Morgunblaðið - 24.10.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.10.2000, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000 HANDKNATTLEIKUR MORGUNBLAÐIÐ Fram slapp með skrekkinn Sókriin ekkert augnayndi Góð vörn Framara Það var fyrst og fremst góður varnarleikur Framara sem færði þeim sigurinn. Flöt og hávaxin 6:0- vörn þeirra var lengst af mjög traust með þá Guðlaug Arnórsson, Inga Þór Guðmundsson og Gunnar Berg Viktorsson sem bestu menn. Sóknarleikur þeirra bláklæddu var hins vegar ekkert til að hrópa húrra fyrir. Hann var á köflum vandræða- legur og hnoðkenndur og á því þurfa Framarar að ráða bót á. Ljósu punktararnir í sóknarleikn- um var frammistaða Hjálmars Vil- hjálmssonar sem skoraði sex mörk, sum með miklum þrumufleygum, og Róberts Gunnarssonar línumanns sem ávallt stendur fyrir sínu. Mosfellingar mistækir um að spila afar illa. Menn börðust ekki og voru að gera mikið af mis- tökum. í hálfleik töluðum við um að við ættum heilmikið inni og náðum að mestu að fylgja því eftir sem við ætluðum að gera. Þegar upp er staðið byrjuðum við of seint og það gengur ekki upp að mæta í Framhúsið og ætla að spila af 50% getu í 30 mínútur. Betra liðið vann í þessum leik, Framarar börðust í 60 mínútur en ekki við,“ sagði Asgeir Sveinsson, aðstoðarþjálfari Aftureldingar, við Morgunblaðið eftir leikinn. Að- sjmrður um atvikið í lokin sagði Asgeir: „Eg man ekki eftir að hafa séð oft dæmt á að maður stígi inn í teiginn en ég vil ekki tjá mig meira um það.“ leik en fram að því hafði Aftureld- ing aðeins skorað fimm mörk. Mos- fellingar tóku of seint við sér í seinni hálfleik en þeir sýndu þá sitt rétta andlit, fóru að berjast og taka á Frömurum í vörninni og voru hársbreidd frá því að snúa töpuðum leik sér í vil. Gintas Galkauskas hélt sínum mönnum á floti í fyrri hálf- leik en í þeim síðari vöknuðu Gint- aras og línumaðurinn Magnús Már Þórðarson af værum blundi. Horna- spil Mosfellinga var lélegt og til að mynda komst Páll Þórólfsson ekki á blað en það er leikmaður sem vana- lega skilar sæmilegum skammti af mörkum fyrir sitt lið. Við vorum að spila nokkuð góða vörn en í síðari hálfleik misst- um við mikið menn útaf og fyrir vikið kom los á vörnina. Við vitum að sóknarleikur okkar er ekkert augnayndi en við eigum eftir að slípa hann til þegar á veturinn líð- ur og laga margt, meðal annars ég sjálfur. En meðan vörnin heldur erum við nokkuð sáttir. Við vorum heppnir að klúðra þessu ekki niður í lokin þegar þeir fengu dæmt vítakastið. Maður veit að þessi regla er til í lögunum en ég hef ekki oft séð reyna á hana,“ sagði Björgvin Björgvinsson, leikstjórn- andi Framara, í samtali við Morg- unblaðið eftir leikinn. Við komum einfaldlega ekki til- búnir til fyrri hálfleiksins og vor- FRAMARAR tylitu sér í toppsætið í 1. deild karia í handknattleik þegar þeir iögðu Aftureldingu, 25:24, í leik sem einkenndist af mikilli baráttu og pirringi leikmanna jafnt sem forráðamanna. Mosfellingar, sem áttu undir högg að sækja allan tímann, fengu kjörið tækifæri til að knýja fram framlenginu þegar þeir fengu dæmt vítakast 20 sekúndum fyrir leikslok. Bjarki Sigurðsson, þjálfari og leikmaður Aftureldingar, framkvæmdi vítakastið og skoraði en dómarar leiksins dæmdu það ógilt og vildu meina að Magnús Þór Þórðarson hefði stigið innfyrir punktalínuna áður en boltinn fór f mark Framara. Heimamenn fengu því dæmt aukakast, náðu að halda boltanum út leiktímann og tryggja sér sigurinn og Framarar því með fullt hús stiga eftir fimm umferðir. Guðmundur Hilmarsson skrifar Fram og Afturelding eru tvö þeirra liða sem spáð er vel- gengni í vetur en handboltinn sem þessi tvö lið buðu upp á í Safamýrinni reis ekki ýkja hátt. Framarar lögðu grunn að sigri sínum í fyrri hálfleiknum. Þeir náðu mest sex marka forskoti og héldu undir- tökunum allt þar til 7 mínútur voru til leiksloka. Þá minnkuðu Mosfell- ingar muninn í tvö mörk, 23:21, og þegar tvær mínútur voru til leiks- loka munaði aðeins einu marki, 25:24, þegar Bjarki Sigurðsson skoraði úr vítakasti. Framarar misstu knöttinn 35 sekúndum fyrir leikslok, Mosfellingar geystust í sókn og Hjörtur Arnarson fiskaði vítakast 20 sekúndum fyrir leikslok. Bjarki skoraði úr vítakastinu en eins og áður er lýst var markið dæmt af og Framarar hrósuðu happi og tveimur dýrmætum stig- vikið