Morgunblaðið - 20.12.2000, Side 4

Morgunblaðið - 20.12.2000, Side 4
4 E MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2000 BÆKUR MORGUNBLAÐIÐ Saga Rannveigar BÆKUR Fndurminningar MYNDIR ÚR HUGSKOTI Eftir Rannveigfu I. E. Löve. Utg.: Fósturmold, Reykjavík, 2000, 344 bls. RANNVEIG Löve, kunnur og mikilsmetinn sérkennari, er fædd á Bíldudal 29. júní 1920 og er því á áttugasta og fyrsta árinu nú þegar endurminningar hennar koma út. Að henni standa sterkar, vestfirsk- ar og mýrdælskar kjarnaættir. Eins árs gömul fluttist hún með foreldrum sínum til Reykjavíkur þar sem faðir hennar stundaði verslunarstörf. Síðan tók við bú- skapur og sjómennska á Vatns- leysuströnd og loks búskapur í Réttarholti í Reykjavík. Rannveig var elst 15 systra og gekk þessi fríði systrahópur undir nafninu Réttarholtssystur. Tvítug að aldri giftist hún Guðmundi Löve. Fljótlega eignuðust þau dóttur. En ekki leið á löngu er erfiðleikar hófust að marki. Guðmundur veiktist af berklum og nokkru síð- ar Rannveig einnig. Þá tók við margra ára hælisvist þar sem tví- sýnt var um líf. En er heilsa náðist loks á ný braust Rannveig í að ljúka kennaranámi og síðar sér- kennaranámi. Kenndi hún til fjölda ára við Melaskólann í Reykjavík við góðan orðstir. Heilsa Guð- mundar hékk oft á veikum þræði og þurfti hann á hælisvist að halda. Hann varð samt einn af for- vígismönnum SÍBS og síðar fram- kvæmdastjóri Öryrkjabandalag ís- lands. Þar lagði hann fram gífurlega mikla vinnu, meiri en heilsa hans leyfði og lést hann 59 ára gamall árið 1978. Þetta er umgerð endurminning- anna í hnotskurn. En í sem stystu máli sagt er þetta einstaklega áhugaverð frásögn. Eins og í flest- um ævisögum taka bernsku- og unglingsárin mikið rúm. Þar er líka frá mörgu að segja: Reykja- víkurárum fyrri, Vatnsleysustrandarár- um og Reykjavíkurár- um síðari. Mikið var unnið á þessu stóra heimili þar sem dóttir bættist í bú á svo til hverju ári; barátta við afla sér menntunar, leikir og lífsfjör. Frásögnin er fjör- leg, skemmtileg og bjart er yfir henni. Hápunktur ævisög- unnar er svo að mínu viti veikindaárin, hetjuleg barátta við vágestinn mikla, „hvíta dauðann". Þar segir frá lífinu á Vífilsstöðum og hinni hrottalegu lækningaaðgerð er Rannveig gekkst undir rifja- högg á Akureyri. Hafði sú aðgerð nær kostað hana lífið. Hefði vafa- laust svo orðið ef pensilínið hefði ekki bjargað henni, einum fyrsta sjúklingi á fslandi. Er öll sú frásögn einstök og mun seint líða úr minni lesandans. Þá er ekki síður áhugavert að lesa um fyrstu starfsár SIBS, byggingu Reykjalundar og dvöl þeirra hjóna þar á fyrstu árum starfseminnar. Endurheimt heilsunnar áttu þau þeirri dvöl að þakka eins og svo margir aðrir. Dugnaður og þrá Rannveigar að afla sér menntunar var mikill. Þar þurfti vissulega að yfirstíga marg- ar hindranir, bæði fjárhagslegar og heilsufarslegar. í þeirri baráttu og ekki síður að fá starf við hæfi var hún ákveðin og fylgin sér. Flýgur manni í hug að þar hafi hún auk góðrar kynfylgju notið þess að vera elst hinna mörgu systra. Vön að taka ákvarðanir, veita forystu og taka á sig ábyrgð. Allir þessir eiginleikar skína