Morgunblaðið - 20.10.2000, Blaðsíða 3
MXJRGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20.: OKTÓBER 2000 D[ | 3
BÍÓBLAÐIÐ
Unforgiven: Eastwood ogGene
Hackman með Óskarsverðlaunin
fyrir meistaraverk leikstjórans.
True Crime: Misráðin spennumynd.
Perfect Worlcl: Þrátt fyrir nærveru
Kevins Costners tókst Eastwood
ekki vel upp í þessari mynd.
Nýi smellurinn. Space Cowboys:
Eastwood (yst t.h.) með James
Garner, Tommy Lee Jones og Donald
Sutherland.
In the Line Of Rre: Eastwood með
Rene Russo íprýðilegri spennu-
mynd.
Absolute Povver: Eastwood með
gomlum félaga úr Unforgiven. Gene
Hackman.
m ««.
Eftir 22 bíómyndir sem leikstjóri, 12
sem framleióandi og vel á sjöunda tug
leikhlutverka stendur Clint Eastwood á
enn einum hátindinum. Nýjasta mynd
hansT Geimkúrekarnir, sýnir lítil ellimörk
á þessari helstu goösögn bandarískra
kvikmynda og hefur verið ein mesta aö-
sóknarmynd vestra undanfarnar vikur.
Árni Þórarinsson skrifar um einstæöan
feril Eastwoods en Geimkúrekarnir verð-
urfrumsýnd hérlendis 27. október
ROWDY Yates hét hann, kú-
rekinn sem Clint Eastwood
gerði frægan og gerði Clint
Eastwood frægan. Hár og
grannur og lágmæltur í leikstíl sín-
um, ef leikstíl skyldi kalla, svipbrigð-
in fá og andlitið í senn harðneskjulegt
og viðkvæmnislegt. Þannig steig
Eastwood fram á sjónarsviðið í einni
best skrifuðu sjónvarpssyrpu Banda-
ríkjanna, Rawhide, sem lék um skjái
á árunum 1959 til 1966 og sagði frá
kúrekaflokki Gils Favors, leiknum af
Eric Fleming, sem rak beljuhjörð frá
Texas til Kansas og lenti í alls kyns
ævintýrum á þeirri löngu leið. Nú
leikur Eastwood lausum hala sem
geimkúi-eki í Space Cowboys, í félagi
við nokkra prýðilega samtíðarmenn
sína, James Garner, Donald Suther-
land og Tommy Lee Jones og slær í
gegn eina ferðina enn. Drengjalegt
andlit Rowdy Yates hefur fyrir löngu
vikið fyrir rúnaristum misjafnrar
lífsreynslu. En glettnin í svipbrigða-
leysinu og reisnin í limaburðinum er
til marks um mann sem stoltur getur
litið yfu- farinn veg. Clint Eastwood
hefur hægt og bítandi og af stakri
hógværð vaxið úr samanbitinni töff-
arahetju í flinkan leikstjóra í hinni
epísku bandarísku hefð og á köflum
metnaðarfullan listamann.
Það blés ekki byrlega í byrjun.
Clinton Eastwood jr. fæddist á
krepputímum, 31. maí árið 1930 og
þvældist æskuárin með bensínaf-
greiðslumanninum föður sínum um
alla vesturströndina. Clinton yngri
náði sjaldnast að vera í sama skólan-
um lengur en eina önn í einu og eftir
að hann útskrifaðist úr gagnfræða-
skóla vann hann um hríð í sama starfi
og faðirinn, eða sem skógarhöggs-
maður eða verkamaður í stálbræðslu.
Hann gekk í herinn en ekkert varð af
þátttöku hans í Kóreustríðinu; hann
var í fríi þegar flugvélin sem hann
var í hrapaði í Kyrrahafið og East-
wood synti sex kílómetra til lands. Þá
var hann gerður að sundkennara
annarra hermanna. Tveir félagar
hans í hernum voru leikararnir David
Janssen (Flóttamaðurinn) og Martin
Milner og þeir hvöttu hann til að
reyna fyrir sér í leiklistinni. Honum
skolaði á land í Hollywood órið 1954,
24 ára að aldri, og náði samningi hjá
Universal, lék aukahlutverk í mynd-
um á borð við Franeis In the Navy,
Revenge Of the Creature, Tarantula
og First Traveling Saleslady. Hann
missti vinnuna þegar einhverjir yfir-
menn Universal komust að þeirri nið-
urstöðu að barkakýli hans væri of
stórt!
■
Nafnlausi maðurinn: Hvessir
augu og fýlirgrön...
Hann gafst ekki upp, vann fyrir
sér með því m.a. að grafa sundlaugar
fyrir stjömur sem hann átti síðar eft-
ir að skáka af hvelfingunni. Árið 1959
fékk hann, þrátt fyrir likamslýti og
vegna þess að einhverjum stjóranum
fannst hann líta út eins og kúreki,
annað aðalhlutverkið í Rawhide og
náði þokkalegum frama í sjónvarpi.
Þegar hann átti frí frá Rowdy Yates í
nokkrar vikur árið 1964 tók hann að
sér hlutverk í hraðsoðnum ítölskum
vestra, Hnefafylli af dollurum - A
Fistful of Dollars eftir Sergio Leone.
Hann gerði það sér til afþreyingar og
fyrir túkalla, en vissi ekki fyrr en
myndin hafði gert hann heimsfræg-
an.
