Morgunblaðið - 18.10.2000, Blaðsíða 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000
KNATTSPYRNA
Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu
Markaregn
í Madrid
EVRÓPUMEISTARNIR Real Madrid frá Spáni tryggðu sérfyrst
allra liða sæti í 16 liða úrslitum meistaradeildar Evrópu ásamt
löndum sínum frá Valencia og enska liðinu Arsenal. Real Madrid
vann Bayer Leverkusen á heimavelli með fimm mörkum gegn
þremur í miklum markaleik og Real getur ekki endað neðar en í
öðru sæti A-riðilsins. Valencia lauk keppni í C-riðli með fullt hús
stiga eftir 1:2 sigur á útivelli í gegn Lyon frá Frakklandi. Robert
Pires tryggði Arsenai jafntefli gegn Lazio með marki á 88. mínútu
eftir að Pavel Nedved hafði komið Lazio yfir í fyrri hálfleik.
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
Meistaradeild Evrópu
A-RIÐILL
Real Madrid - Leverkusen...........5:3
Guti (3. 65.), Helguera (24.), Raul (75.),
Figo (88.) - Brdaric (19.), Kirsten (55.),
Rink (78.)
Sporting Lissabon - Spartak Moskva.0:3
Dimas (16. sjálfsmark), Titov (52., 67.)
RealMadrid.......4 3 10 11:7 10
Spartak Moskva.... 4 3 0 1 8:2 9
Leverkusen.......4 1 0 3 8:12 3
Sporting.........4 0 1 3 5:11 1
B-RIÐILL:
Lazio - Arsenal..................1:1
Nedved (24.) - Pires (88.)
Shakhtar Donet.sk - Sparta Prag..2:1
Gleveskas (35.), Zubov (87.) - Jarosik (16.)
Arsenal 4 3 1 0 7:3 10
Lazio 4 2 1 1 7:3 7
Sparta Prag 4 1 0 3 4:8 3
Donetsk 4 1 0 3 6:10 3
C-RIÐILL:
Hcerenveen - Olympiakos...........1:0
Jensen (82.)
Lyon - Valencia...................1:2
Marlet (90.) - Sanchez (45.), Baraja (85.)
Valencia..........4 4 0 0 6:2 12
Olympiakos........4 2 0 2 5:4 6
Lyon..............4 1 0 3 5:6 3
Heerenveen........4 1 0 3 2:6 3
D-RIÐILL:
Sturm Graz - Mónakó.................2:0
Schoop (40.,88.)
Rangers - Galatasaray...............0:0
Rangers..........4 2 11 8:3 7
Galatasaray......4 2 11 6:7 7
SturmGraz........4 2 0 2 5:10 6
Mónakó...........4 1 0 3 7:6 3
England
1. deild:
Barnsley - Tranmere..............1:1
Birmingham - Stockport...........4:0
Bolton - Nottingham Forest.......0:0
Burnley - Sheffield Wed..........1:0
Grimsby - QPR....................3:1
Portsmouth - Crewe...............2:1
Preston - Norwich................1:0
Sheffield United - Huddersfield..3:0
Watford - Gillingham.............0:0
WBA-Wolves.......................1:0
2. deild:
Boumemouth - Wigan...............0:0
Brentford - Colchester...........1:0
Bristol Rovers - Rotherham.......1:1
Cambridge - Stoke................1:1
Millwall - Bristol City..........1:1
Notts County - Bury..............1:0
Oldham - Wycombe.................2:0
Oxford - Luton...................0:0
Port Vale - Northampton..........2:2
Reading - Wrexham................4:1
Swansea - Swindon................0:0
Walsall - Peterborough...........1:1
Skotland
St. Johnstone - Celtic...........0:2
BLAK
l.deild karia
ÍS - Þróttur R..3:0 (25:23,25:12,25:22)
l.deildkvenna
ÍS - Þróttur R..3:0 (25:12,25:23,25:21)
IKVOLD
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Höllin: Armann/Þróttur - Stjaman.20
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Nissan-deildin:
Hlíðarendi: Valur-KA..........20
Real Madrid fékk óskabyrjun
gegn Bayer Leverkusen á
heimavelli sínum Bernabeu þegar
Guti skoraði fyrsta mark kvöldsins
á 3. mínútu. Eftir markið slökuðu
Evrópumeistaramir aðeins of mikið
á og Leverkusen jafnaði leikinn á
19. mínútu með skallamarki frá
Thomas Brdaric en Ivan Helguera
kom Real aftur yfir sex mínútum
síðar. Ulf Kirsten jafnaði leikinn
með öðru skallamarki Bayern á 55.
mínútu. Guti og Raul skoruðu
næstu tvö mörk Real Madrid með
10 mínútna millibili um miðjan síð-
ari hálfleik og staðan 4:2. Þjóðverj-
amir gáfust ekki upp og komust aft-
ur inn í leikinn með marki frá
varamanninum Paulo Rink á 78.
mínútu en dýrasti knattspymumað-
ur heimsins í dag, Luis Figo, bætti
við fimmta marki Real á 88. mínútu
úr vítaspyrnu og sigurinn var í höfn.
