Morgunblaðið - 17.10.2000, Qupperneq 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2000
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ
Krappur
dans
hjá ÍBV
Stúlkurnar í KA/Þór komu
íslandsmeisturum ÍBV í opna
skjöldu á laugardaginn þegar liðin
mættust á Akureyri.
■■■■■■■ Svo virtist sem ÍBV-
StefánÞór stúlkurnar teldu sig
Sæmundsson áskrifendur að sigri
skntar en hið unga lið KA/
Þórs lék sinn besta leik í vetur, gaf
hvergi eftir og tókst að jafna í 19:19
þegar ríflega sex mínútur voru til
leiksloka en meistararnir náðu að
knýja fram eins marks sigur, 21:20.
Heimastúlkur höfðu frumkvæðið í
byrjun en urðu þó að gefa eftir er líða
tók á hálfleikinn. Staðan var 9:14
þegar ein og hálf mínúta var til leik-
hlés en KA/Þór lagaði stöðuna í
11:14. KA-stúlkumar mættu stað-
fastar til seinni hálfleiks og skoruðu
tvö fyrstu mörkin. Staðan 13:14 og
það var ekki fyrr en eftir 8,27 mín. að
Ingibjörg Ýr Jóhannsdóttir skoraði
fyrir IBV og hafði liðinu þá ekki tek-
ist að skora í 10 leikmínútur. Ingi-
björg sá til þess að Vestmanneyingar
héldu 1-2 marka forskoti og það var
líka hún sem tryggði sigm- liðsins í
lokin.
Amela Hegic, skytta ÍBV, var tek-
in úr umferð allan leikinn og stóð Ás-
dís Sigurðardóttir sig vel í því. Ingi-
björg var langbest hjá ÍBV og
skoraði 8 mörk.
Hjá KA/Þór varði Sigurbjörg
Hjartardóttir vel og þær Eyrún
Gígja Káradóttir og Elsa Birgisdótt-
ir voru sterkar í sókninni. Þá sýndi
Martha Hermannsdóttir lagleg til-
þrif en hún mætti fá lánaða skaps-
muni frá Eyrúnu eða Ásdísi. Klara
Stefánsdóttir batt vömina vel saman.
Frammistaða KA/Þórs kom mjög
á óvart. Stúlkumar era yngri, lág-
vaxnari ogreynsluminni en leikmenn
annarra liða í deildinni. Liðið er hins
vegar að fá tvær rússneskar stúlkur í
hópinn og með sama áframhaldi gæti
farið að styttast í fyrsta sigurinn.
■ ALEXANDER Tutschkin, rúss-
neska handboltastórskyttan, er
hættur hjá Hildesheim í Þýska-
landi og genginn til liðs við Sant-
ander á Spáni. Hann gekk til liðs
við Hildesheim, nýliða í efstu deild-
inni í Þýskalandi, fyrir þetta tíma-
bil en hafði þar skamma viðdvöl.
■ MATS Olsson, fyrrverandi lands-
liðsmarkvörður. Svía, er fram-
kvæmdastjóri Santander og hann
taldi Tutschkin á að flytja til Spán-
ar. Tutschkin, sem er 35 ára, skor-
aði 7 mörk fyrir Rússa þegar þeir
sigruðu Svía í úrslitaleiknum í
handknattleikskeppni Ólympíuleik-
anna í Sydney í haust en hann hefur
leikið fyrir þrjár þjóðir, Sovétríkin,
Hvíta-Rússland og Rússland.
■ CIUDAD Real á Spáni er að
reyna að ná í Talant Dujshebaev,
spænska landsliðsmanninn frá
Minden. Horst Bredemaier, fram-
kvæmdastjóri Minden, segir að þær
tilraunir séu til einskis, Dujshebaev
verði um kyrrt í Þýskalandi út
þetta tímabil.
■ GUERIC Kervadec, hinn öflugi
franski línumaður sem leikur undir
stjóm Alfreðs Gíslasonar hjá
Magdeburg, er hættur með franska
landsliðinu. Kervadec, sem er 28
ára og hefur spilað 180 landsleiki,
hefur fengið nóg af metnaðarleysi
yngri leikmanna í franska liðinu og
hefur gagnrýnt þá harkalega.
