Tíminn - 07.12.1965, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 7. desember 1965
TÍIV8INN
n
SJÖTUG
Framhald aí bls 8
allur vandinn og öll fyrirhöfnin
er hjá konunum. En Anna var
þeim vanda vel vaxin, hjartahlýja
hennar er svo mikil, að það er
henni veruleg nautn að líkna öðr-
um og greiða fyrir þeim. Og þrátt
fyrir sitt stóra heimili virtist Anna
æfinlega hafa tíma til að sinna
gestum.
Á Vopnafirði voru vanalega 12
manns í heimili í kaupfélagshús-
inu, fyrir utan aðkomumenn og
gesti, og segir sig því sjálft að
önn dagsins hefur verið mikil.
Náttúrlega var Anna þar ekki
ein að verki. Guðrún Sigurðar-
dóttir, mesta myndarstúlka, var
lengi hjá henni, og ekki má
gleyma Þórlaugu Einarsdóttur,
sem alltaf var í eldhúsinu og öll-
um vildi gott gera. Annars var
það kona, sem var lítið fyrir lífið,
en vegna hugulsemi og umönnun
frú Önnu bar hún harm sinn í
hljóði og virtist heldur hressast
seinni árin.
Þá voru á heimilinu tveir gaml-
ir menn, annar vandalaus. Ekki
get ég hugsað mér meiri ná-
kvæmni og hlýju en Anna sýndi
þeim, og það fór svo vel um þá
sem mest mátti vera.
Auk heimilisstarfanna kenndi
Anna í barna- og unglinga-
skóla, bæði hér og á Borgarfirði,
en um það fjölyrði ég ekki, enda
mun þess sennilega verða getið
af öðrum.
Það er föst venja Önnu að fara
í kirkju, þegar messað var á Vopna
firði. Þetta er ef til vill ekki nú
talið mikilsvert, en það sýnir með-
al annars skyldurækni hennar, sem
alls staðar kom fram, og hygg ég
að mangir hefðu gott af að hugsa
svo, og bömunum er það góð fyr-
inmynd.
Það er sagt að þar sem góðir
menn fara, séu guðs vegir, og mér
yirtist Anna fara svo nærri því
áð ganga á guðs vegum sem okk-
irr breyskum mönnum er hægt.
Ég vil svo að síðustu óska þér,
kæra Anna, ails góðs á sjötugs-
afmælinu og ókomnum ævidögum.
Ég þakka þér alla vináttuna og
risnuna viðvíkjandi okkar heimili
og óska þér og þínum nánustu
alls góðs og guðs blessunar.
Friðrik Sigurjónsson
____________________ Ytri-IDÍð.
NÍRÆÐ
Framhald af 6. síðu
greiðsla og beini í áratugi, sem
ekki t.ióar að gera tilraun til að
lýsa. f öllu þessu umróti kring
um lífaðstöðu Guðmundar — sem
var örgeðja hamhleypa og sást
ekki alltaf fyrir í önn dagsins —
«tóð Guðríður jafnan sem klettur
úr hafinu. Á henni brotnuðu áreið
anlega margar bárur, óvænt og
fyrirvaralaust. Aldrei mun Þó Guð
ríður 'hafa tekið neitt illa upp fyr
ir bónda sínum. Minnist eitt barna
þeirra ekki að hafa heyrt móður
sína mæla til föður síns sterkarí
áminningar- eða umkvörtunarorð-
um en þessum, þegar hinum sókn-
djarfa og skemmtilega víking svall
mest móður og hæst söng í tálkn
unum á honum. „Æ, láttu ekki
svona, maður!“ Þessi fáu, hóg-
væru brð Guðríðar lýsa henni vel
— hugarró hennar, staðfestu og
jafnvægi, þótt hún væri síður en
svo hlutlaus gagnvart viðburðum
daganna. Þau hjón voru mjög ólík
að skapgerð, en aðlöguðust hvort
öðru á hinn farsælasta hátt sökum
frábærra mannkosta beggja.
