Morgunblaðið - 20.12.2000, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 20.12.2000, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2000 E 3 BÆKUR Sérstakur og und- arlegur maður VERÐLAUNASKÁLDSAGAN AM 00, eftir Hjört Marteinsson, segir frá Jóni Ólafssyni frá Grunnavík, Árna Magnússyni prófessor í Kaup- mannahöfn og eiginkonu hans, Mettu, haustið og veturinn 1728. Jón er stúdent við háskólann í Kaupmannahöfn en starfar einnig sem ritari hjá Árna. Þótt sagan gerist á stuttum tíma, spannar hún bæði fortíð og framtfð persónanna og er sjónarhornið tengt Jóni. Þegar Hjörtur er spurður hvers vegna hann hafi skrifað bókina út frá sjónarhorni og sögu Jóns, segir hann: „Það stafar fyrst og fremst af áhuga á lífshlaupi hans og stöðu. I sögunni er Jón hinn ötuli og sí- starfandi skrifari Árna Magnús- sonar. Hugmyndin að því að skrifa þessa sögu á rætur að rekja til árs- ins 1996 þegar ég hélt myndlist- arsýninguna Fjöregg fiska þar sem ég kallaðist á við hugmyndir sem fram kom í einu af óútgefnum rit- um Jóns Ólafssonar, Fiskafræði Is- lands. Fyrir tveimur árum kviknaði með mér hugmynd að leiða þá sam- an Jón Ólafsson, Árna sjálfan og konu hans Mettu þetta örlagaár 1728 þegar bruninn mikli f Kaup- mannahöfn verður.“ Hvers vegna fékkstu áhuga á Jóni? „Fyrst og fremst vegna þess hversu sérstakur og undarlegur maður hann var. Ég hef alltaf heillast af mönnum sem hafa skorið sig úr vegna þess að þeir fóru aðra leið í lifinu; horfðu á veröldina öðr- um augum en aðrir meðbræður þeirra. Jón var einmitt þannig maður sem var haldinn þessari óslökkvandi þrá að skyggna og skýra heiminn sem hýsti hann. En hér er ég að tala um Jón eins og hann var í li'finu. í skáldsögunni koma þessir þættir aðeins fyrir en verða aldrei þungamiðjan heldur Ieit Jóns að herra sinum sem hverf- ur á braut og bók sem ef til vill mætti kalla táknræna kjölfestu þjóðernis hans og okkar sem nú drögum lífsandann." Hvað er sérstakt við Jón? „Það sem er sérstakt við Jón er hin mikla elja og einurð sem ein- kenna allt starf mannsins. í lífinu sjálfu virðist hann hafa séð fyrir sér einhverja sýn á lofti, eitthvert eyland í þokunni sem tengist fræðasviði hans. Jón var ætíð að leita sér viðfangsefna á akri forn- fræðanna og sleppti vart penna úr hendi og tókst þrátt fyrir bág kjör eins og flestir rithöfundar okkar daga búa við að semja mikinn fjölda rita um hin ólíklegustu mál- efni, oftast tengd fornfræðum og málfræði og jafnvel náttúruvís- indum. Segja má að hann hafi leynt og ljóst unnið að því alla ævina að reyna að skerpa og skýra sýn sam- tímamanna á heiminn og eðli hlut- anna í kring; sýn sem stundum verður örlítið þokuslungin, jafnvel full af furðu og undrum. Þrátt fyrir þessa miklu elju liggja flest af rit- um hans óhreyfð á söfnum og safna ryki. Það er ekki fyrr en á seinustu árum að gefin hafa verið út á bók nokkur verka hans. Ef til vill á þessi þögn sem hefur umlukið nafn hans sér skýringar í því hversu illa Jón varð úti síðustu áratugina sem hann lifði. Þá átti hann við þunglyndi og liklega geð- veiki að