam 67 milljón- um króna sem er í fullu samræmi við áætlanir. Eigið fé félagsins nemur 160 milljónum króna og starfsmenn eru 70 talsins. Wine & Dine var stofnað árið 1983 og rekur starfsemi sína í Mercedes-Benz ML 270 CDI Verð frá 4.099.000 ilfclÍjfllWmU lltlÉiÉj Skúlagötu 59, símt 540 5400 www.raesir.is Mercedes-Benz skrífstofuskápar - einfaldlega betrí 5.000 fermetra eigin verksmiðju- húsnæði í Birmingham sem byggt er samkvæmt ströngustu kröfum um hreinlæti og aðbúnað. Félagið hefur fram að þessu ver- ið í eigu einstaklinga og fjárfesta í Birmingham en eftir kaupin mun Bakkavör Group eignast 100% hlutafjár í félaginu. Starfsemi Wine & Dine byggist að mestu leyti á þróun, framleiðslu og sölu ýmiss konar afurða svo sem salatsósa, ídýfa og smuráleggs, t.d. tarama. Bakkavör Island hefur verið birgi Wine & Dine Plc. um 10 ára skeið en félagið hefur keypt þorskhrogn og ýmislegt annað sjávarfang sem hráefni fyrir fram- leiðslu sína. Wine & Dine Plc. hefur verið framarlega á sviði vöruþróunar og hefur á að skipa sérfræðingum ásamt góðri aðstöðu til að mæta sí- fellt meiri kröfum viðskiptavina um nýjar afurðir. Vöxtur félagsins hef- ur verið góður undanfarin ár en velta þess hefur aukist um 20-30% árlega og er þar aðeins um innri vöxt að ræða. Stórmarkaðir helstu viðskiptavinirnir Helstu viðskiptavinir Wine & Dine Plc. eru stórmarkaðir í Bret- landi en sala til þeirra nemur um helmingi veltunnar. Aðrir við- skiptavinir eru heildsalar sem dreifa til veitingastaða og veislu- þjónusta en auk þess era flugfélög og framleiðendur ýmiss konar af- urða stórir viðskiptavinir félagsins. „Tilgangur Bakkavör Group með kaupunum á Wine & Dine er að styrkja þann hluta starfseminnar sem byggist á framantöldum vör- um, en um það bil 30% af veltu Bakkavör Group koma nú þegar frá slíkri framleiðslu. Vörulína Wine & Dine Plc. gefur mikla möguleika á að auka vöruframboð í öðrum félögum Bakkavör Group og nýta þannig betur framleiðslutæki þeirra og dreiflkerfí. Auk þessa hyggst Bakkavör Group ná fram samlegð á öðrum sviðum s.s. í innkaupum, dreifingu kældra vara og vöruþróun. Þessi kaup eru í fullu samræmi við áætl- anir um uppbyggingu félagsins," segir í tilkynningu frá Bakkavör Group. Kaupin á Wine & Dine Plc. eru gerð með þeim fyrirvara að kost- gæfnisathugun, sem nú fer fram, standist. Aformað er að Bakkavör Group taki formlega við rekstri Wine & Dine Plc. 15. nóvember nk. Vodafone búið að selja Infostrada BRESKA fjarskiptafyrirtækið Vodafone hefur nú lokið sölu á dótt- urfyrirtæki sínu Infostrada á Italíu, að því er m.a. kemur fram á frétta- vefBBC. Kaupandinn er stærsta orkufyrir- tæki Ítalíu, Enel, og kaupverð er um 11 milljarðar evra eða um 800 millj- arðar króna. Vodafone mun nota peninganatil að fjármagna tilboð sín í UMTS-farsímaleyfí víða um heim. Vodafone tók Infostrada yfir í kjölfar yfírtöku á þýska félaginu Mannesmann fyrr á þessu ári. Infostrada starfar aðallega á sviði fastlínuQarskipta. Óljóst hefur verið hvert Vodafone ætlaði sér með Infostrada þar til í september að við- ræður hófust við Wind, samstarfsfé- lag France Telecom og Enel. Wind er þriðja stærsta fjarskipUifyrirtæki ítaliu. Búist er við að France Tele- com, sem fyrr á þessu ári keypti farsímafélagið Orange af Vodafone, komi inn í Infostrada-samninginn á síðari stigum. BBC greinir einnig frá því að við- ræður Vodafone og írska fjarskipta- fyrirtækisins Eircom standi nú yfír. Þær snúist um hugsanleg kaup Vodafone á farsímahluta Eircom, Eircell, sem metinn er á 4 milljarða evra eða um 290 milljarða króna. Irski farsímamarkaðurinn er ört vaxandi og sérfræðingar telja hugs- anlega fjárfestingu Vodafone í Eircell skynsamlega. Á írska far- snnamai'kaðnum eru tvö félög stærst, Eircell og Esat Digifone sem er í eigu Telenor og British Telecom. Samstarfssamningur Mekkano og Intershop undirritaður Mekkano frumkvöðlasetur rafrænna viðskipta á Islandi HUGBUNAÐARRISINN Inter- shop og íslenska markaðssamskipta- fyrirtækið Mekkano