Alþýðublaðið - 15.03.1959, Page 3
OKKAR Á MILLl SAGT
Það er dýrt spaug fyrir þióðina að halda flokksþing Fram-
sóknar og Íhaldsins. . . Fulltrúar utan af landi eru um 1000.
.. Ferðir þeirra til Reykiavíkur og heim aftur kosta allt upp
í 1500 krónur á mann, en með 1000 króna meðaltali er það
ein milljón. .. Ekki ier rétt að reikna vinnutap hvers full-
trúa minna en 250 krónur á dag og alls fara um 10 dagar í
ferðina, svo að þam eru 2,5 milljónir. . . Loks er áætlað. að
allur annar kostnaður, uppihald, matur, bílar, skemmtanir o.
fl. sé aðrar 250 krónur á dag eða 2.5 milljónki. . . Ef þessi
reikningur er ekki talinn fráleitur, kosta þessi tvö „þing“
þjóðina SEX MILLJÓNIR KRÓNA!
★
Austur-Húnvetningar hlakka nú þegar til næstu kosn-
inga, þar sem uppvíst er, að Björn Pálsson á Löngumýri
— stórbóndi, kaupfélagsstjórj o. fl. — verður í kjöri fyrir
Framsóknarmenn, en það er trygging fyrir „hressilegri“
kosningabaráttu og fundum.
★
Það hefur lekki farið mjög hátt, að Íslendingar eiga að
minnsta kosti tvær verksmiðjur í Bandaríkjunum, sem báðar
frámleiða svonefnda „fisksticks." .. Er hraðfrystur fiskur í
blokkum fluttur héðan í verksmiðjur þessar, þar sem hann
er sagaðun niður og stykkjunum dyfið í egg og brauðmylsnu
og þau síðan fryst aftúr. . . Sölumiðstöðin á ^aðra þessara verk-
smiðja og Sambandið hina.
★
Tveir af sænsku blaðamönnunum, sem hér voru í vik-
unni, voru frá Gautaborg og sýndu mikinn áhuga á því, að
skipasmíðastöðvar þar í bong ibyggðu togara fyrir íslend-
inga.
★
MAKARIOS III. erkibiskup
Kýpur og þjóðhöfðingi eyjar-
innar er ekki mikill á velli, en
ræða hans er snögg og augun
loga af áhuga og glálfum. Eftir
þriggja ára útlegð er hann nú
aftur kominn heirn til sinnar
kæru Kýpur og var fagnað sem
þjóðhetju og frelsara við kom-
una. Á árinu 1956 var Kýpur-
deilan komin í sjálfheldu. Bret-
ar voru beiskir vegna hermdar
verka þeirra Kýpurbúa, sem
sameina vildu eyna Grikklandi.
Makarios var fastur fyrir og
krafðist sakaruppgjafar þeirra
Kýpurbúa, sem heimtuðu EN-
erkibiskup
OSIS (sameiningu við Grikk-
land).
Um þetta leyti átti bandarísk
ur blaðamaður tal við Makari-
os og spurði hann hvort mögu-
legt væri að Bretar meinuðu
honum að kom’a aftur til Kýpur
ef hann færi frá eynni. Maka-
rios taldi það ólíklegt. En hann
reiknaði viðbrögð Breta ekki
rétt. Fáum dlögum síðar var
hann tekinn með valdi og flutt-
ur ti-1 Seéhelleseyja í indverska
hafinu. Ári síðar var honum
leyft að fara hvert á l'and sem
hann vildi, — nema til Kýpur.
Þetta píslarvætti styrkti mjög
aðstöðu hans meðal1 Kýpurbúa.
Honum var nú frjálst að ferðast
um og tala máli eyjarskeggja
um heim allan.
Útlegð erkibiskupsins varð
ekki á neinn hátt til þess að
draga úr þeirri ákvörðun
grískra Kýpurbúa, að rífa sig
undan yfirráðum Breta. Og hon
um var tekið sem þóðhetju, er
hann kom til Aþenu vorið 1957.
Einnig var honum mjög vel tek
ið í Bandaríkjunum er hann
kom þangað til að kynna mlál'-
stað landa sinna.
Margar ástæður liggja að því,
að þessi bóndasonur, sem varð
biskup 34 ára að aldri, erki-
biskup 37 ára, að hann er nú 45
ára gamall' forsetaefni hins
frjálsa Kýpurlýðveldis, sem
stofnað verður á næsta árí. í
nálægari Austurlöndum er það
altítt að andlegir leiðtogar eru
um leið mikiMrkir veraldlegir
foringjar.
Framhald á 9. síðu.
