Tíminn - 21.11.1965, Blaðsíða 5

Tíminn - 21.11.1965, Blaðsíða 5
SUNNUDAGUR 21. nóvember 1965 TÍIVINN 17 Sjötugur á morgun: Jóhannes Arngrímsson frá Þorsteinsstöðum Frá bernskuárum mínum á Grund í Svarfaðardal er mér margur maður minnisstæður. Þar var oft gestkvæmt og gaman að heyra komumenn segja frá ýmsu, sem þeim lá á hjarta eða þá hafði hent. En harla misjafn var frásagnarháttur þessara heiðurs- manna. Sumir voru seinir og þung ir í öllu tali, þótti mér sem út úr þeim læki dropi og dropi frá- sagnarinnar og að þeir ætluðu aldrei að komast að efninu og geta satt forvitni okkar, sem ið- uðu í skinninu. En þannig mun það jafnan vera með börn, þau þola ekki allt of miklar vangavelt- ur og umbúðir um kjarna í fná- sögn, nema þá að lystilega sé með farið, og er það eitt með öðru sem kennarar þurfa að hafa í huga. En einn var sá maður af þess- um gestum foreldra minna á Grund, sem mér er einkum minn- isstæður fyrir það, hve skemmti- lega hann sagði frá. Það var bónd- inn á Þorsteinsstöðum, Arngrím- ur Stefánsson. Hann var þó ekki mikill á lofti eða lét mikið á sér bera, en hann lumaði á því sem við sóttumst eftir, skemmtilegri og hressilegri frásögn. Og ekki var hann mikill á velli, heldur lágvaxinn og stinghaltur, en svip- hreinn, greindarlegur og glaðleg- ur, léttur í máli og svo orðhagur að mér er það enn í minni. Því var það tilhlökkunarefni, að ríða með honum vestur yfir Helj- ardalsheiði vorið 1895. Þá ferð fór móðir mín og fékk þennan frænda sinn með sér, því að kýr var með í förinni svo að ekki var farið hratt yfir. Það gerði raunar ekk- ert til, aldrei þessu vant, því að Arngrímur sagði frá og ég drakk undrin af vörum hans. En við Stóruvörðu á Heljardalsheiði var stanzað og rætt um hvort vogandi væri að fara jökulinn ofan í Deild- ardalinn, en þangað var ferðinni heitið. Þá segir Arngrímur: „Á jökulinn höldum við í herrans jnafni.“ Þessi orð eru mér jafn jminnisstæð og þau hefðu verið | sögð í gær. Þau voru ákveðin og j alvöruþungi i röddinni, allt ann- I ar tónn en sá er ég dáðist að í • frásögn Arngríms. En samt þótti mér sem hann yxi í sæti sínu jog yrði að hetju, sem óhætt væri iað treysta. Og það reyndist líka j svo. Ferðalagið gekk vel. En því rifja ég þetta upp að ' gamni mínu nú, að drengurinn ÞÁTTUR KIRKJUNNAR Fyrir Guð og föðurlandið „Hinir kyrrlátu í landinu," nefndust þeir í fyrstu, sem bezt skildu Rrist og' bezt fylgdu honum af heilindum, festu og trúmennsku. Þeir voru ekki allir í „póli- tíkinni," eins og nú er sagt um marga dugnaðarmenn og framaþyrsta unglinga, sem vita hvað þeir iVÍlja, og vilja elska sitt land. En brestur samt stundum þrótt til að velja eftir eigin samvizku og heilindum. „Hina kyrrlátu í landinu" þarf samt manna sízt að skorta ættjarðarást. Til eru leiðir hins yfirlætislausa, sem í önn sinni og trúmennsku get ur unnið þjóð sinni og fóstur jörð með jafnvel helgari hætti en nokkur stjórnmálaumsvif geta orðið. Með hljóðum munni og höndu trúrri er himinn fluttur jarðar til. Það er fólkið, sem er salt jarðar og ljós heimsins, sem alltaf ratar rétta leið út úr ógöngum hverrar kynslóðar. Sögð er eftirfarandi saga af heimsfrægum ræðumanna og trúboða. Hann kom of ^eint til sam- komu, þar sem hann átti að flytja eina af sínum frægu ræð um. Það var algjörlega óvenju legt, að hann léti bíða eftir sér við slík tækifæri. Þá bar hann fram þá afsök un, að hann hefði verið að gréiða atkvæði í þingkosning- um og tafist við það. En þetta var á kjördegi til enska þings- ins. „Hvað er þetta“? Að kjósa! sagði einn vina hans hneyksl- aður. Ég hélt, að þú tilheyrðir eingöngu hinni himnesku Jerú salem. Já, svaraði mælskusnillingur inn, það geri ég líka, en minn gamli Adam, er þar að auki borgari í konungsríkinu Eng- landi. En þú átt að krossfesta þinn .gamla Adam“ hélt vinurinn áfram, krossfesta holdið með þess girndum og tilhneiging- um, eins og postulinn segir. j „Einmitt það. Þetta gjörði ég líka.