Lið Spartak frá Moskvu vann
sannfærandi 3:0 sigur á útivelli
gegn Sporting Lissabon í Portúgal.
Fyrsta mark Rússanna var sjálfs-
mark varnarmanns Sporting. Peter
Schmeiehel kom engum vörnum við
þegar Egor Titov skoraði næstu tvö
mörk gestanna og kollegi hans í
marki Spartak sá við mýmörgum
marktækifærum leikmanna Sport-
ing og átti stórleik.
Pires jafnaði rétt
fyrir leikslok
Það stefndi allt í sigur Lazio sem
lék á heimavelli gegn Arsenal í B-
riðli er skammt var til leiksloka.
Pavel Nedved hafði hafði komið lið-
inu yfir með marki á 24. mínútu.
Skotið frá Nedved fór í vamarmann
og breytti um stefnu og John Lukic
sem stóð í marki Arsenal átti ekki
möguleika að ná til knattarins.
Frakkinn Robert Pires nýtti sér vel
óvenjuleg mistök varnarmannsins
sterka, Alessandro Nesta, á 88.
mínútu og jafnaði leikinn með góðu
skoti yfir Angelo Peruzzi markvörð
Lazio og tryggði Arsenal sæti í 16
liða úrslitum keppninnar.
Shakhtar Donetsk frá Úkraínu
vann sinn fyrsta sigur í meistara-
deildinni er liðið vann Sparta Prag
frá Tékklandi með tveimur mörkum
gegn einu og bæði liðin hafa 3 stig
eftir 4 leiki og hafa sáralitla mögu-
leika á að komast áfram úr B-riðli.
Valencia með
fullt hús stiga
Valencia var eitt þriggja liða sem
komið er áfram í 16 liða úrslit
keppninnar og hefur nú fullt hús
stiga eftir 4 leiki. Spænska liðið tap-
aði í úrslitaleik keppninnar gegn
Real Madrid í vor og með 2:1 úti-
sigri á franska liðinu Lyon er Val-
encia á góðri siglingu í C riðli.
Markahæsti leikmaðurinn í
spænsku knattspymunni, Juan
Sanches, skoraði fyrsta mark leiks-
ins og Ruben Baraja bætti við öðm
marki fyrir gestina á 85. mínútu.
Steve Marlet minnkaði muninn fyr-
ir Lyon á lokamínútu leiksins og
Lyon hefur nú tapað síðustu þrem-
ur leikjum sínum í keppninni.
Hollenska liðið Herenveen vann
sinn fyrsta sigur í C-riðli er liðið
mætti gríska liðinu Olympiakos og
það var Daniel Hansen sem skoraði
BJARKI Gunnlaugsson var hetja
liðs Preston í gærkvöldi en hann
tryggði sínum mönnum sigurinn
gegn Norwich í ensku 1. deildinni í
knattspyrnu. Bjarki, sem er
nýbyrjaður að spila eftir meiðsli,
kom inn á sem varamaður á 78.
mínútu og skoraði eina mark leiks-
ins á lokamínútunni. Bjarki fékk
sendingu frá Hollendingnum Eric
Meijer, lánsmanni frá Liverpool,
og skoraði með föstu skoti.
Watford missti af toppsætinu
Watford missti af tækifærinu til
að skjótast í toppsætið þegar liðið
fékk Gillingham í heimsókn. Þrátt
fyrir góð færi sem Heiðar Helgu-
son og félagar hans sköpuðu sér
tókst þeim ekki að skora frekar en
gestunum. Heiðari var skipt út af
á lokamínútunni en Jóhann B.
Guðmundsson var ekki í hópnum.
Bolton og Nottingham Forest
gerðu sömuleiðis 0:0 jafntefli.
Guðni Bergsson gat ekki leikið
vegna meiðsla í nára.
Lárus Orri Sigurðsson var ekki í
leikmannahópi WBA sem hafði
betur gegn Wolves, 1:0.
Fulham er sem fyrr efst í 1.
deild með 30 stig, Watford er í
öðru sæti með 29 stig, Birming-
ham er með 26 og síðan koma Bol-
ton og Preston með 25 og 24 stig.
eina mark leiksins á 82. mínútu.
Mónakó steinlá
í Austurríki
Miðvallarleikmaðurinn Markus
Schopp var í aðalhlutverki kvöldsins
í Austurríki þegar hann skoraði
bæði mörk Sturm Graz í 2:0 sigri
liðsins á frönsku meisturunum frá
Mónakó. Sigur austurríska liðsins
kemur nokkuð á óvart þar sem
Mónakó vann fyrri leik liðanna með
fimm mörkum gegn engu. Schopp
kom Sturm Graz yfir á 40. mínútu
og leikmenn Mónakó áttu mun
meira í leiknum það sem eftir lifði
leiks en Schopp bætti við öðru
marki tveimur mínútum fyrir leiks-
lok og útlitið er nokkuð dökkt hjá
Mónakó sem vermir neðsta sæti D-
riðilsins.
