Morgunblaðið - 24.10.2000, Side 12

Morgunblaðið - 24.10.2000, Side 12
i Morgunblaðið/Knstinn Rikharður Daðason er hér f landsleik gegn Norður-írlandi á dögunum. Hann á aðeins eftir að leika einn leik með Viking áður en hann heldur til Stoke. Það er bikarúrslitaleikur gegn Odd Grenland. Bjami lagði upptvö mörk ÍSLENDINGALIÐIÐ Stoke vann afar mikilvægan sigur á Millwall, 3:2 í ensku 2. deildinni á laugardag. íris B Varamaðurinn Eystéinsdúttir Chris Iwelumo skrífar trá skoraði úrslita- Englandi markið á síð- ustu mínútunni fyrir heima- menn eftir fyrirgjöf frá Bjama Guðjónssyni. Iwelumo var aðeins í leik- mannahópi Stoke vegna þess að Stefán Þórðarson meiddist í upphitun fyrir leikinn og Iwel- umo tók sæti hans á vara- mannabekknum. Millwall komst yfír í leiknum en Peter Thome jafnaði eftir góðan undirbúning Bjarna og Mikaels Hansson. Thorne kom Stoke yfír fimm mínútum síðar en Millwall jafnaði rétt fyrir lok fyrri hálfleiks. Millwall var at- kvæðamikið í vítateig Stoke í síðari hálfleik en heimamenn börðust vel og vinnusemi þeirra skilaði sér með sigurmarki. Millwall-áhorfendur bmgð- ust hinir verstu við úrslitum leiksins og tóku að rífa upp sæti úr stúku Stoke en lögreglan var í viðbragsstöðu og náði fljótt að róa öskuilla stuðningsmennina. Stoke er nú í 10. sæti deildar- innar með 20 stig en á tvo leiki inni á Walsall sem er í efsta sæti með 28 stig. Bjarni Guð- jónsson og Brynjar Bjöm Gunnarsson léku báðir allan leikinn fyrir Stoke. Ríkharður og Tryggvi skoruðu KEPPNI f norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu lauk um helgina. Ámi Gautur Arason og félagar hans í Rosenborg voru búnir að tryggja sér meistaratitilinn og þeir enduðu tímabilið með því að gera 1:1-jafntefli gegn Moss. Arni Gautur stóð í marki Rosen- borgar og stóð fyrir sínu. Ros- enborg var að vinna titilinn níunda árið í röð og einn leikmaður félags- ins, Bent Skammelsrud, hefur verið með í öll skiptin og það er met í norsku knattspyrnunni. Ríkharður Daðason og Tryggvi Guðmundsson skomðu báðir fyrir félög sín og enduðu jafnir í öðm sæti yfír markahæstu leikmenn deildarinnar ásamt Magne Hoseth hjá Molde en allir skomðu þeir 15 mörk. Thorstein Helstad í Brann varð markakóngur með 18 mörk. Tryggvi skoraði annað mark Tromsö sem vann öraggan útisigur á Bodö/Glimt, 1:4. Ef að líkum læt- ur var þetta síðasti leikur Tryggva með Tromsö en hann hefur gefið til kynna að hann vilji yfirgefa félagið. Tromsö heldur í vonina um að kom- ast í Evrópukeppnina en til þess að svo eigi að verða þarf Viking að vinna Bryne í úrslitaleik bikar- keppninnar um næstu helgi. Ríkharður Daðason kom Viking yfir gegn Stabæk eftir 18 mínútna leik en Stabæk jafnaði metin úr vítaspyrnu stundarfjórðungi fyrir leikslok. Ríkharður og Auðun Helgason léku báðir allan leikinn fyrir Viking. Pétur Marteinsson lék ekki með Stabæk vegna meiðsla en Marel Baldvinsson lék síðustu 15 mínúturnar. Rúnar Kristinsson var í byrjun- arliði Lilleström sem tapaði á úti- velli fyrir Haugesund, 