Morgunblaðið - 14.11.2000, Qupperneq 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ ~ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 B 7
HANDKNATTLEIKUR HANDKNATTLEIKUR
MARKVARSLA Hlyns Morthens, sem varði 24 skot og stórleikur Al-
eksander Petersons lögðu grunninn að 24:22 sigri Gróttu/KR á KA,
þegar norðanmenn skelltu sér á Seltjarnarnesið á laugardaginn. En
það mátti varla tæpara standa því heimamönnum tókst að knýja
f ram framlengingu með því að jaf na í 20:20 þegar tæplega hálf mín-
úta var eftir af venjulegum leiktíma. Nýliðarnir í Gróttu/KR sigla því
lygnan sjó í 5. sæti en norðanmenn eru í 8. sæti.
Eftir tvö mörk á fyrstu mínútunni
varð löng bið eftir næstu mörk-
um. Sóknarleikur Gróttu/KR varð
mmi oft endasleppur þvi
stefán KA lét tvo menn fara
Stefánsson langt út á völl til að
skrifar stöðva stórskytturn-
ar Aleksander og
Hilmar Þórlindsson. Það vantaði líka
brodd í sóknarleik KA auk þess sem
Hlynur í markinu reyndist þeim
óþægur ljár í þúfu. Fyrir vikið var oft
mikið óðagot og fum í sóknarleik
beggja liða en rétt fyrir miðjan fyrri
hálfleik hvarf feimnin og liðin skipt-
ust á að skora svo að skildi meira en
eitt mark liðin að.
Eftir hlé tók Aleksander sóknar-
leik Gróttu/KR í sínar hendur og rað-
aði inn mörkum, oft úr erfiðri stöðu
en það dugði ekki alveg til því Hörð-
ur Flóki Olafsson, sem stóð á milli
stanganna hjá KA, lét líka ljós sitt
skína svo að gestirnir að norðan náðu
þriggja marka forystu, 13:16, um
miðjan hálfleik. Heimamenn voru þó
ekki af baki dottnir og með seiglu
tókst þeim að komast yfir á ný en eft-
ir sveiflur í lokin þurfti mark Hilm-
ars til að ná framlengingu.
Jafnt var eftir fyrri hluta fram-
lengingarinnar og í þeim síðari fékk
hvort lið þrjár sóknir - Hilmar og Al-
eksander skoruðu sitt markið hvor
fyrir Gróttu/KR en eitt skot var var-
ið en sóknum KA lauk með skoti
fram hjá, skoti í stöng og eitt skot var
varið svo að tveimur mörkum mun-
aði þegar upp var staðið, 24:22.
„Ég er sérstaklega ánægður með
að mínir menn hættu aldrei og börð-
ust allan leikinn þótt það hafi vantað
svolítið upp á til að taka betur upp
þráðinn eftir sigur á Aftureldingu í
síðasta leik á Varmá,“ sagði Olafur
Lárusson, þjálfari Gróttu/KR, eftir
leikinn en í síðasta leik vann liðið
frækinn sigur á Aftureldingu í Mos-
fellsbæ. „Það vantaði herslumun í
vöm, samvinnu, hreyfingum og
ákveðna hluti í sóknarleiknum. Við
réðum einnig hraðanum betur í síð-
asta leik því núna var aðeins of mikili
flumbrugangur í fyrri hálfleik. Hins
vegar gáfust menn aldrei upp, höfðu
trú á sigri og uppskáru samkvæmt
því. Það þarf mikið þrek til að spila
Mm
FOI_K
■ INGA Lára Þórisdóttir, hand-
knattleikskona, lék ekki með liði sínu
Stjömunni gegn Fram á laugardag
þar sem hún var erlendis. Þetta hefði
að öllu jöfnu ekki komið að sök fyrir
Stjörnuna, en eftir að Halla Marfa
Helgadóttir meiddist í fyrri hálf-
leiknum var Ingu Láru sárt saknað í
Garðabæjarliðinu.
■ STJARNAN fagnaði 40 ára afmæli
sínu í Garðabæ á laugardag. Þann
dag léku bæði karla- og kvennalið fé-
lagsins. Stúlkurnar töpuðu fyrir
Fram 26:28 en strákamir lögðu FH
22:18.
