Morgunblaðið - 03.11.2000, Síða 4

Morgunblaðið - 03.11.2000, Síða 4
i C FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ BÍÓBLAÐIÐ Bíóblaðið og Filmundur standa að hryllingsmyndaviku 9.-15. nóv. Kvikmynda- húsagestir, veikir fyrir hrollvekjum, ættu aö finna eitt- hvaö áhugavert um næstu helgi. Kvik- myndaklúbburinn Filmundur býðurí tilefni hryllings- myndaviku, í sam- vinnu viö Bíóblaðiö, tvö klúbbskírteini á veröi eins. Sæbjörn Valdimarsson kynnti sér hvaöa gæsahúðarmeðul verða á boöstólum vestur í Háskóla- bíói á nýjum Bíó- blaðsdögum. Anatomy: Lík í læknis hendi. HROLLVEKJAN er í upp- sveiflu um þessar mundir og hefur sett mark sitt á myndaval kvikmyndahús- anna. What Lies Beneath og Scary Movie eru báðar af þessu sauðahúsi þótt ólíkar séu. Sú fyrrnefnda í hefðbundna kantinum hin gerir góðlátlegt grín að þessari gömlu og rótgrónu grein í kvikmyndasög- unni. Hrollurinn fellur vel að hinni íslensku þjóðarsál sem alist hefur upp við draugasögur ýmiss konar í gegnum aldirnar og almenn myrk- fælni þessarar skammdegisþjóðar er víðfræg. Þangað leitar klárinn sem hann er kvaldastur. Hryllingspakkinn sem Bíóblaðið og Filmundur standa að er litríkur, innihaldið kemur víða að og frá ýmsum tímaskeiðum. Sjálfar eru myndirnar af margvíslegum gerð- um hrollvekjunnar, allt frá klassísk- um vampírumyndum til evrópskra nútímahrolla. Flaggskipið verður nýsjálenska myndin Braindead sem frumsýnd var árið 1996, fékk góða dóma en lélega dreifíngu og aðsókn. Forfallnir hrollvekjuunnendur hafa tjáð mér að Braindead sé með þeim bestu sem þeir hafí augum lit- ið, leikstjórinn enginn annar en Pet- er Jackson sem sigraði heiminn með Heavenly Creatures fyrir nokkrum árum. Sá ágæti maður var valinn til að leikstýra einni dýrustu og metnaðarfyllstu kvikmyndagerð allra tíma, þríleiknum Hringadrótt- inssögu - Lord of the Rings sem nú er í upptökum. Braindead segir frá Lionel, ung- um manni sem verður ástfanginn af Pequitu. Ljón er í veginum sem er móðir Lionels. Ósátt við samdrátt- inn eltir hún elskendurna á stefnu- mót í dýragarðinum. Tekst þá ekki betur til en svo að apaköttur bítur kerlinguna með voveiflegum afleið- ingum. Mamman breytist í upp- vakning sem eltir fólk uppi, bítur og kemur sér þannig upp uppvakn- ingasöfnuði ógurlegum. Lionel lendir vitaskuld í nokkrum hremm- ingum með stóðið. Braindead er sögð bæði sóðaleg og bráðfyndin á sinn groddalega hátt. Nótt uppvakninganna - Night of the Living Dead er fyrsta mynd hrollvekjuleikstjórans George A. Romero og jafnamt talin hans besta og komin í tölu klassískra „cult“- og hryllingsverka fyrir löngu. Gervi- tungl fellur til jarðar og geislar frá því gera að verkum að dauðir rísa upp úr gröfum sínum og nota lifend- ur til átu. Hópur fólks leitar hælis á sveitabæ og reynir að þrauka af nóttina en úti fyrir vafra mösul- ánægjulegt að endurnýja kynnin við þessa heiðursmenn eftir fjóra áratugi. Sjálfsagt glamra tennurnar eitthvað minna en vonandi verður gæsahúðin á sínum stað. The Irrefutable Truth About Demons kemur einnig frá andfætl- ingum okkar á Nýja-Sjálandi. Þetta er ný mynd, frumsýnd á síðasta ári. Jafnframt fyrsta verk leikstjórans Glens Standring og segir sögu Harrys Ballard sem kemur að kær- ustu sinni myrtri og hefur leit að morðingjanum með aðstoð Bennys, dularfulls náunga sem hann veit lítil deili á. I slagtogi við Benny kynnist