Alþýðublaðið - 15.03.1959, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 15.03.1959, Blaðsíða 6
4 Spjallað við vifavörðinn í Grófíu. — ÞIÐ SÆKIÐ heldur betur að mér! Ég steinlá. Ég vaknaði fyrir birtingu í morgun, eins og ég er vanur, en skömmu eftir há- degið sótti svo að mér, að ég steinsofnaði. Öðrum hvorum ykkar hlýtur draugurinn að fylgia. Við erum staddir úti á hlaði hjá Albert Þorvarð- arsyni, vitaverði í Gróttu, —; höfum sætt sjávarföll- um og ■ komizt út í vitann á háfjöru klukkan rúm- lega eitt. Hann býður okk- ur inn og varla erum við setztir, fyrr en við biðjum Albert að segja okkur meira um drauga, fyrst við sóttum nú svona að honum. — Mér finnst óvirðulegt að kalla bað drauga, þótt eitthvað sé á hreyfingu, Hins vegar er til fullt af öndum. Annars er maður álitinn fáviti nú á dögum, ef maður minnist á dular- full fyrirbæri. — Nema Þórbergur. — Já, nema Þórbergur. Hann er kominn yfir það, og þess vegna er hann kall- aður ofviti. — Hefur Þórbergur aldr ei heimsótt þig? Myndir: Oddur Ólafsson. Texti: Gylfi Gröndal. — Jú, það var fyrir mörgum árum, að þeir heimsóttu mig, hann og Hallbjörn prentari. — Og þú hefur auðvitað sagt honum draugasögur? —Nei, ég var dálítið neyðarlegur við hann, enda var hann bá nýlega búinn að yrkja níð um ne's- ið okkar, og ég var stað- ráðinn í að gefa honum duglega í nefið fyrir það. Ég vissi nefnilega. hvernig á bví stóð, að hann orti þetta níðkvæði. Þannig var í pottinn búið, að hann var skotinn í stúlku hér á nes- inu, og allt haustið gekk hann hingað illa klæddur og berhöfðaður, eins og hann var í þá daga. Hann gekk alltaf að bænum, þar sem stúlkan bjó og keypti eitt mjólkurglas. Hún færði honum nefnilega glasið sjálf og þá fékk hann að sjá hana um leið. En skömmu seinna giftist þessi stúlka og hefur Þór- bergur þá orðið svo af- brýðisamur, að hann hefur þurft að hefna sín á öllu nesinu. Og nú syngja stú- dentar þetta í samkvæm- um sínum. Heldur þykir mér þeir þurrausnir að seil ’f SS »1 ast í koppavísurnar hans Þórbergs. — En hvað um draug- ana? — Já, fyrst við erum að tala um Þórberg, þá dett- ur mér í hug dálítið, ég upplifði með Séra Árna. Það mun hafa verið 1925 að ég kom til séra ans Kjartanssonar á arstað og gisti þar. É einn í rúmi, örþreyttur eft ir ferðina og steinsofnaði með það sama. Þá mig eftirfarandi draum: Stúlka kemur til mín í hvítum kyrtli, með slegið hár, fölleit, en mjög fögur. Ég sé, að hún vill mér eitt- hvað. Hún segir ekkert, en réttir mér höndina. Ég tek í hönd hennar og stend upp, og þá leiðir hún mig út í kirkjugarðinn. Þar bendir hún mér á leiði, sem yar næst austurhorn- inu á kirkjugarðinum, og gefur mér í skyn að þar eigi hún heima. Að því búnu skiljum við, en ég var þó ekki ánægður. Mér fannst eitthvað vanta. Næstu nótt kemur séra Árni frá Stóra-Hrauni og gistir. Við erum látnir sofa saman. Ég sofna, eins og kristinn maður, þótt prest- ur sé að tala við mig. Hann rekur að vísu olnbogann í mig öðru hvoru, en þá set ég sængina á milli og held áfram að hrjóta. Nú. Um miðnætti