Morgunblaðið - 12.10.2000, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.10.2000, Blaðsíða 10
10 C FIMMTUDAGUR12. OKTÓBER 2000 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Baugur hf. hyggst auka hlutafé um 110 milljónir króna Starfsmönnum boðinn hluti aukningar í formi kaupréttar AUKAHLUTHAFAFUNDUR Baugs hf. sem haldinn var síðastliðinn mánudag samþykkti að hlutafé í féiaginu yrði hækkað um 110 milljónir króna að nafnvirði á genginu 11,6 með áskrift nýrra hluta, eða úr 1.122,5 milljónum króna í 1.232,5 milljónir króna. Hluti aukningar hlutafjár, eða 10 milljónir króna að nafnvirði, verður boðinn starfsmönnum Baugs hf. í formi kaupréttar að hlutum sam- kvæmt skilmálum sem stjórn félagsins setur og falla hluthafar frá forkaupsrétti sínum að þessum hluta aukningarinnar. Hlutahafar eiga að öðru leyti forgangsrétt að öllum nýjum hlutum í hlut- falli við skráða hlutafjáreign sína. Fram kemur í tilkynningu til Verðbréfaþings íslands að ef hluthafi noti ekki eða framselji ekki áskriftarrétt sinn að fullu eigi aðrir eldri hluthaf- ar samsvarandi aukinn rétt til áskriftar sem er óframseljaniegur. Frestur hluthafa til að nota for- gangsrétt sinn tii áskriftar er tvær vikur frá dags- etningu tilkynningar til þeirra um ákvörðun um hækkun hlutafjár. Almennur frestur til áskriftar er 2 vikur frá ákvörðun hluthafafundar og skal staðgreiða nýja hluti innan fjögurra vikna frá ákvörðun um hækkun hlutafjár. Stjórn félagsins ákveður hvernig ráðstafa skuli hlutum sem þeir sem njóta forgangsréttar skrifa sig ekki fyrir. MG E Þekkingarstjórnun Markmið, leiðir og árangur Fimmtudaginn 19. október 2000 stendur IMG fyrir ráðstefnu á Hótel Sögu frá kl. 9-17 um það nýjasta og athyglisverðasta á sviði þekkingarstjórnunar í heiminum í dag. Þekkingarstjórnun í samkeppnisumhverfi Ávinningur skipulagðrar þekkingar Þekkingarstjórnun hjá Nokia Stjórnun þekkingar í smærri fyrirtækjum Nýjungar á sviði þekkingarstjórnunar og upplýsingatækni 8.30- 9.00 9.00-9.30 9.30- 9.45 9.45-10.15 10.15- 10.30 10.30-11.15 11.15- 12.00 12.00-13.00 13.00-13.30 13.30- 14.00 14.00-14.30 14.30- 14.45 14.45-15.15 15.15-16.00 16.00-16.20 16.20 16.30 Dagskrá Skráning, afbending gagna Setning Deborah Swallow: „Scene setting and Overview of Knowledge Management." Michael Feitham: „The Value of this Knowledge Boom." Kaffihlé Leenamaija Otala: „How to develop a Learning and Innovation Culture." Riitta Weiste: „From Core Competence Strategy to Managing Knowledge Creation. The Integration of Core Competencies at Nokia." Hádegismatur Michael Feltham: „Knowledge Management - the small company approach." Deborah Swallow: „Accounting for Knowledge.” Michael Feltham: „Knowledge Management and Information Technology." Kaffihlé Leenamaija Otala: „The latest research - Development Projects with Knowledge Management in Different Types of Communities. How New Knowledge is Generated in Geographical Areas, Clties, University- Company Networks and Other Communities." Styttri fýrirlestrar og umræður. Deborah Swallow: „Putting it all together - What does it mean for you?" Ráðstefnuslit Léttar veltingar Virtir fyrirlesarar á sviði þekkingarstjórnunar: Leenamaija Otala. Alþjóðlegur ráðgjafi á sviði þekkingarstjórnunar. Hún hefur birt fjölda greina og gefið út margar bækur á því sviði og talaði m.a. á Microsoft-ráðstefnu um þekkingarstjórnun í Bandaríkjunum síðastliðið vor. Michael Feltham er alþjóðlegur ráðgjafi á sviði þekkingarstjórnunar, upplýsinga- tækni og rafrænna viðskipta. Hann hefur gefið út fjölmargar bækur Riitta Weiste. Vinnusálfræðingur og yfirmaður starfsmannamála hjá Nokia. Hún hefur reynslu af því að innleiða þekkingarstjórnun innan Nokia. Deborah Swallow. Stjórnunarráðgjafi