stríða sem varð til þess að maðurinn varð fræðilega úti í sam- tíma sinum. En þau ár eru ekki efni skáldsögunnar heldur þetta ör- Iagaár bókabrunans mikla í Kaup- mannahöfn þegar Árni Magnússon missir handrit sín og skjöl í eldinn. Sá miss- ir varð mér tilcfni til að velta fyrir mér manngerð Árna Magnússonar og áhrifum þessa mikla missis á þennan mesta bókasafnara Islands- sögunnar. Þar er kom- inn hinn sagn- fræðilegi rammi sögunnar. En sagn- fræðin sem sumir hafa talið sig merkja í sög- unni er meira og minna tilbúningur. Það sama á við um mörg þeirra rita og kenningar sem vitnað er til í sög- unni. Þetta eru fyrirbrigði sem eru fabúlasjón til að gera söguna sjálfa trúverðugri og kannski um leið of- urlítið skemmtilegri aflestrar." Eru þetta þá ekki heimildir sem þú ert að vitna f? „Ramminn utan um söguna er réttur. Árni Magnússon var til og Metta kona hans. Jón Ólafsson var ritari Árna. Og Kaupmannahöfn brann. Það er í raun öll sagnfræðin í sögunni. Verkið er grundvall- aratriðum fullkominn skáld- skapur." Hvernig myndir þú lýsa þi'num Jóni Ólafssyni? „Hann er fyrst og fremst maður sem er leitandi. Hann er saklaus á vissan hátt en þarf að lifa við gamla sekt sem fylgir honum eftir. Hann er einnig óreyndur sökum síns unga aldurs en samt er hann eng- inn einfeldningur. Hann er saklaus hvað varðar umhciminn eins og gjarnt er um menn sem lifa og starfa í lokuðum heimi fræða og sögu. En leit hans að Árna í sög- unni er leiðarhnoða hans sem opnar fyrir honum nýja sýn á heiminn og manninn sem hann hefur alltaf staðið í skugganum af.“ Jón á kannski ekki mikla mögulcika á að kynnast lífinu til að byrja með þar sem hann stendur í skugganum af Árna. „Jón er á vissan hátt ofurseldur aðstæðum sínum sem skrifari Árna. Hann ber takmarkalausa virðingu fyrir þessum velgjörð- armanni sínum og verndara sem þó er ekki allur þar sem hann er séð- ur. Myndin af Árna tengist enn fremur öðru og mcira sem býr að baki; þáttum eins og kúgun og valdi eins manns yfir öðrum sem og ágirndinni og ástríðunni sem mót- ar okkur öll í lífinu sem og fræði- mannslegum hroka en þessi atriði sem ég minntist á eru liklega of margþætt til að ég sjái mér fært að tala mikið um þau í svo stuttu við- tali. Hitt er samt mikilvægt að Ies- endur AM 00 minnist þess að sér- hver sá sem er ofurseldur einum málstað eða manni getur oft lent í ógöngum jafnvel þótt hann hafi trygglyndið, sannleiksþrána og fróðleiksfýsnina að leiðarljósi." ar sem Jón Ólafsson frá Grunnavík virti fyrir sér stjörnurnar í gegnum sjónauka löngu seinna varð honum hugsað til fornfræðings sem forðum undi sér best í fámenni. Sá var löngum í leit að nýjum átt- högum; klöpp eða steini á berangri til að standa á eða bók til að skríða undir. Innstu myrkur kynni einhver að hugsa. Innstu myrkur og maður á ferð. Árni Magnússon gekk eftir Aðmíralsgötu fram hjá embættisbú- stað Peders Örsleff kapeláns við Hólmsins kirkju í Stórastræti og heim á leið. Heim! Eirðarlaus festi fornfræðingurinn og prófessor antiqutatum ekki huga við neitt þetta kvöld. Hárkollan á