Morgunblaðið - 27.10.2000, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 27.10.2000, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ BIOBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000 C Sæbjörn Valdimarsson/Arnaldur Indriöason/Hildur Loftsdóttir Ekki missa af HINNI HEILLANDI TÓNLISTAR-OG HEIMILDAMYND WIMS WENDERS, BUENA VISTA SOCIAL CLUB, SEM SLÓ SVO RÆKILEGA í GEGN Á NÝLIÐINNI KVIKMYNDAHÁTÍÐ í REYKJAVÍK. ÞAR KYNNUMST VIÐ TÓNLIST, LÍFSVIÐHORFUM OG LÍFSREYNSLU HÓPS AFROSKNUM KÚBÖNSKUM MÚSÍKSNILLINGUM MEÐ ÞÁ REUBEN GONZALEZ OG IBRAHIM FERRERí BRODDI FYLKINGAR. BÆÐI TÓNLISTIN OG KVIKMYNDIN HAFA FARIÐ SIGURFÖR UM ALLAN HEIM OG VAKIÐ VERÐ- SKULDAÐA ATHYGLI ÁTÓNLISTARMÖNNUM SEM NÁNAST VORU GLEYMDIR EN BAÐA SIG NÚ í FRÆGÐARUÓMA. ÞEIR SEM HAFA SÉÐ ÞESSA MYND GETA EKKI HÆTT AÐ TALA UM HANA; EINA LEIÐIN TIL AÐ LOSNA VIÐ ÞÁ ER AÐ FARA SJÁLFUR. OG VERÐA ÞAR MEÐ EINS OG ÞEIR. NÝJAR MYNPIR BEDAZZLED Kringlubíó: Kl. 4 - 6 - 8 - 10:05. Aukasýning föstudagkl. 12:10. Stjörnubíó: Kl. 6-8-10. Aukasýning föstudag/ laugardagkl. 12. Laugardag/sunnudag kl. 2. SHAFT Laugarásbíó: Kl. 6-8-10- Aukasýning föstu- dag á miönætti. Um helgina kl. 4. SPACE COWBOYS Bíóhöllin: 3:30-6-8-10:30. Kringlubíó: Kl. 5:30 - 8 - 10:30. Aukasýning föstudagkl. 12. Bíóborgin: Kl. 5:30-8-10:30. WITH OR WITHOUT YOU Háskólabíó: KI.6-8-10. DANCER IN THE DARK ★★★★ DRAMA Dönsk/bresk. 2000 Leikstjóri: Lars Von Trier. Að- alhlutverk: Björk Guðmundsdóttir, Peter Storm- are, Catherine Deneuve. Túlkun Bjarkar í nýjustu mynd danska leikstjórans Lars Von Triers er alveg einstök og heldur uppi brothættum söguþræöi. Háskólabíó: Mánudag kl. 5:20 - 8. ÍSLENSKI DRAUMURINN ★ ★★★ GAMAN íslensk. 2000 Leikstjúri: Robert Douglas. Aðai- leikendur: Þórhailur Sverrisson, Jón Gnarr, Hafdís Huld. íslensk gamanmynd, sem er mein- fyndin, hæfilega alvörulaus en þó meö báöa fætur í íslenska veruleik- anum, er komin fram. Alveg hreint af- bragðs góö mynd. BíóhdlliniW. 4-6-8-10. BUENA VISTA SOCIAL CLUB ★★★V4 TÓNLIST Þýskal/Bandar/Frakkl/Kúba. 1999. Leikstjórn og handrit: Wim Wenders. Ómótstæðileg tónlist ómótstæöi- legra, kúbanskra tónlistarmanna, fjörgamalla aö árum en þess fjörugri. Þeir eru mennirnir á bak viö myndina, ásamt Ry Cooder. Fylgst með þeim á æfingum í Havana og á tónl- istarferðalagi til Amsterdam og New York. Ómissandi. Bíóborgin: Föstudag kl. 10. Um helgina kl. 4-6. 101REYKJAVÍK ★★★ GAMAN íslensk. 