í gegnum frásögnina enda þótt höf- undurinn sé fjarri því að miklast af sjálfum sér. Lífsreynsla Rann- veigar Löve hefur verið mikil og erfið. Hvergi er þó að sjá að sú lífsreynsla hafi bugað hana eða fyllt hana beiskju. Þvert á móti. Þróttur og lífsgleði eru í fyrir- rúmi. Enda þótt hún hafi á stundum mætt mótstöðu og skilningsskorti get- ur hún samt, er hún horfir til baka yfir liðna ævi, talað hlý- lega um alla. Stundum er á orði haft að ís- lenskar konur hafi fyrr á tíð verið hinir miklu sagnameistarar þjóð- arinnar. Börnin og unglingarnir sátu við fótskör þessara kvenna og hlýddu á er þær jusu úr ótæmandi sagna- og ljóðabrunni og fleyttu frásagnarlistinni milli kynslóða. Mér fannst við lestur þessarar bókar Rannveig Löve vera ein þessara merku kvenna. Hún kann svo sannarlega að segja sögu svo að á verði hlýtt. Þar fyrir utan er það ávallt mannbætandi og kallar á virðingu lesandans að fá innsýn í mikla lífsreynslu og örlög sem við- komandi hefur vaxið af, þroskast og orðið mikilhæfur einstaklingur. Þessi eftirminnilega og góða bók er prýðileg að öllum ytri frágangi. Þó hefði ég kannski kosið að efn- inu hefði verið skipt í kafla með fyrirsögnum. Margar fjölskyldu- myndir er hér að finna. Sigurjón Björnsson Rannveig Löve Brotgjörn og óbrotgjörn skáld BÆKUR Greinasafn UNDIR LESLAMPA Eftir Gyrði Ehasson. Mynd á bls. 2: Einar Falur Ingólfsson. Prentun Gutenberg. 138 síður - Bjartur 2000. GREINARNAR í Undir les- lampa hafa birst hingað og þangað, sumar sem eftirmálar. Þær eru því flestar nýlegar, en það kemur ekki að sök. Allar eru þær prýðilega rit- aðar og birta ný sjónarhorn. Til dæmis greinin ítarlega um Jóhann Magnús Bjarnason Vestur-íslend- ing. Meðal annarra íslenskra höfunda sem Gyrðir gerir skil eru Skúli Nýjar bækur • ÚT er komin myndabókin Tóta á ferð og flugi eftir Jóhönnu Á. Stein- grúnsdóttur. Jean Posocco skreytti söguna litmyndum. Tóta litla bregður á leik og upp- lifir óvænt ævintýri úti í náttúrunni. Mús, maðkur, hunangsfluga, kjói og könguló eru meðal dýranna sem hún rekst á, en þegar lontan í læknum skýtur henni skelk í bringu er henni nóg boðið. Frásögnin er bæði í bundnu og óbundnu máli. Útgefandi er bókaútgáfan Salka. Bókin er 32 bls., prentuð íprent- smiðjunni Gutenberg. Leiðbeinandi verð er 1.880 krónur. Guðjónsson frá Ljót- unnarstöðum og Guð- mundur Frímann. Þeir Stefán Jónsson, Þórbergur Þórðarson og Hannes Sigfússon eru þekktari. Erlendu höfund- amir eru aftur á móti úr „ýmsum jöðrum“, að minnsta kosti sumir þeirra: John Cowper Powys, Forr- est Carter og George Mackay Brown. Það verður þó síður en svo lastað hér. Greinin um John Cowper Powys veitir lesandanum innsýn í sérstæðan heim þessa „vanrækta risa“ eins og George Steiner hefur kallað hann. Hann er kannski ekki sérlega árennilegur með skáldsögur sem geta orðið 1.100 þéttprentaðar síð- ur. Hann er þó nútímalegur til jafns við aðra höfunda að dómi Gyrðis og meðal aðdáenda hans má nefna Eli- as Canetti. Gyrðir er hrifinn af amerískum höfundum, samanber það sem hann ritar um Richard Brautigan, Willi- am Saroyan og indíánann Forrest Carter. Hann finnur til samhygðar