Morgunblaðið - 18.10.2000, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000 C 3
ÍÞRÓTTIR
ísland með í
umsókn um
EM2008
NORÐURLANDAÞJÓÐIRNAR eru farnar að undirbúa fyrir alvöru
sameiginlega umsókn um að halda úrslitakeppni Evrópumóts -
landsliða í knattspyrnu árið 2008. ísland er með í þeim undirbún-
ingi þó Ijóst sé að einungis yrði leikið í hinum fjórum löndunum,
Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi, því fyrirhugað er að
þing UEFA, Knattspyrnusambands Evrópu, yrði haldið hér á landi
í tengslum við keppnina.
ida sínum, Robert Pires, eftir að Pires jafnaði metin fyrir Arsenal gegn Lazio á Ólympíuleikvanginum í
skildu jöfn og þar með tryggði Arsenal sér sæti í 16-liða úrslitum meistaradeildarinnar.
Eftir
Víði
Sigurðsson
Fyrsti fundur undirbúningsnefndar
var haldinn í Kaupmannahöfn í
síðustu viku og Eggert Magnússon,
formaður KSÍ, sat
hann fyrir íslands
hönd. Þar var Pertti
Alaja, iyrrum lands-
liðsmarkvörður
Finna og núverandi framkvæmda-
stjóri finnska knattspymusambands-
ins, ráðinn framkvæmdastjóri nefnd-
arinnar. Hann heíúr störf 1. janúar og
verður með aðsetur í Helsinki.
Norðurlöndin en
ekki Skandinavía
, J>að urðu ákveðin tímamót á þess-
um fúndi því þama var tekið af skarið
um að sótt yrði um keppnina sem „EM
á Norðurlöndum“ en ekki „EM í
Skandinavíu". Þar með erum við orðn-
ir virkir þátttakendur í þessum undir-
búningi, ásamt Færeyingum. Við lögð-
um mikla áherslu á að þing UEFA
yrði haldið hér á landi ef Norðurlöndin
fengju keppnina. Okkar vallarskilyrði
eins og þau em í dag gera okkur ekki
kleift að halda hluta keppninnar hér á
landi en það er mjög spennandi kostur
að fá þingið til okkar. Það verður
kynnt sem „sérstök upplifun" að fara
til íslands en þingið fer fram í tveggja
daga hléinu á milli undanúrslitaleikj-
anna og úrslitaleiksins. Svona þing er
mjög stórt í sniðum og eflaust kæmu
___ Undirbúningur handknattleikslandsliðsins fyrir HM í Frakklandi
Frakkar koma og þátt
taka í móti á Soáni
NÚ erfarið að skýrast hvernig undirbúningi íslenska landsliðsins
í handknattleik fyrir HM í Frakklandi verður háttað og virðist sem
leikir liðsins fyrir keppnina verði sex eða átta. Landsliðið leikur
sinn næsta landsleik 6. janúar gegn Frökkum, sem koma í heim-
sókn til íslands. Þá verða liðnirtíu mánuðirfrá síðustu landsleikj-
unum, sem fóru fram í Svíþjóð 9. og 10. mars sl. - leiki sem Svíar
unnu 28:18 og 30:24.
Þeir leikmenn sem valdir verða í
hópinn og búa hér á landi
hefja æfingar 18. desember og æfa
saman hér á landi fram að ára-
mótum. Strax eftir áramótin koma
þeir leikmenn sem leika erlendis til
liðs við hópinn og æfir hann fram
að þremur landsleikjum við
Frakka, sem verða hér á landi 6., 7.
og 9. janúar.
Að þeim leikjum loknum verður
haldið til Spánar þar sem liðið tek-
ur þátt í fjögurra landa móti 11. til
15. janúar. Vonir standa til að
Bandaríkjamenn komi til landsins
og leiki tvo leiki 17. og 18. janúar.
Liðið heldur síðan til Frakklands
21. janúar og leikur fyrsta leikinn
við Svía í Montpellier þriðjudaginn
23. janúar. í A-riðli eru auk íslands
og Svíþjóðar lið Portúgals, Mar-
okkó, Egyptalands og Tékklands.
Fjórar efstu þjóðirnar í hverjum
riðli komast áfram og verða leikir
með útsláttarfyrirkomulagi eftir
þetta.
Af þessu má sjá að leikir liðsins
verða í mesta lagi átta og ef leik-
irnir við Bandaríkin detta upp fyrir
verða þeir aðeins sex.
Frakkar bjartsýnir fyrir HM
Frakkar eru bjartsýnir á að vel
takist til hjá þeim með framkvæmd
HM í handknattleik í janúar á
næsta ári og segja þeir að nú þegar
séu þeir búnir að selja 70% þeirra
miða sem í boði verða en talið er að
150.000 áhorfendur eigi eftir að sjá
leikina.
Frakkar eru í B-riðli ásamt Arg-
entínu, Kúveit, Alsír, Brasilíu og
Júgóslavíu og fer riðillinn fram í
Nantes. Framkvæmdanefndir Al-
bertville og Marseilles hafa barist
undanfrarna mánuði um að fá
Frakkana til sín að riðlakeppninni
lokinni og nú hefur verið ákveðið
að franska liðið fari til Albertville.