■ LEMGO frá Þýskalandi burstaði
Innsbruck frá Austurríki, 31:16, á
útivelli í 2. umferð EHF-bikarsins á
laugardaginn. Kehrmann skoraði
mest fyrir Lemgo, 7 mörk.
Morgunblaðið/Golli
Magnús Arnar Magnússon er hér búinn að snúa Finn Jóhannsson af sér og skorar eitt af mörkum sínum fyrir Gróttu/KR gegn ÍR.
Þurftu engin töfraorð
„VIÐ fundum það sem við leituðum að í síðustu leikjum,“ sagði Ólaf-
ur Lárusson, þjálfari Gróttu/KR, eftir 28:22 sigur á ÍR á Seltjarnar-
nesi á laugardaginn. „Það er spiiamennskan, sem við sýndum í
leikjunum fyrir mótið; góður varnarleikur þar sem menn töluðu
saman, tóku vel á í vörninni og lokuðu á skot svo að markvarslan
kom með auk þess að sóknarleikurin var agaður,“ bætti Ólafur við
en það var ekki fyrr en eftir að hann tók leikhlé að liðið hrökk í gang.
„Ég sagði engin töfraorð - þetta er allt til staðar og menn náðu loks-
ins að stilla sig inn á það og gátu þar sem galdrað sjálfir."
Gestimir úr Breiðholtinu byrjuðu
betur og náðu 5:2 forystu á 8.
mínútu en þá taldi Ólafi, þjálfara
Gróttu/KR, tíma-
■■■■■■■ bært að ræða við sína
Stefán menn og tók leikhlé.
Stefánsson Sú ræða virtist hafa
góð áhrif því tíu mín-
útur liðu fram að næsta marki ÍR á
meðan heimamenn bættu við fimm
mörkum og áður en flautað var til
leikhlés höfðu Breiðhyltingar aðeins
skorað þrjú mörk á tæpri tuttugu og
einni mínútu. Fátt var um varnir
fram fram eftir síðari hálfleik en
Grótta/KR þó alltaf með forystuna.
Heimamenn misstu þó aðeins tökin í
stöðunni 19:13 um miðjan síðari hálf-
leik og ÍR-ingar létu ekki bjóða sér
það tvisvar og minnkuðu muninn nið-
ur í tvö mörk, 22:20, þegar rúmar tíu
mínútur vora til leiksloka. En þar við
sat, óðagotið varð mikið í sókninni og
Grótta/KR skoraði fimm næstu mörk
- þar af fjögur eftir hraðaupphlaup
og bjöminn var það með unninn.
Hlynur Morthens markvörður átti
mjög góðan leik fyrir Gróttu/KR en
hann var líka dyggilega studdur af
félögunum í vöminni. Magnús Arnar
Magnússon var sterkur á línunni og
sleit sig ítrekað úr höndum Finns Jó-
hannssonar. Aleksander Petersons
lék á als oddi í sókninni og Atli Þór
Samúelsson mætti ferskur inn á.
„Þetta var einfaldlega lélegur leik-
ur af okkar hálfu,“ sagði Jón Krist-
jánsson, þjálfari IR, eftir leikinn.
„Það lukkuðust að vísu nokkrar
sóknir í byrjun en vömin gekk aldrei
upp og markvarslan var slök auk
þess að menn létu hávaðann og lætin
í húsinu leiða sig í alls konar vitleysu í
sóknarleiknum. Eg var búinn að
ræða þetta fyrir leikinn, að reynt sé
að trekkja menn upp í sóknarleik-
num með hávaða. Við náðum reyndar
samt að komast aðeins inn í leikinn
um tíma og fundum lyktina af sigri en
urðum þá alltof stressaðir, gerðum
mistök í sendingum og misstum alla
yfirvegun.
Það er þekkt með þetta lið að eftir
að búið er að spila vel leikur liðið illa
næsta leik og einnig öfugt,“ bætti
Jón við en sem kunnugt er unnu ÍR-
ingar háttskrifað lið Aftureldingar í
síðasta leik. Af ÍR-ingum vora Finn-
ur Jóhannsson, Einar Hólmsteinsson
og Erlendur Stefánsson bestir þótt
þeir hafi ekki sýnt neitt sérstakan
leik frekar en félagar þeirra.
