Morgunblaðið - 18.10.2000, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
2000
U MIÐVIKUDAGUR18. OKTÓBER BLAÐ
KSI leitar
til Jörundar
STJÓRN KSÍ hefur ákveðið að leita til Jörundar
Áka Sveinssonar uin að hann verði næsti
landsliðsþjálfari kvenna í knattspymu í stað
Loga Ólafssonar, þjálfara FH, sem hljóp í skarð-
ið eftir að Þórði Lámssyni var sagt upp. Jörand-
ur framlengdi á dögunum samning sinn við
Breiðablik en undir hans sljóm urðu Blikar
bæði íslands- og bikarmeistararar í ár.
„Það verður væntanlega gengið frá samningi
í næstu viku. Jörandur hefur sýnt og sannað að
hann er mjög hæfur þjálfari enda náð góðum
árangri og okkur þykir hann því vera besti kost-
urinn í stöðunni. Hann þekkir kvennaknatt-
spyrnuna vel, hefur áhuga á henni og er með
mikinn metnað til hennar. Við lítum svo á að það
sé mikið mál fyrir kvennaknattspyrnuna að
svona aðili sé í þessu starfi,“ sagði Eggert Magn-
ússon, formaður KSI, við Morgunblaðið í gær.
Vassel
kemur
ekki til
KR
KEITH Vassel kemur ekki til KR-inga
eins og forráðamenn félagsins höfðu
vonast til. Hann gaf félaginu ákveðið
afsvar í gær. KR er eina liðið í úrvals-
deild karla sem ekki hefur erlendan
leikmann innan sinna raða. Heyrst
hefur að það sé meðal annars vegna
þess að félagið skuidi Körfuknatt-
leikssambandinu það mikið að það fái
ekki leikheimild fyrir erlendan leik-
mann.
„Það er rétt að umrætt félag skuid-
ar okkur eitthvað, en það er ekki
ástæðan fyrir því að það er ekki með
erlendan leikmann," sagði Pétur
Hrafn Sigurðsson, framkvæmdastjóri
KKÍ, spurður hvort þetta væri rétt.
„I fyrra voru sett ákvæði í reglur
um erlenda leikmenn sem segja að
stjórn KKI sé ekki heimilt að veita er-
lendum leikmanni keppnisleyfi nema
félag það sem sækir um leyfíð fyrir
hönd leikmannsins sé skuldlaust við
KKÍ. Þetta hefiir gefist mjög vel og
tryggir okkur að félögin gera upp við
okkur í það minnsta einu sinni á ári,“
sagði Pétur Hrafn.
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari
meistaraflokks karla, sagði i samtali
við Morgunblaðið í gær að nú færu
KR-ingar að leita að erlendum manni.
„Það var alltaf ætlunin að sjá til fram í
nóvember hvernig okkur gengi og
Keith [Vassel] hefði ekki komið fyrr
en þá. Nú er ]jóst að hann kemur ekki
og þá förum við að leita að einhverjum
öðrum,“ sagði Ingi Þór.
Morgunblaðið/BB
Dúfa Dröfn Ásbjömsdóttir hefur staðið í stórræðum að undanförnu. Hún er búin að semja við íslands- og bikarmeistara
Breiðabliks í knattspyrnunni og norska meistaraliðið Gimli í körfuboltanum.
Dúfa semur við Gimli og Breiðablik
Leikur með Noregsmeisturunum í körfuknattleik í vetur og
íslands- og bikarmeisturunum í knattspyrnu næsta sumar
DÚFA Dröfn Ásbjörnsdóttir, körfuknattleiks- og knattspyrnukona
frá Sauðárkróki, stendur í stórræðum þessa dagana. Dúfa hefur
varið mark ÍA í knattspyrnunni en er búin að semja við íslands-
og bikarmeistara Breiðabliks til tveggja ára, og þá eru samningar
hennar við norsku meistarana í körfuknattleik, Gimli frá Bergen,
á lokastigi.
Dúfa Dröfn er 17 ára gömul,
verður átján í desember, og
hefur leikið körfuknattleik með
Tindastóli á veturna og knatt-
spyrnu með IA á
sumrin en hún er í
unglingalandsliði í
Sigurðsson báðum íþrótta-
greinum. Hún er
annar markvarða unglingalands-
liðsins í knattspyrnu sem tekur
þátt í milliriðli Evrópukeppninnar
á Spáni í lok nóvember og gengið
hefur verið frá því í samnings-
drögum við Gimli að hún verði laus
þaðan til að spila á Spáni. Dúfa lék
með unglingalandsliðinu í körfu-
knattleik í Svíþjóð í fyrra og
líklegast er að áhugi norsku meist-
aranna hafi kviknað þegar full-
trúar þeirra sáu til hennar þar.
„Við vitum í raun ekki hvernig
þeir komust á snoðir um hana. Það
kom bara tilboð frá Noregi og nú
er aðeins eftir að ganga frá smá-
atriðum í sambandi við samning
hennar við Gimli. Að öllu óbreyttu
fer hún til Noregs fyrir næstu
helgi en norska deildin byrjar 28.
október," sagði Steinunn Hjartar-
dóttir, móðir Dúfu, við Morgun-
blaðið í gær.
Tímabilinu í Noregi lýkur í mars
og þá kemur Dúfa heim og tekur
til við æfingar með Breiðabliki.
Frá því hefur verið gengið að hún
geti æft knattspyrnu í Bergen með
úrvalsdeildarliðinu Björnar í vetur
þannig að hún ætti að koma heim í
góðri æfingu.
Hjá Breiðabliki mun Dúfa keppa
við sjálfan landsliðsmarkvörðinn,
Þóru B. Helgadóttur, um stöðuna.
Þóra er í námi í Bandaríkjunum og
verður því ekkert með fyrr en í
byrjun íslandsmóts og fer utan
nokkru áður en því lýkur þannig
að Dúfa fær að öllu óbreyttu tals-
verð tækifæri með Kópavogsliðinu.
Dúfa lék með Tindastóli í 1.
deildinni í körfuknattlpik á síðasta
vetri og var þá þriðji stigahæsti
leikmaður liðsins með 152 stig í 19
leikjum. I knattspyrnunni hefur
hún leikið í hálft þriðja ár með ÍA
og hefur spilað 32 leiki í efstu
deild með félaginu. Hún spilaði
með stúlknalandsliðinu á síðasta
ári og unglingalandsliðinu í ár.
KNATTSPYRNA: ÍSLAND MEÐ í UMSÓKN UM EM 2008 / C3