hafa skrifað undir samstarfssamning sem felur í sér að íslensk fyrirtæki geta nýtt Enfinity-lausn Intershop á mun hag- stæðari kjöram en annars staðar þekkist. Intershop hefur frá árinu 1992 verið leiðandi við hönnun og smíði hugbúnaðarlausna fyrir raf- ræn viðskipti og hefur selt meira en 270 þúsund hugbúnaðarleyfi fyrir vefviðskiptalausnir sínar. Enfinity er öflugur viðskiptamiðl- ari fyrir rafræn viðskipti og í frétta- tilkynningu segir að í samningnum felist viðurkenning á íslandi sem ákjósanlegu tilraunamarkaðssvæði og frumkvöðlamarkaði, en Intershop er einn helsti framleiðandi hugbún- aðarlausna fyrir rafræn viðskipti í heiminum. Mekkano mun á næstunni kynna helstu fyrirtækjum og stofnunum landsins samninginn og leita eftir samstarfi við uppsetningu og rekst- ur miðstöðvar fyrir rafræn viðskipti sem auðveldar millifyrirtækjavið- skipti og býr íslenska markaðinn undir breytingar sem verða á raf- rænum viðskiptum á komandi misseram. Samningurinn felur í sér að Mekk- ano rekur framkvöðlasetur raf- rænna viðskipta á íslandi. Markmið- ið er að fylgjast með nýjungum, veita fyrirtækjum aðgang að þeim og þróa margvíslegar viðskipta- lausnh' í samvinnu við Intershop, en í samningnum er gert ráð fyrir að Mekkano og Intershop vinni allt að 15 vefviðskiptalausnir fyrir lok næsta árs. Samstarfið auðveldar sér- staklega útrás Mekkano á Norður- landamarkað og hefur nú þegar skil- að viðskiptavinum í Svíþjóð og Noregi. Gæðamiðlun, forveri Mekkano, var á síðasta ári eitt tíu fyrstu fyrir- tækja í heiminum til þess að hljóta þjálfun í notkun Enfinity. Það gerð- ist í tengslum við þróun vefviðskipta- lausna fyrir bandarísk-íslenska fyr- irtækið Mobilestop sem á dögunum gerði samstarfssamning við Erics- son um rekstur vefviðskiptalausna fyrirtækisins í Suður-Ameríku. Góð afkoma Norræna fjárfestingarbankans AFKOMA Norræna fjárfestingar- bankans fyrstu átta mánuði ársins var góð að því er fram kemur í frétta- tilkynningu frá bankanum. Hreinar vaxtatekjur námu 103 milljónum evra, en fyrir sama tímabil í fyrra námu hreinar vaxtatekjur 92 milljón- um evra. Efnahagsreikningur bank- ans var 14,5 milljarðar evra í lok tímabilsins samanborið við 13,3 millj- arða evra við síðustu áramót sem er 9% aukning. Lán til iðnaðar eru áfram fyrir- ferðarmest í lánasafni bankans á Norðuriöndum. Aukning hefur orðið í lánum til fjármálastofnana á öllum Norðurlöndum sem endurlána síðan til smárra og meðalstórra fyrirtækja. Jón Sigurðsson, aðalbankastjóri NIB, segir að með þessu móti veiti NIB gagnlega viðbót við þjónustu norrænna banka og alþjóðlegra lána- stofnana. Sérstök áhersla á lán til grannríkja ■ austri Fram kemur í tilkynningu NIB að nokkuð hefur dregið úr spurn eftir lánum utan Norðurlanda en þó hafi spum eftir lánum í fjarskiptaverk- efni utan Norðurlanda verið tölu- verð. Jón Sigurðsson segir að NIB leggi nú sérstaka áherslu á lán til grannríkja Norðurlanda í austri og fjánnögnun umhverfisverkefna á Eystrasalts- og Barentshafssvæðun- um nýtur forgangs í starfsemi bank- ans. Að beiðni borgaryfirvalda í St. Pétursborg hefur bankinn til dæmis fengið það hlutverk að vera í forystu fyrir samvinnu um og fjármögnun nýs frárennsliskerfis borgarinnar. ■ Vv ; ■ Þetta verkefni er mjög þýðingarmik- ið fyrir hreinsun Eystrasalts, en frá- rennsli St. Pétursborgar er um þess- ar mundir einn helsti mengunar- valdur við Eystrasalt. Útistandandi skuldabréf NIB námu 12,3 milljörðum evra í lok tíma- bilsins samanborið við 10,2 milljarða evra á sama tíma í fyrra. Bresk pund, japönsk jen og Hong Kong dollarar eru þær myntir sem bankinn hefur helst tekið að láni á árinu 2000. Útlána- og eignasafn bankans er í jafnháum gæðaflokki og fyrr og eng- in útlánatöp urðu á þessu tímabili. „Góð afkoma á fyrstu átta mánuðum þessa árs gefur til kynna að vænta megi góðrar framvindu í rekstri bankans fyrir árið 2000 í heild,“ segir í tilkynningu Norræna fjárfestingar- bankans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.