með þeim. Uppvöxtur Litla trés eft- ir Carter hefur öðlast hljómgrunn meðal frumbyggja landsins sem eins konar þáttur í Ritningu þeirra, en Evrópumönnum hættir til að líta á slíkar bækur sem jaðarbókmennt- ir af því að þær falla ekki inn í hefð- ina, að sögn Gyrðis. Sjálfur er hann veikur fyrir slíkum bókum og færir rök að gildi þeirra. Kannski eru þeir Jóhann Magnús Bjarnason og Skúli Guðjónsson einhverjir slíkir jaðarmenn? Þar mætti kannski líka flokka George Mackay Brown með lýsingar sínar á litlu og afskekktu samfélagi? Sú var tíðin að Guð- mundur Frímann vakti nokkra athygli. Gyrðir minnir á að nú sé hann að mestu gleymdur. Richard Brautigan lenti í því að vera næst- um þurrkaður út með hjálp gagnrýnenda, en Gyrðir er meðal þeirra sem þýtt hafa verk hans. Þetta er gagnrýnendum að kenna telur Gyrðir. Brautigan var á tímabili mjög þekktur. Þetta orðar Gyrðir þannig að hann hafi orðið fyrir þeirri hremmingu „að sú hreyfing ungs fólks sem náði hámarki á ár- unum milli ’60 og ’70 tók verkum hans einsog himnasendingu". Það rifjar upp alkunn sannindi að hrifn- ing á höfundum getur reynst hættuleg þegar til endingarinnar kemur. Hið undarlega mat á höfundum getur jafnvel birst í því að höfundar sem lifa einangrað og virðast ekki keppa að frægð geta orðið manna frægastir. Hér kemur George Mackay Brown upp í hugann sem „kaus að ferðast í huganum" og undi glaður í Orkneyjum bemsku sinnar til æviloka og orti og skrifaði um þær. Jóhann Hjálmarsson Gyrðir Elíasson Olnbogarými fyrir lesandann BÆKUR Skáldsaga TURNINN Eftir Steinar Braga. Bjartur, Reykjavík 2000. 74 síður. ÞAÐ hafa orðið ansi miklar hrær- ingar í íslenskum sagnaskáldskap undanfarin ár. Gerðar hafa verið tilraunir með form sem sumar hveij- ar hafa að minnsta kosti skilið gagnrýnendur eftir í lausu lofti. Það er vissulega eðli skáldsög- unnar sem lifandi forms að þróast en hvort þess- ar hræringar ná eitt- hvað undir yfirborðið verður tíminn að leiða í ljós. Nýjasta bók Steinars Braga, Tuminn, er svo- lítið laus í rásinni og flokkast sennilega sem eitt af þessum tilrauna- verkum. Höfundur kall- ar bókina skáldsögu á kápu og léttir þar með flokkunar- vandanum af herðum lesandans sem er kannski ekki svo ýkja þung byrði nú á tímum fijálslyndis og yfirgengi- legrar víðsýni, ístöðuleysis og al- mennrar upplausnar á gömlum gild- um. Þetta er snörp skáldsaga. Hún er stutt, 74 síður, og byggist upp á stutt- um köflum. Umíjöllunarefnið er hvorki meira né minna en sköpun heimsins, tilurð mannsins, vegsemd þeirra beggja og fall en svo aftur nýtt upphaf, að því er virðist. Að minnsta kosti lýsir sagan þróun sem er í ætt við Darwin og svo bætir hún ein- hverju við, svona eins og menn hafa gert sem ekki hafa viljað horfast í augu við endanleika holdsins á guð- lausum tímum. Og þar gegnir tuminn stóru hlutverki sem eins konar lífs- sproti, smár eins og hár í enni manns en samt nægilega stór til þess að geyma allt lííið. Og einhvem veginn þannig er líka þessi bók að reyna að vera - stór í smæð sinni - og svei mér ef það tekst ekki að einhverju leyti. Þrátt fyrir efnið er ekki mikill dæmisögulegur þungi í