■ RAGNHEIÐUR Stephensen skor-
aði 4 mörk fyrir Bryne sem tapaði,
28:24, Gjövik/Vardal í norsku úr-
valsdeildinni í handknattleik á
sunnudaginn. Stabæk, undir stjórn
Kristjáns Halldórssonar, tapaði fyr-
ir Nordstrand, 24:20.
vísu hefði ég viljað sjá meiri hraða á
köflum en er sáttur við að menn séu í
nægri æfingu til að ljúka þessum
leik. Dagsformið skiptir einnig máli
og það var nógu gott í dag þó að það
hafi oft verið betra,“ bætti Olafur við
og sagðist enn halda sig við það
markmið að halda liðinu í deildinni.
„Við emm sáttir við stöðuna, tökum
einn leik fyrir í einu og sjáum svo til.
Upphaflegt markmið okkar er að
halda sér í deildinni, sem er raun-
hæft fyrir lið sem er að koma upp um
deild og það hefur ekkert breyst."
Sem fyrr segir vom Hlynur og Al-
eksander í aðalhlutverkum en Hilm-
ar og Sverrir Pálmason gerðu vel.
„Eg er sár yfir tapinu því það er
slæmt, þegar við eram þremur
mörkum yfir, að bæta ekki við og ná
svo að halda því út leikinn,“ sagði Atli
Hilmarsson, þjálfari KA, eftir leik-
inn. „Hins vegar börðust mínir menn
allan leikinn og hafa bætt sig mikið
frá síðasta leik. Ég vona að við föram
að fikra okkur upp töfluna því staða
okkar er ekki góð en það verður bara
að halda áfram að vinna í því. Að vísu
erum við í vandræðum með menn
sem era meiddir en það verður líka
að taka því,“ bætti Atli við. Hörður
Flóki markvörður, Heimir Örn Ai-n-
arson og Guðjón Valur Sigurðsson
vora bestu menn KA en Andreas
Björk Tómasdóttir, leikmaður Fram, sækir hér að marki Stjörnunnar.
Haukar taplausir
HAUKAR halda efsta sæti 1. deildar kvenna eftir leiki helgarinnar.
Haukar lögðu Val að Hlíðarenda, 16:23, en á sama tíma tapaði
Stjarnan öðrum leik sínum í vetur, gegn Fram 26:28, en heldur þó
öðru sætinu í deildinni og er með 14 stig.
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrífar
Fyrirfram var búist við miklum
baráttuleik hjá Stjörnunni og
Fram, eins og oftast er þegar þessi
tvö lið mætast. Sú
varð þó ekki raunin
á laugardag. Fram-
arar höfðu einfald-
lega betur á öllum
sviðum handboltans, markvarslan
var betri, sóknarleikurinn var fjöl-
breyttari og varnarleikurinn sterk-
ari.
Framarar fengu óskabyrjun og
þær skoraðu úr 9 af fyrstu 10 sókn-
um sínum í leiknum, en á sama tíma
skoraði Stjarnan aðeins fjögur mörk
og misnotaði m.a. vítaskot. Framar-
ar höfðu sex marka forskot þegar
mest lét og voru hreinlega að valta
yfir Garðabæjarliðið.
Það munaði miklu fyrir Stjörnuna
í fyrri hálfleiknum að Nína K.
Björnsdóttir skoraði ekki mark og
að markverðir liðsins, Sóley Hall-
dórsdóttir og Lijana Sadzon, sem
hafa varið mjög vel í vetur, fundu sig
engan vegin.
Stjarnan rétti heldur úr kútnum í
síðari hálfleiknum. Um miðjan hálf-
leikinn hrökk Nína í gang, skoraði
sitt fyi’sta mark og fór mikinn það
sem eftir lifði leiks. Þetta hleypti dá-
lítilli spennu í leikinn, varnarleikur
Stjörnunnar og markvarslan lagað-
ist verulega og Fram skoraði aðeins
tvö mörk úr síðustu 10 sóknum sín-
um, en það voru þó einmitt þessi tvö
mörk sem skildu liðin að þegar upp
var staðið og Fram sigraði 26:28.