Hafi hann veri seglin á lífsfleyi
þeirra, má fullyrða, að hún hafi
verið kjölfestan. Sliks sannmælis
myndi Guðmundur vissulega hafa
viljað unna henni, svo mikið veit
ég fyrir víst. ■
Nú, þar sem Guðríður mín í
hárri elli sinni situr á friðarstóli
heima á Sveinseyri, hvar hún lifði
dáðríku lífi sínu í gleði og sorg,
veit ég, að hugur hennar dvelur
tíðum við minningar liðinna daga,
og þá einkum þær Þeirra, sem eru
tengdar honum, er hún unni og
ann. Þar næst kemur í öndvegi
umhyggjan fyrir yngri afkomend-
unum. Hún strýkur mjúklega huga
og hendi mynd þeirra allra og bið
ur þeim blessunar guðs síns.
Barnabörnin hennar eru nú orðin
14 og barnabarnabörnin 33, þar
af 3 nöfnur. Þetta er hennar elsk
aði fjársjóður. Guð blessi henni
hann til hinzta dags. Það myndi
henni mest gleði.
Guðríður mín! Eg sendi þér
hjartans kveðju mína á þessum
merka tímamótadegi þínum. Með
fylgir innileg Þökk fyrir áratuga
vináttu þína og órofa tryggð, allt
frá því ég flatmagaði alsæll í
gamla hlýlega og hreina bænum
þínum, löngu fyrir þjóðhátíðarár-
ið frægasta, og til síðustu sam-
funda okkar fyrir ekki svo löngu
í stofunum þínum í stóra húsinu.
Alltaf var kærleíksþel þitt og
hjartahlýia hin sama. Og ekki svo
lítið á ég að þakka bónda Þínum
og börnum. Eg bið þér blessunar í
bráð og lengd!
Baldvin Þ. Kristjánsson.
Á VÍÐAVANG!
starfsemi bankanna og getur
þannig í höfuðatriðum ráðið
fjárfestingunni í landinu.
Stefna Sjálfstæðisflokksins er
að styðja stórrekstur einstak
linga, sem hann nefnir „at-
hafnamenn". Þeir skulu svo
aftur vera máttarstoðir flokks
ins og leynir sér ekki við
kosningar hvaða flokkur hefur
fyrst og fremst yfir fjármagni
að ráða.
Það eru fölsk hljóð að heyra
Morgunblaðið lofsyngia frelsi
og lýðræði því hvorugt styð-
ur það í þágu borgaranna al-
mennt, heldur sem sérréttindi
lítils hluta af þjóðinni. En sá
Iitli hluti er auðvaldið á ís-
Iandi, sem allir hinir mörgu
verða að greiða drjúgan skatt
og þola fyrir margs konar ó-
frelsi“
TILLGGUk
Framhald af 6. síðu
sala haustafurða á mörgum stöð
um í borginni, svo að húsmæður
eigi hægara með að ná í þennan
liolla mat á hóflegu verði. Núver-
andi sölumáti sláturafurða er al-
gerlega óviðunandi.
3. .Fundurinn skorar á forstjóra
i Grænmetisverzlunar landbúnaðar-
■ ins að hlutast til um það, að kart
i öflur verði einnig seldar í 2—2%
kg pokum, því að 5 kg skammtur
' er alltof stór fyrir lítil heimili.
; 4. Fundurihn sborar á Sölufélag
garðýrkj umanna og Grænmetis-
verzlun laindbúnaðarins að koma á
grænmetismarkaði í borginni.
5. Fundurinn skorar á neytenda-
sanatökin og Kaupmannasamtök
íslands að hlutast til um það, að
neytendur fái í hendur allar upp-
lýsingar, sem fylgja vörunum frá
framleiðendum.
6. .Fundurinn tekur undir kröfur
Neytendasamtakanna um, að sett
verði reglugerð um vörumerkingu
og skorar á viðskiptamálaráðherra
að hraða framkvæmdum þessa
máls.
7. Fundurinn skorar á verðlags-
stjóra að herða á eftírliti með verð
lagj á vörum og þjónustu, að sjá
um, að framfylgt sé reglugerðinni
um yerðmerkingar í verzlunum og
að láta herða á viðurlögum við
brotum.