2000. Leikstjóm og handrit: Baltasar Kormákur. Aðalleikendur: Victoria Abril, Hilmir Snær Guónason, Hanna Maria Karlsdóttir, Balt- asar Kormákur. Svört kynlífskómedía úr hjarta borgar- innar, nútímaleg og hress sem skoö- ar samtímann í frísklegu og fersku Ijósi raunsæis og farsa. Vel leikin, einkum af hinni kynngimögnuöu Al- modóvar-leikkonu Victoriu Abril og er yfir höfuð besta afþreying. Háskólabíó: Alla daga kl. 6. Aukasýning um helgina kl. 4. THE CELL ★★★HROLLUR Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Larsen Singh. Hand- rit: Mark Protosevich. Aðalleikendur: Jennifer Lof> ez, VinceVaughn, VincentD’Onofrio. Einstaklega áhrifarík taka og tónlist og tjöldin minnisstæð í sinni súrreal- ísku fegurö. Kemur inn á nýjar hliöar á fjöldamorðingjaklisjusúpunni en annað er upp og ofan. Háskólabíó: Kl. 5:45-8-10:15. Laugarásbíó: Kl. 5:50-8-10:10. Aukasýningar föstudag um helgina kl. 3:50. HIGH FIDELITY ★★★ GAMAN- MYND Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Stephen Frears. Að- alleikendur: John Cusack, Ibeb Hjejle, Todd Lou- iso, Jack Black. Skondin og mannleg mynd um sjálfs- vorkunnsamt fórnarlamb í ástarmál- um. Frábærirleikarar. Bíóborgin: kl. 10. KJÚKLINGAFLÓTTINN - CHICKEN RUN ★★★ FJÖLSKYLDUMYND Leirbrúöur fara meö aöalhlutverkin í fjölskylduvænni endurvinnslu Flótt- ans mikla - með Watership Down-ív- afi. ÍSLENSKTTAL: Bíóhöllin: Kl. 4-6. Aukasýningum helgina kl. 2. Háskólabíó: Kl.. 6-8-10. Aukasýning um helg- ina kl. 4. ENSKTTAL: Bíóhöllin: Kl. 4-6-8-10. Aukasýningum helg- ina kl. 2. U-571 ★★★ STRÍÐ Bandarísk. 2000. Leikstjórn og handrit Jonathan Mostow. Aðalleikendur Matthew McConaughey, BillPaxton, Harvey Keitel. Vel gerö og spenanndi stríösmynd um kafbátahernað, Bryddar ekki á umtalsveröum nýjungum en stendur fyrir sínu sem góö afþreying. Bíóhöllln: Kl. 8:15-10:30. Kringlubíó: kl. 8-10:10. Bíóborgin: kl. 8-10:10. Aukasýning föstudag og e. helgi kl. 5:50. WHAT LIES BENEATH ★★★ HROLLUR Leikstjórn og handrit: Robert Zemeckis. Aðal- leikendur Harrison Ford, Michelle Pfeiffer, James Remar. Kunnáttusamlega gerður spennutryllir og nútímadraugasaga í anda Hitch- cock gamla. Pfeiffer og Fordarinn í toppformi. Hrollvekjandi afþreying. Regnboginn: Kl. 5:30 - 8 - 10:30. Aukasýning um helgina kl. 3. Bíóhöllin: Kl. 5:30-8-10:30. ÁSTRÍKUR OG STEINRÍKUR M/ ÍSL. TALI ★★1/2 FJÖLSK. Frönsk. 1999. Leikstjóri ClaudeZidi. Handrit Gér- ard Lauzier. Aðalhlutverk Christian Clavier, Gerard Depardieu, Roberto Benigni. Leikin mynd um gallharöa Galla í Gaulverjabæ, sem eru í miklu uppá- haldi hjá smáfólki um víöa veröld. Dugar pöbbum og mömmum líka. Talsetningin ágæt. Bíóhöllin: kl. 3:45 - 6. Aukasýning um helgina kl. 1:30. Kringlubíó; kl. 3:45 - 5:45. Aukasýning um helg- ina kl. 1:30. Stjörnubíó: kl 5:50. Um helgina kl. 1:40 - 3:50. ÁSTRÍKUR OG STEINRÍKUR M/ ENSKU TALI ★★% FJÖLSK. Frönsk. 