höfði hans hafði runnið til af svita eftir gönguna. Honum var gengið niður Kanúkastræti úr Síkisgötu og yfir brúna á Stórasíki. Hann gekk nærri síkinu og horfði á mynd sína speglast í skítugu vatninu. Þokan gleypti mynd allra sem voru á ferli um strætin þetta kvöld - einnig þeirra sem vildu láta bera á sér í von um viðskipti eða annan ábata. Það voru portkonur - flyðrur sem stungu höfði sínu upp úr djúpi borg- arinnar. Ungar jafnt sem gamlar og hrukkóttar. Haltar og skítugar. Sjúkar eftir veru í strætinu og vosbúðina í gegnum árin. Allir sem gengu hér um voru jafnir í augum þessara kvenna. Ríkir jafnt sem fá- tækir; fantar eða misindismenn, sakleysingjar; einfeldningar eða varmenni sem nutu þess að mis- þyrma þessum konum vegna ástr- íðna, sem fengu ekki útrás í hjóna- bandinu. Allir áttu einhvern tíma leið um þesa götu. En Árni Magn- ússon lét flyðrurnar ekki hefta för sína. IJrAMOO Iljörtur Marteinsson BÆKUR Greinasafn RITGERÐIR OG PISTLAR eftir Sigfús Daðason. Forlagið, 2000, 375 bls. ÞAÐ var óblandin gleði að fá Ritgerðir og pistla Sigfúsar Daðasonar upp í hendurnar. Utgáfan er vönduð á allan hátt. Þorsteinn Þorsteinsson annaðist útgáfuna og ritar allít- arlegan inngang þar sem hann gerir grein fyr- ir helstu æviatriðum Sigfúsar og vinnubrögð- um sínum við verkið. Sigfús hafði sjálfur íhugað að gefa út ritgerðirnar seint á níunda áratugnum en ekki komist sérlega langt í und- irbúningi útgáfunnar. Bókin skiptist í fimm kafla. Stærsti hluti hennar og sá veigamesti fjallar um íslenskar bókmenntir. Ein frægasta ritgerð Sigfúsar er án efa „Til varnar skáldskapnum frá 1952, rit- uð af skarpskyggni og þekkingu á nútímaljóð- agerð. Aðferð hans er áhrifarík, Sigfús skoðar nákvæmlega rök andstæðinga nútíma- ljóðagerðar, rekur sundur fordómafullan vef þeirra og sýnir fram á að kenningar þeirra standast ekki, en þær byggðust á þjóðemis- íhaldssemi og öðrum sjónarmiðum sem höfðu lítið með skáldskap að gera, t.d. minnimáttar- kennd, heimóttarskap, jafnvel óvild og hatri. Vom módernistar hættulegir íslenskri menn- ingu? I dag em þetta hlægilegar vangaveltur. Greinin segir margt um vinnubrögð Sigfúsar sjálfs og er heimild um aðferðir hans og ýmsa áhrifavalda á skáldskap hans um 1950. Eitt stendur auðvitað eftir og er sígilt vandamál: ljóð nútímaskálda em hvorki auðveld aflestrar né auðskilin. Þetta verða lesendur að búa við og glíma við merkingu sem liggur engan veg- inn í augum uppi. Þetta torræði einkennir Ijóð Sigfúsar Daðasonar. Þau em sjálfstæður vemleiki og í eðli sínu mjög margræð. í stuttu máli: módernisminn var innhverfur og oft fjarlægur við fyrstu sýn og krafðist mikils af lesendum sínum. Sigfús víkur víða að þessu vandamáli í greinum sínum hvort sem þær fjalla um íslenskar eða erlendar bókmenntir. Skemmtileg er greinin Að skilgreina nútíma- ljóð sem birtist í jólablaði Þjóðviljans 1959; hún var upphaflega bréf til Hannesar Sigfús- sonar skálds. Hannes var þá upptekinn af hinu „skorinorða ljóði (og var að yrkja Vetr- armyndir úr lífi skálda og sýndi Sigfúsi, sem lét svo um