“ svaraði ræðumaður. „Minn gamli Adam hefur allt- af tilheyrt Torty-flokknum, en eins og sakir standa nú, þá þvingaði ég hann til að kjósa inn. Þannig fylgir kristinn mað- ur sannfæringu sinni um það, sem samvizkan telur rétt, þótt gangi móti óskum hans og fyrra áliti. Það er ein hin mesta þoranraun, og ekki heiglum hent. En hvaða stjórn er bezt? spurði Goethe. Og hann svar- aði sér sjálfur: Sú, sem kenn- ir rétta sjálfstjóm. Það er til hryllileg ættjarðar ást. Sú ættjarðarást, sem gleym ir að gefa Guði það sem Guðs er. Setur réttlæti, kærleika, fegurð og sannleika hæst. Sú ættjarðarást, sem kennir manndýrkun og sjálfselsku of- ar öllu öðru, hefur verið und- irrót og jarðvegur flestra styrjalda á síðari öldum. Og hún er burðarás hins illa í sumum stjómmálastefnum, að minnsta kosti á vissu þróun- arstigi þeirra. Það er auðþekkt á því, að þá er leitað til hins lægra og dýrslega í mannsvitundinni, leikið af valdhöfum á strengi hégómaskapar, öfundar, ill- gimi sjálfsálit, hroka og heimsku og síðar grimmdar og hrottaskapar, sem framleiðir og smitar með þurrkunarlausri illsku svokölluðum sadisma, sem finnur gleði í misþyrm- ingum og kvölum annarra. Slíkt ástand einstaklings er óttalegt. En miklu hryllilegra þó, er það grípur heilar þjóð- ir, milljónirnar. En það verður í heimsstyrjöldum. Þar sem keisarinn — valdhafinn einn hefur tökin og gerir sig að Guði. Þess vegna er svo athygl isverð sú ógæfa, þegar stjórn- málaflokkar virkja trúartilfinn ingar fólks til fylgdar við sín- ar hugsjónir eins og gert bef- ur verið í kommúnisma og nazisma á þessari öld. Þetta hafa 'verið helttrúarstefnur, þar sem „hugstola mannfjöld- ans vitund og vild er villt um og stjómað af fáum“ Það er ekki trúleysi, sem einkennir þessar og fleiri stjómmála- stefnur, heldur miklu fremur ofstækistrú blandin heimsku, hroka og hindurvitnum, þar sem aðalatriði virðist að loka fyrir frjálsa hugsun. Þess vegna er oft hið fyrsta í framkvæmdum að loka fyrir leit frjálsrar hugsunar að Guði hins góða, og lítilsvirða þær trúariðkanir, sem til hans geta leitt. Þetta hefur einkennt Her ódesa nútímans og Herodesa allra tíma. Gleymum því ekki guðs- trúnni. Gleymum ekki að færa fómir á altari, mannkærleika og mannhelgi. Sú stjómmála- stefna, sá „keisari,“ sem bend ir og dregur í aðra átt er byggð á falsi og lygum, sem fyrr eða síðar leiða í ógöngur. „Tær sanna tign þín sjálfs ver sjálfur hreinn og frjáls, þá skapast frelsið fyrst, og fyrir Jesúm Krist mun dauðans fjötur falla.“ Látið engan hlut fá vald yf- ir sál og samvizku. Gefið það Guði ljóss og lífs — afli og framvindu gróandans á hverjum tíma. Það er stefna lífs og gæfu. Gef þú maður Guði þínum gjörvallt það, sem honum ber. Gef honum, helga honum hugsun og mál, hjarta þitt og athöfn alla, og fyrr eða síðar uppsker þú blessun, ef ekki fyrir sjálfan þig þá fósturjörð þína og framtíð þjóðar þinnar. Þá eignast þú hið háleita tak- mark að lifa fyrir Guð og föð urlandið. Gefa keisaranum það, sem keisarans er og Guði það, sem Guðs er, svo að jafnvel skattgreiðslan verði þér gleði. Árelíús Níelsson. sem húsfreyjan á Þorsteinsstöð- um bar undir brjósti þennan dag sem við vorum gestir þeirra hjóna, og sá dagsins Ijós 22. nóv. það ár, er