1999. Leikstjóri ClaudeZidi. Handrit Gér- ard Lauzier. Aðalhlutverk Christian Clavier, Gerard Depardieu, Roberto Benigni. Leikin mynd um gallharöa Galla I Gaulverjabæ, sem eru í miklu upp- áhaldi hjá smáfólki um víöa veröld. Dugar pöbbum og mömmum líka. Bíóhöllin: kl. 8-10:10. BIG MOMMA’S HOUSE ★★% GAMAN Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Raja Gosnell. Hand- rit: Darryl Quarles. Aðalleikendur: Martin Lawrence, Nial Long, Paul Giamatti. Grínleikarinn Martin Lawrence bregö- ur sér í gervi roskinnar og há- vaðasamrar ömmu í dálaglegu sum- argríni fyrir alla fjölskylduna. Ágætis skemmtun og Martin fer stundum á kostum. Regnboginn kl. 6 - 8. - 10. Aukasýningar um helgarkl. 2-4. FANTASIA 2000 ★★^ FJÖLSK. Bandarísk. 2000. Flott mynd meö fullkomnum hljóð- og myndgæöum. Því miöur bætir hún litlu viö upprunalegu myndina og virk- ar jafnvel gamaldags fyrir vikið. Bíóhöllin: Kl. 3:50. Aukasýning um helgina kl. 2. HOLLOW MAN ★★% SPENNA Leikstjóm: Paul Verhoeven. Aðalleikendur: Kevin Bacon, Elizabeth Shue, Josh Brolin, William Dev- ane. Vísindamaöur missir stjórn á sér þeg- ar hann gerist ósýnilegur og viö tekur ásjálegur en heldur dellukenndur spennutryllir. Regnboginn: Kl. 8-10:10. Laugarásbíó kl. 8 -10:10. Aukasýnlng um helgar kl. 5:45. SCARY MOVIE ★★% GAMAN- HROLLUR Bandarísk. 2000. Lelkstjúri: Keenan Ivory Wayans. Handrit; Shawn og Marlon Wayans. Aóal- leikendur: Shawn og Marlon Wayans, Shannon El- izabeth, Carmen Electra. Fyndin og fríkuð mynd sem skýtur á hrollvekjur seinustu ára meö beittum og grófum húmor. Laugarásbíó kl. 6-8-10. Aukasýning föstudag/ laugardagkl. 12. Um helgina kl. 4. Stjörnubíó kl. 6 - 8 Aukasýningar laugardag/ sunnudag kl 4. Regnboginn kl. 6-8-10. Aukasýning um helgina kl. 2-4. TITAN A.E. ★★^TEIKNIMYND Bandarísk. 2000. Leikstjórar: Don Bluth og Gary Goldman. íslensk talsetning: Hilmir Snær Guðna- son, Pálmi Gestsson, Þórunn Lárusdóttiro.fl. Spennandi og skemmtileg geimfantasía um ungan mann sem hefur þaö í valdi sínu að bjarga mann- kyninu frá glötun. Regnboginn. íslenskttal kl. 6. Aukasýningar laug- ardag/sunnudag kl. 2-4. TUMITÍGUR - íslenskt tal ★★% TEIKNIMYND Bandarísk. 2000. Leikstjóri Jun Falkenstein. Handrit: A.A. Milne. Raddir Laddi, Jóhann Siguró- arson, Sigurður Sigurjónsson o.fl. Þokkaleg teiknimynd fýrir yngstu kynslóðina segir af ævintýrum Tuma og vinar hans. Góð talsetning. Bíóhöllin: Laugardag/sunnudag kl. 1:30.. Kringlubíó: kl. 3:50. Aukasýning laugardag/ sunnudagkl. 2. GOSSIP ★★ SPENNA Bandarísk. 2000. Leiksjóri: Steve Guggenheim. Handrit: Gregory Poirier. Aðalleikendur: James Marsden, Lena Headey, Norman Reedus. é* Nokkuð áhugaverður samsæristryllir meö óþörfum, óvæntum sögulokum. Leikarar og kvikmyndageröamenn lofa þó góöu í framtíöinni. Bíóhöllin: Kl. 8:20-10:10. Kringlubtó: Kl. 8-10. ROADTRIP ★★ GAMANMYND Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Todd Phillips. Aðal- leikendur: Breckin Meyer, Seann William Scott, AmySmart. Nokkuð fyndin gamanmynd um fjóra lúöa á feröalagi. Hlutverk hins súra Toms Greens mætti vera stærra. Kringlubíó kl. 6. TAXI2 ★★ SPENNA Frönsk. 