„Við leiddum leikinn allan tímann,
við ákváðum að byggja upp sterka
vörn og ljúka sóknunum með mörk-
um til að koma í veg fyrir að þær
kæmust inní hraðaupphlaup. Skytt-
urnar okkar komu sterkar inn, Olga
vann gríðarlega vel á línunni og
þetta skilaði sér vel. Við unnum leik-
inn fyrst og fremst á vörninni. Þessi
lið hafa alla tíð háð mikla baráttu-
leiki og það er sérstaklega ánægju-
legt að vinna hér á heimavelli
Stjörnunnar í síðasta leik fyrir jóla-
frí,“ sagði Svanhildur Þengilsdóttir,
leikmaður Fram.
Hugrún Þorsteinsdóttir mark-
vörður og Olga Prokhorova léku
best í samstilltu liði Fram sem sýndi
það í þessum leik að liðið kemur til
með að gera mjög harða atlögu að
Islandmeistaratitlinum í úrslita-
keppninni í vor. Litlar breytingar
hafa orðið á leikmannahópnum, leik-
menn þekkja hvern annan mjög vel
og hafa mikinn vilja til að ná lengra í
ár heldur en í fyrra.
Stjörnuliðið hefur aftur á móti
gengið í gegnum miklar breytingar
undanfarin ár, en liðið hefur hefðina
og reynsluna á bak við sig og það
mun án efa skila liðinu langt í topp-
baráttu vetrarins. Hind Hannes-
dóttir og Jóna Margrét Ragnars-
dóttir léku ágætlega og Sóley og
Nína komu sterkar inn í síðari hálf-
leik.
Batamerki hjá Val
Það voru mikil batamerki að sjá á
liði Vals, sem mætti toppliði Hauka
að Hlíðarenda. Hinir ungu leikmenn
Vals stóðu vel í meistaraefnunum úr
Hafnarfirði og létu Haukana hafa
verulega mikið fyrir 16:23-sigri.
Jafnræði var með liðunum í fym
hálfleik, Haukarnir byrjuðu á flatri
6-0-vörn þar sem bestu varnarmenn
síðustu ára stóðu hlið við hlið;
Brynja Steinsen, Auður Hermanns-
dótth’, Harpa Melsted og Inga Fríða
Tryggvadóttir. Einhvern veginn
dugði þetta þó ekki til að stöðva bar-
áttuglaða Valsara sem héldu leikn-
um í jafnvægi með góðum hraða-
upphlaupum og hornaspili.
Én Haukar voru ekki komnir að
Hlíðarenda til að bíða lægri hlut.
Sett var í fluggírinn í síðari hálf-
leiknum, hraðaupphlaup voru
keyrð, línuspilið var frábært og
skytturnar brutu sér leið í gegnum
vörn Vals frekar en að skjóta fyrir
utan. Þetta dugði til að tryggja þeim
öruggan fimm marka sigur. „Ég
fékk tækifæri til að byrja inná í
fyrsta sinn í vetur og fann mig vel í
þessum leik. Ég er orðin góð af
meiðslunum og formið er allt að
koma. Þetta var erfiður leikur og við
þurftum að hafa verulega mikið fyr-
ir þessum sigri. Haukarnir hafa ver-
ið á fljúgandi siglingu í vetur, bæði
við og strákarnir, og það eru komnir
16 Haukaleikir í deildinni án taps,
þannig að leikmenn Hauka eru mjög
sáttir við gang mála í dag,“ sagði
Inga Fríða Tryggvadóttir, sem átti
mjög góðan leik í liði Hauka og er
greinilega að ná sínum fyrri styrk.
Hún ásamt Hörpu Melsted og
Thelmu B. Árnadóttur léku best í
liði Hauka en hjá Val voru þær
Berglind íris Hansdóttir markvörð-
ur, Arna Grímsdóttir og Hafrún
Kristjánsdóttir bestar.
Halla María
með brák-
uð rifbein
HALLA María Helgadóttir, leikmaður
Stjörnunnar í handknattleik, varð fyrir
því óhappi í leik gegn Fram á laugardag
að bráka tvö rifbein. Hdn lenti í samstuði
við leikmann Fram um miðjan fyrri hálf-
leik og gat ekki leikið meira með liði
smu.