Létt hjá Aftureldingu
AFTURELDING átti ekki í miklum vandræðum með að sigra slakt lið
HK á sunnudagskvöld í 4. umferð t. deildar karla í handknattleik. í
leikslok skildu 10 mörk liðin að en á tímabili náði Afturelding 13
marka forrystu í leiknum og lokatölur leiksins urðu 36:26 Aftureld-
ingu f vil. Magnús Már Þórðarson, línumaður Aftureldingar, naut sín
vel í leiknum enda voru samherjar hans duglegir að senda boltann á
Magnús og þá sérstaklega Savukynas Gintavas. Aðalsmerki Kópa-
vogsliðsins undanfarinn ár hefur verið varnarleikurinn en að þessu
sinni gekk afar illa að stoppa í götinn og einhæfur sóknarleikur liðs-
ins gerði þeim enn erfiðara fyrir.
Það var Stefán Freyr
Guðmundsson sem byrjaði
leikinn vel fyrir HK og skoraði eina
mark sitt í leiknum
■■■^■M á skemmtilegan
Sigurður Etvar hátt með vinstri
Þórólfsson hönd en Stefán er
rétthendur. Mosfell-
ingar tóku síðan við aðalhlutverki
kvöldsins og skoruðu átta mörk úr
jafnmörgum skottilraunum. Hlynur
Jóhannesson, markvörður HK, var
ekki öfundsverður að standa fyrir
aftan slaka vörn og átti Hlynur lít-
inn möguleika að verja skot heima-
manna. Sverrir Þór Björnsson var
mesta ógn HK í stöðu vinstri
skyttu og 10 mörk frá honum
dugðu skammt þar sem aðrir leik-
menn vora lítið ógnandi. Yfirburðir
Aftureldingar voru það miklir í lok
fyrri hálíleiks að Bjarki Sigurðs-
son, þjálfari Aftureldingar, leyfði
sér að taka leikhlé er 7 sekúndur
vora eftir af fyrri hálfleik og setti
upp leikkerfi þar sem Reynir Þór
Reynisson markvörður átti að ljúka
sókninni. Leikaðferðin tókst með
ágætum en Reyni Þór mistókst að
skora úr vinstra horninu en margir
vildu meina að Reynir Þór hefði átt
að fá dæmt vítakast þar sem brotið
var á honum í skottilrauninni og
staðan í hálfleik var 17:12.
Margir af lykilmönnum Aftureld-
ingar léku minna en oft áður í
seinni hálfleik og ungir leikmenn
fengu að spreyta sig. Bjarki Sig-
urðsson þurfti lítið að hafa fyrir því
að skora fjögur mörk í seinni hálf-
leik og þeir Haukur Sigurvinsson,
Hilmar Stefánsson og Atli Rúnar
Steinþórsson skiluðu sínu hlutverki
með sóma. Leikstjórnandi Aftur-
eldingar, Savukynas Gintavas gerði
nánast það sem hann vildi gegn
slakri vörn HK og stjórnaði leikn-
um vel ásamt því að skora 3 mörk
og félagi hans frá Litháen Galk-
auskas Gintas setti fimm mörk í
stöðu vinstriskyttu og virtist hafa
lítið fyrir því.
Það er greinilegt að vinstrihand-
ar leikmennirnir vaxa ekki á trján-
um í Kópavoginum og ógnunin frá
Garcia og Samúel ívari Árnasyni
var ekki mikil. Línusendingar á
Alexander Arnarsson vora heldur
ekki margar og greinilegt að Sig-
urður Sveinsson hefur ekki náð að
smita leikmenn HK með þeim eig-
inleika. Óskar Elvar Oskarsson
skoraði fjögur mörk fyrir HK og
var ágætur en það dugði skammt.
Mosfellingar virðast til alls líklegir
í vetur og leikur liðsins var sann-
færandi. Mikil breidd er í leik-
mannhóp þeirra og hárrétt ákvörð-
un hjá Bjarka Sigurðssyni þjálfara
liðsins að gefa sem flestum leik-
mönnum tækifæri á að spila og það
var nánast sama hverjir komu inn
á, aldrei minnkuðu yfirburðir Aft-
ureldingar.