Morgunblaðið - 24.10.2000, Blaðsíða 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000
KNATTSPYRNA
MORGUNBL7AÐIÐ
Figo fékk
að kenna
PORTÚGALINN Luis Figo fékk vægast sagt óblíðar móttökur frá
stuðningsmönnum Barcelona þegar hann mætti á gamla heima-
völl sinn, Camp Nou, í fyrsta skipti eftir að hann gekk í raðir erki-
fjendanna í Real Madrid. 98.000 áhorfendur sem troðfylltu leik-
vanginn í Katalóníu létu Figo fá það óþvegið enda reiðin og
sárindin enn til staðar hjá blóðheitum stuðningsmönnum félags-
ins eftir að Figo ákvað að segja skilið við Barcelona og taka risa-
tilboði frá Real Madrid.
egar Figo hljóp inn á völlinn
ætlaði allt um koll að keyra og
hávaðinn var slíkur að Figo tók fyr-
ir eyrun enda glumdu yfír leik-
vanginn fúkyrði um Portúgalann
snjalla. Þá blístruðu stuðningsmenn
Börsunga í hvert skipti sem Figo
ifékk knöttinn og hentu í hann laus-
legum munum þegar hann nálgaðist
áhorfendastúkurnar. Um allan
leikvanginn voru skilti og borðar
með niðrandi ummælum um Figo
eins og: „Við höfum 10 milljón
ástæður fyrir að hata þig, Júdas“.
Figo var í strangri gæslu hins 22
ára gamla Carles Puyol allan leik-
tímann og honum er hrósað í há-
sterkt í spænskum fjölmiðlum fyrir
að hafa haldið aftur af dýrasta
knattspyrnumanni heims.
„Ég valdi Puyol til að leika gegn
Figo vegna þess að hann er svo
fljótur og þó svo að hann hafi þurft
að skipta um kant þá breytti það
ekki því að hann átti hreint frábær-
an leik,“ sagði Ferrer, þjálfari
Bareelona.
„Ég var mjög sáttur við mína
frammistöðu en ég var orðinn ansi
þreyttur undir lokin. Við vissum að
yrðum að hafa góðar gætur á Figo
enda frábær leikmaður þar á ferð,“
sagði Puyol sem kostaði Börsunga
4,8 milljörðum króna minna en
Figo.
Figo var langt frá sínu besta í
leiknum en var samt hættulegasti
leikmaður Real Madrid í leiknum.
Börsungar unnu orrustuna inni á
vellinum og unnu mjög svo sann-
gjarnan sigur, 2:0. Luis Enrique,
fyrrum leikmaður Madridinga,
skoraði fyrra markið og Simao
Sabrosa, landi Figos sem fyllti
skarð hans þegar hann skipti yfir í
Real Madrid, skoraði síðara markið.
„Þetta var sigur liðsheildarinnar.
Það var gott jafnvægi í mínu liði
milli varnar og sóknar og við hefð-
um getað gert út um leikinn miklu
fyrr,“ sagði Llorene Serra Ferrer,
þjálfari Börsunga, eftir leikinn.
Valencia skaust í toppsætið með
1:0 sigri gegn Real Zaragoza og
skoraði Gaizka Mendieta sigur-
markið sex mínútum fyrir leikslok.
Meistararnir í Deportivo máttu
sætta sig við jafntefli á heimavelli
gegn Real Mallorca. Juan Carlos
Valeron kom meisturunum yfir á
78. mínútu en Albert Luque jafnaði
fyrir Mallorca fimm mínútum fyrir
leikslok.
Þórður Guðjónsson var ekki í liði
Las Palmas sem vann góðan 0:3 úti-
sigur á Atletico Bilbao.
Taylor stjómar
enska landsliðinu
PETER Taylor var á sunnudag
ráðinn sem timabundinn
Iandsliðsþjálfari Englands og
aðstoðarmaður hans var ráðinn
Steve McLaren, þjálfari Man-
chester United, og munu þeir
stjórna liðinu í vináttuleik gegn
Itölum þann 15. nóvember á
Ítalíu.
Taylor er sem kunnugt er
knattspyrnustjóri Leicester en
hann stjórnaði áður ung-
mennalandsliði Englands.
Enska knattspyrnusambandið
tilkynnti ráðningu Taylors eftir
að því mistókst að fá leyfí hjá
Newcastle til að ræða við Bobby
Robson knattspyrnustjóra um
að taka hugsanlega við landslið-
inu í næstu sjö leiki.
„Við fórum eftir settum
reglum en þetta er nú undir
Newcastle komið. Dyrnar eru
enn opnar fyrir Robson,“ sagði
David Davies forseti knatt-
spyrnusambandsins. „Með ráðn-
ingu tvímenninganna erum við
að hugsa til framtíðar og viljum
að Peter og Steve séu báðir
hluti af henni,“ bætti hann við.
Knattspymusambandið leitar
þó enn að framtíðarlandsliðs-
þjálfara enda er starf þeirra
Peters og Steves bundið við
þennan eina leik til að byrja
með.