„Ég fór í myndatöku á Slysavarðstof-
una í gær og }>á kom í ljós að tvö rifbein
eru brákuð. Ég verð frá æfingum í
a.m.k. tvær vikur. Höggið var mikið og
það má segja að það hafi verið lán í óláni
að rifbeinin brotnuðu ekki.Ég missi þó
vonandi ekki af neinum leik þar sem
deildin er komin í langt jólafrí og við
eigum ekki leik í bikarnum fyrr en um
miðjan desember," sagði Halla María.
Engin miskunn hjá þeim þýsku
Karí
Haraldsson
skrifar
Þýska meistaraliðið Buxtehude, sem
sigrað hafði ÍBV í EHF-bikar-
keppninni í handknattleik í Þýskalandi á
dögunum með 18 marka
mun sýndi gestgjöfum
sínum enga miskunn í
seinni leiknum sem fór
fram í Eyjum á laugardaginn. Buxte-
hude vann enn stæn-i sigur, 34:14, og
vann því einvígi liðanna í 2. umferð með
samtals 38 marka mun. Þátttöku ÍBV í
keppninni er þar með lokið en Eyjakon-
ur slógu út búlgarska liðið Pirin í fyrstu
umferðinni.
Leikmenn Buxtehude byrjuðu af mikl-
um krafti og vora yfirburðir þeirra í fyrri
hálfleik miklir. Buxtehude spilaði mjög
góða vörn auk þess sem danski mark-
maðurinn Silke Christiansen varði
meistaralega. Að sama skapi vora Eyj-
astúlkur ekki tilbúnar í leikinn. Þær voru
á hælunum, sóknarleikur IBV var bragð-
daufur og óskipulagður. Besti leikmaður
ÍBV í fyrri hálfleik var Tamara Mandzic
en það sást lítið til stórskyttunnar Amelu
Hegic. Staðan hálfleik var 6-20, Buxte-
hude í vil.
Allt annar bragur var á leik Eyja-
kvenna í seinni hálfleik og spiluðu þær
miklu betur, einkum framan af hálfleik-
num. Vöm þeirra batnaði til muna en
sóknarleikurinn gekk ekki sem skyldi og
það var aðeins Amela Hegic sem sýndi
þokkalegan leik í sókninni og skoraði
nokkur mörk. ÍBV tapaði seinni
hálfleiknum 8:14 og því var 20 marka tap
ÍBV staðreynd. Eyjakonur reyndu að
berjast en áttu við ofurefli að etja.
Buxtehude var einfaldlega miklu sterk-
ara, enda er liðið eitt af bestu kvennalið-
um í heiminum með landsliðskonur í
hverri stöðu.
„Ég er ekki ánægður með leikinn,
stelpurnar voru ekki nægilega vel
stemmdar og það þýðir ekki þegar við
eram að keppa við svona sterka and-
stæðinga. Sóknarleikur okkar var slakur
en við getum gert betur. Þetta var góð
reynsla fyrir liðið sem á eftir að skila sér
í vetur,“ sagði Sigbjörn Óskarsson þjálf-
ari ÍBV.
Hlynurog
Petersons í
stórræðum
Ragnar með átta mörk í ísrael
Stavanger
sigraði
RAGNAR Óskarsson og Ólafur
Stefánsson komu mikið við sögu í
góðum útisigrum liða sinna í
Evrópumóti félagsliða í hand-
knattleik um helgina. Báðir voru
þeir markahæstir hjá sínum liðum,
Ríignai’ skoraði 8 mörk fyrir
Dunkerque sem vann Maccabi
Raanana, 27:26, í Evrópukeppni
bikarhafa í ísrael og Ólafur skor-
aði 5 mörk fyrir Magdeburg sem
vann Prevent Slovenj Gradec,
25:23, í EHF-bikarnum í Slóveníu.
Dunkerque átti lengi vel undir
högg að sækja í Israel og heima-
menn voru yfir í hálfleik, 15:11.
Ragnar og félagar náðu að snúa
blaðinu við og standa vel að vígi
fyrir síðari leikinn á sínum heima-
velli.