misstu Mosfellingar Framara of langt fram úr sér. Leikur þeirra lagaðist til muna þegar Bjarki Sig- urðsson kom inná eftir 24 mínútna Mér er til efs að lið Aftureldingar hafi gert eins mörg mistök í einum hálfleik og það gerði í fyrri hálf- leiknum gegn Fram. Hver sóknin á fætur annarri rann út í sandinn vegna klaufalegra mistaka og fyrir Morgunblaðið/Golli Hjálmar Vilhjálmsson lék vöm Aftureldingar oft grátt og skoraði sex mörk. Batamerki hjá Blikum „EINI Ijósi punkturinn í þessum leik hjá okkur er að við unnum og fengum okkar fyrstu stig í vetur,“ sagði Magnús Sigurðsson, leik- maður Stjörnunnar, eftir 29:26-sigur á Breiðabliki í Ásgarði á sunnudag. Magnús, sem hefur ekki getað tekið að fullu þátt í leikjum Stjörnunnar í vetur vegna meiðsla, lék sinn fyrsta heila leik og virðist vera búinn að ná sér að fullu. „Ég tognaði aftan í læri í lok ágúst og hef ekki getað beitt mér að fullu en þetta hélt í kvöld. Ég átti von á því að sigur okkar myndi verða stærri en kannski er það einmitt orsök þess að það tókst ekki, við fórum ekki í þennan leik af nægilega mikilli alvöru,“ sagði Magnús. Leikur Stjörnunnar og Breiða- bliks var ágætlega leikinn og það eru greinileg batamerki að sjá á leik liðsins frá því í fyrstu leikjunum. Blikarnir sitja þó sem fyrr á botni deildarinnar, ásamt nágrönnum sínum úr HK, og eru bæði lið án stiga. Blikarnir byrjuðu leikinn heldur betur en heimamenn og höfðu forystuna allt fram undir miðjan hálfleik þegar Stjömumenn Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar jöfnuðu og náðu eins marks forskoti og .fór þar fremstur i flokki Birkir ívar Guðmundsson markvörður sem oft varði frábærlega. En Blik- arnir voru mjög ákveðnir og jöfn- uðu leikinn í 13:13 fyrir leikhlé. Stjörnumenn hafa sjálfsagt verið teknir rækilega í bakaríið í leik- hléinu því það var algjörlega nýtt lið sem mætti til leiks eftir hlé. Eduard Moskalenko, sem ekki tók þátt í leik liðsins í fyrri hálfleik, mætti til leiks og við það batnaði leikur Garðbæinga til muna. Á sama tíma gætti taugaveiklunar í leik Breiðabliks sem glutraði bolt- anum frá sér þrisvar sinnum í röð í stöðunni 16:14 en Björgvin Rúnars- son skoraði þá þrjú mörk í röð úr hraðaupphlaupum og gerði út um leikinn. Blikarnir gáfust þó ekki upp, klóruðu vel í bakkann á síð- ustu mínútum leiksins en máttu engu að síður sætta sig við fimmta tapleik sinn í deildinni, 29:26. Stjömumenn voru síður en svo sáttir við leik sinn gegn neðsta liði deildarinnar, sem hefur verið kjöl- dregið í fyrri leikjum sínum í vetur. Birkir Ivar Guðmundsson mark- vörður hélt þeim á floti í leiknum og þeir geta fyrst og fremst þakkað honum fyrir að hafa ekki verið skildir eftir á botni deildarinnar. Eduard Moskalenko breytti leik liðsins í síðari hálfleik eins og áður er talið. Hann kom inní leikinn af miklum krafti og reif félaga sína áfram. Arnar Pétursson og Björg- vin Rúnarsson áttu ágætan leik í liði Stjörnunnar en aðrir léku undir getu. Blikarnir eru sjálfsagt afar ósáttir að hafa enn ekki fengið stig í deildinni. Staða þeirra þar er þó sú sama og þeim var spáð í haust, svo það ætti ekki að koma þeim á óvart. Leikurinn gegn Stjömunni færir þeim þó ömgglega aukið sjálfstraust fyrir komandi leiki. Leikur liðsins var lengst af þokka- lega vel skipulagður og agaður bæði í vöm og sókn. Það sem uppá vantar er fyrst og fremst það að leikmenn liðsins haldi einbeitingu allan leikinn og láti ekki grípa sig í leikleysu og glutra þannig niður sóknum án þess að ljúka þeim með skoti. Zoltan Belányi lék best í liði Breiðabliks ásamt Rósmundi Magn- ússyni markverði. Kubu- maður til HK? HK er á höttunum á eftir liandknattleiksmanni frá Kúbu til að styrkja liðið í baráttunni í 1. deild en Kópavogsliðið hefur tapað fyrstu fimm leikjum sínum í deildinni. Um er að ræða örvhenta skyttu, fyrrver- andi landsliðsmann sem lék með Kúbu á HM hér á landi fyrir fimm árum. Hægri vængurinn hjá liðinu hefur ekki verið svipur hjá sjón eftir að Sigurður Sveinsson lagði skóna á hilluna og Hjálmar Vilhjálmsson gekk til liðs við Fram. Það er Kúbumaðurinn hjá HK, Jal- iesky Garcia, sem hefur milligöngu í inálinu. Áður hafði HK reynt að fá annan landa hans, 25 ára núver- andi landsliðsmann, en hann fékk ekki leyfi til að yfirgefa Iandið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.