Portúgalski landsliðsmaðurinn Luis Figo hjá Real Madrid faðmar landa sinn og fyrrverandi sam-
herja hjá Barcelona, Simao Sabrosa, eftir leik Barcelona og Real Madrid. Stuðningsmenn Barcel-
ona létu Figo fá það óþvegið.
Rómverjar
með fullt hús
Lið Roma er með fullt hús stiga
eftir þrjár umferðir í ítölsku 1.
deildinni í knattspymu. Roma, sem
virðist til alls líklegt í vetur, vann
sannfærandi sigur á Vicenza, 3:0, og
svo virðist að tilkoma Argentínu-
Lokeren tapaði heima
Þrátt fyrir að hafa verið mun
meira með boltann urðu leik-
menn Lokeren að sætta sig við tap á
móti Antwerpen, 0:1,
'Kristján f belgísku 1. deild-
Bernburg inni í knattspyrnu og
skrifar það á heimavelli þar
frá Belglu sem engum leik-
manni þeirra tókst að nýta hin
gullnu færi sem leikurinn bauð upp
á.
Leikurinn var illa leikinn og hefði
JLokeren átt að fara með stigin þrjú.
Antwerpen lék stífan vamarleik en
Lokeren sótti grimmt án þess að
skapa verulega hættu og var fyrri
hálfleikur ekki vel leikinn. Lokeren
var betri aðilinn í slæmum leik. Arn-
ar Grétarsson átti gott fast skot sem
fór rétt fram hjá á 28 mínútu. í síðari
hálfleik átti Amar Grétarsson að
gera út um leikinn er hann skaut af
fremur stuttu færi en markmaður
Antwerpen, Mampaey Kris, náði að
verja með fætinum. Rétt þar á eftir
kom Fatokun inn á og náði hann að
skora á 61. mínútu eftir sína fyrstu
snertingu og eftir að hafa verið að-
eins inni á í 15 sekúndur. Við þetta
mark dofnaði yfir leikmönnum Lok-
eren og virtust sumir þeirra sætta
sig við tapið strax. Arnar Viðarsson
sat á beknum og kom ekki inn á en
hann verður trúlega með í næsta leik
á móti Anderlecht þar sem varnar-
tengiliður Lokeren Vanic er búinn að
fá þrjú gul spjöld. Lokeren lék hrein-
lega illa enda vantaði allt skipulag í
samleikinn og er von forráðamanna
Lokeren að þetta batni er Auðun
Helgason og Rúnar Kristinsson
koma.
mannsins Gabriel Batistuta í liðið
hafi verið Roma liðinu góð vítamín-
sprauta. Batistuta skoraði þriðja
mark sinna manna en áður höfðu
Francesco Totti og Vincenzo Mont-
ello skorað fyrir liðið sem hefur nú
skorað níu mörk í leikjunum þremur.
Stórleikur umferðarinnar var við-
ureign AC Milan og Juventus en lið-
in skildu jöfn á San Síró leikvangn-
um í Mflanó, 2:2. Varamennirnir
Antonio Conte og franski landsliðs-
maðurinn David Trezeguet voru
hetjur liðs Juventus en þeim tókst að
jafna metin fyrir sína menn á síðustu
20 mínútum leiksins. Öll mörkin voru
skoruð í síðari hálfleik. Heimamenn
virtust á góðri leið með að tryggja
sér sigur þegar Massimo Ambosini
og Andriy Shevchenko skoruðu með
tveggja mínútna millibili í upphafi
síðari h'Ifh’'ks. Franski landsliðs-
maðurinn'' "vvid Trezeguet gaf Juv-
entus von þegar hann minnkaði
muninn um miðjan síðari hálfleik og
Conte jafnaði svo metin með glæsi-
legu skoti á lokamínútu leiksins.
Hvorki gengur né rekur hjá Inter
þrátt fyrir þjálfai-askiptin. Marco
Tardelli þjálfari Inter sá sína menn
bíða ósigur gegn Udinese, 3:0, og
fram undan er erfið barátta liðsins
um að komast í hóp þeirra bestu á
Italíu.
Meistarar Lazio hafa ekki byrjað
vel og eftir 2:0 ósigur gegn Verona er
liðið fimm stigum á eftir grönnum
sínum í Roma. Sigur Verona var
sanngjam og til að strá salti í sár
Lazio-liðsins misnotaði júgó-
slavneski landsliðsmaðurinn Slavisa
Mihajlovic vítaspyrnu á lokamínútu
leiksins.
Napoli á fyrir höndum erfiðan vet-
ur en liðið steinlá á heimavelli fyrir
Bologna. Gamla brýnið Giuseppe
Signori skoraði tvö af mörkum Bol-
ogna og hefur greinilega engu
gleymt í þeim efnum.
Sænski landsliðsmaðurinn Daniel
Andersson, framherji Bari, fór illa
að ráði sínu gegn Atalanta. Anders-
son misnotaði tvær vítaspyrnur og
Atalanta fór með sigur af hólmi, 0:2.
á því