Búast má við að Frakkar verði í
öðru af tveimur efstu sætunum í B-
riðlinum og þar sem Islendingar
eru í A-riðli, sem leikur í kross við
B-riðilinn, má gera ráð fyrir að ís-
lenska liðið fari til Albertville verði
það í 3. eða 4. sæti en til Marseilles
verði það í öðru af tveimur efstu
sætunum. Hinar tvær borgirnar
sem keppt verður í eftir riðla-
keppnina eru Toulouse og Amné-
ville les-Thermes. Undanúrslita-
leikirnir, leikurinn um 3. sætið og
úrslitaleikurinn verða síðan í París.
hingað 500 tíl 1.000 manns í tengslum
við það,“ sagði Eggert Magnússon við
Morgunblaðið í gær.
Þegar Evrópukeppnin var haldin í
Hollandi og Belgíu í sumar tók Lúx-
emborg þátt með því að halda UEFA-
þingið. Fjarlægðin til íslands var í
fyrstu talin standa í vegi fyrir því að
hægt væri að halda þingið hér, en eftir
að bent var á að það tæki ekki lengri
tíma að fljúga til Islands en það tók
þingfulltrúa að fara með rútu frá Hol-,-
landi til Lúxemborgar í sumar var sá
ágreiningur úr sögunni.
Hlutur Færeyinga í keppninni hef-
ur ekki verið ræddur ítarlega en að
sögn Eggerts er sú hugmynd uppi að
þar verði haldin ráðstefna dómara í
tengslum við keppnina.
Rússar yrðu skæðir
keppinautar
Umsóknarfrestur um keppnishald-
ið rennur út á árinu 2002 og ákvörðun
um keppnisstað verður tekin ári síðar.
Reiknað er með umsókn frá Rússum, '
sem eru taldir mjög skæðir keppinaut-
ar, og þá er búist við því að Austurríki,
Ungverjaland og Króatía sendi inn
sameiginlega umsókn.
Fyrirhugað er að leika einn riðil í
hveiju landi og skipta síðan útsláttar-
leikjunum á milli þeirra en úrslitaleik-
urinn færi fram á Nya Ullevi-
leikvanginum í Gautaborg. í öllum
fjórum löndunum eru eða verða leik-
vangar sem rúma minnst 30 þúsund
áhorfendur og á Nya Ullevi er reiknað
með að verði rúm fyrir 55-60 þúsund
áhorfendur þegar byggingu hans er
endanlega lokið. Auk hans bjóða Svíar
upp á Rásunda í Stokkhólmi sem tek-
ur 37 þúsund mannsog eru tilbúnir til
að stækka völlinn í Malmö sem tekurj,
dag 25 þúsund. Finnar eru með Ól-
ympíuleikvanginn í Helsinki sem tek-
ur 40 þúsund áhorfendur og ráðgera
að byggja nýjan 30 þúsund manna völl
í Tammerfors.
í Noregi mun endurbyggður Ulle-
vál rúma 30 þúsund manns. Danir hafa
Parken sem rúmar 42 þúsund, endur-
byggður Bröndby-völlm-inn mun
rúma 30 þúsund, og þá er fyrirhugað
að byggja 30 þúsund manna völl í
Heming eða Árósum á Jótlandi. Til
samanburðar rúmar Laugardalsvöll-
urinn 7 þúsund áhorfendur í sæti og
talsverða endurbyggingu þarf á hon-
um til að hann verði samkeppnishæfur
fyrir keppnina.
Dikembe Mutombo
með malaríu
DIKEMBE Mutombo, leikmaður Atlanta Hawks í bandarísku NBA-
deildinni í körfuknattleik, greindist með vægt tilfelli af malaríu-
sjúkdóminum í gær. Mutombo var nýlega á ferð í heimalandi sínu
Kongó og er talið að hann hafi smitast af sjúkdóminum þar.
Mutombo verður frá keppni í tvær til þijár vikur sem er mun
skemmri tími en hjá Alanzo Mourning sem tilkynnti Pat Riley,
þjálfara liðsins, í gær að hann myndi ekki leika með Miami Heat í
vetur vegna sjaldgjæfs nýrnasjúkdóms. Mutombo og Mourning
léku saman í Georgetown-háskólanum í Washington á sínum tíina.
NÁMSKEIÐ UM
ÍÞRÓTTALÆKNISFRÆÐI
Heilbrigðisráð íþrótta- og Ólympíusambands íslands heldur
námskeið um íþróttalæknisfræði dagana 26.-28. október
næstkomandi.
Námskeiðið er einkum ætlað læknum, sjúkraþjálfurum og
íþróttaþjálfurum og er haldið með styrk frá Ólympíusamhjálpinni
(Olympic Solidarity).
Á námskeiðinu verður m.a. fjallað um meiðsli, forvarnir,
endurhæfingu, áreynsluastma, íþróttasálarfræði, „teipingar",
átröskun, hreyfingu, heilsufar og lyfjamál.
Gestafyrirlesari verður dr. Jón Karlsson, prófessor við
Sahlgrenska háskólann (Gautaborg.
Skráning fer fram á skrifstofu (Sf, (þróttamiðstöðinni Laugardal,
sími 581 3377.
Þátttökugjald er kr. 1.000.
Heilbrigðisráð ÍSÍ.
Þing UEFA verður haidið hér á landi