Alþýðublaðið - 03.04.1959, Síða 9
( ÍÞrófflr )
Meistaramót S-Ameríku:
Um þessai' mundir stendur yf
ir meistaramót S.-Ameríku í
íknattspyrnu og hefur verið
töluverður hiti í leikjunum eins
og venja er þegar þeir leika
knattspyrnu þarna suður frá.
í byrjun þessarar viku var Braz
ilía ©fst með 9 stig, Agentína 8,
Peru 5, Uruguay 5, Paraguay
4, Ohiie 3 og Bolivia 1. Argen-
tína hefur leikið einum leik
færra en Brazilía.
Mesti „slagsmálaleikur51, —
se msögur fara af var s.ennilega
leikur Brazilíu og Uruguay í
keppni iþessari. 'Slagsmálin náðu
hámiarki í síðari Málfleik, þegar
Brazilíumaðurinn Almir 'brá
fæti fyrir Silveira. Félagi Silv-
eira, Douskas varð óður og
hljóp að Almir og gaf honurn á
hann og þá var ekki að spyrja
að því, knattspyrnan gleymdist
og hófst flokkakeppni í hnefa-
leikum, sem stóð víst samfleytt
í 23 mínútur.
Meira en 200 lögregluþjónar
j komu á vettvang og tókst að
I koma á ró, en áhorfendur voru
víst einnig byrjaðir. Leiknum
lauk með sigri BraziHu 2:1. —
. Það er hiti í þeim í Suður Ame-
ríku!
Undanúrslit í keppninni um
Evrópubikárinn svonefnda í
handknattleik var hiáð fyrir
nokkrum dögum milli ssenska
félagsins RedibergsMds og Hels-
ingör, sem ihér var í keppnisför
s. 1. vor. .
iSvíarnir sigruðu með miklum
yfirburðum 22 miörk gegn 12,
í hálfleik.var staðan 8:ð. Bezt-
ir í liði Helsingör voru Per
Theilmann, Bjiarne Jensen, Mog
ens Cramer og markmaðurinn
Bent Mortensen. í liði Svía
voru beztir Donald Lindblom,
Hasse Olsson og Gunnar
KámpedaM.
Úrslitaleikurinn verður iháð-
ur 18. apríl n. k. og þá léika
Svíamir gegn hinu sterka,
þýzka liði Göppingen og reikna
margir með sigri þýzka liðsins.
efglsi í Jóseps
Bláflöflum
í SKÍÐASKÁLA Ái'manns í
Jósefsdal dvöldu rúmlega 100
manns yfir páskahátíðina.
í Jósefsdal var lítill snjór, en
nægur snjór í Bláfjöllunum og
suður umFIeiðina há, enda fóru
Ármenningar á hverjum degi
í lengri og s'kemmri ferðir um
BláfjölHnn. Á laugardaginn fyr
ir páska snjóaði noklkuð efra,
og á páskadagsinorguninn, þeg-
ar skíðafólkið kom í Bláfjöllin
til þess ?að taka þátt í íhinu ár-
lega þáskamóti, var glampandi
sólskin og silkifæri.
Keppt var í 4 flokkum: —
kvennaflofcki, telpnaflokki,
karlaflokki og drengjiaflokki, —
með samtals 26 þátttakendum.
Úrslit í 'kvennaflokki urðu
þau, að Ásthildur Eyjólfsdóttir
sigraði, á 58,6 sek., önnur varð
Haldóra Árnadóttir á 69,4 og
þriðja Margrét Ólafsdóttir á
93,6.
í telpnaflokki varð sigurveg'-
ari Guðrún Bjömsdóttir, á 81,6
og nr. 2 varð Kristín Björns-
dóttir á 101,4. -—• Þessir flokkar
kepptui í sömu braut. Brautar-
lengdin var um 200 metrar, 12
hlið.
í karlaflokki varð fyrstur Ing
ólfur Arnason, á 82,4 sek.,,2.
Elías Hergeirsson 85,3, 3. Eirí'k-
ur Kristinsson, 88,7. — Brautar
lengdin var 350 metrar, 25 hlið.
í drengjaflokki varð nr. 1
Björn Bjarnas'on, á 72,1 sek., 2.
