Morgunblaðið - 18.10.2000, Side 4
Ungur keflvískur markvörður með atvinnumannatilboð frá Englandi
Að mörgu
SNORRA Birgissyni, 16 ára
markverði ár Keflavík, hefur
verið boðinn atvinnumanna-
samningur hjá enska úrvals-
deildarliðinu Charlton Athletics.
Snorri segir samninginn spenn-
andi en ætlar að íhuga málið vel
áður en hann tekur ákvörðun.
„Eg er eiginlega að melta
þetta ennþá, það var talað um að
ég hefði samband við þá í gær
eða í dag en ætli ég reyni ekki að
fá smáfrest enda talað um að ég
fari út um áramétin ef ég sam-
þykki tilboðið. Þetta er stér
ákvörðun enda er ég ungur og
mun ræða þetta vel við foreldra
mína,“ sagði Snorri í samtali við
Morgunblaðið.
Hann sagði samninginn freist-
andi og spennandi, en hann
þyrfti að hyggja að mörgu. „Ég
er ekki nema 16 ára og er
nýbyrjaður í Fjölbraut við Ár-
að hyggja
múla þar sem ég er á félags-
fræðibraut. Ef af þessu yrði þá
er um að ræða fullan atvinnu-
mannasamning þannig að það
eru engir skélasamningar inni í
myndinni. Ég yrði þá að halda
áfram námi með fjartækni eða
einhverju slíku og ég veit ekki
hvernig það gengi með því að
æfa á fullu með félaginu. Ég
neita því hins vegar ekki að
þetta er freistandi samningur,
bæði út frá íþréttinni sem slíkri
og eins fjárhagslega," sagði
Snorri.
Hann lék í sumar með 2. og 3.
flokki Kefiavíkur en hann er á
siðara árinu í þriðja flokki. I
fyrrasumar lék hann hins vegar
með Víkingum frá Ólafsvfk í
meistaraflokki og stéð sig vel.
Hann lék tvo landsleiki í sumar
með ungmennalandsliðinu skip-
uðu leikmönnum 16 ára og yngri.
Walsall
vildi ekki
lána Sigurð
ENSKA 2. deildarliðið
Walsall fékk um helgina
beiðnir frá tveimur félög-
um um að fá framherjann
Sigurð Ragnar Eyjélfsson
leigðan í mánaðartíma. Það
voru 3. deildar liðið Kidd-
erminster og skoska 1.
deildar liðið Airdrie sem
vildu fá Sigurð leigðan, en
Paul Taylor framkvæmda-
stjéri Walsall neitaði báðum
liðum. Sigurður er á sölu-
lista hjá félaginu sem vill fá
pening fyrir leikmanninn.
Walsall er því ekki á þeim
buxunum að leigja hann í
bili.
Brentford, lið þeirra ív-
ars Ingimarssonar og Ólafs
Gottskálkssonar, hefur
einnig fylgst náið með Sig-
urði en ekki boðið í hann
enn sem komið er.
Guðmundur hættir í KR
GUÐMUNDUR Benediktsson, knattspyrnu-
maður, mun yfírgefa herbúðir íslandsmeist-
ara KR þegar samningur hans við félagið rennur
út um áramótin. Samningaviðræður á milli Guð-
mundar og rekstarfélags KR sigldu í strand en
eins og Morgunblaðið greindi frá á dögunum hafn-
aði Guðmundur nýjum samningi frá KR-ingum og
gerði gagntilboð.
„KR hafnaði þessu gagntilboði frá mér og þar
með var ekki annað að gera en að slíta þessum við-
ræðum,“ sagði Guðmundur í samtali við Morgun-
blaðið.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins átti nýr
samningur KR við Guðmund að fela í sér lækkun á
ýmsum liðum og það sætti Guðmundur sig ekki við.
Guðmundur er 26 ára gamall og hefur leikið í 6
ár með KR-ingum en hann kom til liðs við KR frá
Þór á Akureyri árið 1995. Af þeim 110 leikjum sem
Guðmundur hefur spilað í efstu deild eru 91 fyrir
KR og mörkin 36 en hann skoraði 4 íyrir Þór í 19
leikjum. Guðmundur varð tvívegis íslands-
meistari með KR, 1999 og 2000 og bikarmeistari
árin 1995 og 1999. Hann var kjörinn leikmaður
ársins af leikmönnum í lokahófi KSÍ á slðsta ári.