EFTIR nokkxa daga verð-
ur byrjað á að grafa upp þá,
sem féllu í borgarastyrjöld-
inni á Spáni 1936—1939. Tal
ið er að ein milljón manns
hafi látið lfifið 1 þeirri styrj-
öld og eru þeir grafnir í
fjöldagröfum víðs vegar um
landið. Franco, einvalds-
herra Spánar, sem siigraði' í
þeirri baráttu, hefur skipað
svo fyrir að hinn 17. rnarz
nk. skuli állir grafnir upp og
jarðneskar leifar þeirra flutt
ar í „Dal hinna föllnu“, og
nær þessi tilskipun til allra
þeirra, sem féllu í bardögum
og skiptir engu miáli hvar
þeir eru grafnir. Þó er gerð
sú undantekning að ef fjöl-
skyldur hinna fö'llnu treysta
sér til þess að þekkja jarð-
neskar leifar ættingja sinna,
mega þær grafa þæ'r aftur
hvar sem er.
einkuð verður þeim, sem
féllu af báðum aðilum í borg
arastyrjöldinni. Heiðursvörð
ur einn verður skipaður
þeim háskólamönnumi, sem
urðu undirforingjar í her
Francos í stríðinu.
Dalur hinna föllnu er
geysistór kapella höggvin í
kletta í Cuélgamuroaf jöllun-
um fimmtíu kílómetra frá
Madrid. Kostnaðurinn við
byggingu hennar hefur ekki
verið gefinn upp, en talið er
að hin 280 metra langa kap-
el-la með hinn 150 metra
granítkross gnæfandi yfir og
skreytt ótal listaverkum,
kosti ekki minna en 200 000-
000 dollara.'Hún hefur verið
í smíðum í 20 ár með all-
miklum töfum.
Þarna eiga hinir föllnu að
hvíla, en ættingjar þeirra,
Árið 1949 vom aðeins 14 kýr á landinu, sem mjólkuðu
yfir 20 000 fitueiningar á ári, en 1957 voru þær orðnar 241. ..
Hæst var Skrauta frá Hjálmholti í Hraungerðishreppi með
6580 kg.
Sjálfstæðismenn ætla sýnilega að reyna að nota hinn
niýndarlega leikvang í Laugardal enn betur til áróðurg.
. . Leikvangurinn verður vígð'ur með tilheyrandi hátíð og
íþróttamótum — og svo auðvitað ræðuhöldum. . . Og hve-
fer hátíðin fram ? — I júní, kosniugamánuðinum.
er nú augljóst, að nái kjördæmabreyting fram að
ganga, mun þingmönnum verða fjölgað upp { rúmlega 60, og
er þetta á stefnuskrám beggja aðtía, því Framsókn vill halda
öllum kjördæmum. sem fyrir eru og fjölga í þéttbýlinu. ..
Ólafur Thors sagði frá því í langlokuræðu sinni á flokksþing-
inu, að þingmenn yrðu 12 í Reykjavík, fimm í flestum hinna
kjördæmanna, nema’ e. t. v. 6—7 f nokkrum. . . Þar koma til
greina Reykjaneskjördæmi, Suðurlandskjördæmi og Norð-
austurland.
fjöldamorðunum yið Para-
En fjölmiargir ættingjar
hinna föllnu telja að með
þessu sé Franco einungis að
hafa í frammi pólitískar
brellur.
1. apríl næstkomandi held-
ur Franco upp á 20 ára af-
mæli sigurs síns yfir her-
sveitum lýðveldisins með því
að vígja hina miMu kapellu
„Dal hinna föllnu“,.sem til-
sem félla í baráttunni við
Franco, vilja að þeir hvíli á-
fram þar sem þeir voru
grafnir, hvort sem það er í
sveitakirkjugörðum, uppi í
háfjölluim eða í fjöMagröf-
um vígvallarins. Ættingjar
þeirra, sem féllu í baráttunni
fyrir að feoma Franco til
valda, eru einnig mótfallnir
því að jarðýtur verði nú látn
ar raska ró hinna dánu.
Ættingjar þeirra lýðveld-
issinna, sem myrtir voru í
cuellös de Jarama hafa op-
inberlega mótmœlt fyrirætl-
unum einræðisherrans og eft
irlifandi ættingjar skáldsiná
Garcia Lorca, sem skotinn
ista í Granada 1936, hafa
krafizt þess að hann fái að
hvila áiframi í þeirri grö’f, sem
talið er að hann sé grafinn í.
En Franco, ráðherrar hans
og klerkar hafa ekki látið
þessi mótmæli á sig fá né
virðast þeir ætla að hverfa
fná áformum sínum. Og
næstu daga hefst uppgröftur
dauðra í stærri stíl en vitað
er um áður.
var af lögreglumönnum fas
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinniiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiíiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiii hiiiiuhiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
Alþýðublaðið — 15. marz 1959 3
— v.ói 5»