Morgunblaðið - 12.10.2000, Blaðsíða 16
Eyðublöð
Garðabæjar
á Netinu
• FORSVARSMENN
►
Garöabæjar og For-
m.is hafa undirritað
samning sem gerir
bæjarbúum kleift að
nálgast eyðublöö
Garðabæjar á Netinu.
Þessi þjónusta eykur
aðgang bæjarbúa til
muna að stjórnkerfi
Garðabæjar og innan
skamms verður hægt
að nálgast meira en
tug eyðublaða af vef-
svæði Garðabæjar og
af vefsvæði Form.is,
fylla þau út og senda
meö rafrænum hætti.
í tilkynningu um
samninginn segir aö
meðal annars verði
hægt að sækja um
lóðir, byggingaleyfi og
leikskólapláss með
þessum hætti.
Garðabær er fyrsta
sveitarfélagiö sem
býður bæjarbúum
upp á þessa þjón-
ustu.
Fyrirtækja-
kynning í
. New York
• KYNNING á íslensk-
um fyrirtækjum veröur
haldin 16. nóvember
næstkomandi í
Scandinavian House í
New York. Kynningin
verður haldin á vegum
Amerísk-íslenska
verslunar-ráðsins og
lcelandic American
Chamberof Com-
merce.
DAG
Vefjja hf. stofnuð
• LANDSTEINAR Int-
ernational hf. hafa
stofnað nýtt þekking-
arfyrirtæki á sviði upp-
lýsingatækni. Nýjafyr-
irtækið heitir Vefja
ehf. og mun það kapp-
kosta að þróa vef-
lausnir fyrir rafræn við-
skipti milli fyrirtækja. 1
fréttatilkynningu kem-
urframaðflestir
rekstrarsérfræðingar
spá því að á næstu
misserum muni þættir
eins oghraði ogvið-
bragðsflýtir í þjónustu
og afhendingu vöru
skipta höfuömáli fyrir
afkomu fyrirtækja.
Margt knýr enda í þá
átt að fyrirtæki selji æ
stærri hluta af vörum
sfnum og þjónustu á
rafrænum markaöi.
Vefja ehf. hyggst
hasla sérvöll á þessu
sviði en fyrirtækiö
mun leggja höfuökapp
á að auka hagræðingu
viðskiptavina sinna
með innleiðingu vef-
lausna sem m.a. stýra
sölu- ogbirgðahaldi.
Vefja ehf. vinnur nú
að verkefnum fyrir inn-
lenda ogerlenda aðila
auk þess sem fyrir-
tækið vinnurnú að
þróun sérhæfðrarvef-
verslunarí samstarfi
við hugbúnaðarfýrir-
tækið NaviPlus. Navi-
Plus er einnig dóttur-
fyrirtæki Landsteina
International. Land-
steinar Int. eiga helm-
ingshlutíVefju ehf. en
einstaklingareigatil
samans 50%.
Námskeið hjá
Endurmenntunarstofnun
• Endurmenntunar-
stofnun HÍ býöur
markaðsfólki og
stjórnendum fyrir-
tækja upp á þrjú
sjálfstæö námskeið
um markaðsmál á
haustönn. Það fyrsta
Bein markaðssókn -
grundvallaratriði
hófst 11. október og
er ætlað byrjendum
á sviði markaðssetn-
ingar. Námskeiðið
Markviss stjórnun
viðski ptasambands
(Customer Relations-
hip Management)
hefst 31. október og
er ætlað þeim stjórn-
endum í fyrirtækjum
sem bera ábyrgð á
því að innleiða sam-
skiptakerfi við við-
skiptavini. Kennsla
byggist á nýrri hug-
myndafræði um
markvisst þekkingar-
samþand milli fyrir-
tækja og við-
skiptavina í staö
einhliða skilaboða til
markaöarins. Á þriðja
námskeiðinu, Að inn-
leiða samskiptakerfi
í fyrirtækjum, sem
hefst 14. október er
svo tekið á því hvern-
ig styrkja megi innra
starf og markmiö fyr-
irtækja meö réttum
boðleiöum.
Ráðstefna um stjórnun
• Fimmtudaginn 19.
október heldur Stjórn-
endaþjálfun Gallup
ráðstefnu um þekking-
arstjórnun. Fjórirsér-
fræðingar á sviði þekk-
ingarstjórnunareru
fyrirlesarar á ráðstefn-
unni: dr. Leenamaija
Otala. Alþjóölegur ráð-
gjafi á sviöi þekkingar-
stjómunar. Hún var
einn af aðal-
lyrirlesurum á Micro-
soft ráðstefnunni um
þekkingarstjórnun í
Bandaríkjunum síðast-
liðiö vor. Dr. Otala hef-
urgefið út fjölda bóka
og fræðigreina um
þekkingarstjórnun.