Magdeburg, undir sljórn Alfreðs
Gíslasonar, ienti líka í miklum slag
í Slóveníu en hafði undirtökin mest
allan tímann, 13:11 íhálfleik. Þar
var það markvarsla Frakkans
Christians Gaudins hjá Magdeburg
sem gerði útslagið og þýska liðið á
alla möguleika á að komast áfram.
Jafntefli hjá Skjem
Aron Kristjánsson gat ekki leik-
ið með Skjern í fyrri leik liðsins
gegn HC Svitlotechnik Brovary
frá Ukraínu í fyrri leik liðanna í
Evrópukeppni bikarhafa. Leikur-
inn endaði með jafntefli, 23:23, en
Skjern var undir í hálfleik, 11:9.
Þetta var fyrri leikur liðanna og
um heimaleik Ukraínumanna að
ræða þrátt fyrir að hann færi fram
á heimavelli Skjern. Síðari viður-
eignin fer fram í dag.
Daði Hafþórsson skoraði eitt
marka Slgem en annars náðu
skyttur danska liðsins sér lítt á
strik gegn hávaxinni vöm Brov-
ary. Gestirnir voru lengst af með
forystu í leiknum. Varnarleikur
Skjern var æði misjafn og illa gekk
að ráða við Valentyn Anisimov,
helstu skyttu Brovary, en hann
skoraði hvorki fleiri né færri en 13
af 23 mörkum liðsins.
Aron hefur átt í meiðslum á hné
og fór á dögunum í speglun. Hann
tók þátt í upphitun fyrir leikinn en
kom ekki við sögu þegar á hólminn
var komið. Hann sagði í samtali við
Morgunblaðið reikna með að leika
síðari leikinn í dag.
Sigurður Gunnarsson leiddi lið
sitt, Stavanger, til sigurs gegn
Dukla Prag, 32:30, í Evrópukeppni
bikarhafa. Kjetil Strand skoraði 13
mörk fyrir Stavanger sem á erfitt
verkefni fyrir höndum í Tékk-
landi.
Kiel er enn í basli og mátti nú
þakka fyrir jafntefli, 28:28, gegn
Trieste á Ítalíu í fyrstu umferðinni
í riðlakeppni meistaradeildar
Evrópu. Nenad Pemnicic skoraði
8 mörk fyrir Kiel, Staffan Olsson 5
og Magnus Wislander 4 en þýsku
meistararnir sakna Nikolaj Jacob-
sens, danska homamannsins, sem
er frá vegna meiðsla.
Fram sótti
mikilvæg
stig til Eyja
TOPPLEIKUR áttundu umferðarinnar var leikinn í Eyjum á sunnu-
dagskvöldið þegar Eyjamenn tóku á móti Fram. Með sigri gátu Eyja-
menn haft sætaskipti við Fram. Tryggðu gestirnir sér bæði stigin
væri staða þeirra vænleg við toppinn. Mikill hraði var í leiknum og
Ijóst að tvö af sterkari liðum deiidarinnar áttust við. Það fór svo að
Framarar réðu við hraðann og unnu góðan sigur á annars sprækum
Eyjamönnum, 30:25.
| æði lið komu vel stemmd til leiks
og ljóst að hvoragt liðanna vildi
tapa einvíginu. Framarar byrjuðu
leikinn af krafti með
SkaptiÖrn Magnús Erlendsson í
Ólafsson markinu fremstan í
skrífar flokki. Þegar um átta
mínútur vora liðnar
af leiknum hafði Magnús varið 6 skot,
þar af 2 vítaköst. Eyjamenn, sem
höfðu fyrir leikinn unnið 12 leiki í röð í
deild á heimavelli, náðu að jafna leik;
inn um miðbik hálfleiksins, 5:5. I
kjölfarið kom góður kafli hjá ÍBV og
komst liðið í tveggja marka forystu.
Undir lok fyn-i hálfleiks jafnaði Max-
im Fedukine leikinn fyrii’ Fram með
góðu marki úr hraðaupphlaupi og í
kjölfarið kom Róbert Gunnarsson
gestunum yfu’. Staðan var þá 12:11,
Fram í vil og nokkrar sekúndur eftii-
af fyrri hálfleik. Eyjamenn náðu að
jafna metin áður en fyrri hálfleikur
var úti. Því var jafnt í hálfleik, 12:12.