2000. Leikstjóri: Gerard Krawczyk. Hand- rit: Luc Besson. Aðalleikendur: Samy Naceri, % Frédéric Diefensthal. Eltingarleiksmynd af gamla skólan- um. Fátt nýtt, leiðinlegir leikarar. Háskólabíó: kl. 8. Háskólabíó: Laugardag og sunnudag kl. 4. LOSER ★% GAMANDRAMA Bandarísk. 2000. Handrit og leikstjóm: Amy Heckeriing. Aðalleikendur: Jason Biggs, Mena Suvari. Þokkalega framleidd en glórulaus mynd um nemendur og hornrekur sem er gjörsamlega útilokað aö fá samúð meö. 4 Stjörnubíó: Kl. 6 - 8 - 10. Aukasýning föstudag kl. 12. LOST SOULS yz HROLLUR Bandarísk. 2000. Óskiljanleg og endaslepp kikmynd um særingar og önnur átök Djöfuls ogGuös. Háskólabíó: Kl. 10. Laugarásbíó: Kl. 8 -10. POKEMON/ÍSL. TAL ★ BARNA- MYND Japönsk. 1999. Leikstjórar: Michael Hargrey, Kunohiko Yuyama. Handrit: Norman J. Grossfeld, Takeshi Shudo. Teiknimynd. Ljót, leiðinleg, fær eina stjörnu fyrir aö ná til barnanna með einhverjum óskiljanlegum hætti. Bíóhöllin: Laugardag/sunnudag kl. 1:50. Kringlubíó: Laugardag/sunnudag kl. 2. tmmmmum ■ÍMMH&SsBsSMNBflflEs Qvinmvnrl ■Jcnnifcr Lopez, sem fer með OYI|JlliyilU aðalhlutverkið í spennutryllin- Eftir flrnald um The Cell, hefur á undra- Indríðason skjótum tíma orðið launahæsta spænskættaða leikkona í sögu Hollywood og er á góðri leið með að verða ein af launahæstu leikkonunum vestra yfirleitt. Hún hefur aðeins leikið í bíómyndum í um nokkurra ára skeið og varla í eftirtektarverð- um myndum nema síðustu tvö árin en.vinsæld- ir hennar sem poppsöngkonu ásamt þeim myndum hafa gert Lopez að eftirsóttum skemmtikrafti svo um munar. Hún kom til Hollywood 22 ára gömul eða fyrir átta árum og byrjaði að leika í sjónvarpi m.a. í gamanþáttunum In Living Color þar sem Damon Wayans og Jim Carrey komu fram. Fyrsta bíómyndin hennar var My Family eftir Gregory Nava og árið 1997 lék hún róm- önsku söngkonuna Selenu í samnefndri kvik- mynd. Hún var tekin að vekja athygli í kvik- myndaborginni og Oliver Stonc fékk henni hlutverk í lítilli mynd sinni, U-Turn, auk þess sem Steven Soderbergh leit svo á að hún væri rétta leikkonan á móti George Clooney í gam- ankrimma Elmore Leonard, Out of Sight. Sama ár, 1997, lék hún í spennumyndinni Ana- conda, sem naut nokkurra vinsælda. Kvikmyndaferillinn var sumsé í býsna góð- um farvegi þegar Lopez ákvað að gera eitthvað allt annað. Hún sagði ráðgjöfum sínum að hún ætlaði sér að taka eins árs frí frá kvikmynda- leiknum og reyna fyrir sér sem söngkona. Reynt var að draga úr henni með það og bent á að það þætti ugglaust kyndugt ef hin eða þessi leikkona færi allt í einu að syngja. Hún sagði við þá: „En það er svona sem ég er. Ég get ekki byggt líf mitt á því hvernig aðrir eru.