Nafnlausi maðurinn verður nafn
Eastwood lék aðalhlutverkið í
Hnefafylli af dollurum með saman-
bitnu og svölu kæruleysi. Persónan
„nafnlausi maðurinn" var ískaldur
harðjaxl, hvessti augun undir slút-
andi hattbarði, beit á jaxlinn, fýldi
grön og tuggði svarta vindla, elding-
arsnöggur með skammbyssuna, sem
hann skaut af til hægri og vinstri en
samt eftir eigin siðalögmálum. Þessi
persóna og sérstæður stíll og hand-
bragð Leones, auk seiðmagnaðrar
tónlistar Ennios Morrecones, gerðu
Hnefafylli af dollurum að vinsælda-
smelli um allan heim. Næsta sutnar,
1965, hélt því Eastwood aftur til ítal-
íu, smeygði sér að nýju í herðaskjól
nafnlausa mannsins og þeir Leone
gerðu tvær myndir til viðbótar,
myndir sem sköpuðu nýtt hugtak í
kvikmyndasögunni - spaghettivestr-
ann. Fyrir nokkra dollara í viðbót -
For a Few Dollars More og Hinn
góði, hinn vondi og hinn ljóti - The
§nSlai
Good, the Bad And the Ugly voru,
eins og fyrsta myndin, í raun og veru
skopstælingar á gömlu bandarísku
vestrunum en höfðu slík áhrif að síð-
an hafa þær sjálfar verið skopstæld-
ar.
Upphefð sú, sem nú mætti East-
wood í Bandaríkjunum, kom því að
utan. Hann notfærði sér nýjá víg-
stöðu af klókindum og tók að sér
hlutverk af ýmsu og ólíku tagi. Mestu
máli skipti þó það samstarf sem tókst
með honum og gamalreyndum leik-
stjóra, Don Siegel. Það hófst með
löggumyndinni Coogan’s Bluff
(1968), vestranum Two Mules For
Sister Sara (1970) og bar ríkulegan
ávöxt í The Beguiled (1971), einni
bestu mynd Siegels og helsta leika-
freki Eastwoods fram að þessu.
Hann leikur hermann í borgarastríð-
inu sem særður er færður til umönn-
unar í kvennaskóla og veldur þar
miklu fjaðrafoki. Þetta er lágstemmd
mynd á yfirborðinu en undir krauma
ástríður og ógnir. The Beguiled, sem
Eastwood metur enn mest af verkum
sínum, náði ekki almannahylli en það
gerði svo um munaði önnur mynd,
sem þeir Siegel gerðu þetta sama ár,
1971. Dirty Harry markaði ekki ós-
vipuð tímamót á ferli Eastwoods og
spaghettivestrar Leones höfðu áður
gert. Hlutverk harðsoðnu löggunnar
Harry Callaghan, sem ekki skirrist
við að útrýma illþýði með hvaða ráð-
um sem er („Go ahead, punk, make
my day“, er fleyg setning úr mynd-
inni), var ætlað Frank Sinatra en
þegar sá bláeygi var nógu bláeygur
til að hafna því stökk Eastwood til á
síðustu stundu. Og sér ekki eftir því.
Dirty Harry gat af sér fjórar fram-
haldsmyndir, sem reyndar þynntust
út smám saman, og lagði grunninn að
nýrri tegund af harðsoðnum löggu-
myndum.
Leikstjórinn stígur fram
Dirty Harry markaði óbeint önnur
tímamót fyrir Eastwood. Þegar Don
Siegel veiktist í nokkra daga meðan
tökur stóðu yfir hljóp hann sjálfur í
skarðið og leikst'ýrði atriðinu þar sem
ein persónan hyggst fremja sjálfsvíg
með því að stökkva niður af húsi. Og
1971 var stórt og annasamt ár hjá
Eastwood; hvernig sem hann fór að
því leikstýrði hann sinni fyrstu mynd,
spennutryllinum Play Misty For Me.
Þar sýndi hann strax drjúga hæfi-
leika í mögnun óhugnaðar og laðaði
fram eftirminnilegan leik hjá Jessica
Walter í hlutverki galins aðdáanda
útvarpsmanns, sem Eastwood lék
sjálfur. Og lærifaðirinn Don Siegel
tók að sér hlutverk barþjóns.
Næstu fimmtán árin var Eastwood
vinsælasta kvikmyndastjama heims
og leikstýrði og framleiddi fjölda
mynda hjá eigin fyrirtæki, Malpaso.
Skipta má myndunum gróflega í
þrennt. Eastwood játaði skuld sína
við Leone með sérstæðum, stílfærð-
um vestrum, High Plains Drifter
(1973) og Pale Rider (1985), en gerði
einnig einkar fallegan, hefðbundinn,
epískan hefndarvestra The Outlaw -
Josey Wales (1976). Hann leikstýrði
nokkrum jaðarkómedíum og lék í
sumum sjálfum, en engin þeirra er
sérlega eftirminnileg (Breezy, Hon-
ky Tonk Man, Bronco Billy, t.d.). Og
hann lék áfram harðjaxla af ýmsum
toga í spennumyndum, sem sumar
SÍMASKRÁp
ÞJÓÐSKRÁp
VEFSÍÐUSKRÁp
PÓSTNÚMERASKRÁ,
NETFANGASKRÁ.
torgis
ÍSLENSKA UPPHAFSSÍBANI