mælt að þetta væri ekki rétta að- ferðin). í greininni kemur fram að engin leið er að skilgreina nútímaljóð í eitt skipti fyrir öll vegna þess að ef skilgreining er of víð missir hún gildi sitt. En Sigfús bendir á nokkur sameiginleg einkenni svo sem samþjöppun og innhverfu nútímaskáldskap- ar en gefst svo upp því að list- gagnrýni er vonlaus, að mála (eða yrkja) er betra. Gaman- semin nýtur sín vel í lokin, franskur kunningi Sigfúsar kenndi honum athyglisverða þulu sem endar svo: „Nútíma- skáld getur verið allt utan eitt: það getur ekki verið nútíma- skáld. Það vekur strax athygh les- andans hvað greinar Sigfúsar um bókmenntir eru vel skrifaðar og af mikilli skarpskyggni. Greinar hans um Halldór Lax- ness eru framúrskarandi, t.a.m. greinin um Brekkukotsannál 1957, sem fjallar um höf- undarverk Halldórs vítt og breitt, auk þess að vera frábær greining á stíl og aðferð skálds- ins. Þessi grein á skilið meiri athygli og munu Laxnessfræðingar framtíðarinnar geta sótt ýmislegt í smiðju Sigfúsar. I grein um Sjö- stafakverið (1964) sem birtist 1965 lætur Sig- fús í ljós vonbrigði með þróun í höfundarverki Halldórs sem var orðinn langþreyttur á ideologiu. Sigfúsi finnst taoisminn hafa unnið fullmikið á, á kostnað dialektíkurinnar en samt metur Sigfús smásagnasafnið af sann- girni og telur upp kostina ekki síður en gall- ana. Nokkur dómharka kemur fram í greininni „Tilveran gerð upp“ sem var rituð sem and- svar við samtalsbók Matthíasar Johannessen og Tómasar Guðmundssonar Svo kvað Tómas. Sigfúsi var sérlega uppsigað við skoðanir Tómasar af mörgum ástæðum. Yfirleitt ein- kennir þó greinar Sigfúsar hófsemi, góð dóm- greind og skarpskyggni. Greinar hans um Þórberg eru frábærar en Sigfús mat hann mikils og gaf út fjölda verka hans. Sigfús hafði mikinn áhuga á Þórbergi sem „manneskju" og mat stílgáfu hans að verðleikum. Þórbergur nýtur viðurkenningar í dag en svo var ekki hér á árum áður. Sigfús ritar einnig góðar greinar um þýðingar, en of lítið hefur verið fiallað um þennan mikilvæga en oft vanþakk- láta þátt bókmennta starfseminn- ar. Sigfús þýddi töluvert úr frönsku, bæði ljóð og sögur, svo hann þekkti vel til vanda þýðand- ans. Mjög gaman er að lesa grein- ar hans frá 1976 um Kvæðaþýð- ingar Jóns Helgasonar og Dálítið um þýðingar 1984. Þar tekur Sig- fús upp hina frægu skilgreiningu Gogols „að þýðing þyrfti að líkjast gleri sem væri svo vel gagnsætt, að þeir sem horfðu í gegnum það yrðu þess ekki varir. Þetta er hnyttilega að orði komist en erfiðara að þýða svo vel að þetta takist þótt góðir þýðendur hljóti að keppa að þessu marki. Sigfús hafði mikla reynslu af bókaútgáfu, fyrst hjá Máli og menningu sem hann starfaði hjá 1960-1977 og síðar hjá eigin fyrirtæki Ljóðhúsum (sem gaf m.a. út verk Málfríðar Einarsdóttur). Þrjár greinar eru birtar í rit- gerðasafninu um útgáfumál. í þeim ræðir Sig- fús ýmsan vanda sem steðjar að útgefendum, að nokkru leyti stafar vandinn af fábreytni ís- lensks menningarlífs, t.d. fannst Sigfúsi ís- lensk bókmenntagagnrýni löngum vera í úlfa- kreppu