vakna ég og sé, að Árni er kominn framúr og heldur sér í fótagafl- inn. Ég verð fljótlega var við, að hann liggur á bæn, enda steinþegir hann. Eft- ir skamma stund kemur hann uppí til mín og seg- ir mér, að sig hafi dreymt draum. Kemur þá upp úr kafinu, að það er nákvæm- lega sami draUmurinn og mig hafði dreymt nóttina áður. Það var aðeins einn munur á: Stúlkan hafði óskað eftir að beðið yrði fyrir sér. Það hafði ég ekki skilið, en Árni skildi það náttúrlega á augabragði. Við gistum nokkrar næt ur enn og á hverri nóttu eftir þetta, þegar ég var að blunda, rekur Árni olnbog ann í mig og heldur fyrir mér vöku alla nóttina með alls kýris sögum. Hann var sá mesti sögubrunnur, sem ég hef komizt í kyririi við. Það hefði verið hægt að. hlusta á harin í hálfari mánuð samfleytt. — Ertu ekki skyggn, Al- bert? Nei. Þó held ég, að, einu sinni á ævinni hafi ég verið skyggn. Ég var þá sex ára gamall. Þetta atvik hefur bx’ennt sig svo inn í höfuðið á mér, að ég man hvert smáatriði í sambandi var horaður, toginleitur, í vaðmálsjakka og einhverj- um buxnalörfum, óklippt- ur og illa til hafður. Hann var vægast sagt ógeðsleg- ur og horinn lafði úr nefinu á honum og niður á munn. Hann gengur að vöggunni og lítur yfir barnið. Um leið rekur barnið upp þetta skerandi óp. Ég ætlaði í ofvæni að ráðast á ófreskj- una, en þá var þar ekki nokkur sála. Barnið var óhuggandi langan tíma eftir þetta. — Þú ert ekki hræddur við drauga? — Nei. Okkur krökkun- um var snemma kennt það, að í myrkrinu væri ekkert, nema það sem sæ- ist í björtu. Hér áður fyrr fór ég oft út að Bygggarði og las allt kvöldið drauga- sögur á vökunni. Að því LEYNDARDÓMUB MONT EVEREST PHILIP sýnir Frans hin ýmsu riíbýli, þar sem dalbú- árnir halda til. „Ég gei aðeins sagt þér,“ segir Philip, „að ég skil gjörla, að þú skilúr þetta ekki allt þegar í stað. Þú hefur að öllum líkindum það á tilfinningunni, að þig dreymi þetta allt saman,“ ,,Einmitt,“ segir Frans, „þann ig er það. Ég get alls ekki trú loknu gekk ég oft út í vitann í þ myrkri. Og ég verð að þá varð mér oft til þess, að ef það 1 einn með hausinn hendinni, — þá va ara að hafa hnullux —og ekki var laus ég gengi stundy: stein í vasanum. — Svo að við í draugunum: Hváð verið hér vitavörðu — Síðan 1931 minn var*vitavörði an mér. Hann tók ^ ar kveikt var á garr um 1897. Þessi viti vegar reistur 1947, — Og þú lifir sjónum? — Já, eingöngu um: fugl og fiski. urna er heldur : gera við sjósókn, ei baki snæviþaktra hl; laya.“ „Já,“ svarai „þetta er nokkuð, höfum allir orðið ; okkur við. En það, si við það. Móðir mín hafði Iagt sig og lofaði mér að vera hjá sér. Enginn annar var í baðstofúnni, neiry, korna- barn í vög'gu og stöð vagg- an fyrir framan rúm móð- ur minnar. Áður en móðir mín sofnaði, vaggaði hún barninu, en féll síðan í væran svefn. Ég vakti hins vegar og skyndilega sé ég dyrnar opnast og inn kem- ur pínulítill karl, hann gat verið 14—16 ára og hann gat líka verið 24 ára. Hann er hvað í 0 15. marz 1959 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.