Líklegast að ég
spili heima
En hvað tekurnúna viðhjá Guðmundi?
„Ég mundi segja að það sé langlíklegast að ég
spili áfram hér heima. Nokkur félög hafa haft
samband við mig og vonandi get égákveðið sem
fyrst til hvaða félags ég fer. Það er best fyrir alla
aðila. Ég er svo sem ekki alveg búinn að afskrifa
útlönd en þessi mál komast vonandi á hreint
mjög fljótlega," sagði Guðmundur.
Þar með er ljóst að KR-ingar missa tvo af sín-
um bestu framherjum en sem kunnugt er fer
Andri Sigþórsson til austurríska liðsins Salzburg
eftir áramót. Meistararnir eru því farnir að leita
fyrir sér að leikmönnum til að fylla skörð þeirra.
Stjörnumaðurinn Veigar Páll Gunnarsson er
einn þeirra leikmanna sem KR hefur rætt við og
komi ekkert út úr ferð hans hjá norska liðinu
Strömsgodset er líklegt að semji við vesturbæj-
arliðið.
■ ALONZO Mouming, miðherjinn
kröftugi, leikur ekkert með Miami
Heat í NBA-deildinni í körfuknatt-
leik í vetur. Mouming er með
nýmasjúkdóm og þarf að fara í sex
mánaða meðferð vegna hans.
■ ANDY Cole komt í gegnum æf-
ingu hjá Manchester United í gær
og þar með er hann klár í slaginn
gegn PSV í meistaradeildinni í
kvöld. Cole lék ekki með United
gegn Leicester á laugardag vegna
ökklameiðsla og var óttast að hann
gæti ekki leikið. United ætti þar
með að geta stillt upp sínu sterkasta
lið en David Beckham og Gary Nev-
ille hafa báðir náð sér af meiðslum.
■ GUÐMUNDUR Viðar Afefeogfé-
lagar í Malmö voru einni mínútu frá
því að tryggja sér sæti í sænsku úr-
valsdeildinni í knattspymu um síð-
ustu helgi. Þeir gerðu þá jafntefli
við Átvitaberg á útivelli, 3:3, og
heimaliðið jafnaði metin mínútu fyr-
ir leikslok._
■ MALMÖ hefði komist upp með
sigri en liðið á tvo leiki eftir og dug-
ar tvö stig í viðbót til að fylgja Djur-
gárden upp. Guðmundur, sem er 19
ára og lék alla leiki 21 árs landsliðs-
ins í ár, hefur leikið flesta leiki
Malmö í ár en hann hóf leikinn á
varamannabekknum og kom inn á
eftir rúman hálftíma.
■ LANDSKRONA, sem er með
Grétar Hjartarson í láni frá Lille-
ström, er í þriðja sæti og getur enn
farið upp fyrir Malmö. Landskrona
burstaði Brage, 5:0, en Gunnar Sig-
urðsson lék í marki Brage. Grétar
lék síðustu 10 mínútur leiksins og
skoraði ekki.
■ ENSKA 1. deildarliðið Preston,
lið Bjarka Gunnlaugssonar, hefur
fengið þýska framherjann Eric
Meijer að láni frá Liverpool í mán-
uð. Meijer er ætlað að fylla skarð
Steve Basham sem fótbrotnaði í leik
með Preston um síðustu helgi.
■ MANCHSTER City mun í dag
ganga frá kaupum á Richard Dunn,
21 árs gömlum varnarmanni frá
Everton. City greiðir 370 milljónir
fyrir Dunn sem er írskur landsliðs-
maður og mun hann skrifa undir
fimm ára samning við félagið.
■ LÍBERÍUMAÐ URINN George
Weah mun skrifa undir eins árs
samning við franska 1. deildarliðið
Marseille í vikunni. Weah sagði skfl-
ið við Manchester City á mánudag-
inn en kappinn var ósáttur við að fá
ekki að spila meira.