Dr. PeterWoolli-
ams. Virtur Prófessor
við Anglia Business
School í Bretlandi.
Hann erm.a. ráðgjafi
hjá mörgum fyrirtækj-
um heims á sviði
þekkingarstjórnunar.
Riitta Weiste. Vinn-
usálfræöingur og yfir-
maðurstarfsmanna-
mála hjá Nokia. Hún
hefur m.a. innleitt
þekkingarstjórnun inn-
an Nokia.
Deborah Swallow.
Stjómunarráðgjafi á
sviði þekkingarstjórn-
unar hjá mörgum fyrir-
tækjum, s.s. Finnish
Telephone Company.
Hún hefur hlotið opin-
bera viöurkenningu fýr-
irframúrskarandi fag-
mennsku og árangur
sem ráðgjafi.
Stemma tölurnar?
ÁRMÚLA 7 • 108 REYKJAVfK • SÍMI 550 9000 • www.strengur.ls
FÓLK/Edda B. Guömundsdóttir
Er að detta í
golfbakteríuna
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
hverju er starf þitt
sem aðstoðarmaður
bankastjóra Lands-
bankans fólgið?
„Mér finnst alltaf frekar
erfitt að lýsa starfinu og vil
reyndar meina að það sé
„enn í mótun,“ en í grófum
dráttum er mitt hlutverk
að vera bankastjóra til að-
stoðar í öllum þeim verk-
efnum sem hann ákveður
og til falla. Meðal verkefna
eru t.d. að sitja banka-
ráðsfundi og annast eftir-
fylgni ákvarðana, undirbúa
og sitja framkvæmda-
stjórafundi og fylgja eftir
ákvörðunum, aðstoð við
heildarsamræmingu
stefnumótunar og að vera
tengiliður við stjórnendur
bankans vegna fram-
kvæmda hennar. Þá má
nefna vinnu við ímyndar-
uppbyggingu bankans og að ann-
ast almannatengsl í samstarfi við
Viðskiptabankasvið, þ.e. mark-
aðssvið."
Er núverandi starf mikið frá-
brugðið fyrri starfsreynslu
þinni?
„Já, ég get ekki sagt annað,
það er mjög fjölbreytt og fer inn
á öll svið bankans. Ég á mjög
mikil samskipti við nánast alla
starfsmenn bankans. Önnur störf
sem ég hef gegnt innan bankans
hafa verið meira sérhæfð."
Hvernig líkar þér í núverandi
starfi?
„Mjög vel. Innan bankans
starfar mikið af góðu og
skemmtilegu fólki sem ég hef
gaman af að vinna með.“
Hvað með áhugamál?
„Ég vil nefna sérstaklega tvö
áhugamál, góðan mat og golf. Ég
hef alltaf haft gaman af að elda
og borða góðan mat, og er
reyndar algjör sælkeri. Þetta er
sérstakt áhugamál hjá mér. Nú,
svo er ég að detta í golfið og er
t.d. nýkomin úr 12 daga golfferð
á Flón'da, en þangað fór ég með
manninum mínum. Segja má að
ég sé að fá golfbakteríuna. Það
► Edda B. Guðmundsdóttir
fæddist í Reykjavík árið 1967.
Hún varð stúdent frá Verslunar-
skóla íslands árið 1987 og lauk
B.S.-prófi í viðskiptafræðum frá
University of South Alabama í
Bandaríkjunum 1993. Þar lagði
hún áherslu á markaðs-
rannsóknir. Hún hóf störf hjá
Landsbankanum árið 1995,
fyrst sem sérfræðingur á mark-
aðssviði, árið 1998 varð hún
fræðslustjóri bankans en tók við
starfi aðstoðarmanns banka-
sjóra i apríl síðastliðnum. Edda
er gift Stefáni Steinsen, mark-
aðs- og sölustjóra hjá Sól-
Víking. Hún á þrjár dætur, Sögu
12 ára, Sjöfn 9 ára og Söru 2ja
ára.
vantar hins vegar bara Flórída-
veðrið hér heima til að viðhalda
áhuganum."
Hvað með sumarfrí síðastliðið
sumar?
„Síðasta sumar fór í að gera
upp hús sem við hjónin keyptum
í smáíbúðahverfinu. Við vorum
þar öllum stundum í fríinu."
INNHERJISKRIFAR...