bókinni, kannski sem betur fer. Steinar Bragi fer frekar þá leið að fela vandlega lyklana að túlkun sög- unnar. Eftir lestur sæk- ir á mann sterkur gmn- ur um undirliggjandi boðskap þótt hann liggi ekki alveg í augum uppi. Kannski að hún sæki meira á mann fyrir vikið. Kannski hún verði ekki skilin frekar en heimurinn. Það sem fyrst og fremst gerir þessa litlu bók svo ágæta er yfir- vegaður og látlaus og stundum jafnvel bams; lega einfaldur stfllinn. í þessum einfaldleika og skýrleika stílsins fellst þungi bókarinnar. Heyrið þetta til dæmis: „Um gljúfur og gegnum klettahamra borgarinnar barst þögnin líkt og sammiðja hringir frá dropa sem fellur í vatn. Augna- bliki síðar var jörðin öll orðin þögul. Eina hreyfingin sjáöldur sem þönd- ust. Svo kyrrstaða.“ Turninn er geðþekk bók. Fyrir þá sem kunna að meta texta sem gefa lesandanum olnbogarými er hún ákjósanleg og einnig þá sem hafa yndi af vel stíluðum texta. Við fyrsta lestur kann hún að virðast svolítið óreiðu- kennd í byggingu en við meiri yfir- legu kemur undirliggjandi grind í ljós. Bókin verður þó seint talin hefð- bundin skáldsaga en Steinar Bragi hefur svo sem ekki farið fjölfamar slóðir hingað til. Þröstur Helgason Steinar Bragi Frá Síberíu til Islands BÆKUR Æ visaga HÆTTULEG KONA - KJUREGEJALEX- ANDRAARGUNOVA Eftir Súsönnu Svavarsdóttur, Iðunn, 2000.163 bls. ÆVISÖGUR eru geysivinsæl- ar hér á landi og má það að ein- hverju leyti rekja til fámennisins þar sem allir þekkja alla og hlutfallslega margar persónur em þekktar í þjóðlífinu. Kjuregej Alexandra var áberandi kona fyrir 20-30 árum og þó að hún láti enn að sér kveða hefur at- hyglin dalað nokkuð, ekki síst vegna þess að útlendingum hefur fjölgað mikið. Það þótti ákaflega sér- stakt þegar hún kom hingað fyrst og fór svo að skemmta með söng og leik. Fyrir þá íslendinga sem muna þetta vel er forvitnilegt að kynnast sögu hennar en ekki síður að kynnast því hvernig innflytjandi reynir að aðlagast íslensku þjóðfélagi og gaman að kynnast gerólíkum uppruna þessa innflytjanda. Þess Súsanna Svavarsdúttir vegna er þetta framtak Súsönnu Svavarsdóttur ágæt viðbót við þá flóm ævisagna sem koma út núna fyrir jólin og er bókin áhugaverð í flesta staði. Hins vegar hefði vel mátt vanda útgáf- una betur, það má lesa milli lín- anna að tíminn sem gefinn var til vinnunnar hafi verið heldur stuttur. Til dæmis hefði mátt skera og snurfusa lokasíðurnar betur svo að annars spennandi frásögn héldist til loka. Einnig hefðu ljósmyndirnar mátt njóta sín betur samhliða frásögninni. Sús- anna velur þá leið að láta Kjuregej segja frá í fyrstu persónu og gæti bókin þess vegna alveg eins verið sjálfsævisaga. Frásögnin verður með þessu móti mjög persónuleg og stundum svo mjög að lesanda finnst hann jafnvel vera að hnýsast inn í líf nú- lifandi manneskju í fullu fjöri. Það er helst þegar nánu persónulegu lífi og samskiptum er lýst sem svo er. Aftur á móti gæðir þessi persónulega nánd bókina líka lífi og það er alltaf eitthvað spennandi við að hnýsast. Sagan er þó langt frá því að vera eingöngu persónuleg heldur er

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.