einmitt afmælisbarnið .sem ! þessar línur eru helgaðar. í Jóhannes Amgrímss. er af góðu \ bergi brotinn. Hann er einn af 6 Í sonum foreldra sinna. Arngr. Stef ánssonar og Önnu Baldvinsdóttur, sem bjuggu ,allan sinn búskap á Þorsteinsstöðum. Og þar hafði Stefán búið allan sinn búskap með konu sinni, Sigríði Sigfús- dóttur frá Skeiði. Og faðir Stef- áns sömuleiðis, Arngrímur hrepp- stjóri Arngrímsson, bónda og silf- ursmiðs frá Ytra-Garðshorni Sig- urðssonar. En kona Arngríms hreppstjóra var Sigríður Magnús- dóttir prests og skálds að Tjörn Einarssonar (D. 1794). Er sagt að sr. Magnús hafi eitt sinn spáð því er þau voru böm, að þau yrðu hjón. „Þetta er nú mannsefnið þitt Sigga mín,“ hafi hann sagt er þeim hafði eitthvað borið á milli. Er því „Svanurinn á Tjöm,“ sem sr. Jón skáld á Bægisá kallaði svo, langa-langaafi Jóhannesar Amgrímssonar. Hafa þessir Þor- steinsstaðamenn þótt hinir mestu greindarmenn og sæmdarmenn. Átján ára að aldri heldur Jó- hannes að heiman með léttan mal, en dýrmætan arf í barmi. Hann lýkur námi á Eiðum með hinni mestu.sæmd, sezt svo að á Seyðis- firði, fæst fyrst við verzlunarstörf, en gerist þá sýsluskrifari og full trúi sýslumanns og þótti þar skipa hvert sæti með prýði. Og eystra dvelst hann til 1957, en flytur þá til Reykjavíkur og gerist starfs- maður á fræðslumálaskrifstofunni og situr þar nú við ágætan orð- stír. Jóhannesi Arngrímssyni kippir mjög í sitt góða kyn á alla vegu. Hann er ágætlega greindur og glöggskyggn á málefni og menn, en dulur og fáskiptinn. Og yfir- lætislausari maður mun vandfund- inn. En orðheppinn er hann sem faðir hans. Og ágætlega lumar hann á léttum gáska og góðu gamni þegar því er að skipta. Hins vegar mundi engum hafa nokkurn tíma tekizt að leiða Jó- hannes á villigötu eða glapstigu. Fyrir sínu stendur hann sterkur og fastur í rás. En Ijúfur á man» inn, skapþýður og skapfastur, hvað sem tautar, traustur starfsmaður og ágætur þegn. Árið 1923 kvæntist Jóhannes ágætri konu, Guðrúnu Helgadótt- ur frá Skógargerði eystra. Eiga þau eina dóttur barna, Guðrúnu að nafni, og er hún gift Tómasi lækni Jónssyni frá ísafirði. Jóhannes Arngrímsson átti sér góða ættar- og heimanfylgju, greindina og heilindin, og hina traustu og þýðu skapgerð. Og einnig það, sem jafnan hefur þótt einna dýrast djásn í ættargóssi íslendingsins, íþrótt Svansins á Tjörn og annarra slíkra í kyni hans, langt eða skammt að baki. Því að Jóhannes er skáld gott, þótt hann flíki því lítt. Og ætla ég nú að ljúka þessu fáorða af- mælisspjalli með því að birta hér tvö erindi eftir Jóhannes, sem við syngjum stundum á Svarfdæl- ingakvöldum. Fer vel á því, að saman fari ástaróður hans til sveitarinnar og árnaðaróskir okk- ar til hans, sem aldrei lætur sig vanta þar. Snorri Sigfússon. Svarfaðardalur. -Við ís og bjarta elda skírð var ættarsveitin prúða. Hún enn er söm í sólardýrð og sveipuð mjallarskrúða, með fjöllin mánaskini skyggð í skrúða minninganna. Hún laðar hugann, Ljótólfs- byggð og landnám Grundarmanna. Um þínar byggðir — þína jörð um þína farsæld alla, þar hoUar vættir haldi vörð við hástól þinna f jalla. Þær blessi sérhvern bæ og höld, svo blómgist sveitin fríða. Með ásýnd þinni íslands skjöld um aldir skalt þú prýða. JJL Kaupmenn - Kaupfélög Fyrtrliggjandi dalcron sloppaefni 115 sm Kr. Þorvaldsson & Co. Heildverzlun — Grettisgötu 6. Símar 24478 og 24730. Kaupmenn Fyrirliggjandi mjög fallegt úrval af samkvæmis- og kvöldkjólaefnum. j Kr. Þorvaldsson & Co. Heildverzlun — Grettisgötu 6. Símar 24478 og 24730.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.