á sviði þekkingarstjórnunar hjá mörgum fyrirtækjum, t.d. Finnish Telephone Company. Hún hefur hlotið opinbera Viðurkenningu fyrir framúrskarandi fagmennsku og árangur sem ráðgjafi. Skráning á ráðstefnuna fer fram í síma 540 1000. Einnig er hægt að skrá sig á radstefna@img.is. Frekari upplýsingar veitir Sigrún Sandra Ólafsdóttir í síma 540 1000 eða sigrunsandra@img.is. Þátttökugjald er 35.000 kr. Takmarkaður sætafjöldi. IMG er stærsta rannsóknar- og ráðgjafarfyrirtæki á íslandi. Fyrirtæki IMG eru m.a. Gallup, Ráðgarður og Stjórnendaþjálfun Gallup. Laugavegi 170 Reykjavík, Sími:540 1000, Fax: 540 1001, img@img.is, www.img.is Staðfesting á Stokkhólmi sem miðstöð þráðlausra fjarskipta Ósló. Morgunbladið. BANDARÍSKA stórfyrirtækið Sun Microsystems mun opna hátækni- miðstöð í Stokkhólmi og hefja þar þróun á tækjum til þráðlausra fjarskipta í byrjun næsta árs, að því er fram kemur í Dagens ind- ustri. Á síðustu 12-15 mánuðum hafa 16 alþjóðleg tækni- og fjar- Hskiptafyrirtæki hafið starfsemi á sviði þráðlausra fjarskipta í Stokkhólmi. Stokkhólmur hefur mikið að- dráttarafl fyrir alþjóðleg hátækni- fyrirtæki og hefur Stokkhólmur og Kista, hverfið þar sem há- tæknifyrirtækin hafa aðsetur, fengið viðurnefnið Wireless Valley eða Telecom Valley í Ijarskipta- heiminum, sbr. Silicon Valley í Kaliformu. Upphafið má merkja árið 1998 þegar Nokia stofnaði þróunar- miðstöð í Kista. Stokkhólmur komst þó á kortið þegar Microsoft keypti fyrirtækið Sendit í maí á síðasta ári og lýsti því yfír að Stokkhólmur skyldi verða miðstöð fyrir þráðlaus fjarskipti. Meðal fyrirtækja sem starfa í Stokk- hólmi eru Intel, IBM, Compaq, Hewlett-Packard og Cisco. Ráð- gjafarfyrirtækjum og fjármálafyr- irtækjum ýmis konar hefur að sama skapi vaxið fiskur um hrygg. Sun Microsystems áætlar að ráða til starfa allt að 300 forritara og tæknimenntaðar manneskjur í miðstöð sína í Stokkhólmi. Opnun- in í Stokkhólmi er liður í átaki Sun sem gert er í þeim tilgangi að efla fyrirtækið á sviði þráðlausra fjarskipta og kynnt verður í Bandarikjunum síðar í mánuðin- um, en Sun er eitt af tíu stærstu upplýsingatæknifyrirtækjum í Bandarikjunum. Áætlað er að Sun opni fleiri miðstöðvar víða um heiminn í þeim anda sem miðstöð- in í Stokkhólmi verður. Roland Winquist, forstjóri nýju miðstöðvarinnar, segir í samtali við Dagens industri að Stokkhólm- ur sé ákjósanlegasti staðurinn að byrja á fyrir Sun í Evrópu, þar sem þar sé samankomin mikil þekking á hátækni. Vöruþróun Sun hefur hingað til farið fram í Kísildal í Kaliforníu. Þar er nú mikill skortur á vinnu- afli og því leitar Sun til Stokk- hólms. Þrátt fyrir nokkurn skort á hæfu starfsfólki í Stokkhólmi seg- ir Winquist að þar sé auðveldara að fá fólk til starfa en í Kaliforníu og bætir við að forsvarsmenn Sun séu opnir fyrir því að ráða fólk frá fleiri Iöndum. SS Og- Nói-Sír- íus í viðskipti hjá Títan FJARSKIPTAFÉLAGIÐ Títan hef- ur samið við Sláturfélag Suðurlands um yfirtöku á allri fjarskiptaþjónustu fyrirtækisins. Þá hefur Títan samið við Nóa-Síríus um alhliða viðskipti með síma- og gagnaflutninga. Sláturfélagið er með starfsemi á Suðurlandi, allt vestur að Laxá í Leirársveit. Samningurinn við Títan tryggirlO Mb ljósleiðaratengingu höfuðstöðva Sláturfélagsins og „Frame-Relay“-samband við starfs- stöðvar fyrirtækisins þar sem bæði tal og önnur gögn fara um. Hægt er að auka hraða á nettengingum upp í allt að 1000 Mb/s. Samningurinn við Nóa-Síríus kveður á um tengingu við fjarskipta- kerfi Títans á ljósleiðaraneti fyrir- tækisins. Síma- og gagnaflutningur fer fram á allt að 10 Mb/s, sem er margfaldur sá hraði sem fyrirtækið bjó við, samkvæmt fréttatilkynningu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.