formalismans. Að fáir skrifi bóka- gagnrýni af nákvæmni og þekkingu og að of margir séu andsnúnir teoríu og heimspeki. Annað atriði sem ég held að flestir geti verið sammála Sigfúsi um er að tímarit eigi að taka áhættu og reyna nokkuð á það sem einu sinni var kallað íslenzkt lesþol. Það er hollt að minnast þess að nýjunga- menn áttu ekki allt of auðvelt með að gefa út bækur. Mál og menning hafnaði tímamóta- verki Guðbergs Bergssonar Tómas Jónsson metsölubók (að vísu gegn atkvæði Sigfúsar) sem hafði þó gefið út tvær fyrstu bækur Guð- bergs. Ekki verður hér farið nánar út í starfs- lok Sigfúsar hjá Máli og menningu sem ollu leiðindum, en greinin Eftirmáli og kveðjuorð víkur að þessu. Sigfús var sakaður um að loka tímaritið inni í fílabeinsturni. Sigfús gerir grein fyrir stefnu tímaritsins frá stofnun þess. Það var hugsað sem almennt tímarit í húm- anískum anda, tímarit um bókmenntir í víðum skilningi og um pólitík einnig í viðum skiln- ingi. Sigfús var andsnúinn nánum afskiptum flokksins (Alþýðubandalagsins), taldi þau ekki holl. Hann var einnig andsnúinn svokölluðum „popúlisma“. Fimmti og síðasti hluti Ritgerða og pistla ber yfirskriftina Afmælis- og minningargrein- ar, stuttar tækifærisgreinar þar sem næmur mannskilningur höfundar fær að njóta sín. Pistlar þessir eru stuttorðir en gagnorðir með eindæmum. Sigfús hefur einnig gott vald á knöppum, meitluðum stíl sem leitast við að rissa upp heildarmynd persónuleikans í einni andrá og komast þannig að kjarna málsins í sem fæstum orðum. Sigfús fer hreinlega á kostum þegar hann lýsir fólki sem hann þekkti vel. Snilldargóðar eru minningargrein- ar hans um Málfríði Einarsdóttur, Sverri Kristjánsson, Þóru Vigfúsdóttur og Sverri Haraldsson, svo dæmi séu tekin. Þorsteinn Þorsteinsson hefur lagt mikla al- úð við verk sitt og á þakkir skilið. Inngangur hans er mjög greinargóður og fróðlegur en síst of langur, því ritgerðir Sigfúsar verð- skulda ítarlega umfjöllun. Pólitískar greinar hans bíða enn birtingar, sumar hafa aldrei verið birtar eins og t.a.m. greinin sem ber yf- irskriftina Um Tékkóslóvakíu og sósíalismann (þar sem Sigfús taldi innrásina ekki réttlæt- anlega) sem átti að birtast haustið 1968 í Tímariti Máls og menningar, en „varð ekki birt“, skrifaði Sigfús utan á handritið. Þor- steinn telur sennilegt að Kristinn E. Andr- ésson hafi ráðið því. Þorsteinn bendir enn- fremur á að Sigfús hætti að skrifa um pólitík í tímaritið og telur að honum hafi þótt sér mis- boðið. Pólitískar greinar Sigfúsar bíða enn birtingar þar sem Þorsteinn tók þá ákvörðun að sleppa þeim að sinni, enda bókin orðin nógu löng og Sigfús hafði einnig látið í ljósi þá skoðun að útgáfa pólitískra greina þjónaði litlum tilgangi. Vonandi verða þær þó gefnar út síðai- í heildarútgáfu verka skáldsins. Rit- gerðir og pistlar Sigfúsar Daðasonar er mjög þörf bók og áhugamenn um íslenskar bók- menntir og menningu ættu ekki að láta hana fram hjá sér fara. Guðbjörn Sigurmundsson Skarpskyg'g'ni og skáldskapur Sigfús Daðason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.