Morgunblaðið - 17.10.2000, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
Argentínumaðurinn Gabriel Batistuta er byrjaður að skora fyrir Roma
Batistuta byijaður
ARGENTÍNUMAÐURINN Gabriel
Batistuta er byrjaður að hrella
markverðina á Ítalíu á nýjan
leik, nú sem leikmaður Roma.
Hann gerði tvö mörk í 4:0-sigri
liðsins á Lecce og er liðið í efsta
sæti ásamt Juventus.
Batistuta var keyptur frá Fior-
entina fyrir tímabilið og þessi
mikli markahrókur beið ekki lengi
með að skora, gerði fyrra mark
sitt skömmu fyrir leikhlé.
Juventus vann góðan sigur á
Bari þrátt fyrir að senterarnir Al-
essandro Del Piero og Filippo
Inzaghi væru fjarri góðu gamni,
en þeir lágu báðir í flensu. Júgó-
slavinn Darko Kovacevic notaði
tækifærið, einu sinni sem oftar, og
kom Juve yfír eftir tvær mínútur
eftir sendingu frá Zinedine Zidane
sem gerði sjálfur síðara markið úr
vítaspyrnu á síðustu mínútunni.
Fatih Terim, þjálfari Fiorentina,
andaði léttar þegar flautað var til
loka leiks liðsins við Reggina. Allt
virtist stefna í annan sigur Regg-
ina í jafn mörgum umferðum því
liðið lagði Inter Mílan í fyrstu um-
ferðinni og kom það virkilega á
óvart. Á sunnudaginn kom Mass-
imo Marazzina gestunum í 1:0 með
marki á 69. mínútu og þannig var
staðan allt þar til fjórar mínútur
voru eftir. Potrúgalinn Nuno Gom-
es jafnaði og Leandro kom heima-
mönnum yfir mínútu fyrir leikslok.
Inter vann Napoli 3:1 á laugar-
daginn og var sigurinn sanngjarn
og gerðu leikmenn Inter öll fjögur
mörkin því Clarence Seedorf gerði
sjálfsmark þegar staðan var 3:0.
Það rigndi víða mikið á Italíu
um helgina og báru nokkrir leikir
Islendingaliðið Lokeren var lánlít-
ið á laugardaginn þegar það tap-
aði, 1:0, fyrir Charleroi í belgísku
knattspyrnunni en
Kristján Það hefð! 1 Það
Bemburg mmnsta att skdið
skrifar jafntefli.
Arnar Grétarsson
átti annað tveggja bestu færa fyrri
hálfleiks en Dudas, markvörður
Charleroi, varði naumlega gott
skot hans frá vítateig. Sigurmark
Charleroi var gullfallegt, beint úr
aukaspyrnu á 63. mínútu. I kjölfar-
ið fór Árnar Þór Viðarsson af velli
þess merki. Brescia, með Roberto
Baggio í broddi fylkingar, gerði
markalaust jafntefli við Parma en
það munaði ekki nema hársbreidd
að Diego Fuser næði að skora fyr-
ir gestina á síðustu sekúndunum,
en gott skot hans fór rétt fram
hjá, 12.000 áhorfendum til mikils
léttis.
Meistarar Lazio unnu sinn
fyrsta leik, lögðu Perugia 3:0 á
laugardaginn.
hjá Lokeren, hann hafði byrjað
leikinn vel en virtist þreyttur eftir
erfiðan landsleik í síðustu viku.
Arnar Grétarsson lék allan leikinn,
spilaði boltanum mjög vel og virð-
ist stöðugt vera að komast í betra
leikform.
Club Brugge hélt sigurgöngunni
áfram, vann Aalst 2:0 á útivelli, og
hefur sigrað í öllum níu leikjum
sínum og er með 27 stig. Jan Koll-
er tryggði Anderlecht 2:1 sigur á
Gent og lið hans er fjórum stigum
á eftir Club Brugge. Lokeren er í
níunda sæti með 13 stig.
Lokeren lánlítið
ÆT
Þórður var sterkur í
fyrsta sigri Las Palmas
ÞÓRÐUR Guðjónsson fékk góða dóma fyrir frammistöðu sína síð-
ustu 20 mínúturnar með Las Palmas á laugardagskvöldið en lið
hans sigraði þá Malaga, 2:1, á heimavelli sínum á Kanaríeyjum í
fimmtu umferð spænsku knattspyrnunnar. Með sigrinum komst
Las Palmas úr fallsæti deildarinnar upp í það fjórtánda.
órður var á varamannabekk
Las Palmas eins og í fyrri
leikjum liðsins en var skipt inn á
þegar 20 mínútur voru eftir, rétt
eftir að gestirnir höfðu tekið for-
ystuna. A næstu 12 mínútum skor-
aði Las Palmas tvívegis og tryggði
sér sinn fyrsta sigur á tímabilinu.
E1 Mundo Deportivo gaf Þórði 3 í
einkunn af 4 mögulegum þótt hann
spilaði ekki lengur en raun bar
vitni. Oulare og Orlando Suarez
skoruðu mörkin en sá síðarnefndi
kom inn á rétt á eftir Þórði.
Stórveldin Barcelona og Real
Madrid hrukku heldur betur í
gang eftir misjafnt gengi. Real tók
meistara Deportivo Coruna í bak-
aríið, sigraði 3:0 og komst í topp-
sætið þar sem Celta Vigo gerði að-
eins jafntefli heima gegn Alaves,
1:1. Raúl, Fernando Hierro og Tuti
skoruðu mörkin fyrir Real Madrid.
Barcelona hefur mátt sæta mik-
illi gagnrýni að undanförnu og nýi
þjálfarinn, Llorenc Serra Ferrer,
þótti orðinn valtur í sessi. En í
heimsókn sinni til Real Sociedad
hrukku Börsungar heldur betur í
gang því þeir skoruðu hvorki fleiri
né færri en 6 mörk á fyrstu 40
mínútum leiksins. Þeir létu þar við
sitja en með þessum 6:0-útisigri
lyftu þeir sér upp í sjötta sætið.
Rivaldo og Alfonso skoruðu tvö
mörk hvor.
ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2000 B 9
Enski boltinn
á mbl.is
Nýjar fréttir á hverjum degi. Á íþróttavef
mbl.is finnur þú ítarlega umfjöllun um
enska boltann og tengingar inn á heima-
síður félaganna.
Boltaspjaii
Umferðirnar
Liðin
Leikirnir
Leikmennirnir
Tölfræðin
Á íþróttavef mbl.is er einnig að finna
skemmtilegan netleik í samvinnu við
Ferðaskrifstofu Reykjavíkur. Þar getur þú
valið þér þrjá framherja og safnað stigum
samhliða því að þeir skora í deildinni.
Einnig geta þrír þátttakendur myndað lið
og safnað sínum stigum saman. Það er
um að gera að vera með frá byrjun til að
eiga sem besta möguleika á þeim glæsi-
legu vinningum sem í boði eru.
Ferð þú á leik með stjörnunum ?
Glæsilegir ferðavinningar til
Englands á leik í enska boltanum.
Glæsilegir ferðavinningar á leik
í Meistarakeppni Evrópu.
með
FERÐASKR FSTOFA
REYKJAVÍKUR
Vertu með frá byrjun
ENSKI B0LTINN Á
mbl.is