Gestimir komu mun sterkari til
leiks í síðari hálfleik og skoraðu fjög-
ur mörk gegn einu Eyjamanna á
fyrstu mínútunum. Á þessum leikk-
afla léku Eyjamenn illa og ekki bætti
úr skák er fyririiði þeirra, Erlingur
Richardsson, vai’ rekinn af leikvelli
þriðja sinni og kom ekki meira við
sögu. Framarar léku við hvern sinn
fingur og var Gunnar Berg Viktors-
son drjúgur í sókninni og að sama
skapi var Magnús í markinu virkilega
vel með á nótunum. Það var ekki fyrr
en þriðjungur var eftir af leiknum að
Eyjamenn vöknuðu upp við vondan
draum. Þeir náðu að minnka muninn í
tvö mörk en það var of seint og Fram-
arar juku við forskotið og unnu góðan
fimm marka sigur, 30:25.
Hjá Fram var Magnús Erlendsson
að spila best, varði 20 skot, þar af þrjú
vítaköst. Einnig lék Eyjamaðurinn
Gunnai- Berg Viktorsson vel ásamt
Róberti Gunnarssyni.
Eyjamenn, sem hafa verið á góðri
siglingu undanfarið, vora ekki að spila
nægjanlega vel í leiknum og má segja
að þeir hafi ekki ráðið við þann mikla
hraða sem einkenndi leikinn.
Fyrsti sigur Fram
í Eyjum í þrjú ár
Fyrirliði Fram, Njörður Árnason,
var ánægður: „Það er orðið langt síð-
an við unnum hér í Eyjum, ég held að
liðin séu þijú ár. Eyjamenn spiluðu
ágætlega í leiknum en ég vil segja það
að við höfum úr stærri hópi að ráða
auk þess sem við réðum vel við hrað-
ann í leiknum, það held ég að hafi riðið
baggamuninn. Við voram skynsamir í
okkar sóknaraðgerðum og spiluðum
bara toppleik í dag,“ sagði Njörður.
Skytta Eyjamanna, Guðfinnur
Kristmannsson, vai’ ekki upplitsdjar-
fur eftir tapið. „Þetta var virkilega lé-
legt í kvöld og við spiluðum illa,“ sagði
Guðfinnur Kristmannsson.
Morgunblaðið/Golli
Hafsteinn Hafsteinsson, Stjörnunni, vippar knettinum yfir
Bergsvein Bergsveinsson, markvörð FH.
Leikur mistakanna
HANN var ekki rishár, handboltinn sem leikmenn Stjörnunnar og FH
buðu uppá á fjölum íþróttahússins Ásgarði í Garðabæ. í sveiflu-
kenndum og mjög slökum leik þar sem aragrúi mistaka leit dagsins
Ijós höfðu Stjörnumenn betur, 22:18, og virðast Garðbæingar vera
að rétta úr kútnum eftir slakt gengi í upphafi fslandsmótsins.
Það var engu líkara framan af fyrri
hálfleik að um æfingaleik væri
að ræða á milli grannliðanna. Hver
sóknin á fætur ann-
arri rann út í sand-
inn og leikmenn
beggja liða vora að
gera sig seka um
hrein byijendamistök í íþróttinni.
Sérstaklega vora heimamönnum mis-
lagðar hendurnar í fyrri hálfleiknum
og agaleysi og kæraleysi varð þess
valdandi að Stjörnumenn misstu FH-
inga fram úr sér. Til að kóróna
frammistöðu sína í fyrri hálfleiknum
misnotuðu Stjörnumenn öll fimm
vítaköstin sem þeim áskotnaðist.
Bergsveinn Bergsveinsson, mark-
vörður FH-inga, varði í öll skiptin og
frammistaða hans í þessum ski-aut-
lega fyrri hálfleik var einn af örfáum
ljósum punktum. Rússinn Eduard
Moskalenko var eini leikmaðurinn í
Garðabæjarliðinu sem hélt haus og
hjá FH-ingum var Hálfdán Þórðar-
son seigur á línunni auk þess sem
Hafnfirðingamir náðu upp ágætum
varnarleik.