FJARSKIPTAFÉLAGIÐ Títan hefur
keypt netþjónustufyrirtækið Intern-
et á íslandi, Intís. Greitt varfyrir
kaupin með hlutafjáraukningu í Tít-
an. Samhliða kaupunum ákvað
Landsbankinn Framtakssjóður,
sem er sjóður er Landsbankinn og
Nýsköpunarsjóðurstanda að, að
kaupa eignarhlut í Títan af Nýherja
fyrir 55 milljónir króna. Eftir kaupin
á Intís eru eigendurTítans: Internet
á Islandj með 40%, Nýherji með
34,9%, Íslandssími með 18%,
Landsbankinn Framtakssjóðurmeð
4,1% og Lípa.Net með 3%.
Internet á íslandjer að stórum
meirihluta í eigu Islandssíma og
eru því Íslandssími og Landsban-
kinn komnir með meirihluta hluta-
fjár í Títan. Ekki er iangt slðan
Landsbankinn keypti hlut í íslan-
dssíma ogtilkynnt varum stefnum-
arkandi samstarf fyrirtækjanna. Má
segja aö hér sjáist fyrstu merki
þess samstarfs opinberlega. En
þegar tilkynnt var um samstarfið
kom fram að bankinn hefði tekið
ákvöröun um stefnumarkandi fjár-
festingar í fjarskipta- og hugbúnað-
arfyrirtækjum og kaupin í íslands-
síma væru hluti af þeirri stefnu.
SAMKEPPNISLÖG
OG BANKAR
• Mikið er raett um sameiningu
Landsbanka íslands og Búnaðar-
banka íslands og þykir víst að fljót-
lega muni viðskiptaráðherra kynna
máliö á ríkisstjórnarfundi.
Ef ákveðiö verður að sameina
bankana þá er Ijóst að leita verður
álits samkeppnisyfirvalda um hvort
hún brjóti í bága við samkeppnis-
lög.
Síðastliðið vorvoru samþykktar
breytingará samkeppnislögum
sem taka gildi hinn 6. desember
næstkomandi. Þá fellur út ákvæði
um að aöilar er hyggja á samruna
eða yfirtöku geti leitað álits sam-
keppnisráðs fyrirfram á því hvort
samruninn eða yfirtakan brjóti gegn
ákvæðum samkeppnislaga. Hafi
samkeppnisráö ekki svarað slíkri
fyrirspurn innan sexviknafrá því að
samkeppnisyfirvöldum barst hún
verður samruninn eða yfirtakan
ekki ógilt nema samkeppnisráð
hafi veriö leynt upplýsingum sem
máli skiptu við mat ráösins.
Ef viðskiptaráðhera óskarekki
eftirfyrirfram áliti um samruna
Búnaðarbanka og Landsbanka fýrir
6. desember þá fæst ekki álit ráðs-
ins fyrr en eftir að ákveðið hefur
verið að sameina bankana á því
hvort samruninn brjóti gegn lögun-
um eðurei.
Samkeppnisstofnun hafði í gær
ekki borist beiðni viöskiptaráöherra
um fyrirfram álit á sameiningu
Landsbanka og Búnaðarbanka.
ERTIJ
Á ÖRUGGRl
LÍNU
ÚTÍ HEIM?
og öruggt Ijósleiðara-
sambandtil útlanda
með sæstrengnum
Cantat 3.
MISMUNUN í FJÁR-
FESTINGUM
• I lokjúní námu beinarfjárfesting-
ar íslendinga erlendis 35,3 millj-
örðum króna en beinarfjárfestingar
útlendinga hérlendis 36,5 milljörð-
um. Þegarfjárfestirá 10% eða
stærri hlut í fyrirtæki er um beina
fjárfestingu að ræða. Sé hluturinn
minni telst hann til verðbréfaeign-
ar. Ef litið er á fjárfestingar íslend-
inga í erlendum hlutabréfum þá
nema þær 154,8 milljöröum króna.
En fjárfestingar erlendra aöila í inn-
lendum hlutabréfum nema 2,3
milljörðum. Á fundi FVH á þriðjudag
kom fram í máli Arnars Jónssonar,
sérfræðings í gjaldeyrisviöskiptum
hjá Landsbankanum, aö íslensk
skuldabréf væru einn albesti fjár-
festingarkostur í Evrópu í dag en
gjaldmiðlaáhætta komi þar á móti.
Annaö sem talið er að dragi úr
áhuga útlendinga á að fjárfesta í ís-
lenskum verðbréfum er aö rafræn
veröbréfaskráning hefur dregist
von úr viti og að verötrygging
skuldabréfa fæli erienda fjárfesta
frá þar sem hún þekkist ekki á
helstu fjármálamörkuðum. Síðast
en ekki síst er hægt að nefna þær
takmarkanir sem gilda um fjárfest-
ingar útlendinga í íslensku atvinnu-
lífi á sama tíma og talið er eðlilegt
að Islendingar geti fjárfest óhindr-
að erlendis.