1:0. Rúnar fór af velli á 68. mínútu en Indriði Sigurðsson lék ekki með Lille- ström. Teitur Þórðarson og lærisveinar hans í Brann tryggðu sér annað sæti í deildinni og jafnframt sæti í meistaradeildinni með stórsigri á Molde, 4:0. Haugesund og Start féllu 1 1. deildina og sæti þeirra í úrvals- deildinni taka Strömsgodset og Lyn. Válerenga þarf að fara í aukaleiki gegn Sogndal til að eiga möguleika á að halda sæti sínu í úrvalsdeild- inni. Eyjólfur innsiglaði sigur Herthu Berlín ÞAÐ stefnir í harða baráttu um þýska meistaratitilinn í knatt- spymu á þessari leiktfð. Meistararnir f Bayern Múnchen og Hertha Berlin deila efsta sætinu eftir nfu umferðir með 18 stig, Schalke er í þriðja sætinu með 17 stig og Dortmund kemur þar á eftir með 16 stig. Eyjólfur Sverrisson skoraði þriðja mark Herthu Berlin , sem sigraði nýliða Energie Cottbus á heimavelli, 3:1. Eyjólfur kom inn á sem varamaður á 78. mínútu og innsiglaði sigur heimamanna sjö mínútum síðar. Cottbus, sem kom svo á óvart um síðustu helgi með því að leggja Bayern Munchen, náði forystu eftir 19 mínútna leik en 50.000 áhorfendur á ólympíu- leikvanginum í Berlín sáu Darius Wosz, Bryan Roy og Eyjólf tryggja Herthu sigurinn og um leið toppbaráttu í þýsku úrvalsdeild- inni. Leikmenn Bayern Munchen náðu að hrista af sér slyðruorðið og höfðu betur gegn grönnum sín- um í 1860 Munchen, 3:1, en fyrir leikinn höfðu Bæjarar mátt þola tvö töp í röð. Uppselt var á grannaslaginn en 69.000 áhorfend- ur vom á ólympíuleikvanginum í Munchen og sáu Bæjara sýna sitt rétta andlit. Brasilíumaðurinn Giovanni Elber skoraði tvö af mörkum Bayem og Bosníumaður- inn Halin Salihamidzic eitt en Thomas Hássler lagði stöðuna fyrir 1860 Munchen. „Þetta var góður leikur hjá lið- inu, bæði sóknar- og varnarlega og vonandi hefur liðið fundið taktinn á nýjan leik,“ sagði Ottmar Hitzfeldt þjálfari Bæjara eftir leikinn. Búlgarski landsliðsmaðurinn Krassimir Balakov bjargaði Stutt- gart frá háðuglegu tapi á heima- velli gegn botnliði Unterhaching en Balakov jafnaði metin úr víta- spymu fimm mínútum fyrir leiks- lok. Hamburger hafði mikla yfirburði gegn Frankfurt en 2:0 sigur heima- manna hefði orðið miklu stærri ef leikmenn liðsins hefðu verið á markaskónum. Sergei Barbarez, markahæsti leikmaður deildarinn- ar, skoraði fyrra markið og um leið sitt áttunda á leiktíðinni og Niko Kovac skoraði síðara markið. Hjalti íVal HJALTI Þór Vignisson, knattspyrnumaður úr Sindra, er genginn til liðs við Valsmenn, nýliðana í efstu deildinni. Hjalti, sem er 22 ára, er fyrrver- andi unglingalandsliðs- maður og hefur verið lyk- ilmaður í liði Sindra síðustu árin. Hann gekk til liðs við Val síðasta vet- ur en hætti vegna meiðsla og spilaði með Sindra í 1. deildinni í sumar. Þá er útlit fyrir að Ár- mann Smári Björnsson, helsti markaskorari Sindra síðustu árin, gangi einnig í raðir Valsmanna. Ub \ 'ÍH 6B sJ - i 'í HVA nui «(0>l qq( í^n sbl jíii* IB'j >íin íqi Uí. :nl m G J :i6:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.