Harry satanískum heimi handan þess raunveruleika sem hann þekk- ir og upp koma fleiri spurningar en svör. The Irrefutable Truth About Demons er þekkt kvikmyndahátíða- mynd sem hefur hlotið góðar við- tökur hvarvetna. Nágrannarnir vekja forvitni aðal- persónunnar, Henri, í þýsku mynd- inni The Curiosity and the Cat (’99). Henri verður var við að atburðarás- in gerist æ undarlegri hjá grönnun- um og hann leggst á gægjur ásamt útlenskri hjásvæfu sinni. Uppátæki nágrannanna eru með ólíkindum og gestir þeirra litskrúðugur hópur fólks sem í útliti minna helst á rúss- neska mafíósa en tala eins og skandinavískir sjóarar. Henri fær aldrei' nóg, jafnvel þótt hann góni stíft gegnum gat sem hann borar á milli íbúðanna. Hátterni fólksins við hliðina nær smám saman undirtök- um í lífí hans og kærustunnar. Leik- stjóri og handritshöfundur er Christiane Alvart sem er kunnust fyrir klippivinnu þýsku „cult“- myndarinnar X-TRO. Ein aðalfreisting gæsahúðarfíkla verður svo Anatomie - Skuggaverk, spánný, þýsk spennu-hrollvekja með hinni svellandi Frönku Potente í aðalhlutverki. Potente átti minnis- stæða innkomu í alþjóðlegar kvik- myndir í Lola rennt - Hlauptu Lola, hlauptu, þar sem hún fór með titil- hlutverkið. Myndin, sem hefur gert það gott á meginlandinu, gerist á sjúkrahúsi. Potente leikur lækna- nemann Paulu sem kemur til sum- arstarfa á sjúkrahús í Heidelberg. Strax á fyrsta degi kemst hún að því að ekki er allt með felldu á þeirri ágætu stofnun. Sér til skelfíngar sér hún að líkið sem á að fara að kryfja er ferðafélagi hennar sem var bráðlifandi deginum áður. Paula er í yflrvofandi hættu eftir að hún kemst á snoðir um leynifélag sem hefur það að markmiði að út- vega læknavísindunum lík og það tekst ekki nema með einu móti... Leóurfés í The Texas Chainsaw Massacre: Vestur- íslendingurinn Gunnar Hansen. beinahjarðir afturgangna. Önnur sígild „cult“-hrollvekja, Keðjusagarmorðinginn í Texas - The Texas Chainsaw Massacre (74) er gerð af Tobe Hooper sem náði á tímabili inn fyrir múra Hollywood- borgar og gerði a.m.k. eina öndveg- ishrollvekju, Poltergeist, fyrir hinn hefðbundna kvikmyndamarkað. Keðjusagarmorðinginn er, einsog Nótt uppvakninganna, sjálfstætt, óháð framtak. Nokkur ungmenni halda til Texas, á afskekkt sveita- býli sem er í eigu fjölskyldu eins í Hinn eini sanni Dracula: Christopher Lee. ingu, nýju blóði í vampírumyndirn- ar og gerði breska kvikmyndafram- leiðandann Hammer Films að stórveldi um skeið. Dracula (’58) er ekki djöfulleg mynd heldur feikna- vel gerð frásögn, full af ógn, spennu og kynhvöt. Blóðsugugreifann í Karpata-fjöllunum leikur hinn eini sanni Drakúla kvikmyndanna, Christopher Lee. Annar sterkur skapgerðarleikari, Peter Cushing, leikur af svipaðri fagmennsku hitt aðalhlutverkið, Van Helsing, vamp- írubanann mikla. Það verður hópnum. Er þau loks ná áfangastað iðrast þau ferðarinnar sem breytist í martröð. Þá fer að heyrast óþægi- legt hljóð í keðjusög gufuruglaðs nágranna með leðurgrímu fyrir smettinu. Þess má til gamans geta að sá geðugi maður er leikinn af Vestur-íslendingnum Gunnari Han- sen. Ahrifarík, suddaleg rustamynd og óhætt að slá föstu að hún er ekki fyrir viðkvæma. Annar góður gestur vikunnar er sjálfur myrkrahöfðinginn, Dracula, sem hleypti, í orðsins fyllstu merk- Hrollvekjandi vikuskammtur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.