“ Lopez virtist vita hvað hún var að gera. Lag- ið hennar, If You Had My Love, seldist í yfir tveimur milljónum eintaka. Hún fór að búa með rapparanum Puff Daddy eða Sean Combs öðru nafni og kynntist nokkuð ofbeldisfullum heimi rappara þegar hún lenti í skotárás með kærastanum sínum í næturklúbbi í New York um síðustu jól. Combs var kærður fyrir að bera skotvopn og eftir 14 tíma yfirheyrslu var Lopez sleppt úr haldi lögreglunnar. Hún held- ur fram sakleysi Combs í málinu. Þá eru ekki allir jafn ánægðir með yfir- Jennifer Lopez leikurnæstímyndunum The Wedding Planner, sem er róm- antísk gamanmynd með Matt- hew McConaughey (Brendan Fraserátti aö leika á móti henni en haföi annaö aö gera), og dramanu Angel Eyes þar sem hún leikur á móti Jim Caviezel en Aaron Eckhart átti aö fara meö þaö hlutverk. Lopezvarð nýlega þrítug og segir aö þaö hafi veriö „allt í lagi“. Hún hefur í mörgu aö snúast og segist ekki sofa nema fjórar eóa fimm stundirá sólarhring. lýsingar hennar í viðtölum um aðrar leikkonur draumaverksmiðjunnar eins og Gwyneth Paltrow eða Madonnu. „Það er enginn sem undirbýr þig undir þennan bransa,“ segir hún, „svoleiðis að þú veist ekki hvort snúið verður út úr því sem þú segir.“ Hún sagði t.d. að Cam- eron Diaz væri ekki annað en „heppin fyrir- sæta“. Lopez leikur geðlækninn Catherine Deane í spennutryllinum The Cell sem getur með nýj- ustu tækni og vísindum tengt sig hugsunum annarra og m.a. fjöldamorðingja sem liggur í dái og geymir upplýsingar um hvar síðasta fórnarlamb hans er að finna. Lopez bjó sig y- undir hlutverkið með því ásamt öðru að leita til sálfræðings og ræða við hann sín vandamál. Henni þótti það „upplýsandi“ og segir að sjálf myndi hún örugglega vera góður sálfræðingur því hún kunni að hlusta og dæmi ekki fólk (þetta með Diaz er þá misskilningur). Auk þess sem hún leikur í bíómyndum og er poppstjarna ætlar hún að gerast fataframleið- andi og framleiðandi snyrtivara á næstunni. „Það eru allir að segja mér að slappa af, hvíla mig, en mér finnst að ég eigi svo margt eftir að gera. Ég held ég vilji geyma afslöppunina þangað til ég giftist og eignast fjölskyldu.“ Þótt hún sé ein af hæstlaunuðu leikkonunum í Hollywood segist hún enn ekki fá greitt eftir verðleikum. Hún fékk tvær milljónir dollara þegar hún lék á móti George Clooney í Out of Sight en er nú farin að fá níu milljónir á mynd. „Það er ekki bara það að ég hafi alltaf haft trú á hæfileikum mínum, heldur hafði ég alltaf trú á sjálfri mér. Ég vissi hvað ég vildi og ég var tilbúin að þræla fyrir það.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.