8. Vegna þeirrar dýrtíðai'. sem
myndazt hefur á undanförnum ár-
um og eðlilega kemur mjög við
heimilin í landinu, skorar fundur-
jnn á stjórn og löggjafarþing að
aflétta að verulegu leyti verðtolli
og söluskatti af brýnustu nauðsynj
um.
9. Fundurinn mótmælir afnámi á-
kvæða um hámarksálagnimgu verzl
ana á ýmsum nauðsynjavörum s..s.
búsáhöldum, leirvöru, barna- og
kvenskófatnaði, heimilisvélum,
byggingavörum og öllum fatnaðar
vörum og krefst þess, að aftur
verði sett ákvæði um hámarksá-
lagningu á þessar vörur.
10. Fundurinn beinir því til stjórn
arvaldanna að gera þegar í stað
ráðstafa-nir til þess að tryggja það
að landbúnaðarframleiðslon verði
sem fjölbreyttust og í sem mestu
samræmi við neyzlu íslendinga
sjálfra, svo að stórfelldir neyzlu-
styrkir til erlendra þjóða verði
ekki til þess að magma verðbólg-
una í 1-andinu. Fram-hald.
HVER ÞEKKIR SKÁLD?
Framhaltl at 5. síðu
hvernig Davíð orti ljóðið Skógar
hindin er mikilvæg heimild.
Páll ísólfsson nefnir þátt sinn
Á ströndinni og vísar þar til
samverustunda með Davíð aust
ur á Eyrarbakka. Þetta er hugn-
anlegur þáttur og segir þar lítið
eitt frá stefnumótum ljóða og
laga. Þátt-ur séra Péturs Sigur-
geirssonar greinir frá því, hvem
ig bænarljóðið, Ég kveiki á
kertum mínum, varð til. Það er
falleg saga og gaman að trúa
henni.
Einn lengsti þáttur bókarinn-
ar eftir Ríkarð Jónsson, mynd
höggvara, og segir þar frá^ sam
fylgd hans og Davíðs á Ítalíu
Þetta er bráðskemmtileg ferða
saga, og þó að Davíð sé þér ekki
aðalsöguhetjan, finnur maður
jafnan nálægð hans og skynjar
skáldlega hrifningu hans. Þarna
er greint frá ýmsum atvikum
er leiddu til ljóðagerðar. Það
hafði mér aldrei dottið í hug, að
ljóðið um Katarínu hefði Davíð
mælt af munni fram með stúlk-
una sjálfa á hnjánum, en Rík-
arður Jónsson ritar það upp
með fljótaskrift nótt eina suður
á Kapri, og gerð þess þegar ver
ið isvo heil, að það hefði litlum
breytingum sætt síðar. Trúi nú
hver sem má.
Sigurður Nordal á þarna tvær
greinar, minningarorðin, sem
hann flutti í útvarpið á útfarar-
degi skáldsins, og glefsur úr
gömlum bréfum. Lítill vafi er á
því, að sá þáttur hef-ur mest
heimildargildi í bókinni og er
að ýmsu leyti tíðindamestur,
enda koma þar fram hendingar,
vísur og jafnvel heil Ijóð, sem
Davíð hefur aðeins skrifað Nor
dal.
Bezt skrifaða greinin í safni
þessu er þó líklega þátturinn,
Skáldið að norðan eftir Stein-
grím J. Þorsteinsson. Það er fal-
leg hugvekja, og Þar er fæðingar
saga þessara orða: „Hvað varðar
þá um vatnið, sem vínið rauða
trega? Hvað varðar þá um jörð
ina, sem himinn eiga?“ og er
nokkurs virði.
Þorst-einn M. Jónsson segir
skilmerkilega frá skiptum skálds
og útgefanda, og víst er þar
ýmislegt fprvitnilegt.Einniglýsir
þar bókasafnari öðrum bókasafn
ara af fullum skilningi. Hann
segir einnig nokkrar skemmtileg
ar sögur af Davíð, t.d. af spila-
mennsku þeirra höfðingjanna
á Akureyri, þegar þeir léku sér
heila nótt eins og börn.