Brynjólfur Bjarnason, 86,2, 3.
Guðmundur Sigurjónsson. —
Braut þeirra var um 250 metrar
með 15 hHðumi.
Yerðlaun voru aflhent sigur-
vegurunum' á kvöldvökunni á
páskadagskvöldið.
Kvöldvökur, með leikþáttum,
upplestrumi og ýmiskonar leikj-
um eru haldnar á ihverju kvöldi
í skálanum’, og fullyrða má, að
fátt sé hollara ungu fólfei, en
að dveíja í frístundum sínum í
góðum félagsskap upp til fjalla.
| Hinn snjalli hástökkvari |
| John Thomas meiddi sig á 1
| fæti fyrir nokkrum dögum I
| og verður að hvíla sig al-1
1 gjörlega í sex til átta vikur. |
| Ekki er álitið að meiðslini
| séu mjög alvarleg.
'ílÍllll!llllll!IIHIIIIIIIIIIIIIII!lllllllll|||l||||||||||||||IIIIIl7.
Ármenningar við „Himnaríki“ í Bláfjöllum á páskum 1959.
FEIRREIRA da SILVA hefur
verið boðið til Bandaríkjanna
í keppnisför í apríl og maí n. ik.
Hann hefur iþegið boðið og seg-
ist vera í góðri æfingu og þar
af leiðandi búazt við góðum ár-
angri.
uimiiiiiiuitiijiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiuiiiiiiiriiiiiiiiiiiiiiiiiiii
I Beztír í kúluvarpi (
§ Eftir árangurinn í kúlu- =
| varpi á mótinu í Santa Bar- |
I bara lítur afrekalistinn í =
| greininni út sem hér segir: |
1 P. O. Brien, USA, 19,35 ’56 í
I D. Long, USA, 19,25 ’59 |
1 W. Nieder, USA, 19,13 ’59 1
i D. Davies, USA, 18,41 ’58 |
| K. Bantum, USA, 18,30 ’56 |
I S. Lambert, USA, 18,13 ’54 |
1 D. Owen, USA, 18,13 ’57 f
I J. Skobla, Tékk., 18,05 ’57 |
1 T. Jones, USA, 18.01 ’55 f
= A. Rowe, England, 17,96 ’58 |
1 J. Fuchs, USA, 17,95 ’50 |
1 V. Ovsepian, Rússl. 17,93 ’58 |
| D. Vick, USA, 17,89 ’57 l
| S. Meconi, ítalía, 17,81 ’58 |
| Varasnaukas, Rússl., 17,81 ’58 §
1 V. Lipsins, Rússl., 17,72 ’58 \
| C. Fonville, USA, 17,68 ’56 1
n 5
UIIIIIUIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIUlllHlllllillllUIUIIU.
^-Ap,
☆ Félagslíf
Valsmenn.
Meistara og I. flokkur, úti-
æfing í kvöld kl. 7,30. Fund-
ur kl. 9. Mætið vel og stund-
víslega.
bjálfarinn.
Frá Guðspeki-
félaginu
Reykjavíkurstúkan heldur
aðalfund sinn í kvöld, föstu
daginn 31. b. m. og hefst hann
kl. 7,30 á venjulegum stað.
Nauðsynlegt er, að félagar
stúkunnar sæki fundinn. Að
þeim fundi loknum, kl. 8,30,
hefst venjulegur fundur.
Grétar Fells flytur erindi, er
hann nefnir Karl og kona. Að
erindinu loknu verður sýnd
kvikmynd.
Veitt verður kaffi að lokum.
Gestir velkomnir.
Fermingarskeyfi
skáta í Reykjavík.
SKÁTAFÉLÖGIN í Reykja-
vík munu eftirleiðis hafa til
sölu heillaskeyti til fermingar-
barna. Þessi fermingarskeyti
eru litprentuð og sérstaklega
vandað til þeirra.
Ágóði af þessari skeytasölu
rennur til bygginga skátaheim
ila í úthverfum bæjarins. Fólk
getur valið um ákveðinn texta
sem kostar kr. 20.00, eða haft
texta eftir eigin vali.