A Ibrox-vellinum í Glasgow tóku
Rangers á móti tyrkneska liðinu
Galatasaray sem eru núverandi
Evrópumeistarar bikarhafa. Leik-
urinn endaði með markalausu jafn-
tefli og staðan í D riðli er mjög opin,
Rangers og Galatasaray eru jöfn í
efsta sæti riðilsins með 7 stig og
Sturm Graz kemur þar á eftir með
6. Dick Advocaat, þjálfari Rangers,
sagði eftir leikinn að leikmenn sínir
hefðu leikið vel og skapað sér mun
fleiri marktækifæri en gestirnir.
Mircea Lucescu, þjálfari tyrkneska
liðsins, var sáttur við stigið og
kenndi slæmum aðstæðum um að
leikurinn var lítið fyrir augað en úr-
hellisrigning var í Glasgow á meðan
leikurinn fór fram.
Lærisveinar Guðjóns misstu
af dýrmætum stigum
í 2. deildinni missti Stoke af
dýrmætum stigum og ljóst er að
lærisveinar Guðjóns Þórðarsonar
þurfa að taka sig á ef liðinu á að
takast að komast í 1. deildina.
Stoke fékk á sig mark úr víta-
spyrnu á síðustu mínútu leiksins
gegn Cambridge og lokatölur urðu
1:1. Peter Thorne skoraði mark
Stoke á 41. mínútu leiksins. Brynj-
ar Björn Gunnarsson lék allan
leikinn, Bjarna Guðjónssyni var
skipt út af á 88. mínútu og Stefán
Þórðarson fór af velli á 76. mínútu.
Ólafur Gottskálksson hélt marki
Brentford hreinu annan leikinn í
röð er liðið lagði Colchester, 1:0,
með marki á lokamínútu leiksins.
ívar Ingimarsson lék eins og Ólaf-
ur allan leikinn fyrir Brentford.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson var
ekki í leikmannahópi Walsall sem
gerði jafntefli gegn Peterborough.
Walsall er í toppsætinu með 28
stig, Stoke er í 10.-11. sæti ásamt
Brentford með 17 stig.
I skosku úrvalsdeildinni náði
Celtic fimm stiga forkoti á toppi
deildarinnar með 2:0 sigri gegn
St.Johnstone. Joos Valgaeren og
Henrik Larsson skoruðu mörk
Celtic sitt í hvorum hálfleik.
Golfklúbbur Reykjavíkur
auglýsir laust til umsóknar starf
golf kennara wmtá
Golfkennari hefur yfirumsjón með allri golfkennslu
á golfvöllum Golfklúbbs Reykjavíkur í Grafarholti
og á Korpúlfsstöðum. Æskilegt er að umækjendur
hafi PGA menntun og reynslu af golfkennslu.
Umsóknir sendist til framkvæmdastjóra
Goifklúbbs Reykjavíkur,
Grafarholti/Korpúlfsstöðum,
pósthólf 12068,132 Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 10. nóvember.
Stjórn Golfklúbbs Revkiavíkur.
Bjarki með
sigurmark
MORGUNBLAÐIÐ
Frakkinn Thierry Henry fagnar hér ian
Róm í gærkvöldi. Liðin
mmmmmmmmmmmmmmmmmmaammmmummtmm
Sijja ekki
afram
áHM
SILJU Úlfarsdóttur, fijálsíþróttakonu
úr FH, tókst ekki að komast áfram í
undanúrslit í 400 metra hlaupi í gær á
heimsmeistaramóti unglinga í Suður-
Ameríku. Mótið, sem fram fer fram í
borginni Santiago í Chile, er ætlað
keppendum sem fæddir eru árið 1981
og 1982 og hljóp Silja í 2. riðli og á 3.
braut. Silja kom í mark á tímanum
54,40 sekúndum og varð 18. í röðinni
af þeim 25 keppendum sem luku
keppni en 16 keppendur komust áfram
í undanúrslit. Silja var talsvert frá srn-
um besta árangri sem jafnframt er Is-
landsmet í flokki kvenna 19-20 ára,
54,97 sekúndur. „Ég var ekki sátt við
einbeitinguna hjá mér fyrir hlaupið og
meðan á því stóð. Undanfama daga
hefur verið að myndast meiri andleg
spenna í kringum þetta hlaup og það
var eins og líkaminn hafi ekki verið til-
búinn í átökin, þetta small einfaldlega
ekki saman hjá mór. Núna er 400
metrunum lokið en ég er ánægð með
viðbragðið í 400 metrunum sem gefur
mér aukið sjálfstraust í 200 metra
hiaupið á fimmtudag og þar ætla ég
mér að komast áfram í undanúrslit, “
sagði Silja í samtali við Morgunblaðið í
gær. Þess má geta að íslandsmet Guð-
rúnar Amardóttur í greininni frá ár-
inu 1997 er 52,83 sekúndur. Ingi
Sturla Þórisson, sem er einnig úr FH,
keppir í tveimur greinum í kvöld að ís-
lenskum tíma. Ingi hleypur 110 metra
grindahlaup kl. 19.35 og síðan 400
metra hlaup kl. 20.50.
i