Þorsteinn Jósefsson lýsir all-
náið hinu mikla bókasafni
Davíðs og rekur söfnunarferil
hans og bókamat eftjr föngum.
Loks er ættartala Davíðs eftir
Einar Bjarnason. Að síðustu er
frásögn af útför Davíðs.
Fjölmargar og ágætar mynd-
ir eru í bókinni, sem er sérlega
smekkleg að allri gerð í útsetn-
ingu Hólaprentsmiðju og vand-
legri umsjá Árna Kristjánsson-
ar og Andrésar Björnssonar.
Illa er ég svikinn, ef þjóðin
telur ekki bókina um skáldið
frá Fagraskógi öðrum kverum
girnilegra á þessum jólamarkaði.
Frá M.Í.R.
V. í. Vútsel. sérfræðingur í
stíflugerð, flytur í kvöld kl. 8.30
fyrirle-stur á vegum MÍR um þró
un raforkumála í Sovétríkjunum
og næstu verkefni á því sviði.
Vútsel hefur starfað að bygg-
ingum stórra raforkuvera i landi
sínu og starfar nú að virkjurar-
rannsóknum hérlendis á vegum
Sameinuðu Þjóðanna.
Fyrirlesturinn verður haldinn i
Þingholtsstræti 27 og þýddur á
íslenzku.
AB-BÓK
Framhald af bls. 2
Bók þessi er, eins og fyrsta bók.
in i Alfræðasafni AB, 200 bls. að
stærð í stóru broti, og í henni eru
ekki færri en 110 myndasíður,
þar af rúmlega sjötíu prentaðar í
fjórum litum.
SÍLDARAFLINN
Framhald af bls. 1.
fram undir áramót og jafnvel
lengur. Bezt er að spá engu um
áframhald veiðanna, en komi
nokkrar góðar hrotur í des-
ember gæti svo farið, að aflinn
nálgaðist fimmtu milljónina.
Aflinn sunnanlands síðast-
liðna viku nam 148.169 upp-
mældum tunnum og er heildar
aflinn sunnanlands orðinn 137.
147 uppmældar tunnur, og er
það einnig miklu meira en var
í fyrra.
PÚSSNINGAR-
SANDUR
VIKURPLÖTUR
Einangrunarplast
Seljum allar gerSir af
pússningarsandi, heim-
flutfan og hlásinn inn.
Þurkaðar vikurplötur og
einangurnarplast.
Sandsalan vi8 Elliðavog sf.
Elliðavogi 115. Sími 30120
HLAÐ
RUM
Hlaðrúm henta allstaðar: i bamaher*
bergið, unglingaherbergið, hjónaher-
bergið, sumarbústaðinn, veiðihúsið,
■barnaheimili, heimavistarskóla, hótel.
Helztu kostir hlaðrúmanna Æru:
■ Rúmin má nota eitt og eitt sér eða
hlaða þeim upp í tvær eða þrjár
hæðir.
H Hægt er að £á aukalega: Náttborð,
stiga eða hliðarborð.
H Innanmál rúmanna er 73x184 sm.
Hægt er að fá rúmin með baðmull-
ar og gúmmídýnum eða án dýna.
H Rúmin hafa þrefalt notagildx þ. e.
kojur,einstaklingsrúm oghj ónarúm.
H Rúmin eru úr tekki eða úr br'enni
(brennir'úmin eru minni ogódýrari).
H Rúmin eru öll í pörtum og tekur
aðeins um tvær mínútur að setja
þau saman eða talca í sundur.
HÚSGAGNAVERZLUN
REYKJAVÍKUR
BRAUTARHOLTI 2 - SÍMI 11940
VÉLAHREINGERNING
r~ Vanir
menn.
Þægilegl
Hjót'eg
Vönduð
vinna.
ÞRIF —
sími 41957
og 33049..
* BiLLINN
ient an Ioeoar
AK