Skeytin verða til sölu á eft-
irtöldum stöðum: Skátaheimil-
inu við Snorrabraut, Bóka-
safnshúsinu Hólmgarði 34,
Leikvallarskýlið við Barðavog,
Barnaheimilið Brákarborg,
Leikvallarskýlið við Rauða-
læk, Skrifstofu B.Í.S. Lauga-
veg 37, Verzl. Hrund, Lauga-
veg 27, Hrefna Thynes, Greni-
mel 27, Leikvallarskýlið við
Dunhaga.
Opið alla sunnudaga sem
fermt er frá kl. 10 til 19.00.
Skátar munu sjá um dreif-
ingu skeytanna.
Ókurteisi á opin-
berri skrifsioiu.
KONA nokkur kom að máli
við blaðið í gær og sagði sínar
farir ekki sléttar af viðskipt-
um sínum við opinbera skrif-
stofu hér í bæ. Skýrði hún
blaðinu frá því, að hún hefði
þurft að fá nokkrar upplýsing-
ar um heimilisföng nokkurra
félagsmanna í félagi, er hún
starfar fyrir. Hefði hún í fyrstu
snúið sér til lögreglustöðvar-
innar, en verið snúið þaðan til
manntalsskrifstofunnar. Er
þangað kom voru þar fyrir 3
menn skrifstofustjórinn, Jó-
hann Hafsteinn Jóhannsson og
2 aðrir menn og virtust þeir
hafa að gera. Konan kvaðst
ætla að spyrjast fyrir um nokk
ur heimilisföng. Varð Jóhann
fyrir svörum og kvað engar
upplýs'ingar um heimilisföng
verða veittar að svo stöddu.
Konan spurði, hvorí þetta væri
ekki opinber skrifstofa, er lát-
ið gæti í té upplýsingar um bú-
setu manna. Jóhann svasraði
hinu sama og áður og var stutt
ur í spuna, Sagði konan þá, að
lögreglan - hefði vísað sér á
manntalsskrifstofuna og kvað
þetta undarlegar móttökur á
opinberri skrifstofu. Þakkaði
konan síðan fyrir kurteisina og
fór. Konan hélt aftur á lög-
reglustöðina og skýrði frá við-
skiptum sínum við manntals-
skrifstofuna. Hringdi varðstjór
inn þá í manntalsskrifstofuna
og kvartaði yfir móttökum þar.
Varð það úr, að konan skyldi
koma aftur út á manntalsskrif-
stofu. Kvaðst skrifstofustjór-
inn þá geta tekið við nöfnum
þeirra manna, er upplýsingar
vantaði um og láta heimilis-
föngin í té síðar meir. Við svo
búið fór konan og varð hún
síðan að kaupa upplýsingarnar
hjá Hagstofunni.
Selfyssinpr
sigraðir
Fregn til Alþýðublaðsins.
Hvolsvelli í gær.
MIÐVIKUDAGINN fyrir skír-
dag fór fram að Gunnarshólma
í Landeyjum skákkeppni milli
Selfyssinga annars vegar og
Hvolhreppinga og Víkverja úr
Mýrdal hins vegar •
Teflt var ú 20 borðum og fóru
leikar þannig, að Hvolhrepp-
irigar og Víkverjar báru sigur
af hólmi. Hlutu þeir 103/2 vinn-
ing, en Selfyssingar 9Iá vinning
— Þess má geta, að Hvolhrepp-
ingar áttu 6 af þessum IQV2
vinningi og tefldu þeir allir með
svart. — Þ. S.
/• r
Árnesingar! Arnesingar!
Fundur verður í Sjálfsbjörg, félagi fatlaðra,
Árnessýslu, í Sélfossbíói sunnudaginn 5.
apríl kl. 2 eftir hádegi. — Áríðandi mái á
dagskrá.
STJÓRNIN.
ásgrímssýningin
í Listasafni ríkisins í Þjóðminjasafninu
er opin virka daga kl. 13—22, og helgi-
daga frá kl. 10—22.
Aðgangur ókeypis.
SfúSkur óskasl
í fiskvöskun og spyrðingu.
FiskverkunarstöS
JÓNS GÍSLASONAR
Hafnarfirði — Sími 50-165
Alþý'ðubla'ðið — 3. apríl 1959 J