FH-ingar skoraðu fyrsta markið í
síðari hálfleiknum. Þeir náðu þar með
fimm marka forystu og fátt í spilun-
um benti til annars en að gestirnir
tækju stigin tvö sem í boði vora með
sér í Fjörðinn. Eftir þetta mark FH-
inga snerist leikurinn algjörlega við.
Liðin höfðu hlutverkaskipti og leikur
FH-inga fór á það plan sem Stjömu-
menn vora á í fyrri hálfleik. Á mjög
klaufalegan hátt misstu FH-ingar
leikinn úr höndum sínum og þegar 12
mínútur höfðu verið leiknar jafnaði
Amar Pétursson metin fyi-ir Stjömu-
menn, 14:14, með marki úr vítakasti
úr sjöttu tih-aun. Birkir ívar Guð-
mundsson, markvörður Stjömu-
manna, var hrokkinn í gang en hinum
megin lak allt inn hjá Bergsveini eftir
frábæra frammistöðu í fyrri
hálfleiknum. Þegar Magnús Sigurðs-
son kom svo heimamönnum yfir,
16:15, tólf mínútum fyrir leikslok var
ljóst hvert stefndi. Mikill hamur vai-
hlaupinn í leikmenn Stjörnunnar en
að sama skapi var leikur FH-inga í
molum sem sést best á því að þeir
skoraðu aðeins fjögur mörk fyrstu 20
mínúturnar í síðari hálfleik. Stjömu-
menn náðu mest 5 marka forystu,
22:17, og þar með hafði leikurinn
sveiflast um 10 mörk frá því í upphafi
síðai-i hálfleiksins þegar FH-ingar
leiddu, 7:12.
Eyjólfur Bragason, þjálfari Stjörn-
unnai’, breytti liði sínu í síðai-i hálf-
leiknum. Hann setti „gömlu refina"
Konráð Olavson og Björgvin Rúnars-
son í homastöðurnar en þeir sátu á
bekknum allan fyri’i hálfleikinn. Með
tilkomu þeirra vai’ð allt annai' bragur
á leik Garðbæinga og ótrálegt að Eyj-
ólfur skyldi ekki hafa gert breytingar
á liði sínu í fyrri hálfleiknum eins og
það lék. Birkir ívar Guðmundsson
reif sig í gang í seinni hálfleiknum
eins og flestir félagar hans og hann
ásamt Eduai’d Moskalenko vora
bestu leikmenn Stjörnunnar. Konráð
kom ferskur til leiks í síðari hálfleikn-
um og Magnús Sigurðsson lét að sér
kveða þegar á leikinn leið eftir að
hafa verið hálfmeðvitundai’laus lengi
framan af leiknum. Stjörnuliðið er
ágætlega mannað og á að hafa burði
til að vera í efri hluta deildarinnar. Til
þess að svo eigi að verða þurfa leik-
menn liðsins að átta sig á því að hlut-
irnir gerast ekki að sjálfu sér.
Eftir ágætt gengi að undanfömu
fengu FH-ingar harða brotlendingu í
Garðabænum. Þeir köstuðu leiknum
frá sér á hreint ótrálegan hátt í síðari
hálfleik og leikur þeiira getur örugg-
lega ekki farið á lægra plan. Eins og
áður hefur verið minnst á sýndi Berg-
sveinn mögnuð tilþrif í marki FH-
inga í fyi-ri hálfleik en því miður fyrir
hann og FH-liðið náði hann sér ekki á
strik í þeim síðari. Hálfdán Þórðar-
son var eini útileikmaðurinn í liði FH
sem komst nokkuð vel frá sínu en
aðrir vora langt frá sínu besta. Sókn-_
arleikur FH-ingar sigldi í strand í síð «
ari hálfleik auk þess sem leikmenn
liðsins fóra illa að ráði sínu í hraða-
upphlaupunum. Líkja má leik FH-
inga í fyiri og seinni hálfleik við lit
búninga liðsins, það er svart og hvítt.
Þeir léku fyrri hálfleikinn ágætlega,
og þá sérstaklega vamarleikinn, en
síðari hálfleiknum vilja þeir eflaust
gleyma sem allra fyrst. *